Morgunblaðið - 18.06.2016, Síða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
Eva Björk Jóhannesdóttir, hagfræðinemi við Háskóla Íslands oggjaldkeri Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, fagnar 23ára afmæli í dag. Hún hefur komið víða við, en hún er hálfur
Akureyringur og hafði búsetu í Danmörku um árabil.
Síðustu ár hefur hún helgað tíma sinn hagfræðinni og ýmsum fé-
lagsstörfum. Meðal annars hefur hún látið til sín taka á vettvangi Vöku
og Ökonomíu, félags hagfræðinema. Í sumar starfar hún hjá Borgun og
Vegamótum.
Spurð hvað hún hyggst gera í tilefni dagsins, segist hún ætla að gera
sér ferð í árbít ásamt vinkonu sinni, en síðan tekur sófinn við henni þar
sem landsleikur Íslands og Ungverjalands mun fanga athyglina. Eva
segir ekki annað hægt en að fylgjast náið með landsliðinu á Evrópu-
mótinu, vinnuveitandi hennar, Borgun, sé einn af aðalstyrktaraðilum
KSÍ. Að loknum landsleik verði síðan laugardagskvöldið vel nýtt, enda
fari vel á því að eiga afmæli á frídegi.
„Vinnustaðurinn er allur skreyttur og það eru pappamyndir af lands-
liðsmönnum í fullri stærð úti um allt húsið. Svo er líka tippleikur í
gangi, þannig að vinnan er í raun EM,“ segir Eva Björk, sem unir sér
þannig vel í sumarstarfinu, þrátt fyrir að fara ekki út til Frakklands.
Þegar blaðamaður spyr hver óskaafmælsgjöfin sé, segist hún ekki
viss, það nægi henni að íslenska liðið nái sigri gegn Ungverjum og komi
sér þannig í vænlega stöðu fyrir síðustu umferð í F-riðlinum.
Ljósmynd/Eva Björk Jóhannesdóttir
Afmælisbarn Eva Björk fylgist grannt með landsliðinu þessa dagana.
Íslenskur sigur er
efst á óskalistanum
Eva Björk Jóhannesdóttir er 23 ára í dag
M
argrét Haraldsdóttir
fæddist í Reykjavík
19. júní 1956. Hún
ólst lengst af upp á
Hvanneyri.
Eftir grunnskólapróf fór Margrét
í Menntaskólann í Reykjavík og út-
skrifaðist þaðan með fyrstu ein-
kunn. Þá fór hún að kenna á Hellu
og kynntist þar barnsföður sínum,
Eggerti. Þau keyptu jörð að Sperðli
í Vestur-Landeyjum þar sem þau
voru með hesta og annan búfénað.
Þau seldu svo búið og fluttu til
Reykjavíkur 1985 og Margrét fór í
Háskóla Íslands að læra
stjórnmálafræði og kennslufræði.
Hún útskrifaðist þaðan með ágæt-
iseinkunn 1988. Hún tók þátt í póli-
tík og vann fyrir Alþýðuflokkinn,
Nýjan vettvang og við stofnun
Reykjavíkurlistans.
Frá útskrift hefur Margrét unnið
sem framhaldsskólakennari í
Menntaskólanum við Sund á félags-
fræðibraut, kennt félagsfræði og
stjórnmálafræði. Hún hefur sinnt
ýmsum störfum innan skólans, verið
fagstjóri, sviðsstjóri og kennslu-
stjóri.
Margrét Haraldsdóttir, stjórnmálafr. og framhaldsskólak. – 60 ára
Með yngsta ömmubarninu Margrét og Jóhann Óskar, þriðja ömmubarnið, en það fjórða er á leiðinni.
Hrókur alls fagnaðar
Systkini Ragnar, Ingólfur, Margrét, Soffía og Björn Hlynur á góðri stundu.
Þórhallur Runólfsson og Þór-
unn H. Sveinbjörnsdóttir eiga
gullbrúðkaup í dag, 18. júní.
Séra Björn H. Jónsson gaf þau
saman en hann var kennarinn
þeirra í Gaggó Aust þar sem
ævintýrið byrjaði og hann lof-
aði að gifta þau ef sambandið
yrði til frambúðar.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Opið
virka
daga
frá 9
-18
lau f
rá 10
-16
Orf úr áli 25.980
Orf úr tré 17.400
Ljár 7.950
Heyhrífa 4.320
Orf og ljár
verz
lunin
bryn
ja