Morgunblaðið - 22.07.2016, Blaðsíða 15
Keppni Íslandsmeistaramótið í pétanque, sem er franskt kúluspil og við
hæfi allra aldurshópa, verður háð fyrir austan nú um helgina.
Morgunblaðið/Ómar
Nikkuspilari Sjóliðar með borðalagðar húfur. Áhugi Frakka á tengslum við Fáskrúðsfjörð fer vaxandi enda er margt skemmtilegt í þeim pakka.
Fáskrúðsfjörður Horft yfir byggðarlagið og að smábátahöfninni sem er inn við fjarðarbotn.
Einu sinni var þessi staður kallaður Búðir og tilheyrir nú sveitarfélaginu Fjarðabyggð.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ætla má að mannfjöldatölur á Fá-
skrúðsfirði allt að því þrefaldist um
helgina, þegar þar verður haldin
bæjarhátíðin Franskir dagar í 21.
sinn. Fáskrúðsfirðingar eru í dag
um 700 en verði aðsókn á hátíðina
nú svipuð því sem verið hefur und-
anfarin ár má áætla að þegar best
lætur verði um 2.000 manns á
staðnum nú á laugardaginn. Margir
brottfluttir koma til dæmis heim í
gamla þorpið sitt á hátíðina og þá
eru á þessum tíma gjarnan haldin
þar svonefnd fermingarbarna- og
ættarmót. Þá kemur fólk víða af
Austurlandi í bæinn af þessu tilefni
og hefur gaman af.
Blanda af skemmtun
og fróðleik
„Hátíðin er orðin föst í sessi en
dagskráin er blanda bæði af
skemmtun og fróðleik um þann
menningararf okkar og sögu sem
viðvera frönsku skútusjómannanna
fyrr á tíð svo sannarlega er,“ segir
María Óskarsóttir, framkvæmda-
stjóri Franskra daga.
Dagskrá Franskra daga hefst í
dag, miðvikudag, en á morgun fer
boltinn svo að rúlla fyrir alvöru. Þá
verður meðal annars hjólreiða-
keppnin Tour de Fáskrúðsfjörður
og er þar skírskotað til hinnar
frönsku keppni sem er heims-
viðburður. Í þessari keppni er hjól-
að frá Höfðahúsum við utanverðan
fjörð inn í kauptúnið og endað við
sundlaugina. Klukkan 20 er svo at-
burður sem nefnist Kenderísganga
að kvöldlagi hvar fólk fer saman í
gönguferð og má ætla að sumir
verði þar og þá með létta drykki í
bakpokanum. Allt er þetta til gam-
ans gert og líklegt má telja að
bankað verði upp á á bæjum hvar á
boðstólum verða veitingar í frönsk-
um stíl, svo sem súkkulaðikökur,
lauksúpa og önnur góð magafylli
sem bætir, hressir og kætir.
Af öðrum atburðum má nefna
dorgveiðikeppni, Fáskrúðsfjarð-
arhlaupið, brekkusöng og tónleika
með góðum listamönnum. Þá er
ónefnd söngskemmtun í Fáskrúðs-
fjarðarkirkju á föstudeginum þar
sem Diddú og Bergþór Pálsson
koma fram á tvennum tónleikum.
Síðdegis á laugardag verður svo Ís-
landsmeistaramótið í pétanque, sem
er franskt kúluspil og við hæfi allra
aldurshópa. Má í þessari keppni án
nokkurs vafa reikna með lífi, fjöri
og talsverðri spennu.
Margt á Fáskrúðsfirði minnir á
þá gömlu velmektartíma þegar
franskir sjómenn af Bretaníuskag-
anum og víðar af norðurströnd
Frakklands sem sóttu á Íslandsmið
komu þangað inn. Duggurnar
frönsku voru á miðunum hér við
land nánast alla 19. öldina – og þús-
undir sjómanna þar um borð á
hverju ári. Þeir sóttu ýmsa þjón-
ustu til Fáskrúðsfjarðar svo sem
vistir og vatn og í byrjun 20. aldar
var þar reistur spítali til að þjóna
flotanum. Nú hefur það gamla hús
verið endurgert sem hótel í glæsi-
legum stíl – eins og mikla athygli
hefur vakið. „Hér í bæ tölum við oft
um Franska hverfið, því þar eru
byggingar sem minna á þessa sögu.
Hingað hafa komið hópar frá
Frakklandi til að kynna sér okkar
fallega byggðarlag hvar tengingin
við Frakkland er svo sterk. En
fyrst og síðast eru Franskir dagar
þó íslensk hátíð og allir eru vel-
komnir,“ segir María.
Leiðin liggur nú til Frakklands
Nýr svipur Á slóðum franskra skútusjómanna Íbúatalan mun væntanlega þrefaldast Hjólreiðar og söngur
Leiksvæði Hátíðin á Fáskrúðfirði er föst í sessi og margir koma um langan veg til þess að sýna
sig og sjá aðra, enda er maður manns gaman. Brottfluttir mæta gjarnan við þetta tilefni.
Útlönd Göturnar á Fáskrúðsfirði eru bæði merktar á íslensku og upp á
frönsku sem er við hæfi á þessum stað. Hér liggja líka vegir til allra átta.
BÆJARHÁTÍÐIR
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR