Morgunblaðið - 18.06.2016, Síða 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
Martin Widmark, einn vinsælasti
barnabókahöfundur Svía, kemur til
Íslands í haust og verður sérstakur
gestur á Mýrinni, alþjóðlegri
barnabókmenntahátíð í Reykjavík,
að því er fram kemur á vef Forlags-
ins sem hefur gefið út bækur eftir
Widmark í röðinni um Spæjara-
stofu Lalla og Maju, Demanta-
ráðgátuna og Hótelráðgátuna.
„Bækur Martins hafa trónað á
toppi útlánalista sænskra bóka-
safna árum saman, en hann hefur
hlotið bókaverðlaun barna þar í
landi ellefu ár í röð. Bækur Martins
hafa verið þýddar á yfir 30 tungu-
mál,“ segir á vefnum. Widmark var
grunnskóla- og sænskukennari fyr-
ir innflytjendur áður en hann sneri
sér að ritstörfum, hefur samið
nokkrar kennslubækur og ýtti
verkefninu En läsande klass, eða
Lesandi bekkur, úr vör til að efla
læsi barna á aldrinum 7-12 ára.
Martin Widmark
verður gestur á
Mýrinni í haust
Vinsæll Rithöfundurinn Martin
Widmark nýtur vinsælda í Svíþjóð.
SECRET SOLSTICE
Matthías Tryggvi Haraldsson
mth@mbl.is
Fyrsta kvöld tónlistarhátíðarinnar
Secret Solstice fór af stað með
pompi og prakt á fimmtudaginn en
hátíðin er lengri og stærri í ár en
hún hefur áður verið. Upp úr
kvöldmatartíma fóru gestir að
flykkjast í dalinn og var banda-
ríska rappsveitn Flatbush Zombies
sú fyrsta sem blaðamaður sá laða
að sér merkjanlegan fjölda hopp-
andi kátra gesta. Sveitin stóð vel
fyrir sínu og virtist eiga sinn
aðdáendahóp hérlendis, en
stemmningin á tónleikunum náði
hámarki um svipað leyti og væg
úrkoma gerði vart við sig.
Ekki síður spennandi var
tónlistarmaðurinn Yamaho, eða
Natalie Gunnarsdóttir, sem hefur
verið virt nafn í heimi íslenskrar
danstónlistar bæði sem skífuþeytir
og tónlistarmaður um nokkurt
skeið. Hún þeytti skífum og spilaði
frumflutt efni í bland og var óljóst
hvar eitt tók við af öðru, auk þess
sem hún söng.
Leyninúmer kvöldsins var
diskósveitin Sister Sledge. Margir
hefðu eflaust átt von á nýlegri
sveit, en smellurinn We Are Fam-
ily, sem féll vel í kramið hjá áhorf-
endum, kom út árið 1979 svo dæmi
sé tekið. Diskósveitin olli þó fáum
vonbrigðum og hljóðfæraleikur og
söngur sveitarinnar var vitnis-
burður um reynslu listamannanna
ef ekki fleira.
Saint Germain átti að stíga á
stokk þar á eftir en hafði látið sig
vanta. Íslenska teknósveitin Gus
Gus var fengin til að hlaupa í
skarðið og var varla hægt að
ímynda sér betri sveit til að taka
þá áskorun að sér. „Vá hvað ég er
fegin að hinir beiluðu,“ hrópaði
einn hátíðargestur og virtist ekki
vera einn um þá skoðun sína af
stemningunni að dæma. Góð
byrjun á spennandi hátíð og margt
gott sem hér er ekki pláss til að
greina frá.
Góð byrjun á
spennandi hátíð
Yamaho Eða Natalie Gunnarsdóttir, hún vakti lukku meðal gesta.
Gleði Stemningin á Secret Solstice-hátíðinni var gríðarlega góð og fimmtán þúsund manns hafa keypt miða.
Morgunblaðið/Ófeigur
Æðislegar Sister Sledge stóðu sannarlega fyrir sínu á tónleikunum.
Flatbush Zombies Þeir
koma frá Bandaríkjunum
og löðuðu að sér hopp-
andi káta tónleikagesti.
Söfn • Setur • Sýningar
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Með kveðju – Myndheimur íslenskra póstkorta í Myndasal
Dálítill sjór – Ljósmyndir Kristínar Bogadóttur á Vegg
Hvað er svona merkilegt við það? Störf kvenna í 100 ár í Bogasal
Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli í Horni
Norðrið í norðrinu á 3. hæð
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
LISTASAFN ÍSLANDS
BERLINDE DE BRUYCKERE 21.5 - 4.9.2016
LJÓSMÁLUN – LJÓSMYNDIN OG MÁLVERKIÐ Í SAMTÍMANUM 7.5 - 11.9.2016
UDSTILLING AF ISLANDSK KUNST
UPPHAF KYNNINGAR Á ÍSLENSKRI MYNDLIST Í KAUPMANNAHÖFN
21.1 - 11.9 2016
PABLO PICASSO Í SAFNEIGN LISTASAFNS ÍSLANDS;
JACQUELINE MEÐ GULAN BORÐA (1962) 21.7. 2015 - 11.9. 2016
Leiðsagnir á ensku alla þriðjudaga og föstudaga kl. 12:10
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Opið daglega í sumar kl. 10-17
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
GYÐJUR 5.2. - 29.5.2016
Opið laugard. og sunnud. kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
UNDIR BERUM HIMNI - MEÐ SUÐURSTRÖNDINNI 5.2.-16.9.2016
Opið þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga kl. 14-17.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Geirfugl †Pinguinus impennis Aldauði tegundar – Síðustu sýnin
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna.
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Kaffitár nú einnig í Safnahúsinu
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið daglega frá kl. 10-17.
Listasafn Reykjanesbæjar
MANNFÉLAGIÐ
4.júní – 21.ágúst
ÍSLENSK NÁTTÚRA, verk úr safneign
15.janúar – 21.ágúst
Byggðasafn Reykjanesbæjar
ÞYRPING VERÐUR AÐ ÞORPI
SÖGUR ÚR BÆNUM
Bátasafn Gríms Karlssonar
Opið alla daga 12.00-17.00
Duusmuseum.is
DUUS SAFNAHÚS
DUUS MUSEUM
Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is Sýningin opin daglega frá 10-17
Kaffitár opið mánudaga til föstudaga frá 8-17, 10-17 um helgar
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Síðasta sýningarhelgi