Morgunblaðið - 09.09.2016, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 09.09.2016, Qupperneq 44
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 253. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Stella ríkasta kona landsins 2. Andlát: Guðmundur Sigurðsson 3. Röddin, hárið og augun - bara allt 4. Hrottalegt morð í Kaupmannahöfn »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Nýdönsk heldur miðnæturtónleika í Nasa annað kvöld. Sérstakur gestur verður hljómsveitin Puffin Island sem kemur í fyrsta sinn fram á tónleikum. Nýdönsk hefur ekki leikið í Nasa um árabil. Tónleikarnir annað kvöld eru einu tónleikar Nýdanskrar það sem eftir lifir árs. Forsala á tix.is. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Nýdönsk með miðnæturtónleika  Lager Lager Lag- er Lagersala nefn- ist sýning sem opn- uð verður í Ekkisens í dag kl. 17. Á sýningunni sýna bresku mynd- listarmennirnir Anoushka Goodwin, Kerry Jackson, Sam Jones, Daniel Sean Kelly og Jack Squires afrakstur stuttrar vinnustofudvalar á Íslandi í Ekkisens galleríi. Öll hafa þau tengsl við listamannarekna rýmið Two Queens í Leicester á Bretlandi. Breskir listamenn sýna í Ekkisens  Hörpuleikarinn Katie Buckley heldur sína fyrstu einleikstónleika í Mengi í kvöld kl. 21. Á efnisskránni eru verk fyrir einleikshörpu eftir Lou Harrison, John Cage, Jesper Pedersen, Bergrúnu Snæbjörns- dóttur, Caleb Burhans og Ryan Ross Smith. Katie Buckley hef- ur verið fastráðin við Sinfóníuhljómsveit Ís- lands í áratug, verið ötull flytjandi kamm- ertónlistar og starf- rækt Duo Harpverk með Frank Aarnink á slagverk. Katie Buckley leikur einleiksverk í Mengi Á laugardag Gengur í norðan 8-15 m/s, hvassast norðvestantil, en austlægari vindur sunnan- og austanlands. Rigning fyrir norðan og austan, jafnvel talsverð á köflum, en úrkomulítið sunnan heiða. Hiti 7 til 14 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt 5-13 m/s og víða skúrir, en yf- irleitt þurrt fyrir norðan og hlýnar þar. Hægari austlæg átt í kvöld. VEÐUR Nýliðar Selfoss byrjuðu tímabilið í Olís-deild karla í handbolta með glæsibrag í gærkvöld þegar þeir unnu öruggan sigur á Aftureld- ingu í Mosfellsbæ, 32:25. Selfossi var spáð falli úr deildinni en Aftureldingu 3. sæti. Fram, sem spáð var botnsæti deildarinnar, var nálægt því að sækja stig á Seltjarnarnes en þar vann Grótta, 28:26. »2 og 3 Nýliðarnir byrjuðu á sigri í Mosó Keppni í Olís-deild kvenna í hand- knattleik hefst á morgun en deilda- keppni kvenna er nú tvískipt í fyrsta skipti í langan tíma. Átta lið skipa úr- valsdeildina og fjögur þau efstu kom- ast í úrslitakeppnina. Morgunblaðið fjallar í dag um þau fjögur lið sem það telur að endi í neðri hlutanum, en það eru Hauk- ar, Fram, Sel- foss og Fylk- ir. »2-3 Íslandsmót kvenna fer af stað á morgun „Það sem hefur gefið mér mest í þjálfuninni eru áhrifin sem íþrótt- irnar hafa á þá sem iðka þær af mikl- um krafti – að hafa tekið þátt í að móta einstaklinga sem fara svo út í lífið og nýta það sem þeir hafa lært í íþróttunum,“ segir Þráinn Haf- steinsson sem er hættur sem yfir- þjálfari frjálsíþróttadeildar ÍR, eftir 22 ára afar farsælt starf. »4 Þráinn skilar af sér afar góðu frjálsíþróttabúi ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Íslendingar og Danir tókust á í boot camp-keppni um síðustu helgi í Dan- mörku. Keppnin nefnist Guardians of the Hammer en verðlaunagripurinn er einmitt heljarinnar hamar eða sleggja. Hamarinn kom heim að keppni lokinni því Íslendingarnir sigruðu þetta árið en Danirnir höfðu einmitt farið með hann út í fyrra þeg- ar keppnin var haldin hér, þá í fyrsta skipti. „Við höfðum haldið boot camp- keppnina á Íslandi frá 2009 en í fyrra breyttum við fyrirkomulaginu og buðum vinastöðvum okkar hér heima og erlendis að taka þátt þar sem hver stöð sendi eitt lið til þátttöku. Í fyrra voru fjögur lið, tvö frá Íslandi og tvö frá Danmörku, en í ár vorum það við og sigurliðið frá því í fyrra, Kraft- værk frá Kaupmannahöfn,“ segir Ró- bert Traustason, þjálfari í boot camp í Sporthúsinu. Unnu 5 af 7 greinum Tuttugu og þrír voru í íslenska boot camp-liðinu en haldið var stór úrtaka meðal þeirra sem æfa hjá stöðinni til að velja í liðið. Keppt er í sjö ólíkum greinum svo fólk getur komist inn í liðið út frá ólíkum styrk- leikum. „Það var mikill áhugi á því að kom- ast í liðið. Greinarnar sem var keppt í voru gefnar út snemma í sumar svo við höfðum allt sumarið til að æfa okkur fyrir þetta,“ segir Róbert. Keppt var í sprettgrein, styrkt- argrein, hvíldarstöðugreinum, ketil- bjölludrætti í sandi, upphífingum og klifri, svokölluðu „chipper“ sem er blanda af mörgum æfingum m.a. einni óvæntri grein sem var tilkynnt um stuttu fyrir mót en þá þurftu tveir að bera liðsfélaga sinn 800 metra leið á sjúkrabörum. Síðasta greinin var stærsta þrautin, þá vinna tólf saman að því að leysa allskonar þrautir á 45 mínútum. Íslendingar unnu fimm greinar af sjö en Danirnir höfðu naumlega betur í lokagreininni og ketilbjölludrættinum. „Ströndin í Danmörku reyndist okkur mjög erfið því sandurinn var allt öðruvísi en hér heima, við vorum búin að æfa okkur í Nauthólsvík með góðum árangri en úti sukkum við bara niður í sandinn,“ segir Róbert. Kátir og kófsveittir Róbert segir að svona mót skapi mikla stemningu í hópnum, bæði hjá þeim sem voru að keppa og þeim sem eru að æfa boot camp en t.d. fylgdust 1.000 manns með keppninni á Snapc- hat. Á milli 600 og 700 manns æfa nú boot camp í Sporthúsinu. „Þeir sem æfa hjá okkur eru í fyrsta lagi að sækjast eftir árangri en svo er það fé- lagsskapurinn sem laðar að, það koma allir brosandi, hlæjandi og kóf- sveittir af æfingum,“ segir Róbert. Hörkukeppni um hamarinn  23 manna boot camp-lið keppti í Danmörku Sigurfögnuður Íslenska boot camp-liðið kampakátt með hamarinn á lofti eftir vel heppnaða keppni. Harka Drumbalyfting í The Guardians of the Hammer-keppninni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.