Morgunblaðið - 18.06.2016, Síða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
Ein dáðasta
leikkona Breta,
Helen Mirren,
fer með hlut-
verk í hasar-
myndinni Fast 8
sem var tekin
upp að hluta til
hér á landi. Frá
þessu greindi
hún í viðtali í
tískublaðinu Elle, sagðist mikil
bíladellukona og vonandi fá að
keyra eitthvert tryllitæki mynd-
arinnar. Í myndinni verður mikið
um skotbardaga, slagsmál og bíla-
eltingaleiki og þá m.a. á ísilögðu
Mývatni.
Helen Mirren
Mirren leikur í has-
armyndinni Fast 8
Leikkonan Unnur Eggertsdóttir
mun fara með hlutverk í nýjum
söngleik, Marylin! The Musical, sem
fjallar um ævi kvikmyndastjörn-
unnar Marilyn Monroe og frum-
sýndur verður í Los Angeles í lok
júlí. Unnur hlaut fyrir skömmu verð-
laun við námslok í leiklistarskól-
anum American Academy of Drama-
tic Arts, var valin besta leikkona
útskriftarárgangsins og fetaði með
því í fótspor kvikmyndastjarnanna
Roberts Redford, Anne Hathaway
og Spencer Tracy.
Í frétt mbl.is segir að höfundur
verksins og leikstjóri, Tegan
Summer, sé fyrrverandi nemandi við
skólann og að hún hafi haft samband
við Unni eftir að hún hlaut verðlaun-
in. „Ég flyt til Los Angeles í mánuð
og hefst þá strangt æfinga-ferli.
Þetta er glænýr söngleikur og mark-
miðið er að koma honum í reglulegar
sýningar. Með svona nýja söngleiki
þarf að halda nokkur kvöld fyrir
fjárfesta og fá fólk til að tala um
verkið,“ segir Unnur í samtali við
mbl.is. Hún er með mörg járn í eld-
inum því auk söngleiksins mun hún
taka þátt í dansverki sem flakkar
milli staða og fjallar um ferðalag
danshöfundar á leið út úr skápnum.
Morgunblaðið/Ásdís
Á framabraut Unnur Eggertsdóttir er nýútskrifuð leikkona.
Unnur í söngleik
um Marilyn Monroe
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Skúli Sverrisson og HilmarJensson eru á meðal okkarmikilhæfustu tónlistarmanna
er kemur að allra handa tilrauna-
mennsku, þegar reyna skal á þanþol
formsins og hætta sér út á ókunnar
lendur standa þeir jafnan keikir í
stafni. Þessu hafa þeir sinnt af elju
um áratugaskeið, hérlendis og ekki
hvað síst erlendis. Ég hef ekki pláss
til að rifja upp afrek þessara meist-
ara hér en þau
eru mörg og
merkileg, Skúli
og Hilmar eru
heimsklassa-
listamenn sem
njóta bæði virð-
ingar og vin-
sælda á alþjóðavísu. Skúli hefur hin
síðustu ár einnig séð um listræna
stjórnun á hinum frábæra stað
Mengi sem hefur verið gott skjól og
gróðurhús fyrir íslenska grasrót og
tilraunamennsku. Mengi stendur að
baki þessari plötu, sem inniheldur
átta lög, hvers titlar eru byggðir á
ljóðinu Saumur eftir Ólöfu Arnalds.
Með þeim félögum er hinn norski
Arve Henriksen sem á að baki alveg
jafn tilkomumikinn feril og íslensk-
ir félagar hans.
Þetta er falleg plata, ekki bara
útlitslega (hönnuður er Sara Riel)
heldur og innihaldslega. Tónlistar-
sköpun þessara aðila hefur verið
býsna yfirgripsmikil og fjöl-
breytileg í gegnum tíðina, frá örg-
ustu óhljóðalist yfir í tindrandi, var-
færna fegurð og á þessari plötu
erum við, meira og minna, í síðast-
nefndu deildinni. Platan hefst á
„Kom“ sem ber með sér helgan him-
nablæ og tónn gervallrar plötunnar
er sleginn. Ljós og skuggar togast
á, undir engilblíðum falsettusöng
Arve krauma áhrifshljóð sem eru í
Í Saumi sérhvers manns...
Ljósmynd/Karólína Thorarensen.
Flæði Saumur er eftir þá Skúla Sverrisson, Arve Henriksen og Hilmar Jensson.
senn áleitin og aðlaðandi. Tromp-
etinn rís af krafti undir rest, studd-
ur hringlandi gítar og þessum ein-
kennandi bassahljóm Skúla þar sem
vissri hljóðbjögun er beitt til að
framkalla höfugt, dáleiðandi flæði.
Þeir sem hafa hlustað á Seríuplötur
Skúla vita hvað ég á við.
Þriðja lagið, „Undan“, hefst á
þessum hljómi og maður þarf ekki
nema nokkur sekúndubrot til að
heyra hver stendur á bakvið hann.
Yfir „syngur“ svo trompet Arve,
hljómurinn er fallegur, angurvær
og nánast viðkvæmnislegur. Þessi
helgi sem maður fann fyrir í upp-
hafslaginu er þarna yfir um og allt í
kring. Mér varð hugsað til titillags
fyrstu sólóplötu David Sylvian,
Brilliant Trees, er ég hlustaði og
kannski ekki að undra, Arve hefur
unnið með þeim meistara.
Þetta fagurfléttaða flæði er þó
ekki samfellt, „Forkun“ er skugga-
legri, svartari smíð, „Mín“ er líka
knosaðra verk, hefst á snilldarlegu
gítarplokki sem leiðir lagið, blástur-
inn er hvass og áhrifshljóðin sömu-
leiðis. Í „Opna“ stígum við inn í
djúpan dal; tónlistin er surgandi
hrátt „ambient“-flæði; ógurlegt og
fallegt í senn. Eins og maður standi
á brimbörðum kletti og horfi róleg-
ur yfir úfið haf (þið afsakið náttúru-
lýsinguna en, svona er þetta bara!).
„Blíða“ ber hins vegar nafn með
rentu, hæglátari smíð sem leiðir
okkur í endastefið, „Náð“, sem kall-
ast á við upphafið. Sama helgi er yf-
ir, söngurinn er á sínum stað, og
verkið er leitt til lykta með reisn.
Eins og sjá má er lítið hægt að
setja út á þetta verk, það stendur
glæsilega og er höfundum til sóma.
Mér skilst að þetta samstarf hafi
verið afar lengi í bígerð og ég sam-
fagna því mönnum að loks hafi þeir
náð landi. Vonandi að þeir tjaldi
ekki til einnar nætur, úr því að þeir
eru loks komnir.
» Ljós og skuggartogast á, undir engil-
blíðum falsettusöng
Arve krauma áhrifs-
hljóð sem eru í senn
áleitin og aðlaðandi.
Saumur er plata eftir þá Arve Henriksen (Trompet, söngur, rafhljóð), Hilmar Jensson (gítar) og
Skúla Sverrisson (bassi). Birgir Jón Birgisson tók plötuna upp í Sundlauginni, Finnur Hákonarson
hljómjafnaði og Skúli sá um eftirvinnslu og hljóðblöndun.
Verslun Tunguhálsi 10 | Sími 415 4000 | www.kemi.is | kemi@kemi.is
Lyktareyðandi
niðurbrotsefni
fyrir safntanka
ferðaklósetta
LEITIN AÐ DÓRU ÍSL.TAL 2, 5
LEITIN AÐ DÓRU 3D ÍSL.TAL 1:30, 3:40, 5:50
CENTRAL INTELLIGENCE 7:30, 10
THE NICE GUYS 10:30
WARCRAFT 8, 10:30
FLORENCE FOSTER JENKINS 8
ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 1:50, 3:50, 5:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 1:30 TILBOÐ KL 2