Morgunblaðið - 18.06.2016, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
Hágæða hunda- og kattafóður
Hátt kjötinnihald – ekkert kornmeti
Smáralind • Kringlunni • Reykjanesbæ • sími 511 2022 • www.dyrabaer.is
og karl í brú eins og þeir gerast best-
ir. Sólveig Sigurjóna stóð svo í tunnu
ofan á brúarþakinu og sagði farþeg-
um frá því sem fyrir augu bar. „Two
a clock,“ kallaði hún í hljóðnema og
benti fram fyrir bátinn og á stjórn-
borða skaust hrefna upp úr kafinu.
Hryggur hennar klauf hafflötinn og
svo lyfti hún upp sporðinum og
sveiflaði líkt og í kveðjuskyni. Stakk
sér aftur niður í djúpið með miklu
busli. Og aftur kallaði Sólveig eins
og klukkan sló og fólkið leit á bak-
borða. Í þessari leiðsögn þykir nefni-
lega ágætt að farþegar ímyndi sér að
þeir séu í miðjupunkti á klukku og að
hvalirnir séu í frásögn staðsettir eins
og vísarnir væru. Hvalur beint fyrir
framan skip væri tólf á hádegi.
Hvalategundir sem sjást helst á
Skjálfanda eru hnísa, bletthnýð-
ingur, hrefna og einstaka sinnum
hnúfubakur. „Margir farþega okkar
hafa lengi alið með sér þann draum
að sjá hvali. Verða svo hreinlega
uppnumdir þegar skepnurnar birt-
ast þeim,“ segir Hilmar Másson há-
seti á Garðari. Farþegana segir
hann á stundum í uppnámi þegar
þeir sjá steypireyði en hún sé helst á
þessum slóðum síðla vetrar og
snemmsumars. Þegar komið sé fram
á sumarið og farþegarnir flestir séu
þau stórhveli yfirleitt á bak og burt.
Á hinn bóginn beri þó að nefna að
hvalaskoðunarvertíðin sé alltaf að
lengjast. Fyrsta ferð þessa árs var 5.
mars og aldrei áður hefur verið farið
svo snemma.
Dansað við dyntótta hvali
Hrefna á stjórnborða Sporði er
spriklað Eikarbátar og skonnortur
Skipstjóri Gylfi Baldvinsson, karl-
inn í brúnni, sést hér á útkíkkinu.
Hvalafólk Sólveig Sigurjóna Gísladóttir og Hilmar Másson á sjónum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sævarsson
Hvalur Skepnurnar eru stórar og að fylgjast með þeim bylta sér og setja upp hrygg og sporð er tilkomumikið.
Fanney Farþegar á útkíkki á hvala-
slóðinni við Náttfaravíkur.
Hvalatölur
» Farþegar með íslenskum
hvalaskoðunarfyrirtækjum á
síðasta ári voru um 300 þús-
und.
» Því er spá að eftir fjögur ár
muni um 690 þúsund manns
fari í hvalinn. Varfærið mat
gerir ráð fyrir 510 þúsund
ferðamönnum hið mesta.
» Um 16% þeirra sem fóru í
hvalaskoðunarferðir hér árið
2014 voru Þjóðverjar. Frakkar
eru 10%.
Skonnorta Ópal kemur inn til hafn-
ar og siglir hér fullum seglum.
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Hvalaskoðunarbátur Norðursigl-
ingar, Garðar ÞH, var léttur á bár-
unni og skreið liðlega út úr Húsavík-
urhöfn á þessum fallega snemm-
sumarsdegi. Skynja mátti eftir-
væntingu meðal ferðamannanna
sem stóðu úti á dekki, komnir í
þykka vatnshelda kuldagalla og ekki
veitti af, því golan var köld. Þegar
komið var út á Skjálfanda stillti skip-
stjórinn kóssinn til norðvesturs og
tók stefnuna að Náttfaravíkum und-
ir Kinnarfjöllum, en á þeim miðum
heldur hvalurinn sig gjarnan.
Leiðsögn er lærdómur
Á leiðinni út flóann mættum við
tveimur skonnortum Norðursigl-
ingar, Hildi og Ópal. Einnig Fann-
eyju sem er eikarbátur, en slíkir
hafa verið uppistaðan í flota Norður-
siglingar og reynst vel. Eru þægileg-
ir og fimir í öllum snúingum eins og
þarf þegar þarf nánast að dansa í
kringum dyntótt hvelin, þegar þau
koma upp á yfirborðið og sprikla
sporði beint fyrir framan bátana eða
við síður þeirra. Og þetta hefur að-
dráttarafl, því þúsundir manna fara í
hvalaskoðunarferðir með Norður-
siglingu frá Húsavík, sem hefur ver-
ið kynnt sem höfuðborg hvalaskoð-
unar í heiminum.
„Leiðsögn í hvalaskoðunarferð er
talsverður lærdómur. Ég hóf störf
hér í vor og áður en ég fór sjálf með
ferðamenn þurfti ég að læra ákveðið
handrit, ef svo má segja. Bæði varð
ég að lesa mér til um hvali, fugla og
staðhætti og fara í nokkrar ferðir
með mér reyndara fólki,“ segir Sól-
veig Sigurjóna Gísladóttir sem ann-
aðist leiðsögn í leiðangrinum þegar
Morgunblaðið var með í för.
Uppnumnir farþegar
Skipstjóri á Garðari var Gylfi
Baldvinsson; gamalreyndur jaxl sem
Tvö stórhveli sáust fram undan
Hauganesi við Eyjafjörð á fimmtu-
dag. Það er ekki algeng sjón, held-
ur gerist slíkt bara einu sinni eða
tvisvar á sumri. Um morguninn
voru þau í samfloti en síðar um dag-
inn skiptu þau liði.
Að sögn skipverja á
hvalaskoðunarbátnum Níels Jóns-
syni EA-106, sem gerður er út frá
Hauganesi, en þeir voru fyrstir til
að sjá dýrin, voru þau á að giska 20
metra löng.
Líklega er hér um ungar steypi-
reyðar að ræða, en bakhyrnan á
öðrum hvalnum þykir þó minna
töluvert á langreyði, er fremur há
og aftursveigð. Það hefur vakið upp
þá spurningu hvort verið geti að um
blending steypireyðar og lang-
reyðar sé að ræða, eins og fannst í
Skjálfandaflóa sumarið 2011 og
sást þar síðast fyrir nokkrum dög-
um, því bakhyrna steypireyðar er
að jafnaði mun óverulegri.
Að sögn fréttararitara Morgun-
blaðsins verða myndir af skepn-
unum sendar til Hafrannsóknar-
stofnunar til nánari greiningar.
Verður það gert eftir helgina.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Stórhveli Annað stórhvelið á ferð, með Hauganes við Eyjafjörð í baksýn.
Stórhveli á ferðinni
við Hauganes