Morgunblaðið - 18.06.2016, Page 10
Morgunblaðið/Ófeigur
Íslendingar um allt land fögnuðu þjóðhátíðardeg-
inum í gær og var fjölbreytt hátíðardagskrá venju
samkvæmt. Fjöldi fólks lagði leið sína niður í miðbæ
Reykjavíkur en þar hófst dagskráin snemma morg-
uns með samhljómi kirkjuklukkna. Ljósmyndari
Morgunblaðsins var á ferð um borgina og myndaði
stemninguna.
Tvær skrúðgöngur lögðu af stað klukkan eitt, önn-
ur frá Hlemmi og niður Laugaveg en hin frá Haga-
torgi. Komu þær loks saman í Hljómskálagarðinum
þar sem boðið var upp á ýmiss konar skemmtanir
fyrir þær fjölskyldur sem þangað lögðu leið sína.
Fjallkonan í ár, Linda Ásgeirsdóttir leikkona, las
ljóð eftir skáldkonuna Huldu við hefðbundna hátíð-
ardagskrá á Austurvelli. Það var árið 1947 sem ávarp
fjallkonunnar var flutt í fyrsta sinn við hátíðahöld á
þjóðhátíðardaginn í Reykjavík. Var það leikkonan
Alda Möller sem þá var valin til að gegna hlutverk-
inu. Hefur sú hefð haldist alla tíð síðan og oftast
komið í hlut ungrar leikkonu að flytja ávarpið.
Morgunblaðið/Þórður
17. júní Dagurinn var haldinn hátíðlegur á Seltjarn-
arnesi þar sem lúðrasveit skundaði um göturnar.
Morgunblaðið/Ófeigur
Frá Austurvelli Fjallkonan í ár á Austurvelli var Linda Ásgeirsdóttir leik-
kona. Sýnt var að vanda frá athöfninni í beinni útsendingu á RÚV.
Morgunblaðið/Ófeigur
Austurvöllur Ólafur Ragnar og Sigurður Ingi
lögðu blómsveig að leiði Jóns Sigurðssonar.
Morgunblaðið/Ófeigur
Gleði Að ýmsu er að huga þegar fjölskyldan leggur leið sína í bæinn 17. júní. Kæti margra leynir sér þó ekki.
Morgunblaðið/Ófeigur
Nammi Stundum mætti halda að Ísland ætti einn fánalit í viðbót, bleikan,
þegar litið er yfir fjöldann á þjóðhátíðardaginn og öðrum tyllidögum.
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Bíladagar Á Akureyri fer um helgina fram hátíðin Bíladagar. Þar má berja
augum marga forvitnilega fararskjóta, líkt og þann sem sjá má hér.
Morgunblaðið/Ófeigur
Herkastalinn Hjálpræðisherinn blés til kaffisölu líkt og hann hefur gert áratugum
saman. Kaffisalan í ár var þó sú síðasta í Herkastalanum, sem nú hefur verið seldur.
Þjóðhátíðardeginum fagnað
Stultur Brugðið á leik í þjóðbúningnum á Árbæjarsafni.
Morgunblaðið/Þórður
Seltjarnarnes Fjallkonan Svana
Helen Björnsdóttir flutti þar ávarp.
10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
Barnaskór Hummel
Litur: Svart, nr 28-38
Hummel Stadil Leather
Verð áður: 11.995
Verð nú 8.995
Dömuskór Rieker
Litur svart, nr. 36-41
Leður hælasandalar
Verð áður: 14.995
Verð nú 12.995
TOLLALÆK
KUN
Skechers Air, herra
Cooled Memory Form
Litur: Burg
Verð áður: 15.995
Verð nú 13.995
Hátíðarhöld á 17. júní