Morgunblaðið - 18.06.2016, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
19.490
Verð
Verkfærasalan - Síðumúla 11 - 560-8888 - www.vfs.is
2.990
Verð
WERA Skrúfjárnasett 6 stk
Mínus skrúfjárn frá 3.0 - 6.5mm
og plús PH1 pg PH2.
WERA 031280
Topplyklasett 171stk
Vandað topplyklasett frá BATO með skröllum í
stærðum 1/2", 3/8" og 1/4". Fjöldi hluta er 171 stk.
BT 1171
Frábær
verð!
Jarðneskar leifar Lawrence Stack,
slökkviliðsmanns í New York, voru í
gær bornar til grafar. Stack er einn
þeirra 343 slökkviliðsmanna sem
týndu lífi í árás hryðjuverkamanna á
Tvíburaturnana 11. september 2001.
Lík hans fannst á sínum tíma aldr-
ei og var eiginkona hans því búin að
gefa upp alla von um að geta jarðað
mann sinn. Nýverið leitaði fjölskyld-
an hins vegar til blóðbanka í borg-
inni og staðfestu starfsmenn þar að
þeir ættu enn lífsýni úr slökkviliðs-
manninum, en Stack var mjög iðinn
við að gefa blóð er hann lifði. Var líf-
sýnið afhent ættingjunum og það
jarðað að viðstöddu fjölmenni.
„Nú getum við loks lagt hann til
hvílu,“ sagði Michael, sonur Stack,
við fjölmiðla vestanhafs.
Lawrence Stack var 58 ára gamall
er hann lést þennan örlagaríka dag
og hafði hann þá unnið sem slökkvi-
liðsmaður í New York í 33 ár.
Lagður til hvílu 15
árum eftir andlát
AFP
Lést í New York 11. september 2001
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Íröskum hersveitum hefur tekist að
sækja inn í miðborg Fallujah, en
borgin hefur verið undir stjórn Ríkis
íslams frá árinu 2014. Er um að
ræða næstfjölmennustu borgina á
valdi vígamanna í Írak á eftir Mosul
í norðurhluta landsins.
Harðir bardagar hafa geisað á
milli íraskra hermanna og víga-
manna Ríkis íslams undanfarnar
vikur við Fallujah, eða allt frá því að
stjórnvöld í Bagdad hrundu af stað
stórsókn hersins. Er markmið henn-
ar að brjóta liðsmenn samtakanna á
bak aftur og endurheimta þannig
borgir og bæi landsins.
Bandarískar orrustuþotur veittu
hermönnum á jörðu niðri mikilvæga
aðstoð í gær, líkt og fyrri daga, og
tókst þeim að ná stjórnsýslubygg-
ingum í Fallujah á sitt vald. Breska
ríkisútvarpið (BBC) greinir frá því
að hermenn hafi endurheimt ráðhús-
ið og dregið fána Íraks þar að hún.
Ráðherra lýsti yfir sigri
Ashton Carter, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, segir að
írösku hermönnunum hafi tekist að
ná talsvert stórum hluta borgarinn-
ar á sitt vald en bætti við að nokkrir
bardagar væru þó enn eftir.
Haider al-Abadi, forsætisráðherra
Íraks, lýsti í gærkvöldi yfir sigri á
sama tíma og hermenn héldu áfram
að sækja inn í borgina. „Öryggis-
sveitum hefur tekist að styrkja
stöðu sína inni í borginni en það eru
þó enn nokkur svæði eftir sem þörf
er á að hreinsa á komandi tímum,“
hefur fréttaveita AFP eftir ráðherr-
anum.
Sjónarvottar segjast hafa séð
hermenn sækja inn í mosku skammt
frá ráðhúsinu. Mætti þeim þar hörð
mótspyrna, s.s. leyniskyttur,
sprengju- og skotárásir.
Breskar sprengjur í Sýrlandi
Orrustuflugvélar Breta gerðu í
fyrsta skipti í gær loftárásir á skot-
mörk tengd Ríki íslams innan
landamæra Sýrlands. Var um að
ræða þotur af gerðinni Tornado og
tóku þær á loft frá herflugvelli í
Kýpur. Skotmarkið var olíuvinnslu-
svæði í austurhluta Sýrlands. For-
setar Bandaríkjanna og Frakklands
fögnuðu mjög þessum leiðangri
Breta.
Komnir vel inn í Fallujah
Íraskar hersveitir hafa sótt inn í miðborgina Forsætisráðherra landsins lýsti í
gærkvöldi yfir sigri á vígamönnum í Fallujah Bretar varpa sprengjum á Sýrland
AFP
Vígvöllur Íraskar hersveitir létu sprengjum rigna yfir suðurhluta Fallujah um leið og hermenn sóttu inn í borgina.
Reinhold Hann-
ing, 94 ára fyrr-
verandi fanga-
vörður í
Auschwitz-
Birkenau útrým-
ingarbúðunum í
Póllandi, hefur
verið dæmdur í
fimm ára fangelsi
fyrir aðild að
dauða um 170
þúsund manns á árunum 1942-1944.
„Hann vissi vel að saklaust fólk
var á degi hverjum í Auschwitz myrt
í gasklefum,“ sagði dómarinn er
hann las upp dóminn, en sjónar-
vottar segja Hanning hafa þagað
þunnu hljóði og ekki sýnt neinar til-
finningar þegar dómurinn var kveð-
inn upp yfir honum.
Í ákæru saksóknara kom fram að
á tímum síðari heimsstyrjaldar hafi
Hanning séð um að ákveða hvaða
fangar skyldu veljast til erfiðisvinnu
og hverjir ættu að fara beinustu leið
í gasklefana. khj@mbl.is
ÞÝSKALAND
SS-vörður fékk 5 ára
fangelsisdóm
Reinhold
Hanning
Francois Hol-
lande, forseti
Frakklands, heit-
ir því að auka ör-
yggi lögreglu-
manna, en
fjölmargir lög-
reglumenn hafa
látið lífið í land-
inu undanfarið.
„Lögreglu-
menn hætta lífi
sínu. Við skuldum þeim virðingu og
þakklæti,“ sagði forsetinn er hann
ávarpaði þá sem viðstaddir voru
minningarathöfn um par lögreglu-
manna sem nýverið var stungið til
bana á heimili sínu að viðstöddu
þriggja ára barni sínu. Barnið slapp
ómeitt frá ódæðinu, en árásarmað-
urinn var íslamisti.
„Lögreglumenn verða að geta
varið sig þegar þeir eru ekki á vakt.
[...] Það verða gerðar ráðstafanir til
að tryggja nafnleynd þeirra og um
leið öryggi,“ sagði Hollande.
FRAKKLAND
Tryggja þarf öryggi
lögreglumanna
Francois
Hollande
„Landslag stjórnmála hefur því miður breyst mjög til
hins verra undanfarin ár,“ sagði Erna Solberg, forsætis-
ráðherra Noregs, á blaðamannafundi sem haldinn var í
Ósló í gær. Boðaði hún þar stærstu hernaðaruppbygg-
ingu Noregs frá lokum kalda stríðsins, en varnarmála-
ráðuneyti landsins hefur í hyggju að taka í notkun fjöl-
margar nýjar orrustuþotur og kafbáta til að stemma
stigu við þeirri ógn sem nú stafar af Rússum.
„Við eigum nágranna í austri sem verður sífellt óút-
reiknanlegri, styrkir hernaðarmátt sinn og sýnir vilja til
að nota hervald sem afl í stjórnmálum,“ sagði hún og
benti á að núverandi hernaðargeta Noregs dygði ekki til
að takast á við þetta breytta landslag alþjóðastjórnmála.
Orrustuþotur, kafbátar og leitarflugvélar
Samkvæmt fréttaveitu AFP er nú til skoðunar að
kaupa alls 52 orrustuþotur af gerðinni F-35, fjóra kaf-
báta og nýjar kafbátaleitarvélar sem eiga að koma í stað
sex eldri flugvéla af gerðinni P-3 Orion. Norska þingið
þarf að samþykkja áætlunina svo kaupin fari í gegn.
Efla varnir gegn Rússum
AFP
Bandamenn Erna Solberg hitti
John Kerry á fundi í Ósló.
Forsætisráðherra Noregs vill hernaðaruppbyggingu