Morgunblaðið - 18.06.2016, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
Tilkynningar
Rangárþing eystra óskar eftir tilboðum í að
byggja viðbyggingu við dvalarheimilið Kirkjuhvol
á Hvolsvelli.
Verkið fellst í að grafa fyrir, steypa upp og fullgera
viðbygginguna jafnt að utan sem innan og skal
verkinu vera lokið 19. apríl 2018.
Óskað er eftir tilboðum í verkið í heild sinni
eins og fram kemur á uppdráttum og því er lýst í
útboðs-og verklýsingu.
Heildarstærð viðbyggingarinnar verður 1.526 m2,
aðalhæðin 1.176 m2 og kjallari 350, m2.
Útboðsgögn verða afhent hjá skipulags- og
byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Ormsvelli 1,
860 Hvolsvelli, sími 487 1200 og netfang
bygg@hvolsvollur.is ,frá og með 21. júní 2016.
Bjóðendum er boðið til kynningarfundar að
Kirkjuhvoli mánudaginn þann 27. júní 2016 kl 11:00.
Þar verða mættir fulltrúar verkkaupa.
Tilboði skal skila á frumriti tilboðsforms í lokuðu
umslagi merktu heiti útboðs, „Dvalarheimilið
Kirkjuhvoll, viðbygging“, á sveitarfélagsskrifstofu
Rangárþings eystra, Hlíðarvegi 16, 860 Hvolsvelli,
fyrir kl. 13:45 föstudaginn 15. júlí 2016. Sama dag
kl. 14:00 verða tilboðin opnuð þar að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Rangárþings eystra
Dvalarheimilið Kirkjuhvoll,
Hvolsvelli - Viðbygging
Rangárþing eystra
Tilboð/útboð
Útboð nr. 20224
Laxárstöð 2016
Lokur, ristar og lok
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í smíði,
húðun og uppsetningu á lokum, ristum og
lokum við Laxárstöð III í samræmi við
útboðsgögn nr. 20224.
Verkið felst í aðalatriðum í eftirfarandi
verkþáttum:
• Lokur: Smíða skal tvær lokur.
Lokur skal sandblása og mála.
• Ristar: Smíða skal þrjár nýjar inntaksristar.
Ristarnar skal ekki sandblása og mála.
• Smíða lok yfir lokur, lok skulu
heit-zinkhúðuð.
• Smíða lok yfir nýtt inntak, lok skulu
heit-zinkhúðuð.
• Flutningur á lokum, ristum og lokum.
• Uppsetning á lokum og lokum.
Gert er ráð fyrir að verk geti hafist um
12.07.2016.
Verklok 30.09.2016.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef
Landsvirkjunar, http://utbod.lv.is frá og með
þriðjudeginum 21. júní 2016.
Tilboðum skal skila til Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, fyrir klukkan 12:00
þriðjudaginn 5. júlí 2016 þar sem þau verða
opnuð kl. 14:00 sama dag og lesin upp að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess
óska.
Borgarfjarðarhreppur
Deiliskipulag hafnarsvæðis á
Borgarfirði eystra
- skipulagslýsing - kynning.
Hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps
auglýsir hér með opið hús þar sem íbúar
geta kynnt sér skipulagslýsinguna skv.
ákv. gr. 5.2 í skipulagsreglugerð.
Deiliskipulag hafnarsvæðis. Lýsing skipu-
lagsáforma um deiliskipulag fyrir hafnar-
svæði Borgarfjarðarhafnar við Hafnarhólma.
Skipulagssvæðið er um 9,9 ha að stærð og er
í eigu Borgarfjarðarhrepps.
Innan svæðisins er bátahöfn Borgfirðinga,
innan við Hafnarhólma. Í hólmanum er
æðarvarp og mikið fuglalíf, m.a. lunda- og
rituvarp, sem laðar til sín tugi þúsunda
ferðamanna á hverju ári. Sunnarlega á
svæðinu er ein lóð fyrir frístundahús með
einu frístundahúsi.
Engar byggingar eru nú á hafnarsvæðinu
sjálfu, utan lausir skúrar.
Opið hús verður á hreppsstofu Bakkagerði,
Borgarfirði Eystri, fimmtudaginn 23. júní nk.
kl. 10:00–16:00.
Almenningi verður gefinn kostur á að koma
með ábendingar á kynningunni og/eða
senda inn ábendingar til skipulags- og
byggingarfulltrúa Borgarfjarðarhrepps
Hafnargötu 28, 710 Seyðisfirði eða á
netfangið sigurdur.jonsson@efla.is til og
með 15. júlí 2016.
Hægt er að nálgast skipulagslýsinguna á
heimasíðu Borgarfjarðarhrepps og á
hreppsstofu að Borgarfirði Eystri.
Byggingarfulltrúinn í
Borgarfjarðarhreppi.
*Nýtt í auglýsingu
20351 Salt/sand og pækildreifarar fyrir Vega-
gerðina. Ríkiskaup, fyrir hönd Vegagerðarinnar,
óska eftir tilboðum í einn nýjan 9 m³ og þrjá 7 m³ ,
sand-, salt- og pækildreifara, með a.m.k. 3.000 lítra
pækiltönkum tilbúnum til notkunar og afhendingar
fyrir 15. október 2016. Kaupandi óskar eftir sem
valkvæðum möguleikum, að kaupa einn 7 m³
dreifara til viðbótar fyrir 1. mars 2017 á sama
verði. Nánari upplýsingar í útboðsgögnum sem
eru aðgengileg á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is.
Opnun tilboða 28. júní 2016 kl. 14.00 hjá
Ríkiskaupum.
Sjá þessa og aðrar útboðstilkynningar á
utbodsvefur.is
Borgarfjarðarhreppur
Aðalskipulag Borgarfjarðarhrepps
2006 - 2016
Aðalskipulagsbreyting - skipulags-
lýsing – kynning
Hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps
auglýsir hér með opið hús þar sem íbúar
geta kynnt sér skipulagslýsinguna skv.
ákv. gr. 4.2.4 í skipulagsreglugerð.
Aðalskipulag Borgarfjarðarhrepps
2006–2016. Aðalskipulagsbreyting í
þéttbýlinu Borgarfirði Eystri - skipulagslýsing
- kynning.
Um er að ræða breytingu á tveimur svæðum.
Breyting á lóðum Bakkavegar 2–12 en
breyta á svæðinu í íbúasvæði. Í gildandi
aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem
frístundabyggð (FB-1). Breyta á lóð milli Borg
og Laufás í íbúasvæði en í gildandi aðal-
skipulagi er svæðið fyrir þjónustustofnanir
(BS9). Með breytingunum stækkar íbúasvæði
á Bakkagerði.
Opið hús verður á hreppsstofu Bakkagerði,
Borgarfirði Eystri, fimmtudaginn 23. júní nk.
kl. 10:00–16:00.
Almenningi verður gefinn kostur á að koma
með ábendingar á kynningunni og/eða
senda inn ábendingar til skipulags- og bygg-
ingarfulltrúa Borgarfjarðarhrepps, Hafnar-
götu 28, 710 Seyðisfirði eða á netfangið
sigurdur.jonsson@efla.is til og með 15. júlí
2016.
Hægt er að nálgast skipulagslýsinguna á
heimasíðu Borgarfjarðarhrepps og á
hreppsstofu að Borgarfirði Eystri.
Byggingarfulltrúinn í
Borgarfjarðarhreppi.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund sunnudag kl. 14.
Lóðir
Áshildarmýri
í Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Eignarlóðir í frístundabyggð til sölu
75 km frá Reykjavík.
Stærð á lóðum 5.000 fm - 15.800 fm.
Rafmagn, heitt og kalt vatn.
Upplýsingar veitir Hlynur í síma 824 3040.
Sölusýning laugardag og sunnudag.
Heitt á könnunni.
Frá yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis
Forsetakjör
25. júní 2016
samkvæmt lögum nr. 36 frá 1945
Yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis mun hafa
aðsetur í Íþróttahúsinu Kaplakrika í Hafnarfirði
á kjördag, þar sem talning atkvæða fer fram að
loknum kjörfundi kl. 22.
Fyrstu kjörkassar verða opnaðir kl. 18.30 og
hefst þá flokkun atkvæða.
15. júní 2016.
Yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis,
Jónas Þór Guðmundsson,
Guðrún Sesselja Arnardóttir,
Elín Jóhannsdóttir,
Ástríður Sólrún Grímsdóttir,
Eysteinn Jónsson.
Félagslíf
Raðauglýsingar 569 1100
AUGLÝSINGASÍMI
569 1100