Morgunblaðið - 18.06.2016, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Fjölnota tæki og tól
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
LuTool fjölnota hjakktæki til
viðhalds - rafmagnstæki 300W.
LuTool Pússivél 560W
m/hjámiðju snúning
11.990
LuTool Fjölnota sög 600W fyrir málm,
við, flísar og steypu, 3 blöð fylgja
13.990
LuTool 32mm blað
í fjölnota tæki
390
LuTool fjölnota hjakktæki til viðhalds
- þráðlaus með 12V LioIon rafhlöðu
8.990
7.890
LuTool 12 blaða sett
4.990
LuTool 7 blaða sett
2.490
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sala á skyr.is hefur aukist um 40%
á innanlandsmarkaði, það sem af er
ári. Markaðurinn hefur tekið vel við
nýjum skyr.is próteindrykk sem
Mjólkursamsalan setti fyrst á
markað í Finnlandi fyrr á árinu og í
kjölfarið hér á landi og aukning hef-
ur orðið á sölu á Hleðslu. Allt þetta
hefur orðið til þess að auka sölu á
próteinhluta mjólkurframleiðsl-
unnar og draga úr því mikla bili
sem hefur verið á milli prótein- og
fituhlutans undanfarin misseri.
Útflutningur á skyri hefur í heild
verið í samræmi við væntingar það
sem af er ári, að sögn Ara Edwald,
forstjóra Mjólkursamsölunnar.
Mesta salan er í Finnlandi en þar
voru seld um 5.500 tonn á síðasta
ári. Ari segir að dregið hafi úr
þeirri miklu söluaukningu sem þar
var. Í staðinn komi sala á nýrri af-
urð, skyr.is próteindrykk á fernum.
Ari segir að salan hafi farið mjög
vel af stað. MS sé að selja um 40
þúsund fernur á viku í Finnlandi,
eða um 15 tonn. Heldur meira selst
í Finnlandi en hér á landi.
Framleiðsla á drykknum hófst í
mars og er hann enn sem komið er
aðeins seldur í þessum tveimur
löndum. Skyr.is er orðið þekkt
vörumerki í Finnlandi og það auð-
veldar markaðssetningu nýrra af-
urða, að sögn Ara.
Próteindrykkurinn er fram-
leiddur hjá MS á Selfossi fyrir báða
markaðina. Íslenska skyrið sem selt
er á Finnlandsmarkaði er að mestu
leyti framleitt í Danmörku vegna
tollmúra Evrópusambandsins. Pró-
teindrykkurinn er ekki tollaður á
sama hátt og þessvegna er hann
framleiddur úr íslensku hráefni.
Smjör á ný til Bandaríkjanna
Stöðug aukning hefur verið á sölu
á skyri í Bretlandi en Mjólkur-
samsalan hóf að selja afurðina til
stórrar verslanakeðju í febrúar.
Einnig hefur verið góður vöxtur í
Sviss. Um 200 tonn fóru til Sviss á
síðasta ári og gert er ráð fyrir tvö-
földun í ár. Útflutningurinn til Bret-
lands gæti orðið um 300 tonn.
Útflutningskvóti Evrópusam-
bandsins, sem er 380 tonn, er not-
aður að mestu til útflutnings til
Bretlands en Sviss er utan ESB og
þar er skyrið selt án tolla. Ari nefn-
ir að greiða þurfi 45 krónur í toll af
hverri 170 gramma skyrdós sem
flutt er til ESB, utan kvóta, sem
svari til 90 króna á hvern mjólkur-
lítra sem notaður er til framleiðsl-
unnar.
Útflutningur á smjöri er að hefj-
ast á ný til verslana Whole Foods
Market í Bandaríkjunum. Smjör
var selt þangað fyrir nokkrum árum
en Mjólkursamsalan varð að hætta
honum vegna stórlega aukinnar
sölu fituríkra afurða á innanlands-
markaði svo ekki var til hráefni til
útflutnings. Sambærilegt verð
fékkst fyrir smjörið í Bandaríkj-
unum og hér á landi. Á sínum tíma
voru seld um 40 tonn ári til Whole
Foods.
Dregur úr framleiðslu
Framleiðsla á mjólk er talsvert
umfram sölu á innanlandsmarkaði
og þann útflutning sem hægt er að
stunda fyrir viðunandi verð, að sögn
Ara. Munar þar 16 milljón lítrum á
fitugrunni og 26 milljón lítrum á
próteingrunni. Innvegin mjólk var í
byrjun ársins um 11% yfir fram-
leiðslunni á síðasta ári en dregið
hefur úr aukningu og er innvegin
mjólk nú um 6% yfir framleiðslu í
sömu viku í fyrra.
Hefur offramleiðslan valdið
Mjólkursamsölunni erfiðleikum.
Birgðir safnast upp og undan-
rennuduft og smjör hefur verið flutt
út á heimsmarkaðsverði sem er
mjög lágt um þessar mundir. Birgð-
ir af undanrennudufti voru í mars
rúm 700 tonn og tæp 600 tonn af
smjöri voru til í birgðum.
Ari segir æskilegt að draga enn
frekar úr framleiðslu en tekur fram
að það taki sinn tíma. „Við gerum
okkur vonir um að seinni hluti árs-
ins verði nær því sem var á sama
tíma í fyrra og við náum tökum á
ójafnvægi í framleiðslunni á næsta
ári,“ segir Ari.
Um næstu mánaðamót verður
byrjað að innheimta sérstakt gjald
af hverjum lítra mjólkur, umfram
kvóta, sem bændur leggja inn í af-
urðastöð og mjólkurkvótinn kemst
svo aftur í gildi um áramót. Þá er
gert ráð fyrir að verð fyrir umfram-
mjólkina verði í samræmi við það
sem fyrir hana fæst á markaði.
Ferðamenn hafa áhrif
Til viðbótar of mikilli framleiðslu
hefur ójafnvægi á milli sölu prótein-
ríkra og fituríkra afurða verið
ákveðin áskorun við stjórnun mjólk-
urframleiðslunnar. Nú hefur hægt á
aukningu í sölu fituríkra afurða en
aukning orðið í sölu á próteinhlut-
anum á innanlandsmarkaði. Ari tel-
ur að fjölgun erlendra ferðamanna
hafi hér áhrif en augljóst sé að Ís-
lendingar séu að kaupa meira af
skyri en áður. Þá sé aukning í sölu á
Hleðslu og á nýja skyr.is prótein-
drykknum.
40% aukning í skyri innanlands
Finnskir og íslenskir neytendur hafa tekið vel á móti nýjum próteindrykk úr skyri sem MS hóf
framleiðslu á í mars Aukin sala á próteinríkum afurðum minnkar ójafnvægi í framleiðslunni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Pökkun Mjólkurframleiðslan í landinu hefur verið meiri í ár en nokkurn tímann í sögunni. Starfsmenn MS eiga fullt
í fangi með að gera úr henni verðmætar afurðir fyrir innanlandsmarkað og erlenda markaði.
Morgunblaðið/Þórður
Forstjóri Ari Edwald vonast eftir að jafnvægi komist á í mjólkurframleiðsl-
unni á næsta ári. Kvótakerfið fer aftur að virka um áramót.
Skyr.is Próteindrykkurinn fer vel
af stað í Finnlandi og á Íslandi.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Starfsmenn bandarísku sjónvarps-
stöðvarinnar og fréttamiðilsins Vice-
land verða hér á landi frá 23.-29. júní
við tökur á nýjum sjónvarpsþætti um
íslenska menningu og þjóð. Er þátt-
urinn unninn í samstarfi við pólska
ríkissjónvarpið.
„Þeir eru að fara að gera nýjan
ferðaþátt sem fjallar um íslenska
menningu, um land og þjóð, með
pólskum kynni, súpermódeli sem býr
í New York,“ segir Eva Sigurðar-
dóttir hjá Askja films, íslensku fyrir-
tæki sem kemur að verkefninu.
Súpermódelið sem um ræðir er hin
unga Monika Jagaciak, sem mun
fræða áhorfendur um Ísland og Ís-
lendinga, en sérstakur snúningur
verður tekinn á menningu pólskra
innflytjenda á Íslandi.
Fjöldi íslenskra kvikmyndagerðar-
manna kemur að framleiðslunni, en
tökurnar fara að mestu fram á Suður-
landi og höfuðborgarsvæðinu.
„Helmingurinn af teyminu eru Ís-
lendingar. Þeir koma með kvik-
myndagerðarmenn frá Póllandi. Það
er gott að hafa Íslendinga í hópnum,
þeir hafa þekkinguna, vita hvert á að
fara og hvern á að hringja í ef eitt-
hvað fer úrskeiðis,“ segir Eva, bjart-
sýn um að tökur gangi vel.
Gera kynningar-
þátt um Ísland
Erlend sjónvarps-
stöð sýnir íslenskri
menningu áhuga
Fyrirsæta Hin pólska Monika
Jagaciak er væntanleg til landsins.