Morgunblaðið - 18.06.2016, Qupperneq 43
Mikil dýrakona
Margrét hefur búið í Mosfellsbæ í
18 ár og unir hag sínum vel þar með
dýr og plöntur. Margrét hefur alltaf
verið mikil dýrakona frá bernsku
þar sem hún stundaði hesta-
mennsku af kappi, var bóndakona
og svo hundaræktandi. Ósjaldan fór
hún í sunnudagsbíltúr og kom heim
með lítil grey sem vantaði heimili.
Síðustu ár hefur hún einbeitt sér að
hundarækt og verið að rækta Pom-
eranian og Coton de Tulear hunda.
Hún hefur verið mikil blómakona og
áhugamanneskja um garðrækt.
Árið 2010 varð Margrét amma í
fyrsta sinn og hafa bæst tvö ömmu-
börn í viðbót og það fjórða á leið-
inni. Margrét er mikil amma og nýt-
ur sín í því hlutverki. Hefur mikla
unun af því að skottast með barna-
börnin út um borg og bý, sýna þeim
dýr og blóm en aðallega að eyði-
leggja uppeldið á þeim eins og siður
er ömmu og afa.
Ekki má skemma góða sögu
Margrét er þekkt fyrir að vera
hrókur alls fagnaðar hvert sem hún
fer, með mikla frásagnarhæfileika
og góður penni. „Það má aldrei
skemma góða sögu,“ segir hún.
Margrét spilar á gítar og er mjög
söngelsk. Hún samdi fallegt lag við
ljóð Davíðs Stefánssonar frá Fagra-
skógi Abbalabbalá og eftir hana
liggja mörg kröftug og falleg ljóð.
Enda á hún ekki langt að sækja
hæfileikana en hún er komin af
þjófum, fyrirmönnum, glæsikvend-
um og síðast en ekki síst hagyrð-
ingum. Eins og reyndar allir Íslend-
ingar. Margrét hefur verið vinsæll
kennari og ekki að undra, hún hefur
mikla ástríðu fyrir starfinu sínu og
áhugasöm um nemendur sína þó að
hún stýri væntanlega kennslunni af
miklum metnaði og með harðri
hendi. Margrét mun eyða sextugs-
afmælisdeginum að heiman og hef-
ur lagt land undir fót og verður hjá
bróður sínum Gísla í Seattle í
Bandaríkjunum.
Fjölskylda
Foreldrar Margrétar eru Har-
aldur Gíslason f. 28.9. 1928, d. 30.1.
1983, sveitarstjóri á Vopnafirði og í
Garði og framkvæmdarstjóri, og
Guðbjörg Ragnarsdóttir f. 3.2. 1930,
húsmóðir í Reykjavík og á Hvann-
eyri. Alsystkini Margrétar eru
Ragnar, f. 15.12. 1949, fram-
kvæmdastjóri bús. í Noregi, Gísli,
f.9.6. 1955, stýrimaður, bús. í
Bandaríkjunum, og Haraldur, f.
11.10. 1958, d. 11.11. 1997. Haraldur
og Guðbjörg skildu. Seinni kona
Haraldar er Björg Ingólfsdóttir f.
3.10. 1936, húsmóðir. Börn þeirra
eru Soffía, f. 11.10. 1967, eigandi
First Class Travel Iceland DMC,
Ingólfur, f. 12.3. 1969, smiður og
Björn Hlynur, f. 8.12. 1974, leikari.
Seinni eiginmaður Guðbjargar var
Gunnar Bjarnason, f. 13.12. 1915, d.
15.9. 1998, hrossaræktarráðunaut-
ur. Börn þeirra eru Gunnar Ásgeir,
f. 3.5. 1964, vinnur hjá Norðuráli, og
Regína Sólveig, f. 1.7. 1969, d. 29.10.
2011 rekstrarfræðingur. Fyrir átti
Gunnar Halldór, f. 14.1. 1941 prest
og Bjarna, f. 25.7. 1948, verkfræð-
ing.
Margrét giftist Eggerti Vali Þor-
kelssyni, f. 9.5. 1952, ökukennara.
Fyrir átti Eggert Sunnevu Egg-
ertsdóttur, f.14.10. 1975 dýralækni.
Börn Margrétar og Eggerts eru 1)
Hulda Margrét, f. 18.2. 1979, eig-
andi Himalaya Magic gift Rajan
Sedhai, f. 17.6. 1974, bakara, börn
þeirra eru Sindri, f. 29.5. 2010 og
Tara, f. 15.2. 2014; 2) Gísli Valur, f.
11.9. 1981 málarameistari í Reykja-
vík, og 3) Gunnar Örn, f. 3.2. 1983,
öryggisvörður hjá Öryggismiðstöð
Íslands, giftur Fatimu Mandia
Labitigan, f. 16.10. 1990 hjúkrunar-
fræðingi, sonur þeirra er Jóhann
Óskar, f. 21.4. 2014.
Eggert og Margrét skildu en frá
1993 hefur Margrét verið í sambúð
með Kristjáni Salberg Stefánssyni,
f. 31.10. 1955 málara.
Úr frændgarði Margrétar Haraldsdóttur
Margrét
Haraldsdóttir
Solveig Jónsdóttir
húsfreyja á Kirkjubóli
Magnús Vigfússon
bóndi á Kirkjubóli í Rvík
Regína Magnúsdóttir
húsfreyja og sunddrottning
Ragnar Guðmundsson
verslunarmaður í Rvík
og bankastjóri
Guðbjörg Ragnarsdóttir
húsfreyja í Rvík og á Hvanneyri
Kristbjörg Ólafsdóttir
húsfreyja í Hafnarf.
Guðmundur Sigurður Sigvaldason
sjómaður í Hafnarfirði
Guðmundur Kamban
rithöfundur í Danmörku
Guðbjörg Sigurveig Magnúsd.
húsfr. í Rvík
Guðrún Gísladóttir
tannlæknir (fyrsta ísl. konan
sem varð tannlæknir)
Björgvin Magnússon
fv. skólastjóri á Jaðri
við Heiðmörk
Edda
Björgvins-
dóttir
leikkona
Guðrún Bjarnadóttir
húsfreyja í Rvík
Þorsteinn Jónsson
járnsmíðameistari í Rvík
Hlín Þorsteinsdóttir
húsfreyja í Rvík
Gísli Jónsson
alþingismaður og forstjóri í Rvík
Haraldur Gíslason
sveitarstjóri á Vopnaf.
og í Garði og framkv.stj.
Guðný Jónsdóttir
húsfreyja
Jón Hallgrímsson
útgerðarmaður í Arnarfirði
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
Laugardagur
85 ára
Ingigerður Karlsdóttir
80 ára
Gerd Skarpaas Einarsson
Helgi Þorleifsson
Hjörleifur Ólafsson
Hörður Júlíusson
Sævar Magnússon
75 ára
Lars David Nielsen
Ólöf Guðnadóttir
Pála Hólmfríður Jónsdóttir
Sigfús Þ. Guðmundsson
Örn Hallsteinsson
70 ára
Atli Vagnsson
Ása Jóhannesdóttir
Ásgerður Ingólfsdóttir
Dagbjartur Bergþórsson
Gísli Már Ólafsson
Haraldur Jörgensen
Ingimundur Tr. Magnússon
Jónína Þórarinsdóttir
María Bjarnadóttir
Ólafur Sigurðsson
Vilhjálmur B. Kvaran
60 ára
Einar Ólafson
Ellert Högni Jónsson
Guðný Steindórsdóttir
Hafrún Þ. Harðardóttir
Jón Halldór Jónsson
Laima Mitrauskiene
Lilja Richardsdóttir
Marie Sindelárová
Már Vilhjálmsson
Sigríður Magnúsdóttir
Sigurður Karlsson
50 ára
Bjarni Höskuldsson
Bjarni Róbert Jónsson
Borghildur A. Arnbjörnsd.
Einar Trausti Óskarsson
Eyþór Örn Jóhannsson
Guðmundur J. Thorarensen
Guðmundur St. Einarsson
Guðmundur Þ. Sigurðsson
Hermann Ó. Hermannsson
Ingibjörg Markúsdóttir
John Durke Hansen
Jóhanna Katrín Bender
Kristinn G. Kristinsson
Kristján S. Snæbjörnsson
Magnús Þór Snorrason
Rakel Ragnarsdóttir
Rúnar Svan Vöggsson
Rún Rúnarsdóttir
Sigurveig Árný Hreinsdóttir
Viðar Örn Sigmarsson
Zbigniew Wl. Grzelak
Þorsteinn I. Kristjánsson
40 ára
Ásta Bragadóttir
Bisrat Dawit Melke
Brynjar Már Eðvaldsson
Díana Hilmarsdóttir
Eyjólfur Karlsson
Eyjólfur Kristinsson
Garðar Valur Gíslason
Halldóra Skúladóttir
Ingibjörg Hilma Sigurðard.
Jóhannes Tryggvason
Jóhann Ingi Árnason
Jurgita Jurgiliene
Lilja Kristjánsdóttir
Rakel Guðfinnsdóttir
Sigríður Dagný Þrastard.
Sigríður Guðbjörg Jónsd.
30 ára
Ásmundur Kristjánsson
Guðbjörg Kristín Grönvold
Hans Ragnar Pjetursson
Hrólfur Mar Jóelsson
Jesper Greve Kristensen
Jón Haukur Jóelsson
Sigurveig Þórhallsdóttir
Svava Pétursdóttir
Sunnudagur
95 ára
Kristín Gísladóttir
María Arnlaugsdóttir
Steinn Guðmundsson
85 ára
Amalía Kristín Einarsdóttir
Bragi Björnsson
Hallfríður Georgsdóttir
Jón Reynir Magnússon
Valgerður Kristjánsdóttir
80 ára
Ásthildur Geirmundsdóttir
Friðrik H. Eggertsson
Hermann B. Guðjónsson
Þóra Svanþórsdóttir
75 ára
Baldur Þór Baldvinsson
Dóra Erla Þórhallsdóttir
Einar Georg Einarsson
Eiríkur Pálsson
Guðleif Bára Andrésdóttir
Guðmundur J. Ólafsson
Guðríður Steinsdóttir
Gunnar Tryggvason
Magnús Jóhannsson
Steinar Kjartansson
70 ára
Aðalheiður Jóhannesdóttir
Hrefna Jónsdóttir
Jón Sigurður Ögmundsson
Margrét Hauksdóttir
Ottó Eiðsson
Ólafía Þ.S. Sveinsdóttir
Páll Pálsson
Sigrún Sveinbjörnsdóttir
60 ára
Anna Guðmunda Stefánsd.
Auðbjörg Halla Knútsdóttir
Ásgrímur Kristófersson
Friðrik Baldursson
Guðjón Hilmarsson
Guðrún Haraldsdóttir
Jakob Marinósson
Margrét Ágústsdóttir
Margrét Haraldsdóttir
Sigurrós Erlingsdóttir
Sigurrós Nanna Ásgeirsd.
Sveinn Stefánsson
Trausti Pétursson
50 ára
Álfheiður Árdal
Ásgeir Valur Arnljótsson
Birgitta Harðardóttir
Cezary Newel
Edda L. Waage Marinósd.
Halldóra Magnúsdóttir
Ragnheiður Ólafsdóttir
Rizalina Dungog Yamson
40 ára
Daði Þór Steinarsson
Freyr Friðriksson
Harpa Dögg Hafþórsdóttir
Hjördís Viðarsdóttir
Kristinn Örn Sverrisson
Magnþóra Kristjánsdóttir
Margeir Steinar Karlsson
María Valdimarsdóttir
Ómar Örn Magnússon
Sigurlaug Hrönn Magnúsd.
Theodóra S. Theodórsd.
Valur Ásmundsson
Vilborg Þórðardóttir
30 ára
Aron Kristbjörn Albertsson
Baldur Karl Kristinsson
Bragi Már O. Valbjörnsson
Egill Steingrímsson
Einar M. Bergþórsson
Erna Haraldsdóttir
Maren Rannveig Birgisd.
Margrét Sigurðardóttir
Sigrún Lína Sigurðardóttir
Valdimar Eggertsson
Valentina Marcelli
Valur G. Sigurgeirsson
Til hamingju með daginn
María Sigríður Guðjónsdóttir varði
doktorsritgerð sína í vélaverkfræði 19.
nóvember sl. Ritgerðin ber heitið: Mat
á hlutlektum í jarðhitakerfum út frá
fræðilegum líkönum, niðurstöðum úr
tilraunum og gögnum frá jarðhita-
svæðum (Assessing relative permea-
bilities in geothermal reservoirs using
theoretical relations, laboratory
measurements and field data).
María útskrifaðist með sameigin-
lega gráðu frá HR og HÍ. Leiðbein-
endur voru dr. Guðrún A. Sævars-
dóttir, dósent og deildarforseti við HR,
og dr. Halldór Pálsson, dósent við HÍ.
Einnig sátu í doktorsnefnd dr. Jónas
Elíasson, prófessor emeritus við HÍ, og
dr. Guðni Axelsson hjá Ísor. Andmæl-
endur voru dr. Stephan Finsterle hjá
Lawrence Berkeley National Labora-
tory og dr. Ronny Pini, lektor við Im-
perial College London.
Votgufusvæði, sem eru algeng teg-
und jarðhitasvæða, samanstanda af
sprungnu bergi og jarðhitavökva sem
flæðir m.a. samkvæmt Darcy lögmál-
inu sem fyrir tveggja fasa flæði vatns
og gufu inniheldur hlutlektir sem taka
mettun fasanna með í reikninginn. Í
þessu verkefni var Darcy lögmálið not-
að til að reikna
hlutlektir vökva
sem hvellsýður í
jarðhitakerfi og
samanburður
gerður á tveimur
flæðistilfellum, lá-
réttu og lóðréttu.
Niðurstöðurnar
sýna að munur er
á hlutlektunum í þessum tilfellum
þrátt fyrir að eiginleikar þeirra séu að
öðru leyti þeir sömu. Þessar niður-
stöður voru studdar með mælingum á
vatni og lofti. Tilraunir voru einnig
gerðar þar sem mældar stærðir voru
notaðar til að reikna hlutlektir fyrir
jarðhitavökva. Hlutlektirnar fylgdu Co-
rey-ferlunum að nokkru leyti. Svoköll-
uð Shinohara aðferð var notuð á gögn
frá borholum jarðhitasvæða til að
reikna hlutlektir í tveggja fasa jarð-
hitakerfunum. Jarðhitakerfin saman-
standa frekar af sprungnu en gljúpu
bergi og hlutlektirnar benda til minni
víxlverkana milli fasanna en tilraun-
irnar sýndu. Niðurstöðurnar auka
skilning á hegðun vatns og gufu í jarð-
hitakerfum og geta stuðlað að bætt-
um reiknilíkönum fyrir jarðhitakerfi.
María S. Guðjónsdóttir
María Sigríður Guðjónsdóttir fæddist í Borgarnesi árið 1977. Hún lauk stúdents-
prófi frá MR árið 1997, B.Sc. gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði við HÍ árið 2000
og Dipl.Ing. gráðu í orkuverkfræði frá Tækniháskólanum í München árið 2003.
Hún starfaði hjá BMW í München, verkfræðistofunni Mannviti og Jarðhitaskóla
Háskóla Sameinuðu þjóðanna og gegnir nú stöðu lektors við Háskólann í Reykja-
vík. Foreldrar Maríu eru Guðjón Gíslason og Ingibjörg Haraldsdóttir. Eiginmaður
hennar er Nökkvi Pálmason og synir þeirra eru Pálmi, Huldar og Dagur.
Doktor