Morgunblaðið - 18.06.2016, Side 31
Elsku amma, við erum hér
tveir saman komnir frændurnir
og langar okkur bara að segja að
það eru mikil forréttindi að hafa
fengið að alast upp í sveitinni hjá
ykkur afa sem krakkar og eru
það bestu æskuminningar sem
hægt er að hugsa sér.
Það líður varla sá dagur þar
sem ekki er hugsað um sveitina í
þá tíð. Allt sem við gátum lært
og tileinkað okkur hjá ykkur
hefur klárlega nýst vel. Erfitt er
að segja hvar við værum án þín,
en við værum a.m.k. ekki þeir
sömu í dag.
Öll þau frí sem við fengum
voru gleðitímar því þeim var
mestmegnis varið með ykkur í
sveitinni, því hvergi annars stað-
ar vildum við eyða tímanum okk-
ar en þar. Það sem við gátum
verið að prakkarast og gera af
okkur í sveitinni er rótin að öll-
um þessum samansöfnuðu minn-
ingum sem við eigum af þér og
afa.
Manstu þegar við tveir og
Anna Sigga vorum seint að
kvöldi ofan í skurði að ná gæs-
inni? Gæsinni sem við ætluðum
að bjarga því hún gat ekki flog-
ið? Við munum hversu ískalt það
var þetta kvöld, farið var að
rökkva vel og við reyndum að
hamast lengi vel við að ná henni.
Við óðum út í skurðinn, vatnið
náði yfir stígvélin og alveg upp
að mitti sem gerði okkur renn-
andi blauta.
Við náðum henni nú að lokum
eftir mikið erfiði og komum með
hana öll ísköld heim með tárin í
augunum af kulda og skottið á
milli lappanna.
Þú sem hefur alltaf verið svo
barngóð settir okkur í heitt bað,
lést okkur fá hlý föt og heitt að
drekka. Þú varst nú ekki lengi
að bjarga börnunum þínum
þetta kvöldið.
Já, heldur betur voru það góð-
ir tímar, amma. Við vitum að þú
munt vaka yfir okkur og fylgjast
með okkar komandi tímum. Þó
við vildum óska þess að þú værir
ennþá hér erum við samt glaðir
að þú upplifðir ekki mörg og
kvalafull elliár og fékkst að fara
í rólegum svefni.
Við elskum þig, amma, takk
fyrir allt.
Þorsteinn Ingi Ein-
arsson og Jón Gunnar
Sæmundsson.
Elsku gamla vinkona mín.
Mig langar að senda þér nokkur
fátækleg kveðjuorð, en ég gæti
hæglega skrifað um okkur hálfa
bók. Okkar kynni hófust árið
1971 og héldust alveg þar til þú
fluttist allt í einu til himnaríkis
bara einn tveir og bingó, án þess
að tala við mig, svona akkúrat
létum við þegar við hittumst og
vorum ekki í neinum vandræð-
um með smá sprell og hlógum
svo að öllu saman. Alda mín, þú
varst vön að koma til mín á þorr-
anum og vera hjá mér í tvær til
þrjár nætur, við fórum í búða-
ráp, fórum út að borða og gerð-
um okkur huggulega daga. Þú
komst til mín í apríl og við áttum
yndislega daga í góðu veðri hér
úti á pallinum og var okkur bor-
inn matur út af unnusta mínum
og Töru, elsta ömmubarninu
mínu, og þarna létum við sólina
leika við okkur og létum fara vel
um okkur.
Hvernig verður þorrinn án
þín næst? Ég líklega kveiki bara
á stóra hvíta kertinu mínu og fer
með bænina sem okkur öllum
var kennd og minnist þín og
okkar góðu stunda með söknuði,
annað er ekki hægt eftir árin
okkar saman sem voru ekkert
annað en skemmtileg. Kæra vin-
kona, þú komst líka til mín á
sorgarstundum og gerðir þær
léttari með þínum kærleik og
sprelli og fallegum huggunarorð-
um, sjálf varst þú búin að ganga
í gegnum ýmislegt misskemmti-
legt um ævina og áttir gott með
að setja þig í spor annarra.
Jæja, ljúfan mín, með söknuði
kveð ég þig, elsku Alda mín.
Megi Guð almáttugur varðveita
minningu þína, sálmaskáldin sjá
um síðustu kveðjuorðin frá mér
og unnusta mínum.
Drottinn, vér þökkum þína miklu náð,
í þinni kærleikshönd er allt vort ráð.
Þökk fyrir leiðsögn þína um lífsins
braut,
ljós þitt, er skín í gegn um hverja
þraut.
Þökk fyrir ást, er tengir hönd við
hönd
og hjartaþel, er knýtir bræðrabönd.
Þökk fyrir góðan vin, er var oss kær,
vináttu, er lífi dýrast gildi fær.
Þökk sé þér, Guði!
Lof sé þér, Guð, sem veitir ljós og líf,
líknandi höndum býrð oss skjól og
hlíf,
Lof sé þér fyrir vinar traust og tryggð,
trú, von og kærleik, lífsins æðstu
dyggð.
Lof sé þér fyrir lögmál sannleikans,
er leggur þú í vitund sérhvers manns.
Lof sé þér fyrir gengin gleðispor,
gæfurík minning fyllir hjörtu vor.
Lof sé þér, Guð.
(Ágúst Böðvarsson)
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið
og þín er liðin æviönn
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg,
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
(Höf. ók)
Ingibjörg H.W.
Guðmundsdóttir.
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
✝ Vilhjálmurfæddist á
Sauðárkróki 12.
nóvember 1971.
Hann lést á heim-
ili sínu 12. júní
2016.
Hann var sonur
hjónanna Viðars
Vilhjálmssonar, f.
20.12. 1949, d.
20.1. 2000, og Sig-
ríðar Kristjáns-
dóttur, f. 11.1. 1952. Hann átti
tvö systkini: 1) Rósu Dóru, f.
3.6. 1973, gift Halldóri Þ.
Gestssyni. Þau eiga sjö börn
og eitt barnabarn. 2) Kristján
Heiðar, f. 10.10. 1981.
Villi Siggi var í sambúð með
Kolbrúnu Evu Pálsdóttur, f.
14.10. 1976. Foreldrar hennar
eru Páll Guðbergsson, f. 5.10.
1953, og Aðalheiður Ósk Vals-
dóttir, f. 28.3.
1955. Börn Villa
og Kollu eru: Við-
ar, f. 3.5. 1999,
Inga Vala, f. 5.6.
2002, og Rakel
Eva, f. 4.6. 2013.
Villi starfaði
lengst af sem bíl-
stjóri hjá Vöru-
miðlun á Sauðár-
króki, olíubílstjóri
hjá Skeljungi Ak-
ureyri og síðast í bílabúð KS í
Kjarnanum Sauðárkróki Hann
tók þátt í rallýkeppnum , var í
4x4 klúbbnum og hafði mjög
gaman af að fara í jeppaferð-
ir, keyra um á mótorhjólum,
krossurum, og allskyns útivist.
Útför Vilhjálms fer fram frá
Sauðárkrókskirkju í dag, 18.
júní 2016, og hefst athöfnin
klukkan 14.
Þegar ég sit hér ein í stof-
unni okkar hellast yfir mig svo
ótal margar minningar liðinna
ára, elsku hjartans ástin mín.
Ég myndi vilja óska þess að
margt í sambandi okkar hefði
verið öðruvísi en því er ekki
hægt að breyta. Við vorum al-
gjörlega umvafin ást.
Ég vil trúa því langt inn að
hjartarótum að þér líði nú bet-
ur, bæði á líkama og sál, elsku
ástin mín. Og þegar sá tími
kemur hittumst við á ný.
Ég munum ávallt varðveita
allar okkar minningar, því við
eigum þær svo ótalmargar.
Takk fyrir að hafa verið til
og gefið okkur þessi yndislegu
börn sem við eigum saman, ást-
in mín. Ég mun gera allt sem
ég get til þess að hjálpa börn-
unum okkar í gegnum þessa
miklu sorg.
Ég á örugglega eftir að biðja
til þín, ástin mín, um styrk í
öllu þessu ferli.
Ég get varla lýst því með
orðum hversu sárt við söknum
þín.
Ég reyni að útskýra fyrir
litla skottinu okkar að nú sé
pabbi orðinn engill á himninum.
Við munum aldrei gleyma þér.
Ef ég ætti eina ósk.
Ég myndi óska mér
að fengi ég
að sjá þig brosa á ný,
eitt andartak á ný í örmum þér.
Á andartaki
horfin varstu mér.
(Hannes Örn Blandon)
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Ég og þú, þú og ég.
Þín
Kolbrún (Kolla).
Elsku pabbi, við elskum þig
svo mikið að það er ekki eðli-
legt. Ef við gætum þá værum
við til í að hitta þig og sjá fal-
legu augun þín, fallega brosið
þitt og heyra yndislegu röddina
þína segja við okkur að þú
elskir okkur þúsund milljón
sinnum, áður en þú myndir
kveðja okkur. En ef við ættum
eina ósk þá væri sú ósk að við
hefðum átt fleiri stundir með
þér og sagt oftar við þig að við
elskum þig.
Svo er rosaerfitt að hætta að
hugsa um þennan hræðilega
dag þegar þú fórst frá okkur,
þá brast hjartað í okkur í þús-
und parta og það er mjög erfitt
að laga eitthvað sem er
skemmt eða brotið en við mun-
um öll reyna að hjálpast að og
reyna að laga það, því við eig-
um öll svo margar fallegar
minningar um þig og ást til þín
sem hjálpar okkur. Ef við gæt-
um þá myndum við óska þess
að allar stjörnurnar á himn-
inum og allar plánetunnar
hyrfu bara til þess að þú gætir
verið hérna enn hjá okkur og
við gætum sagt þér aftur og
aftur hversu heitt við elskum
þig út fyrir endimörk alheims-
ins. Við munum aldrei gleyma
þér og við munum alltaf hugsa
um þig hvað sem gerist og ég
vona að þú verndir okkur jafn
mikið og þú gerðir þegar þú
varst hjá okkur.
Hann var ekki hetja eða
þekktur af heiminum. En hann
var stóra hetjan okkar og var
alltaf elskaður.
Hvíldu í friði, elsku pabbi,
við munum aldrei gleyma þér.
Risa knús í þitt hús.
Viðar, Inga Vala og Rakel
Eva Vilhjálmsbörn.
Elsku Villi minn.
Mikið vildi ég óska þess að
geta hitt þig einu sinni enn og
fá að taka utan um þig og segja
þér hvað mér þykir vænt um
þig. Nú get ég bara haldið utan
um minningarnar og ég kveð
þig með einni fallegri minn-
ingu: Ég og þú uppi á eldhús-
borði í Birkihlíðinni í náttföt-
unum og pabbi að gefa okkur
sanasól, lét okkur svo spenna
greipar og fara með bænina
sem hann kenndi okkur.
Ó, Jesús bróðir besti
og barnavinur mesti,
æ breið þú blessun þína
á barnæskuna mína.
(Páll Jónsson.)
Hún Dóaddamía (Rósa Dóra
mín, eins og þú kallaðir mig
þegar við vorum lítil) vonar að
nú líði þér vel og veit að pabbi
og fleiri munu taki á móti þér.
Ég mun gera mitt besta til
að halda utan um Kollu, Viðar,
Ingu Völu, Rakel Evu, mömmu
og Kristján.
Og eins og Heiðbjört amma
sagði alltaf: Guð varðveiti þig.
Þín systir
Rósa Dóra.
Þegar raunir þjaka mig,
þróttur andans dvínar,
þegar ég á aðeins þig,
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú,
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni
láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
(Gísli á Uppsölum.)
Það eru þung skref að fylgja
ungum frænda síðasta spölinn.
Glaðlyndum og viðkvæmum
dreng sem ég gætti sumarlangt
þegar hann var á öðru aldurs-
ári. Dreng sem ég fékk að
fylgjast með vaxa úr grasi,
verða að fullorðnum manni og
fjölskylduföður.
Fjölskylduföður með mikla
föðurást og stolt til barna
sinna.
Hvíl í friði, elsku frændi, og
hafðu þakkir fyrir allt.
Ég votta ættingjum og vin-
um mína dýpstu samúð og bið
Guð að blessa syrgjandi móður,
börn, unnustu, systkini og aðra
nána ættingja. Minningin lifir
um góðan dreng.
Kristín G.
Friðbjörnsdóttir.
Vilhjálmur S.
Viðarsson
Kristín Ellerts-
dóttir var eiginkona
uppáhalds frænda
míns og stórvinar pabba og fjöl-
skyldu minnar allrar. Hún var
aldrei kölluð annað en Stína hans
Fúsa.
Hún var mér ætíð góð og þau
hjónin ómissandi ættingjar við
stóratburði lífs míns s.s. ferm-
ingu og útskriftir, stórafmæli og
slíkt.
Að vísu tvinnast minningar
mínar um Stínu við samveru-
stundir við þau bæði svona í flest-
um tilfellum, í sveitinni, í hest-
húsinu, heima hjá þeim í
Rauðagerði, í nokkrum fjölskyl-
duútilegum ofl.
Eitt sumar er þó undantekn-
ing að því leyti að ég fékk vinnu í
þvottahúsi Sláturfélags Suður-
lands sem var á horni Frakka-
Kristín Valgerður
Ellertsdóttir
✝ Kristín Val-gerður Ellerts-
dóttir fæddist 10.
desember 1934.
Hún lést 28. maí
2016.
Útför Kristínar
fór fram 9. júní
2016.
stígs og Hverfis-
götu. Þar fékk ég að
njóta samveru, sam-
vinnu og kærleiks
hennar. Þær stöllur
sem þar unnu voru
mér óskaplega góð-
ar. Met ég þetta
tækifæri mikils þ.e.
að fá að kynnast
Stínu á annan hátt
en sem konu frænda
míns. Í þvottahús-
inu var hlegið, gert grín, heims-
málin leyst en þó unnið af miklu
kappi.
Skondnari minning öðrum
fremur snýr að ákvörðun um stað
fyrir hina hinstu hvílu og snérist
um útsýni, ég geng út frá því að
útsýnið sé nægt þar sem hún er
núna.
Í gegnum tíðina hef ég oftlega
haft orð á ríkidæmi mínu sem
fólgið er í fólki frekar en fjármun-
um – Stína og Fúsi frændi minn
juku verulega á það ríkidæmi.
Elsku fjölskylda – Pabbi, Elli,
Jóhanna, Elín og allur ættleggur,
kærleiki Guðs umvefji og huggi í
sorginni og blessi minningu
þeirra beggja.
Guðlaug Tómasdóttir.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi lið-
ur, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá
inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Minningargreinar
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐRÚN STEINS JÓNSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Sólvangi,
áður til heimilis að Brunnstíg 5,
Hafnarfirði,
lést laugardaginn 11. júní.
Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 21. júní kl. 13.
.
Guðbjörg Stella Guðmundsdóttir, Gísli Guðmundsson,
Ólafur Haukur Matthíasson, Eva Vilhelmsdóttir,
Lilja Matthíasdóttir, Jón Þórir Jónsson,
Oddrún Pétursdóttir, Eggert Norðdahl,
Kristbergur Óðinn Pétursson,
Sigurður Ómar Pétursson,
Guðlaug Hrönn Pétursdóttir,
barnabörn, langömmubörn
og langalangömmubörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GESTUR VIGFÚSSON,
lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum,
Mosfellsbæ, 10. júní.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju
mánudaginn 27. júní klukkan 13.
.
Svanur Marteinn Gestsson,
Valgeir Gestsson, Jónína Rós Guðmundsd.,
Vilbergur Vigfús Gestsson, Anna Lilja Hafsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ANDRÉS HAUKUR ÁGÚSTSSON
frá Hemlu, V-Landeyjum,
til heimilis að Seljahlíð, Hjallaseli 55,
lést á Landspítalanum 10. júní síðastliðinn. Útför hans fer fram
frá Seljakirkju mánudaginn 20. júní klukkan 15.
.
Aðalbjörg Kristjánsdóttir,
Ágúst Ingi Andrésson, Bryndís Jónsdóttir,
Ingibjörg Andrésdóttir, Hreinn Guðmundsson,
Guðjón Már Andrésson,
Helgi Magnússon,
afa- og langafabörn.