Morgunblaðið - 18.06.2016, Blaðsíða 52
Lúðvík Kalmar Víðisson sýnir blý-
antsteikningar af Óþekktum andlit-
um á Mokka til 20. júlí. „Tilgangur
þessara mynda var að skapa per-
sónur án þess að notast við nokkr-
ar fyrirmyndir eða annað til að
styðjast við og gefa því áhorfand-
anum tækifæri á að mynda sér
sína eigin skoðun á hver persónan
á myndinni er,“ segir Lúðvík um
myndir sínar. Hann útskrifaðist úr
LHÍ 2002 með BA gráðu í grafískri
hönnun og lauk MA
gráðu í Interactive
Digital Media frá
London 2005.
Hann hefur síð-
an unnið hjá
CCP sem Con-
cept artist.
Lúðvík sýnir óþekkt
andlit á Mokka
LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 170. DAGUR ÁRSINS 2016
Á þriðju tónleikum sumartónleika-
raðar veitingahússins Jómfrúarinnar
við Lækjargötu, sem fram fara í dag,
kemur fram tríó saxófónleikarans
Sigurðar Flosasonar. Með honum
leika þeir Þórir Baldursson á
Hammond-orgel og Einar Scheving á
trommur. Sérstakur gestur þeirra
verður sænski gítarleikari Fredrik
Olsson. Þeir munu flytja blúsaðan
djass og djassaðan blús eftir Sigurð,
bæði ný og eldri lög. Tónleikarnir fara
fram utandyra á Jómfrúartorginu.
Vegna landsleiks Íslands í knatt-
spyrnu hefjast tónleikarnir kl. 14 í
staðinn fyrir kl. 15 eins og vanalega.
Tónleikarnir standa í tvo tíma og því
verður spilað til kl 16. Aðgangur er
ókeypis.
Tríó Sigga Flosa og
Fredrik Olsson leika
LeBron James og félagar í Cleveland
Cavaliers hafa nú náð að jafna loka-
rimmuna í úrslitum NBA-deildarinnar
í körfuknattleik gegn meisturunum
Golden State Warriors eftir sigur í
sjötta leik liðanna á heimavelli sín-
um. Lokatölurnar 115:101 og verður
meistaratitillinn í deildinni því út-
kljáður í lokaleik liðanna annað kvöld
í Kaliforníu. »4
Oddaleikur verður í
Kaliforníu annað kvöld
Spánverjar tryggðu sér í
gærkvöldi sæti í 16-liða úr-
slitum Evrópumeistara-
mótsins í knattspyrnu þeg-
ar þeir unnu Tyrki, 3:0.
Spænska liðið hefur fullt
hús stiga eftir tvo leiki. Kró-
atar misstu vænlega stöðu
gegn Tékkum niður í jafn-
tefli, 2:2, eftir að gera
varð hlé á leiknum
vegna óláta.
»3
Spánn kominn
í 16-liða úrslit
„Leikurinn við Ungverja verður erf-
iður en við förum að sjálfsögðu í
hann til að vinna. Bæði lið fara í leik-
inn með því markmiði en þau eru
svipuð og þá sérstaklega hvað
varnarleikinn varðar.
Við búumst við öllu í
þessum leik,“ sagði
Kolbeinn Sigþórsson,
leikmaður íslenska
landsliðsins í
knattspyrnu sem
leikur öðru sinni á
Evrópumeistara-
mótinu í knatt-
spyrnu í dag. »1
Kolbeinn býst við
öllu í leiknum í dag
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Hvað getur maður sagt? Ég er bara
ægilega glaður, hrærður, undrandi
og hneykslaður yfir því að svona
ömurlegum listamanni hlotnist slíkur
heiður,“ segir listamaðurinn Ragnar
Kjartansson, léttur í bragði, og bætir
við: „Nei, ég segi svona.“
Tilefni samtalsins er að í gær var
hann útnefndur Borgarlistamaður
Reykjavíkur 2016. Athöfn fór fram í
Höfða þar sem tilkynnt var um út-
nefninguna.
Ragnar hefur haft í nógu að snúast
í listsköpun sinni undanfarin ár og
komið víða við, ekki bara í myndlist-
inni heldur einnig í tónlist, leikhúsi,
kvikmyndagerð og bókmenntum.
Bara á síðasta ári tók hann þátt í yfir
20 sýningum og í yfirgripsmikilli
grein um Ragnar, sem birtist nýverið
í tímaritinu The NewYorker og nefn-
ist Play it again, segir m.a. að hann
sé líklega sá listamaður í heiminum í
dag sem er mest önnum kafinn.
„Ég er búinn að hafa nóg að gera.
Þessi tími hefur verið ákaflega
ánægjulegur,“ segir hann.
Nýkominn af Vesturbakkanum
Sextán ár eru síðan Ragnar út-
skrifaðist úr Listaháskóla Íslands.
Spurður um helstu verkefnin í dag
nefnir hann yfirlitssýningar í
Barbican-listasafninu í London og
Hirshhorn-safninu í Washington.
Sýningin í London verður opnuð í
næsta mánuði og í október í
Washington.
„Þessar sýningar gefa gott yfirlit
um það sem ég hef verið að gera
undanfarin 16 ár og gaman að þessar
dásemdarstofnanir skuli vera að
standa í þessu,“ segir Ragnar, en
hann var einnig nýlega á ferðinni í
Ísrael þar sem hann málaði olíu-
málverk af húsum í landnemabyggð-
um á Vesturbakkanum. Verkin eru
sería sem kallast „Architecture and
Morality“, eða Arkitektúr og sið-
ferði, og er nú til sýnis á CCA-
listasafninu í Tel Aviv. Ragnar segir
ferðalagið um Vesturbakkann hafa
verið mjög sérstakt og undarlegt að
keyra þar um í tvær vikur á sendibíl
og skella upp trönum þess á milli til
að mála „ofbeldisfull en borgaraleg
hús, umkringdur vélbyssum og
spennu“.
Þá er í undirbúningi sýning í
Listasafni Reykjavíkur á næsta ári
sem Ragnar segir of snemmt að
greina frá í smáatriðum.
Það er ekki bara nóg að gerast í
listinni hjá Ragnari. Eftir helgina
gengur hann í það heilaga með Ingi-
björgu Sigurjónsdóttur myndlistar-
konu. Þau hafa verið saman í nokkur
ár en Ragnar á eina dóttur af fyrra
hjónabandi.
„Núna var stundin komin. Það
gerði útslagið að ég var kjörinn borg-
arlistamaður, þá sagði hún loksins
já,“ segir Ragnar.
Hrærður og hneykslaður
Ragnar Kjart-
ansson borgar-
listamaður 2016
Morgunblaðið/Ófeigur
Borgarlistamaður Ragnar Kjartansson, Borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2016, með veglegan blómvönd, áletr-
aðan stein og heiðursskjal. Tók hann við þessu úr hendi Sóleyjar Tómasdóttur, forseta borgarstjórnar.
„Verk hans geisla af smitandi
húmor um leið og þau kalla fram í
vitund okkar horfnar goðsagnir og
margræðar myndir liðinna tíma.
Þau brúa á einstæðan hátt bæði
bilið á milli listgreinanna og eldri
og nýrri miðla,“ segir m.a. í til-
kynningu Reykjavíkurborgar um
borgarlistamanninn.
Fertugur að aldri á Ragnar að
baki um 60 einkasýningar, 30 ólík-
ar uppákomur og gjörninga víðs
vegar um heim og hefur tekið þátt
í meira en 60 samsýningum.
Verk Ragnars hafa verið tekin til
sýninga á virtum söfnum og gall-
eríum, m.a. í París, Montreal, New
York, Detroit, Chicago, Tel Aviv,
Washington og London. Ragnar
átti framlag Íslands á Feneyja-
tvíæringnum árið 2009 með verk-
inu Endalokin, eða The End, sem
einnig var sýnt í Hafnarborg árið
2010. Þá er mörgum eftirminnileg
sýningin The Visitors í galleríinu
Kling og Bang árið 2013 en hún
hefur einnig verið sett upp víða
um heim.
Gallerí i8, sem heldur nú utan
um öll mál Ragnars, var í fyrra
með sýningu á verkum hans, Me
and my Mother, sem þau Guðrún
Ásmundsdóttir, móðir hans, hafa
tekið upp á fimm ára fresti allt frá
námi hans í Listaháskóla Íslands
árið 2000.
Húmor og horfnar goðsagnir
FERTUGUR AÐ ALDRI OG 60 EINKASÝNINGAR AÐ BAKI
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 888 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Sjö fluttir af Secret Solstice
2. Tólf fengu fálkaorðuna
3. Erla hugsaði strax til Stefáns
4. Ungfrú Bretland svipt titlinum
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í suðaustan 10-18 með rigningu fyrst suðvestanlands
síðdegis, hvassast við ströndina. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast norðaustan til.
Á sunnudag Suðaustlæg átt 3-10 m/s og rigning með köflum en úrkomulítið
norðaustanlands. Gengur í austan 10-18 með rigningu suðaustanlands um kvöldið.
Á mánudag Austan 8-15 með rigningu, einkum austanlands. Snýst í suðvestan
5-13 með skúrum um landið sunnanvert síðdegis. Hiti breytist lítið.