Morgunblaðið - 10.09.2016, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2016
BAKSVIÐ
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Forsætisráðuneytið fól Fram-
kvæmdasýslu ríkisins það verkefni
í vor að kanna húsnæðisþörf ráðu-
neytanna og athuga hvort mögu-
legt væri að koma starfsemi
þeirra allra fyrir á stjórnarráðs-
reitnum svonefnda, milli Lind-
argötu, Ingólfsstrætis, Klapp-
arstígs og Skúlagötu.
Að sögn Halldóru Vífilsdóttur,
forstjóra Framkvæmdasýslunnar,
hefur verið rót á húsnæðismálum
nokkurra ráðuneyta.
Til að mynda geti velferðarráðu-
neytið ekki starfað árfam við
Tryggvagötu vegna galla í hús-
næði, forsætisráðuneytið muni
einnig missa leiguhúsnæði sitt við
Hverfisgötu á næstunni auk þess
sem húsnæði mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytisins þyki bæði
of stórt og óhentugt fyrir starf-
semi þess. Einnig standi yfir end-
urgerð Arnarhvols, aðseturs fjár-
málaráðuneytisins.
Of margir fermetrar í notkun
Niðurstaða úttektarinnar var að
mögulegt væri að koma ráðuneyt-
unum öllum fyrir á reitnum, auk
fleiri opinberra stofnana.
Í henni kom einnig fram að
ráðuneytin noti nú fleiri fermetra
undir hvern starfsmann en þörf er
á samkvæmt viðmiðum fjár-
málaráðuneytisins, sem notast
hefur verið við allt frá árinu 2009.
Samkvæmt grófri athugun Fram-
kvæmdasýslunnar notast hver
starfsmaður ráðuneytanna við
tæplega helmingi meira rými en
viðmiðin gera ráð fyrir.
Samkvæmt þeim viðmiðum sem
notast var við, þarf hver starfs-
maður u.þ.b. 23 fermetra en raun-
in nú er að hver starfsmaður í
ráðuneyti notar um 40 fermetra,
en mælst er til þess að brúttóflat-
armál hefðbundins skrifstofu-
húsnæðis á hvert stöðugildi fari
ekki yfir 23 fermetra á stöðugildi
og þá eru rými á borð við kaffi-
stofur og fundarherbergi tekin
með í reikninginn.
„Við sáum það að heildarþörfin
væri u.þ.b. 15 þúsund fermetrar,
en ráðuneytin eru í dag að nota
um 24 þúsund fermetra. Þetta er
auðvitað gróf skoðun, tölur sem
myndu breytast eitthvað þegar
farið væri lengra ofan í málið. Við
sjáum samt að þarna er hægt að
hagræða. Hugsanlega um níu þús-
und fermetra, hugsanlega meira,
hugsanlega eitthvað minna, segir
Halldóra.
Verkefnamiðað starfsum-
hverfi í framtíðinni
Halldóra segir að munurinn
skýrist af aldri þeirra bygginga
sem nú hýsa ráðuneytin og að í
sumum þeirra hafi litlar breyt-
ingar verið gerðar í áranna rás.
Í úttekt Framkvæmdasýslunnar
er litið til nýstárlegri leiða til nýt-
ingar skrifstofuhúsnæðis á borð
við svonefnt verkefnamiðað starfs-
umhverfi. Öll húsnæðisöfl-
unarverkefni taki mið af slíkum
hugmyndum.
„Þegar við gerum þessar þarfa-
greiningar í dag gerum við t.d. ráð
fyrir næðisrými og reynum að
uppfylla allar þarfirnar, þannig sé
líka gott rými fyrir teymisvinnu,
gert sé ráð fyrir félagsrýmum og
öðru. Í hefðbundu skipulagi höfum
við verið að skipuleggja m.t.t. for-
tíðar en ekki til framtíðar. Það
þekkja allir að vinnuumhverfi hef-
ur breyst mjög mikið. Þú ert ekki
bundinn af því að vera að vinna á
sama stað, fólk er að vinna á ýms-
um stöðum, fer með fartöluvna
sína eða símann og vinnur í þeim,
fer á fundi og annað. Dagurinn
samanstendur af ýmsum athöfnum
sem eru ekki allar einskorðaðar
við einn stað eða eitt og sama
skrifborðið. Þessir 23 fermetrar
eru rúmir og talan mun örugglega
minnka, en hinar Norðurlanda-
þjóðirnar eru komnar niður í 17 til
18 fermetra á starfsmann, segir
Halldóra.
Engar ákvarðanir teknar
Hún segir engar formlegar
ákvarðanir hafa verið teknar um
framhaldið, en mikilvægt sé að
hafa skýra framtíðarsýn í húsnæð-
ismálum ríkisins og hentugt og
hagkvæmt húsnæði.
Verkefnið verður kynnt fyrir
ráðuneytisstjórum síðar í sept-
ember en þegar hefur niðurstaðan
verið kynnt forsætisráðuneytinu,
fulltrúum nokkurra ráðuneyta og
fjárlaganefnd Alþingis.
Stjórnarráðsreitur til skoðunar
Hægt að koma öllum ráðuneytunum og fleiri opinberum stofnunum fyrir á reit milli Lindargötu,
Ingólfsstrætis, Klapparstígs og Skúlagötu Hver starfsmaður notar nú meira rými en þörf er talin á
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Stjórnarráðshúsið Stjórnarráðið við Lækjargötu. Skoðað er hvort hægt sé að koma öllum húsnæði allra ráðuneyta
fyrir á einum reit í miðborg Reykjavíkur og hefur Framkvæmdasýsla ríkisins gert úttekt á málinu.
Framtíðarsýn fyrir stjórnarráðsreitinn
Heimild: framkvæmdasýsla ríkisins
Mögulegt svæði fyrir staðsetningu ráðuneytisbygginga
Möguleg staðsetning bílastæðahúss
Kalkofnsvegur
Skúlagata
Arnarhóll
In
gó
lfs
st
ræ
ti
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
KælingHiti
HreinleikiLoftraki
fyrir heimilið SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
Vinnuvéla &
bílablað
fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 13. sept
Meðal efnis verður:
• Sendibílar og pallbílar
• Vörubílar
• Langferðabílar
• Skurðgröfur og beltagröfur
• Sérútbúnaður og græjur fyrir atvinnubíla
• Umhirða, viðhald og umhyggja fyrir atvinnubílum
• Hefðbundið efni Bílablaðsins.
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Í SÍMUM:
569 1390
569 1180