Morgunblaðið - 18.06.2016, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Snævar Jón Andrésson
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti
undirbúnings og framkvæmd
útfarar ásamt vinnu við dánar-
bússkiptin. Við þjónum með
virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
systir, dóttir og tengdadóttir,
KOLBRÚN JÓNSDÓTTIR
kennari,
Hamragerði 8, Akureyri,
lést á heimili sínu mánudaginn 6. júní.
Útförin fer fram föstudaginn 24. júní frá Akureyrarkirkju klukkan
13.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Heimahlynningu Akureyri.
.
Kristinn Hreinsson,
Ágústa Kristinsdóttir, Arnar Geir Halldórsson,
Arna Kristinsdóttir,
María Daníelsdóttir,
Sigurjóna Kristinsdóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
ÁRNI SIGURSTEINSSON,
f.v. framkvæmdastjóri,
áður til heimils að Grenigrund 25,
Selfossi,
lést á Fossheimum, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, að kvöldi
mánudagsins 13. júní. Útför fer fram frá Selfosskirkju
fimmtudaginn 23. júní klukkan 14.
.
Kristín Árnadóttir,
Br. Tryggvi Árnason, Hreindís E. Sigurðardóttir,
Gunnar Þór Árnason, Anna Sigurðardóttir,
Árni Árnason, Ragnhildur Magnúsdóttir,
Sigrún Árnadóttir, Sveinbjörn Friðjónsson,
Sólrún Árnadóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
okkar ástkæru eiginkonu, móður,
tengdamóður og ömmu,
KRISTÍNAR ERNU GÍSLADÓTTUR,
Nesbala 118,
Seltjarnarnesi.
.
Örn Baldursson,
Gísli Þór Arnarson, Eyrún S. Gestsdóttir,
Þórður Bjarki Arnarson, Sigurhanna Kristinsdóttir
og barnabörn.
✝ SumarliðiKristmundsson
fæddist í Ólafsvík
9. desember 1954.
Hann lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 10. júní
2016.
Foreldrar hans
voru Laufey Ey-
vindsdóttir, f. 23.
sept. 1928, d. 9.
des. 1999, og
Kristmundur Halldórsson, f.
13. ágúst 1928, d. 11. feb. 1997.
Systkini Sumarliða eru
Brynjar, f. 4. okt. 1952, Ægir,
1979, maki Hermína Kristín
Lárusdóttir. Börn: Sumarliði,
Viktor Andri og Freydís Lilja.
2) Ingibjörg, f. 18. júní 1981,
maki Einar Hjörleifsson. Börn:
Eyrún Lilja og Óliver Nói. 3)
Þorkatla Kristín, f. 21. júní
1986, maki Baldur Ágúst Sig-
þórsson. Börn: Hekla Mist og
Hinrik Freyr.
Sumarliði ólst upp í Ólafsvík
og bjó þar alla tíð. Eftir að
hefðbundinni skólagöngu lauk
fór hann á sjóinn og var að-
allega á bátum sem voru í eigu
föðurfjölskyldu hans. Árið 1990
stofnaði hann ásamt bræðrum
sínum fyrirtækið Steinunni hf.
sem gerir út samnefndan bát
og réri hann á honum fram í
maí 2015.
Útför Sumarliða fer fram frá
Ólafsvíkurkirkju í dag, 18. júní
2016, kl. 14.
f. 1. júlí 1956, Þór,
f. 16. júlí 1958, Óð-
inn, f. 15. mars
1960, Matthildur
Sigurjóna, f. 9. júlí
1962, Laufey, f. 30.
sept. 1963, Kristín,
f. 9. janúar 1967,
Halldór, f. 21. ágúst
1968. Sammæðra
Steinþór Ómar Guð-
mundsson, f. 9. júní
1950.
Sumarliði kvæntist Kristínu
G. Jóhannsdóttur 2. júlí 1977, f.
19. okt. 1957. Börn þeirra eru
1) Kristmundur, f. 26. okt.
Ó, elsku pabbi minn, nú er
komið að kveðjustund, ég vildi
óska þess að hún þyrfti ekki að
vera strax. Ég vil þakka fyrir
allar þær góðu stundir sem við
áttum saman. Allt frá því ég
man eftir mér sem lítil stelpa
var ég alltaf í humátt á eftir
þér, ef þú varst ekki úti á sjó.
Hvort sem það var að fara á
rúntinn sem við gerðum ósjald-
an, kíkja á netaverkstæðið,
smíða, þvo bílinn, vinna í garð-
inum eða hvað sem var. Ef þú
varst að bardúsa eitthvað var
ég mætt til að sjá hvað þú
varst að gera og fékk ég alltaf
að hjálpa og prófa hlutina sem
þú varst að gera.
Í öllum þessum samveru-
stundum okkar hefur þú kennt
mér ótalmarga hluti sem ég
hefði annars aldrei lært. Þú
varst alltaf fyrstur mættur ef
einhvern vantaði aðstoð og
þurfti oftast ekki að biðja þig
um hana, þú bara komst og
kláraðir hlutina. Enda hefur þú
hjálpað okkur við ótal hluti í
húsinu.
Þú naust þín alltaf svo vel
uppi í bústað, það var svo gam-
an að koma og vera hjá ykkur
mömmu þar. Þú hafðir alltaf
nóg fyrir stafni, ef þú varst
ekki að smíða, mála eða vinna í
garðinum þá voruð þið í göngu-
ferðum eða að hjóla. Ég er svo
glöð að Eyrún og Óliver fengu
líka að skottast í kringum þig
eins og ég fékk við öll hin ýmsu
verk sem til féllu. Það truflaði
þig aldrei að hafa litla putta
sem vildu líka fá að bora,
negla, mála eða hvað sem þú
varst að gera, alltaf gafstu þér
tíma til að leyfa þeim að prófa
líka.
Þú varst alltaf svo mikið gef-
inn fyrir barnabörnin, ég man
enn í dag brosið og gleðisvipinn
á þér þegar þú komst og sást
krakkana mína í fyrsta sinn á
fæðingardeildinni. Ekki þurfti
að hafa áhyggjur af krökkunum
ef þú varst nálægt þá sást þú
um að gæta þeirra og leika við
þau. Þeim fannst nú ekki leið-
inlegt að komst í gúmsskálina
hjá þér, nú verður mamma að
taka við sem „gúmsstjóri“.
Krakkarnir elskuðu að fara
með ykkur niður að á að veiða
með háfinum og enduðu oft
með að fá að vaða í ánni.
Elsku pabbi, þakka þér fyrir
að hafa leitt mig svo vel í gegn-
um lífið og kennt mér svo
margt. Næstu spor verða mjög
erfið án þín en ég trúi því að þú
munir vaka yfir okkur og gæta
okkar. Þú munt ávallt eiga
stóran stað í hjörtum okkar.
Mér tregt er um orð til að þakka
þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og
blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
Ó, elsku pabbi, ég enn þá er
aðeins barn, sem vill fylgja þér.
Þú heldur í höndina mína.
Til starfanna gekkstu með glaðri
lund,
þú gleymdir ei skyldunum eina
stund,
að annast um ástvini þína.
Þú farinn ert þangað á undan inn.
Á eftir komum við, pabbi minn.
Það huggar á harmastundum.
Þótt hjörtun titri af trega og þrá,
við trúum, að þig við hittum þá
í alsælu á grónum grundum.
(Hugrún)
Elska þig, pabbi minn.
Þín,
Ingibjörg.
Elsku pabbi þá er komið að
kveðjustundinni, mun fyrr en
mig hafði órað fyrir, við áttum
margar góðar stundir saman
og fyrir þær verð ég ævinlega
þakklát.
Þú og mamma voruð alltaf
svo dugleg að kalla okkur
systkinin í mat og fjölskyldur
okkar, mikið var hlegið, talað
og borðað. Þú ert nefnilega
svo góður kokkur, það var allt-
af svo gott að koma og fá að
borða hjá þér, eins og á 5
stjörnu veitingahúsi, og sós-
urnar þínar, pabbi, eru þær
bestu. Ég vona að ég nái þeim
einn daginn, ég lærði mikið af
þér í eldhúsinu enda stóð ég
oft yfir þér að smakka til sós-
urnar og horfa á hvernig þú
gerðir þetta.
Það er gott að eiga góðar
minningar og það á ég svo
sannarlega, allar bústaðarferð-
irnar sem við fórum í, ferð-
irnar sem við fjölskyldan höf-
um farið saman í til útlanda og
hér innanlands. Þið mamma
voruð svo dugleg að skapa
minningar með okkur og ég
gæti talið endalaust upp þær
stundir og tíma sem við áttum
saman og þær ylja mér um
hjartarætur.
Barnabörnin þín þau voru
þér svo dýrmæt og þú svo góð-
ur við þau, alltaf tilbúinn með
eitthvað gott fyrir þau.
Stóra gúmsdollan var aldrei
langt undan. Ef þau langaði í
gúms vissu þau við hvern ætti
að tala því afi átti þessa dollu.
Hekla Mist og Hinrik Freyr
eru ekki gömul en ég mun
verða dugleg að segja þeim
sögur af afa.
Elsku pabbi, takk fyrir að
hafa verið alltaf til staðar, allt
það sem þú hefur kennt mér.
Ég veit og ég trúi því að við
eigum eftir að hittast aftur, á
meðan geymi ég allar þær
minningar sem ég á og þær
hjálpa mér í gegnum þennan
erfiða tíma.
Englar Guðs þér yfir vaki og verndi
pabba minn,
vegir okkar skiljast núna, við
sjáumst ekki um sinn.
En minning þín hún lifir í hjörtum
hér
því hamingjuna áttum við með þér.
Þökkum kærleika og elsku, þökkum
virðingu og trú,
þökkum allt sem af þér gafstu, okk-
ar ástir áttir þú.
Því viðmót þitt svo glaðlegt var og
góðleg var þín lund
og gaman var að koma á þinn fund.
Með englum Guðs nú leikur þú og
lítur okkar til,
nú laus úr viðjum þjáninga, að fara
það ég skil.
Og þegar geislar sólar um gluggann
skína inn
þá gleður okkar minning þín, elsku
pabbi minn.
Vertu góðum Guði falinn er hverfur
þú á braut,
gleði og gæfa okkur fylgdi með þig
sem förunaut.
Og ferðirnar sem förum við um
landið út og inn
er fjársjóðurinn okkar pabbi minn.
(Guðrún Sigurbjörnsdóttir)
Þorkatla.
Elsku Summi bróðir.
Kveð ég þig með þessu ljóði
með söknuð í mínu hjarta.
Vertu ekki grátinn við gröfina mína,
góði, ég sef ekki þar.
Ég er í leikandi ljúfum vindum,
ég leiftra sem snjórinn á tindum.
Ég er haustsins regn sem fellur á
fold
og fræið í hlýrri mold.
Í morgunsins kyrrð er vakna þú vilt,
ég er vængjatak fuglanna hljótt og
stillt.
Ég er árblik dags um óttubil
og alstirndur himinn að nóttu til.
Gráttu ekki við gröfina hér
gáðu ég dó ei ég lifi í þér
(Þýð. Ásgerður Ingimarsdóttir.)
Blessuð sé minning þín.
Þinn bróðir
Þór.
Í dag kveð ég elskulega mág
minn, Sumarliða Kristmunds-
son.
Hversu ósanngjarnt er það
þegar hraustur maður er tek-
inn í blóma lífsins, maður sem
hefur lifað heilbrigðu lífi alla
sína tíð.
Sem unglingur bjó ég á
heimili Summa og Stínu og var
í skóla í Ólafsvík. Seinna fór
ég að vinna í Stakkholti. Ég
kynntist Summa mjög vel þá.
Var það lýsandi dæmi um
Summa, hvað hann sýndi mikið
umburðarlyndi, að litla systir
konu hans skyldi flytja inn á
heimilið, þau nýgift og nýfarin
að búa og mjög ung. Oft hef ég
hugsað út í það seinna meir,
hvað það hlýtur að hafa verið
erfitt fyrir þau. Stína ólétt að
sína fyrsta barni, þau voru að
byggja sitt hús og að hafa ung-
ling inni á heimili þeirra, og
ekki var ég auðveldur ungling-
ur. Summi, þú varst alltaf góð-
ur við mig og alltaf gott að
vera hjá ykkur og ég var alltaf
velkomin inn á heimilið. Enda
flutti ég alltaf aftur og aftur til
Ólafsvíkur og átti ég eitt her-
bergi frátekið fyrir mig.
Þú barðist eins og hetja og
af mikilli jákvæðni og æðru-
leysi við þinn sjúkdóm, það var
aðdáunarvert að sjá. Kveð ég
þig, elsku Summi, með söknuð
í hjarta.
Elsku Stína, Kristmundur,
Ingibjörg og Þorkatla, tengda-
börn og barnabörn, ég sam-
hryggist ykkur innilega, og bið
góðan guð að veita ykkur
styrk til að takast á við sorg-
ina.
Hvíldu í friði, elsku Summi.
Þorbjörg.
Sumarliði mágur minn, er
fallinn frá, allt of ungur, rétt
ríflega 61 árs. En það er ekki
alltaf aldur sem ræður þegar
alvarlegur sjúkdómur yfirtek-
ur líkamann.
Fyrstu kynni mín af Summa
voru fyrir 42 árum þegar ég
réð mig sem kokk fyrir vestan
hér í Ólafsvík og verðandi
tengdamamma mín, sem
fannst hún bera einhverja
ábyrgð á því að mér líkaði vist-
in, bað hann að leyfa borg-
arstúlkunni að fara með á
sveitaball á Breiðabliki. Ég
mæti uppskveruð í síðu pilsi
og með hatt á tilsettum tíma.
Þegar Summi mætir til að ná í
mig þá segir hann „Hvert
heldur þú að þú sért að fara?“
Á ball með þér segi ég. „Þú
ferð ekki svona til fara, taktu
allavega af þér hattinn.“
Summi varð síðan mágur
minn þegar ég giftist Brynjari
bróður hans og ekki svo löngu
síðar giftist hann Stínu sinni.
Við vorum samferða í lífinu,
með börn á svipuðum aldri,
mikill samgangur á milli heim-
ila og ýmislegt brallað. Fjöl-
mörg ferðalög til útlanda koma
líka upp í hugann, svo ekki sé
nú minnst á snjósleðaferðirnar
allar.
Ég hugsa alltaf til Summa
þegar ég heyri lagið „Hoppa
kátur út um gluggann, við
blasir heimurinn. Himinblár er
bláminn. Himneskur jökull-
inn.“ Já, heimurinn blasti
spennandi við okkur á þeim
tíma þó verkefnin væru stund-
um bæði flókin og erfið.
Summi og bræður hans
stofnuðu saman útgerðafyrir-
tækið Steinunni hf. fyrir um 25
árum síðan og keyptu bát,
Steinunni SH 167, og kvóta.
Þetta var ekki auðvelt. Við átt-
um ekki krónu, en bræðurnir
stóðu þétt saman og hafa alla
tíð unnið mikið við útgerðina
sem í dag er vel sett fyrirtæki.
Og nú blasir heimurinn svo
sannarlega öðruvísi við fjöl-
skyldunni hans Summa, nú
ríkir sorg og söknuður eftir
góðum dreng sem fór allt of
snemma.
Kæra Stína, börn og fjöl-
skyldur, okkar dýpstu samúð-
arkveðjur til ykkar.
Margret Jónasdóttir.
Ástkæri tengdasonur minn
er fallinn frá, langt um aldur
fram.
Þegar ég minnist Summa
kemur fyrst og fremst í hug-
ann minn þakklæti fyrir allar
þær góðu samverustundir sem
ég átti með honum og Stínu.
Þegar við Alli ferðuðumst með
þeim á húsbílnum um landið
þvert og endilangt og þegar
við ferðuðumst erlendis sam-
an. Það voru ánægjulegar
stundir.
Summi ólst upp í Ólafsvík
og stundaði sjómennsku alla
sína starfsævi.
Þegar ég sit hér við eldhús-
borðið og er að reyna skrifa
þessa minningargrein, finnst
mér það einhvern veginn ótrú-
Sumarliði
Kristmundsson
Kærar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns,
BRYNJÓLFS SVEINBERGSSONAR,
fyrrverandi mjólkursamlagsstjóra á
Hvammstanga.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga fyrir alúð og hlýju við
umönnun hans auk allra þeirra sem aðstoðuðu við að gera útför
hans vel úr garði.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
.
Brynja Bjarnadóttir.