Morgunblaðið - 18.06.2016, Síða 13
Ljósmynd/Reykjanes Seakayak/Brynjar Örn
Við upphafsstað ferðar Erlend fjölskylda á leið í ævintýraferð með Brynjari Erni í veðri eins og það gerist best.
til að hafa stjórn á kajaknum. Svo er
bara róið af stað og aðeins út á með-
an fólk er að ná áttum.“
Í framhaldi leiðir Brynjar ræð-
ara milli skerja, meðfram ströndinni,
inn í vík sem liggur sunnan við Þóru-
staði og að Gerðistangavita. Þar er
farið í land og gengið að vitanum og
síðan er róið í beinni línu til baka.
„Það er mikið fuglalíf við ströndina
sem ég fræði fólk um í ferðunum
ásamt því að segja því frá sögu stað-
arins og næsta nágrennis. Það er
heldur ekki óalgengt að selir fylgi
okkur í róðrinum, öllum til mikillar
ánægju. Það er að vísu upplifun sem
ekki er hægt að lofa í hverri ferð.“
Á góðum dögum skartar Snæ-
fellsjökull sínu fegursta og eykur
enn á náttúruupplifunina. Vestan við
Þórustaði trónir Keilir svo útsýni til
allra átta er flott.
Það veitir ekki síður ánægju að
fá að hoppa út í undir ferðalok og láta
sig fljóta um sinn. Gallarnir sem allir
þurfa að klæðast eru með flotgildi og
dýpi þarna ekki nema um einn meter
svo öllu er óhætt. Sumir láta sér
nægja að standa upp á bátnum og
njóta frelsistilfinningarinnar.
„Ég hef stundum leikið mér að
því þegar ég sigli með pör að láta þau
leysa þá þraut á miðri leið að skipta
um bát. Það reynir á sambandið því
þetta þarf að leysa í góðri samvinnu
án þess að allt fari á hvolf. Þetta er
mjög skemmtilegt.“
Brynjar tekur með sér mynda-
vél í allar siglingar og birtir á Face-
book-síðu Reykjanes Seakayak. Þeir
sem hafa samband í netfang fyrir-
tækisins geta einnig óskað eftir að fá
myndirnar sendar í tölvupósti.
Brynjar segir ánægjulegt þegar
gestir eru að deila myndunum á sam-
félagsmiðlum.
Ævintýraheimur
Flestir gesta Reykjanes Sea-
kayak eru erlendir ferðamenn, flest-
ir bandarískir, en Brynjar segir Ís-
lendinga vera að taka við sér enda sé
þetta skemmtileg upplifun fyrir
vinnu- og vinahópa ekki síður en fjöl-
skyldur. Hann segir það ráðast af
samsetningu hópsins og áhuga hans
hvort ferðin sé í fullri lengd eða stytt.
„Fjölskyldur sem hafa t.d. verið
með ung börn með sér hafa sumar
hverjar óskað eftir styttri ferð og þá
hef ég jafnvel róið í hina áttina, að
golfskálanum hér sunnan við Þóru-
staði. Það er ekki síður falleg leið og
mikið um sker sem gaman er að sigla
á milli. Skerin eru algjör ævintýra-
heimur því það er svo misjafnt
hvernig stendur á flóði og fjöru.“
Elsti gesturinn sem hefur komið í
róður var 79 ára og sá yngsti sex ára
og þá í báti með fullorðnum.
Við sem búum á Suðurnesjum
erum eilíflega minnt á mýtuna um
rokið á svæðinu, en það var víðsfjarri
á Vatnsleysuströndinni kvöldið sem
hjónin voru heimsótt. Kvöldstillan og
fegurðin var slík að það reyndist erf-
itt að slíta sig frá staðnum. Brynjar
segir veðrið oft vera eins og þetta,
sérstaklega þegar kvöldar. Þá er líka
dýrðlegt að halda út á kajak, njóta
blíðu, sólar og friðsæls dýralífs. „Við
miðum við að vindhraði fari ekki upp
fyrir 8 metra á sekúndu þó búnaður-
inn þoli meira. Við erum ekkert að
taka óþarfa áhættu hér.“
– Náið þið oft að fara út? Er
þetta mýta með rokið á Suður-
nesjum?
„Já,“ segja hjónin í kór og eru
fljót til svars. „Það er ekki meira rok
hér en annars staðar. Ég hef búið
mestan hluta ævi minnar í Kópavogi
en amma mín og afi bjuggu hér á
Vatnsleysuströndinni á bæ hér
skammt frá svo ég var mikið hérna
sem krakki. Auðvitað er þetta mikið
bersvæði og fátt sem grípur vindinn
en það er oft mjög fallegt veður
hérna og lygnt hér í lægðinni við
ströndina,“ segir Þórunn Brynja.
Brynjar fer með allt upp í 10
manna hóp í einu, allt eftir samsetn-
ingu hópsins, því hún takmarkast við
stærð galla og fjölda tveggja manna
báta. Hver ferð frá fjöru í fjöru tekur
um eina og hálfa klukkustund, utan
undirbúnings og frágangs að lokinni
siglingu. Sumir vilja sitja lengur í
klæðahúsinu og spjalla um heima og
geyma.
Rúsínan í pylsuendanum eru
svo móttökur Þórunnar Brynju í
landi að lokinni sjóferð. Þar kemur
heimalagaður rabarbarasafi við
sögu, pönnukökur og annað íslenskt,
án þess að þetta sé auglýst eða rukk-
að sérstaklega. Íslensk gestrisni í
hnotskurn.
Ljósmynd/Reykjanes Seakayak/Brynjar Örn
Siglt í átt til kvöldsólar Kvöldin eru líka góður tími til kajaksiglinga.
Tenglar: www.seakayak.is
Facebook: Reykjanes Seakayak
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · www.audi.is
ára
ábyrgð5
Reynsluaktu nýjum Audi A4
Öflugri, sparneytnari og snjallari: Nýr Audi A4 sameinar tækni og fagurfræði með einstökum
hætti. Nýstárlegt Audi Virtual mælaborð með 12,3 tommu háskerpu LCD skjá og Bang &
Olufsen hljómkerfi (valbúnaður) með þrívíðu hljóði gefa innanrýminu áhrifamikið yfirbragð.
Komdu og reynsluaktu nýjum Audi A4 sem er margverðlaunaður um allan heim.