Morgunblaðið - 18.06.2016, Side 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
Snjallsíma- og spjaldtölvu-leikurinn Angry Birds sló ígegn fyrir einum sex árumog ánetjuðust honum marg-
ir, m.a. sá sem hér skrifar. Leikur-
inn felst í því að skjóta fuglum með
valslöngvu í átt að hindrunum úr
gleri, steinum, spýtum o.fl. sem
græn svín fela sig á bakvið, fella þær
og drepa svínin í leiðinni. Kemst
maður þá á næsta borð og verða
þrautirnar sífellt þyngri. Samkvæmt
Wikipedia alfræðivefnum höfðu 12
milljónir manna náð sér í leikinn tíu
mánuðum eftir að hann kom út, sem
sýnir hversu gríðarvinsæll hann var
og er mögulega enn þó líklega hafi
vinsældir hans dalað í hinu ógnar-
mikla framboði snjallsímaleikja. Það
var klókt hjá finnska fyrirtækinu
Rovio, sem framleiðir leikinn, að
ráðast í gerð teiknimyndar um
fuglana og svínin í samstarfi við Col-
umbia kvikmyndaverið þó mögulega
komi hún fullseint, markaðslega séð,
í ljósi þess hversu langt er um liðið
frá því að allir voru að spila þennan
leik. Og myndin er merkilega góð
þegar litið er til þess að handritshöf-
undar höfðu bara tvennt að vinna
með, reiða fugla og græn svín.
Sögusviðið er friðsæl eyja þar sem
ófleygir fuglar af ýmsum gerðum
búa saman í sátt og samlyndi. Einn
er þó utangarðs, fuglinn Rauður sem
er einstaklega skapstór og kemst
ítrekað upp á kant við nágranna
sína. Hann er skikkaður af dómara á
reiðistjórnunarnámskeið og hittir
þar fyrir aðra reiða fugla, m.a.
Bomba sem er þeim hæfileika gædd-
ur að springa í loft upp þegar fýkur í
hann og Togga, leiftursnöggan, gul-
an fugl sem safnað hefur hraðasekt-
um. Dag einn koma græn svín með
skipi að eyjunni og virðast hin vin-
gjarnlegustu í fyrstu, halda fugl-
unum mikla veislu þannig að þeir
gleyma sér og á meðan stela svínin
eggjunum þeirra. Fer Rauður þá
fyrir björgunarleiðangri, ætlar sér
að endurheimta eggin og reiðu fugl-
arnir gera árás á borg svínanna með
því að skjóta sér að henni með val-
slöngvu. Einnig kemur til sögunnar
örn sem fuglarnir hafa tekið í guða-
tölu og aðstoðar við björgunina.
Hið góða berst við hið illa eins
vaninn er í flestum teiknimyndum
og þó áhersla sé lögð í upphafi á að
hafa beri hemil á skapi sínu reynist
reiðin nauðsynleg þegar á hólminn
er komið. Engu líkara en verið sé að
réttlæta stríð, ef út í það er farið, þó
sjálfsagt hafi það nú ekki verið ætl-
un handritshöfunda. Fuglarnir eru
skemmtilegar og litríkir, myndin er
hröð og brandararnir margir. Sér-
staklega eru fyndin samskipti
Rauðs, Bomba og Togga við örninn
mikla sem er ekki sú hetja sem þeir
héldu heldur letingi og feitabolla.
Atriði þar sem fuglarnir taka lagið
er bráðfyndið og þá ekki síst vegna
frábærrar frammistöðu íslenskra
leikara í talsetningunni. Stefán Karl
Stefánsson fer á kostum í hlutverki
arnarins, að öðrum ólöstuðum.
Teiknimyndin um reiðu fuglana er
fínasta skemmtun þó ekki risti hún
djúpt þegar kemur að boðskap eða
söguþræði.
Reiður Fuglinn Rauður á erfitt með að hemja skap sitt.
Af bálreiðum fugl-
um og svikasvínum
Smárabíó, Háskólabíó,
Laugarásbíó og Borgarbíó
The Angry Birds Movie bbbnn
Leikstjórar: Clay Kaytis og Fergal Reilly.
Bandaríkin, Finnland, 2016. 97 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Minningar úr æsku Dóru fara að rifjast upp fyr-
ir henni og langar hana að finna fjölskylduna
sína sem hún sér í þessum nýju minningum.
Metacritic 75/100
IMDb 9/10
Laugarásbíó 13.30, 14.00, 15.40, 17.00, 17.50
Sambíóin Álfabakka 13.00, 13.00, 14.00, 15.20, 15.20,
16.20, 17.40, 17.40, 18.40, 20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 13.00, 14.00, 15.15, 16.20, 17.30, 20.00
Sambíóin Kringlunni 13.00, 14.00, 15.20, 16.20, 17.40,
17.40, 18.40, 20.00
Sambíóin Akureyri 12.40, 13.00, 15.20, 17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 15.20, 17.40, 20.00
Smárabíó 13.00, 13.30, 15.20, 16.30, 17.45
Leitin að Dóru
Florence Foster
Jenkins Florencehafði þann eina
galla að geta ekki haldið lagi.
Metacritic63/100
IMDb 6,7/10
Laugarásbíó 20.00
Háskólabíó 17.30
Jökullinn logar
Sagan af gullkynslóð ís-
lenskrar knattspyrnu.sem
skráði sig í sögubækurnar. .
Morgunblaðið bbbnn
Háskólabíó 15.00, 17.30
Borgarbíó Akureyri 15.50
Eftir endurfundi Calvin við gamlan
skólafélaga dregst hann óvænt inn í
heim alþjóðlegrar njósnastarfsemi.
IMDb 7,7/10
Laugarásbíó 19.30, 22.00
Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.20
Smárabíó 13.00, 13.00, 15.20, 17.40, 19.30, 20.00, 22.00,
22.20
Háskólabíó 15.00, 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 17.50, 20.00, 22.10
Central Intelligence 12
TMNT: Out of the
Shadows 12
Bræðurnirfá um nóg að
hugsa á ný þegar Shredder
fær vísindamann til að búa
til nýja tegund af andstæð-
ingum.
Metacritic 40/100
IMDb 6,4/10
Sambíóin Álfabakka 12.30,
15.00, 17.30
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.00, 17.30, 20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 15.20,
22.20
Sambíóin Akureyri 15.00,
17.30
Sambíóin Keflavík 17.30
The Conjuring 2 16
Myndiner byggð á einu
þekktasta máli Ed og Lor-
raine Warren, en það er
draugagangur sem einstæða
móðirin Peggy Hodgson
upplifði árið 1977.
Metacritic 8,1/10
IMDb 65/100
Sambíóin Álfabakka 14.15,
17.00, 20.00, 20.00, 22.20,
22.45, 22.45, 23.20
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.45
Sambíóin Kringlunni 21.00,
22.20
Sambíóin Akureyri 22.20
Sambíóin Keflavík 22.20
The Nice Guys 16
Metacritic 70/100
IMDb 7,9/10
Laugarásbíó 22.30
Smárabíó 20.10, 22.45
Háskólabíó 15.00, 18.00,
21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00
Warcraft 16
Í heimi Azeroth er sam-
félagið á barmi stríðs.
Metacritic 32/100
IMDb 8,4/10
Laugarásbíó 20.00, 22.30
Smárabíó 20.00, 22.40
Borgarbíó Akureyri 22.10
Alice Through the
Looking Glass
Lísa þarf hún að ferðast í
gegnum dularfullan nýjan
heim til að endurheimta
veldissprota.
Bönnuð yngri en 9 ára.
Metacritic 39/100
IMDb 5,8/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.00
Sambíóin Egilshöll 17.30,
22.30
Money Monster 12
Reiður fjárfestir ræðst inn í
upptökuver sjónvarpsþáttar
og tekur framleiðsluteymi
þáttarins í gíslingu.
Metacritic55/100
IMDb 6,8/10
Smárabíó 20.10
Háskólabíó 20.00, 22.20
X-Men:
Apocalypse 12
Metacritic 51/100
IMDb8,3/10
Smárabíó 22.30
Háskólabíó 20.00
Me Before You
Louisu Clark býðst henni að
annast athafnamanninn
William Traynor sem lam-
aðist eftir mótorhjólaslys.
Metacritic 51/100
IMDb 7,8/10
Sambíóin Álfabakka 21.00
Sambíóin Kringlunni 20.00
Sambíóin Akureyri 20.00
Mothers Day Metacritic 17/100
IMDb 5,4/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.30
Angry Birds Metacritic 49/100
IMDb 6,6/10
Laugarásbíó 13.50, 15.50,
17.50
Smárabíó 13.00
Háskólabíó 15.00
Sambíóin Keflavík 15.20
The Jungle Book
Munaðarlaus drengur er al-
inn upp í skóginum.
Bönnuð innan 9 ára.
Metacritic 75/100
IMDb 8,2/10
Sambíóin Álfabakka 12.30,
15.00
Ribbit IMDb 4,2/10
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.30
Zootropolis
Metacritic 78/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Kringlunni 13.00
The Witch 16
Metacritic 83/100
IMDb 6,8/10
Morgunblaðið bbbbn
Bíó Paradís 22.00
The Treasure
Costi hjálpar Nágranna sín-
um að leigja málmleitartæki
til að leita að fjársjóði.
Bíó Paradís 18.00, 20.00
The Other Side 16
Metacritic 68/100
IMDb 7,0/10
Bíó Paradís 22.00
Arabian Nights: Vol.
1: The Restless one 12
Samtímaatburðir eru flétt-
aðir inní form Scheherazade.
Metacritic 80/100
IMDb7,2/10
bíó Paradís 17.30
Anomalisa 12
Metacritic88/100
IMDb 7,4/10
Bíó Paradís 20.00
Hross í oss
Bíó Paradís 20.00
101 Reykjavík
Metacritic 68/100
IMDb 6.9/10
Bíó Paradís 22.00
Draumalandið
Bíó Paradís 18.00
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Sogavegi við Réttarholtsveg
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Einkarekið apótek