Morgunblaðið - 18.06.2016, Page 33
✝ Bergþóra Guð-jónsdóttir
fæddist á Húsavík
27. maí 1932. Hún
lést 30. maí 2016 á
Heilbrigðisstofnun
Norðurlands á
Húsavík.
Foreldrar henn-
ar voru Guðjón
Vigfússon, skip-
stjóri, og Magda
Agnete Jensen,
húsmóðir. Þau skildu og uppeld-
isfaðir Bergþóru var Þórarinn
Örbekk Vigfússon. Hálfsystkini
hennar voru, Birgir, Ingvi Þór,
Guðný Svava, Helga og Sig-
urður Þór Guðjóns-
börn og Hinrik og
Helga Sigríður
Þórarinsbörn.
Eftirlifandi eig-
inmaður Bergþóru
er Höskuldur Sig-
urjónsson. Börn
þeirra eru Þór-
arinn, Bjarni, Mar-
grét, Halla og Est-
er. Barnabörn eru
12 og langömmu-
börn eru tíu.
Útför Bergþóru fer fram frá
Húsavíkurkirkju í dag, 18. júní
2016, og hefst athöfnin klukkan
14.
Mig langar að minnast
tengdamóður minnar í nokkrum
orðum. Ég man þegar ég kom
fyrst inn á heimili þeirra hjóna í
Sólbrekkunni á Húsavík að það
bar merki um að þar byggju
samrýnd hjón. Heimilið var fal-
legt og snyrtilegt og nóg til af
öllu. Góa hafði einstaklega gam-
an af því að gefa mér að borða
því drengurinn úr borginni borð-
aði allt.
Eftir að við Ester fluttum í
Kópavoginn var alltaf svo gaman
að fá Góu í heimsókn. Hún kom
alltaf með heimabakað bakkelsi
með sér fyrir okkur. Einnig
sendi hún okkur smákökur, lag-
kökur og annað öll jól eftir að við
Ester byrjuðum að búa.
Góa var mjög fær í því að
prjóna og sauma og gaf börnun-
um okkar oft föt sem eru lista-
verk í mínum augum.
Hún var mikil smekkmann-
eskja og dæmi um það var þegar
ég reyndi einu sinni að sannfæra
hana um að brandý sem ég gaf
henni með kaffinu væri koníak.
Góa var fljót til og sagði „Siggi
minn, þetta er ekki koníak en ég
skal samt drekka þetta brandý“.
Ég man eftir ófáum ferðum í
Smáralindina og Kringluna og
hafði ég gaman af því hvað hún
hafði alltaf mikinn áhuga því að
vera fín í tauinu. Búðaferðirnar
enduðu yfirleitt á kaffihúsi því
Góa hafði oft áhyggjur af því að
Höskuldur væri orðinn svangur
á búðarápinu. Þegar hún var
spurð hvað þessi flík eða hin
hafði kostað svaraði hún alltaf
„þetta kostaði ekki neitt“.
Elsku Góa mín, takk fyrir
góðu stundirnar sem við áttum
saman.
Þinn tengdasonur
Sigurður (Siggi).
Amma mín, þú varst alltaf svo
glæsileg kona og einstaklega lit-
ríkur karakter. Þú varst alltaf
mjög upptekin af því að vera fín
og þér fannst ekkert skemmti-
legra en að kaupa ný föt. Þegar
þú komst í bæinn vorum við
mamma og afi vön að kíkja með
þér í búðir og fannst mér alltaf
jafn ótrúlegt hvað þú hafði mikið
úthald í búðarápinu. Við afi hlóg-
um stundum að þér þegar þú
varst í essinu þínu í búðunum og
vissir alltaf nákvæmlega hverju
þú varst að leita að.
Þú vildir alltaf vera vel til höfð
og baðst mig yfirleitt um að lita á
þér augabrúnirnar og augnhárin
þegar þú komst í heimsókn. Þú
sagðir við mig að ég væri miklu
betri í þessu en þær sem vinna á
snyrtistofu. Ég er svo þakklát
fyrir að hafa fengið að snyrta þig
í síðasta sinn vikuna áður en þú
kvaddir. Þú varst svo fín og flott
þó þú værir orðin mjög slöpp.
Þú hafðir alltaf mjög mikinn
áhuga á að vita hvernig mér
gengi í skólanum. Þú sagðir að
þú bæðir alltaf fyrir mér þegar
ég færi í próf og ég vona að þú
haldir áfram að gera það og
fylgjast með mér í gegnum nám-
ið. Þú hafðir alltaf svo mikla trú
á mér og sagðir að þú værir svo
stolt af mér.
Það var alltaf svo gaman að
koma og heimsækja ykkur afa til
Húsavíkur. Þar var alltaf til nóg
af öllu og man ég eftir mér og
Gunnari í matarbúrinu að stelast
í smákökur þegar við vorum
yngri.
Ég er svo glöð að Hallur kom
með mér síðasta sumar til ykkar
á Mærudaga. Þú tókst svo vel á
móti honum og hrósaðir mér
margoft fyrir að hafa náð mér í
svona myndarlegan kærasta.
Elsku amma mín, ég kveð þig
með söknuði og þakka þér fyrir
allar góðu stundirnar sem við
áttum saman.
Þín ömmustelpa,
Bjarndís Rúna.
Seinasta skiptið sem ég sá
ömmu var í janúar áður en við
fórum aftur út eftir jólafrí.
Í öll þau skipti sem við amma
kvöddumst í gegnum tíðina þá
sagði hún alltaf „ég verð dauð
þegar þú kemur næst“ og svo hló
hún. En þetta skipti var öðruvísi
því að hún fór að gráta, þá vissi
ég innst inni að þetta var í alvöru
kveðjustundin.
Amma Góa var engin venjuleg
amma, flottari konu er erfitt að
finna og komast ekki margar
ömmur með tærnar þar sem hún
hafði hælana hvað varðar tísku
og smekkvísi.
Þegar við systur fórum í pöss-
un í Sólbrekkuna til ömmu og afa
þá var mest spennandi að fá að
leika sér í fínu skónum hennar
ömmu og fá að máta alla flottu
leðurhanskana hennar. Amma
var alltaf fín og leið henni best í
nýjum kjól, nýkomin úr lagningu
og með vel litaðar augabrúnir.
Hún toppaði sig svo algjörlega
þegar hún fékk sér gelneglur
komin á áttræðis aldur.
Ekki fyrir svo löngu áttum við
amma gott samtal um lífið og til-
veruna og talið barst að hjóna-
bandinu og ástinni.
Amma hafði langa og farsæla
reynslu af hjónabandi enda voru
þau afi mjög ung þegar þau giftu
sig og stofnuðu fjölskyldu.
Amma gaf mér mörg góð ráð
sem ég mun aldrei gleyma og eitt
af þeim var að taka aldrei maka
sínum sem sjálfsögðum hlut.
Væntumþykjan á milli ömmu
og afa skein vel í gegn þegar við
stórfjölskyldan fögnuðum átt-
ræðis afmæli ömmu fyrir nokkr-
um árum á Leifsstöðum í Eyja-
firði.
Afa tókst þá að græta alla fjöl-
skylduna þegar hann kom ömmu
á óvart og söng ástarljóð til
hennar.
Amma var með þá skemmti-
legu hefð að gefa okkur barna-
börnunum teppi sem hún heklaði
þegar við fórum að búa. Til þess
að fá slíkt teppi þurfti maður
samt að vera búinn að finna sér
maka, teppið var því óhjákvæmi-
lega kallað parateppið af okkur
krökkunum.
Ég man vel þegar ég loksins
fékk mitt teppi fyrstu jólin eftir
að við Ómar fórum að búa og hún
sagði við mig að hún hefði verið
farin að efast um að ég myndi
nokkurn tíma fá slíkt teppi.
Amma Góa var alveg óhrædd að
segja það sem henni fannst og
oft höfum við barnabörnin hlegið
að því hvað hún var hrein og
bein.
Elsku amma, takk fyrir allar
góðu minningarnar, ég mun vera
dugleg að rifja upp sögur af
ömmu Góu í framtíðinni. Þú
munt ávallt eiga stað í hjarta
mínu.
Þín
Tinna
(Þórarinsdóttir).
Bergþóra
Guðjónsdóttir
legt og ósanngjarnt að þú sért
búinn að kveðja, en enginn veit
hve tíminn er langur sem eig-
um hér. Síðasta ár hefur þú
háð mjög erfiða baráttu í veik-
indum þínum. Stína stóð þér
þétt við hlið, þegar þú tókst
örlögum þínum af æðruleysi og
dugnaði, þar til þú kvaddir í
faðmi fjölskyldu þinnar. Ég
kveð þig með þakklæti og
söknuði.
Elsku Stína og fjölskylda,
ég sendi ykkur innilegar sam-
úðarkveðjur. Ég bið góðan guð
um að veita ykkur styrk til að
takast á við sorgina.
Hvíldu í friði, kæri vinur.
Ingibjörg Þorkelsdóttir.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér
nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Summi vinur okkar er lát-
inn, hann hefur verið sam-
ferðamaður og góður vinur
okkar hjóna í gegnum lífið.
Það þurfti ekki mörg orð en
sterkt faðmlag var alltaf gott
að fá frá Summa í gleði og
sorg.
Við minnumst ferðalaga með
þeim hjónum Stínu, Summa og
börnunum okkar um landið og
svo ferðin okkar til Jamaíka.
Summi var sjómaður alla tíð
og var vanur að taka veðrið og
þess vegna var það hann sem
vissi oftar en ekki hvar besta
veðrið var til að slá upp tjald-
búðum á ferðalögum okkar, í
mörg skipti búinn að taka frá
stæði og gera klárt fyrir grill
og gleðistundir.
Við höfum átt margar góðar
stundir saman, deilt bæði gleði
og sorgum og nú síðast fögn-
uðum við í fallega brúðkaupinu
þeirra Þorkötlu og Baldurs í
Ólafsvík og ég veit að hann
vinur okkar vill að ferðinni
verði haldið áfram og gleðinni
haldið á lofti í minningu hans,
hann var maður gleðinnar. Við
höfum nú í ár fylgst með bar-
áttu Summa við krabbamein
og átt margar góðar stundir
með þeim hjónum og nýtt góðu
dagana eins og maður gæti
kallað þá daga eftir meðferð
þar sem hægt er að njóta lífs-
ins lystisemda.
Það var Summi sem eldaði
og bjó til góðu sósurnar og
dekraði við mann í mat og
drykk og svo var það potturinn
þar sem spjallað var fram eftir
nóttu og góð tónlist spiluð.
Síðustu stundirnar okkar sam-
an leiðbeindi hann Stínu sinni
og sagði henni til við matar-
gerðina sem hann var bestur í.
Summi var einstaklega laginn
maður og allt sem hann gerði
var vel gert og ég veit að hann
leiðbeindi börnunum sínum og
barnabörnum við réttu hand-
tökin á verkunum. Á ferðalög-
um okkar hélt ég dagbók og
veit að Stína gerði það líka og
það verður svo gott að kíkja í
þær og rifja upp góðar minn-
ingar.
Þegar við vorum sem mest á
ferðinni um landið okkar
ákváðum við að hittast í sum-
arbústað að hausti og fyrir val-
inu varð fyrst bústaður í
Svartagili í Borgarfirði en síð-
an við eignuðumst sjálf bústaði
höfum við nánast árlega gert
þetta þar, bröns í litla
Draumalandinu okkar og svo
flottur matur og spjall í
Varmahlíð hjá þeim. Ég sé
okkur halda þessu áfram í
minningu Summa og við vin-
konur munum reyna að rifja
upp taktana við sósugerðina og
ég held að Jón sé orðinn nokk-
uð liðtækur á grillið eftir að
hafa verið aðstoðarmaður
Summa í öll þessi ár. Það
munu tár renna og hlátur mun
glymja og við munum skála
þér til heiðurs, elsku vinur, og
þakka allar góðar stundir og
að hafa notað tímann vel en
ekki beðið með að gera hlut-
ina, lífið er í dag og andartakið
sem við höfum er núna.
Elsku Stína mín, okkar inni-
legustu samúðarkveðjur til
ykkar allra með þakklæti fyrir
allt.
Jón og Kolbrún (Kolla).
Summi dáinn.
Þessi strákur sem ég hélt að
væri næstum ódauðlegur.
Ég var oft pínu hissa á að
Summi skyldi mega fara með
pabba mínum í vinnuferð en ég
ekki.
Summi var alltaf velkominn
í bílskúrinn í Lindarholti 1.
Hann átti hug og hjarta pabba
míns og á milli þeirra var
strengur sem aldrei brast.
Seinna áttu leiðir okkar
Summa og Stínu eftir að liggja
í Túnbrekku og Hábrekku í
Ólafsvíkinni góðu. Við áttum
yndislegar samverustundir,
skrall og samverustundir sem
gleymast ekki. Ingibjörg og
Magni eignuðust okkur sem
foreldra. Heppin voru þau að
eignast foreldra sem hjálpuð-
ust að við uppeldið, gáfu þeim
beinakex og hvöttu þau áfram.
Kristmundur hljóp og hljóp og
var bestur og næstbestur og
fleira og fleira. Allt var þetta
svo skemmtilegt og gefandi.
Í lífsins ólgusjó gerist
margt. Eitt af því var að líf
okkar tók ólíka stefnu og leiðir
skildu. Ég fór í burtu og
Summi og Stína urðu eftir á
þeim stað sem ég hafði alið
mitt. Hugsanlega dapurt. Samt
ekki. Hugurinn staldrar við og
þakklætið tekur yfir.
Yfir í Fjörðum allt er hljótt,
eyddur hver bær, hver þekja fallin.
Kroppar þar gras í grænni tótt
gimbill um ljósa sumarnótt.
Ókleifum fjöllum yfir skyggð
ein er þar huldufólksbyggð.
Bátur í vör með brostna rá
bíður þar sinna endaloka.
Lagði hann forðum landi frá
leiðina til þín, fjörðinn blá.
Aldrei mun honum, ástin mín,
áleiðis róið til þín.
Fetar þar létt um fífusund
folaldið, sem í vor var alið.
Aldrei ber það um óttustund
ástina mína á vinafund.
Grær yfir leiði, grær um stein,
gröfin er týnd og kirkjan brotin.
Grasrótin mjúka, græn og hrein
grær yfir huldufólksins bein.
Grær yfir allt sem eitt sinn var,
ástin mín hvílir nú þar.
(Böðvar Guðmundsson)
Maggý Hrönn
Hermannsdóttir.
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts ástkærs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
BENEDIKTS SNÆVARS
SIGURBJÖRNSSONAR
húsasmíðameistara,
Skarðshlíð 21, Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki lyfjadeildar SAK og
starfsfólki Beykihlíðar fyrir einstaka umönnun.
Minning hans lifir.
.
Sigurbjörn Benidiktsson, Emilía Kolbrún Sverrisdóttir,
Sveinn E. Benidiktsson, Auður Eiðsdóttir,
Matthildur Benidiktsdóttir, Þorsteinn Árni Gunnarsson,
Anna Benidiktsdóttir, Ólafur Jónsson,
Elínrós Þóreyjardóttir, Sigurjón H. Herbertsson,
afa- og langafabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og
langafa,
HÉÐINS SKARPHÉÐINSSONAR
húsasmíðameistara,
Langholti 2,
Keflavík,
sem lést 30. maí á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjá dagdvöl aldraðra í
Selinu fyrir frábæra umönnun og alúð. Guð blessi ykkur öll.
.
Bergþóra G. Bergsteinsdóttir,
Kristjana B. Héðinsdóttir, Þorsteinn Bjarnason,
Aðalheiður Héðinsdóttir, Eiríkur Hilmarsson,
Skarphéðinn S. Héðinsson, Lynnea Clark,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og aðstoð við andlát og útför
elskulega Rikka okkar,
RÍKHARÐS ARNAR
STEINGRÍMSSONAR
lögregluvarðstjóra,
Hamratanga 10,
Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir viljum við færa lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu, Lögreglufélagi Reykjavíkur og
Landssambandi lögreglumanna fyrir stuðning og aðstoð á
þessum erfiðu tímum.
.
Iðunn Dögg Gylfadóttir,
Sigurjón Nói Ríkharðsson,
Egill Gylfi Ríkharðsson,
Steingrímur Á. Jónsson, Þóranna M. Sigurbergsdóttir,
Gylfi Óskarsson, Guðlaug Árnmarsdóttir.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi lið-
ur, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá
inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu
ekki lengri en 3.000 slög. Ekki
er unnt að senda lengri grein.
Lengri greinar eru eingöngu
birtar á vefnum. Hægt er að
senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Ekki er unnt að tengja við-
hengi við síðuna.
Minningargreinar