Morgunblaðið - 18.06.2016, Blaðsíða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég er innilega þakklátur skólanum og hrærður yfir þessari
virðingu sem mér er með þessu sýnd,“ segir Hjálmar H.
Ragnarsson tónskáld, en við útskriftarathöfn Listaháskóla Ís-
lands í Hörpu í gær var hann sæmdur heiðursdoktorsnafnbót.
Í tilkynningu frá LHÍ kemur fram að nafnbótina heiðurs-
doktor megi veita þeim sem skólinn vilji heiðra fyrir einstakt
framlag til lista og menningar. „Með valinu skapast tækifæri
fyrir skólann til að sýna viðkomandi virðingu fyrir farsælt
starf og mikilsvert framlag til fræðasviðs lista. Fyrstur til að
hljóta heiðursdoktorsnafnbót við skólann er Hjálmar H.
Ragnarsson, fyrrverandi rektor skólans og einn af stofn-
endum hans. Hann hlýtur þessa sæmd fyrir starf sitt við upp-
byggingu listmenntunar á háskólastigi,“ segir í tilkynningu.
Hugmyndafræði skólans var laukrétt
„Ég held það sé mjög mikilvægt fyrir skólann að kannast
við sína eigin sögu og upphaf. Um leið tek ég við þessari
nafnbót í nafni allra hinna sem stóðu með mér í því að stofna
skólann, koma honum á laggirnar og reka hann í 15 ár,“ segir
Hjálmar sem starfaði sem rektor skólans frá ársbyrjun 1999
til ársloka 2013.
Þegar Hjálmar lítur til baka segir hann ljóst að samspil
nokkurra þátta hafi ráðið úrslitum um það að stofnun skólans
tókst vel á sínum tíma og reksturinn varð farsæll. „Í fyrsta
lagi tel ég að hugmyndafræði skólans í upphafi hafi verið
laukrétt, þ.e. að þetta væri skóli allra listgreina. Með því móti
tókst okkur að búa til lítinn háskóla með afar fjölbreyttu
námsframboði og kennslu,“ segir Hjálmar og bendir á að sú
þverfaglega nálgun sem alla tíð hafi einkennt LHÍ sé í takt
við þróunina í listum þar sem múrar milli listgreina hafi verið
að hverfa. „Í öðru lagi held ég að það hafi verið mjög mikil-
vægt að skólinn var stofnaður á sjálfstæðum forsendum sem
sjálfseignarstofnun í stað þess að byggja á sameiningu eldri
skóla. Vissulega nutum við góðs af þeim skólum sem fyrir
voru, en LHÍ var stofnaður á eigin forsendum sem var mjög
mikilvægt. Í þriðja lagi nutum við þess á sínum tíma að skól-
inn hafði sterkan og eindreginn pólitískan stuðning hjá Birni
Bjarnasyni, þáverandi menntamálaráðherra, en það var hon-
um kappsmál að þessi skóli kæmist upp. Í fjórða lagi verð ég
að nefna samstarfsfólkið. Þegar við fórum af stað með skól-
ann á sínum tíma vissum við ekki hvaða mannskap við hefð-
um og á hverju við gætum byggt. En það kom strax í ljós að
við eigum hér einvalalið af fólki sem var tilbúið að vinna að
þessari hugsjón. Lang mikilvægasta hlutverk starfs míns var
að velja samstarfsfólkið og þar held ég að mér hafi tekist best
til, því samstarfsfólkið var opið, víðsýnt, tilbúið til að fara
nýjar brautir og leggja sig fram af mikilli ástríðu fyrir verk-
efninu. Það er einstakt tækifæri að fá að byggja upp eitthvað
nýtt eins og við gerðum. Maður fær bara svona verkefni einu
sinni á ævinni,“ segir Hjálmar og tekur fram að hann fylgist
mjög vel með hvernig skólanum hafi vegnað frá því hann lét
af störfum.
„Ég er ekkert að skipta mér af rekstrinum, en fylgist mjög
mikið með nemendaverkefnum, þ.e. sýningum, tónleikum og
leiksýningum. Þar sér maður þróunina vel. Eins og stjórn-
endur skólans hef ég áhyggjur af hinum fjárhagslega grunni
skólans. Rekstur allra háskóla í landinu og ekki síst LHÍ er
mjög erfiður. Ég held að stjórnvöld verði að opna augun fyrir
því að það er ógerningur að reka háskólamenntun í landinu
næstum ókeypis.“
Húsnæðismálin eru brýnustu málefnin
Í samtali við Morgunblaðið gerir Hjálmar húsnæðiseklu
LHÍ að umtalsefni. „Mestu vonbrigðin hjá mér sem rektor
voru þegar okkur tókst ekki að koma þeim áætlunum af stað
sem við vorum með um byggingu skólans við Laugaveg,“ seg-
ir Hjálmar og rifjar upp að hrunið hafi sett stóran strik í
reikninginn. „Ég held reyndar að miðborgin hafi þjáðst meira
en skólinn fyrir það að þessi áform urðu að engu. Það hefði
verið annað yfirbragð fyrir borginni ef okkur hefði tekist að
byggja skólann á þessum stað. Húsnæðismálin eru brýnustu
málefni skólans í dag og aðkallandi að fara að leysa þau. Skól-
inn verður að fá að vera allur undir sama þaki til að stuðla að
nauðsynlegum samgangi og samvinnu milli deilda,“ segir
Hjálmar og tekur fram að hann sé þó bjartsýnn fyrir hönd
LHÍ til framtíðar. „Námið við LHÍ er einstaklingsmiðað og
þroskandi hvort sem það leiðir nemandann inn á listabrautir
eða ekki, því námið nýtist svo víða. Við lærðum það m.a. af
hruninu að listir eigi alltaf mikið erindi. Aðalmálið þegar
horft er til framtíðar er að varast stöðnun, hvort heldur er
hugarfars- eða stjórnunarlega. Skólinn verður sífellt að
endurnýja sig,“ segir Hjálmar og áréttar að mikill kraftur búi
í skólanum.
„Ég er innilega þakklátur“
Ljósmynd/Ilmur Dögg Gísladóttir
Sæmd Hjálmar H. Ragnarsson hlýtur heiðursdoktorsnafn-
bótina við Listaháskóla Íslands fyrir starf sitt við uppbyggingu
listmenntunar á háskólastigi, en hann var rektor LHÍ í 15 ár.
Hjálmar H. Ragnarsson tón-
skáld og fv. rektor fyrsti heið-
ursdoktor Listaháskóla Íslands
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is
Opið hús
þriðjudaginn
21. júní kl. 14.00
Matreiðslumenn frá RATIONAL
sýna snilli sína með
RATIONAL 5 SENSES ofninum
Komið og kynnið ykkur
nýjustu tæknina
Útsala á völdum vörum
Happdrætti
5 SENSES
gufusteikingarofn