Morgunblaðið - 22.07.2016, Page 10

Morgunblaðið - 22.07.2016, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2016 Síðumúli 20 • Sími 551 8258 • storkurinn.is Verið hjartan lega velkom in STORKURINN er fluttur í Síðumúla 20 majubud.is Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is „Þetta er endanlegt svar frá um- hverfis- og skipulagsráði borgar- innar,“ segir Hjálmar Sveins- son, formaður ráðsins, en eins og fram hefur komið í blaðinu hafnaði ráðið ósk eiganda Land- símareitsins um niðurrif á Thor- valdssensstræti 6, sem er við- bygging við Landsímahúsið, Kirkjustrætismegin. Eftirfarandi bókun var gerð á fundi umhverfis- og skipulagsráðs sem var haldinn 6. júlí sl. „Umhverfis- og skipulagsráð vekur athygli á því að deiliskipulag Landsímareits byggir á þeirri grunnhugmynd að flétta skuli nýjar byggingar á reitnum við þær sem fyrir eru. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir að viðkomandi bygging standi áfram. Lóðarhafi þarf því að finna not fyrir þessa byggingu sem henta henni. Umhverfis- og skipu- lagsráð tekur neikvætt í fyrir- spurnina.“ Að sögn Hjálmars rituðu allir sjö fulltrúar í ráðinu undir bókunina. „Þetta er í raun svar hins pólitíska ráðs,“ segir Hjálmar. Hann segir að málið mun næst fara fyrir borgar- ráð sem staðfestir niðurstöðuna eða breytir henni, allt eftir atvikum. Málið var ekki tekið fyrir á fundi borgarráðs í gær. Alþjóðleg hugmyndasamkeppni Hjálmar segir að á sínum tíma hafi verið efnt til hugmyndasamkeppni fyrir Landsímareitinn sem var opin og alþjóðleg. „Ákveðin tillaga vann og síðan var unnið deiliskipulag á grundvelli þeirrar tillögu. Þar var rauður þráður í verðlaunatillögunni og deiliskipulaginu að þau hús sem væru fyrir á reitnum skyldu standa og nýbyggingar skyldi flétta saman við byggingar sem fyrir væru. Við teljum að það sé alveg skýrt að byggingarnar skuli standa,“ segir Hjálmar. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að eigandi Landsímareitsins, Lindavatn ehf., telur að húsið Thor- valdsensstræti 6 sé óhentugt fyrir þá starfsemi sem þar eigi að verða. Auk þess standist húsið m.a. ekki kröfur um jarðskjálftaálag. Því sé það ósk eigandans að húsið verði rifið. Synjun ráðsins á niðurrifi endanleg  Ósk um niðurrif Thorvaldsensstrætis 6 verður tekin fyrir í borgarráði Hjálmar Sveinsson Skötumessan í Garði afhenti síðast- liðið miðvikudagskvöld styrki að heildarverðmæti rúmlega sjö millj- ónir króna. Skötumessan var nú haldin tíunda árið í röð og sagði Ás- mundur Friðriksson, frumkvöðull Skötumessunnar, að af því tilefni hefði verið gert sérstakt átak til að fá fyrirtæki og velunnara til sam- starfs með þessum góða árangri. Gjafabréf vegna styrkjanna voru afhent í lok Skötumessunnar, eftir að um 400 gestir höfðu gætt sér á kæstri og saltaðri skötu, saltfiski og plokkfiski auk þess að hlýða á skemmtiatriði. Öll innkoman rennur til góðgerðarmála. Stærsta styrkinn fékk Velferðarsjóður Suðurnesja frá Icelandair Cargo. Ekki hafa allar fjölskyldur ráð á að kaupa skóla- máltíðir fyrir börn sín. Icelandair Cargo skuldbatt sig til að gefa ákveðna fjárhæð á hverju ári næstu fimm árin svo börn frá fátækum heimilum fái að borða í skólanum. Fyrirtækið Skólamatur ákvað að gefa myndarlegan afslátt af þessum máltíðum svo hægt verður að gefa skólabörnum alls 12.500 máltíðir að verðmæti alls 4,3 milljónir á næstu fimm árum. Björgin geðræktarstöð fékk styrk fyrir óvissuferð fyrir 50 manns, fyr- irtækið Áfangar ehf. styrkti Ferða- sjóð NES Íþróttafélags fatlaðra á Suðurnesjum um 400 þúsund kr. og fötluð kona fékk styrk til að fara í sumarbúðir. Fyrirtækið Dynjandi ehf. gaf tíu starfsmönnum Dósasels, sem er rekið af Þroskahjálp á Suð- urnesjum, vinnufatnað. Þá fékk Hæfingarstöðin í Reykjanesbæ að gjöf gróðurhús að verðmæti ein milljón króna og komu ýmis fyr- irtæki og einstaklingar til liðs við Skötumessuna til að gera þann draum að veruleika. Einnig var veittur 150.000 króna styrkur til menningarverkefna í Garðinum. Fjölskylda sem er að gera upp heimili sitt eftir að það eyðilagðist í eldsvoða fékk gefins alla málningu á húsið. Fjölskylda ungs manns sem fórst nýlega í um- ferðarslysi var styrkt líkt og fjöl- skylda ungs drengs sem glímir við langvinn veikindi. „Ég er ákaflega þakklátur þeim fyrirtækjum sem komu til liðs við okkur á tíu ára afmælinu og eins öll- um þeim sem hafa staðið með okkur í gegnum árin,“ sagði Ásmundur Friðriksson. gudni@mbl.is Skötumessan veitti styrki  Úthlutað var styrkjum upp á rúmlega sjö milljónir króna Ljósmynd/Hilmar Bragi Skötumessan Salurinn var fullsetinn og voru kræsingunum gerð góð skil. Messunni lauk með styrkveitingum. Vinna við alla þrjá ísfisktogara HB Granda er nú að nýju komin í fullan gang hjá skipasmíðastöðinni Celiktr- ans í Tyrklandi eftir Ramadan, föstumánuð múslima. Togararnir þrír eru nefndir eftir eyjum í Kolla- firði. Í frétt á heimasíðu HB Granda kemur fram að Engey RE verður af- hent fyrir árslok, stefnt er að sjó- setningu Akureyjar RE í lok næsta mánaðar og blokkarsmíði vegna Við- eyjar RE er nú hafin. Haft er eftir Þórarni Sigurbjörns- syni, sem hefur eftirlit með smíði skipa HB Granda hjá Celiktrans í Istanbul, að dagsetning vegna af- hendingar Engeyjar liggi enn ekki fyrir. Það styttist hins vegar í prufu- keyrslu á vélum og tækjum og reikn- að er með að ein ljósavél verði ræst nú í vikunni. Engey var sjósett í byrjun mars sl. Öll smíði ísfisktogaranna þriggja fer fram í Celiktrans-skipasmíða- stöðinni. Sá háttur var hafður á við smíði uppsjávarskipanna Venusar NS og Víkings AK að þau voru sett saman í annarri skipasmíðastöð þar sem Celiktrans leigði aðstöðu en fullnaðarsmíði þeirra fór fram hjá Celiktrans. Venus kom til landsins í maí 2015 og Venus í desember sama ár. Samkvæmt samningi HB Granda og tyrknesku skipasmíðastöðvarinn- ar verður Engey afhent síðar á þessu ári. Akurey AK verður afhent næsta vor en þriðji og síðasti togarinn, Við- ey RE, verður afhentur á haustmán- uðum 2017. Skipin íslensk hönnun Skipin eru öll 54,75 metrar að lengd og 13,5 metrar að breidd. Að- alvélar eru af gerðinni MAN 6L27/38 og er skráð afl þeirra 1.790 kW við 800 snúninga á mínútu. Millidekks- og lestarbúnaður verður smíðaður hjá Skaganum 3X og verður hann settur í skipin á Íslandi. Hönnuður skipanna er Alfreð Tulinius, skipa- tæknifræðingur hjá Nautic ehf. sisi@mbl.is Viðey RE Blokkarsmíði togarans er nýhafin í Tyrklandi. Ljósmynd/Þórarinn Sigurbjörnsson Engey RE Togarinn verður afhentur í lok þessa árs. Smíði ísfisktogara HB Granda í fullum gangi  Fyrsti togarinn af þremur verður afhentur í árslok

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.