Morgunblaðið - 10.09.2016, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2016
Ráðgjöf og þjálfun
nolta.is
Hausttilboð á völdumVOLVO
PENTA vélapökkum
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
D-4 225 hö.
með hældrifi
verð frá 3,9 millj. án. vsk
D-6 330 hö.
með hældrifi
verð frá 4,9 millj. án. vsk
Tilboðin gilda til og með 28. október
Við verðum á Sjávarútvegssýningunni í
Laugardalshöllinni 28-30 september.
BAKSVIÐ
Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmi
Hér áður fyrr var ekki litið á blá-
skelina sem herramannsmat. Oftast
var hún tínd og notuð til beitu. Nú
er öldin önnur. Bláskelin er orðin
mjög vinsæl á veitingahúsum bæj-
arins og er í huga ferðamanna réttur
sem sérstaklega tengist Stykk-
ishólmi, nokkurs konar „Local fo-
od“.
Sem dæmi um vinsældir bláskelj-
arinnar seldi Sjávarpakkhúsið, sem
er lítill veitingastaður við höfnina
1,2,tonn af bláskel bara í ágústmán-
uði.
Bláskelin er ræktuð á línum sem
eru í sjó rétt fyrir utan Stykkishólm
og hefur vöxtur hennar verið mjög
góður í sumar. Það er Íslensk blás-
kel ehf sem ræktar skelina og er
Símon Sturluson framkvæmda-
stjóri.
Gott að rækta bláskel
Símon segir að vel komi út að
rækta bláskel í Breiðafirði. Hér eru
miklir straumar sem skapa mikið
fæðuframboð fyrir skelina og svo
tandurhreinn sjórinn. Holdfylling
skeljarinnar er um 30%. Að sögn
Símonar er mikil aukning í sölu blá-
skeljar í sumar Fyrirtækið hóf
ræktunina fyrir tæpum 10 árum og
árið 2010 var hún komin í söluhæfa
stærð. Til að byrja með var erfitt að
koma henni á markað innanlands og
seldi fyrirtækið allt það ár um fjög-
ur tonn, sem er svipað magn og
heimamenn notuðu í nýliðnum
ágústmánuði. Íslendingar kunnu
ekki að meta þessa nýja sjávarafurð.
En með mikilli fjölgun erlendra
ferðamanna hefur orðið breyting á
og eins er það með Íslendinga, nú
láta þeir freistast. Nú er bláskel orð-
in valkostur á helstu sjávarréttaveit-
ingahúsum landsins.
Helmingur gesta vill skel
Sara Hjörleifsdóttir rekur veit-
ingahúsið Sjávarpakkhúsið og tekur
staðurinn 29 gesti í sæti. Sara segir
að reksturinn gangi vel og hjálpar
bláskelin til þess. Bláskelin er lang-
vinsælasti rétturinn og suma dagana
panta yfir 50% gesta bláskel. Það
kemur Söru á óvart hvað erlendu
gestirnir vita mikið um bláskelina og
að hún sé ræktuð við Stykkishólm.
Þeir þurfa ekki að spyrja, bara
panta. Þar koma samfélagsmiðlarnir
sterkir inn. Gestirnir eru sífellt að
taka myndir þegar bláskelin er bor-
in fram og eins af sjálfum sér borð-
andi skel. Þessar myndir fljúga svo
út um allan heim og vekja athygli.
Bláskelin auglýsir sig sjálf. Erlend-
um gestum þykir stemming í að
borða bláskel, það er handavinna í
kringum að borða í stað þess að nota
hnífa og gafla. Þá segir Sara að
dæmi séu um það gestirnir biðji um
poka til að taka skeljarnar með sér
sem minjagripi. Það sé lagður metn-
aður í að matreiða bláskel og hafa
hana grinilega svo hún veki vænt-
ingar sem ekki bregðist.
Að mati Söru er bláskelin búin að
vinna sér sess á matseðlinum. Í
sumar hefur orðið helmings auking
á skelréttum hjá Sjávarpakkhúsinu
og hún er viss um að vinsældir blás-
keljarinnar muni bara aukast og það
sama eigi við söluna hjá sér og Sím-
oni skeljabónda.
Bláskelin í Hólminum liggur
ekki brotin milli steina
Bláskelin langvinsælust á Sjávarpakkhúsinu Ræktuð rétt fyrir utan Hólminn
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Vinsæll réttur Sara Hjörleifsdóttir veitingamaður og Símon Sturluson bláskeljabóndi. Höfnin er í baksýn.
Bláskeljaréttur Hann lítur vel út og nýtur vinsælda. Bæði Íslendingar og erlendir ferðamenn panta hann.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Héraðslæknir Austurumdæmis
stendur fyrir rannsókn á smitandi
veirusjúkdómi í hreindýrum. Veldur
hann bólgum og roða á júgrum hrein-
kúa. Líklegast er talið að þetta sé
svokölluð kindabóla (orf) sem þekkt
er í sauðfé og geitum og getur smit-
ast í fólk.
„Það er ekki staðfest hvað þetta
er,“ segir Hjörtur Magnason, dýra-
læknir á Egilsstöðum. Málið kom til
hans kasta fyrir um þremur vikum
þegar komið var með sýni úr júgri
hreindýrs sem fellt hafði verið. Sáust
bólgur og roði á júgrinu. Hjörtur seg-
ist strax hafa talið að þetta gæti verið
sjúkdómurinn orf sem þekktur er í
sauðfé en hefur aldrei greinst í hrein-
dýrum, að minnsta kosti ekki hér á
landi. Sigurður Sigurðarson sem
lengi var dýralæknir á Keldum komst
að sömu niðurstöðu þegar Hjörtur
leitaði til hans. Sömu skoðunar er
hreindýrameinafræðingur í Noregi
sem Sigurður leitaði til. Málið er þó
enn til skoðunar.
8-10 sýktar kýr
Hjörtur hefur fengið fleiri sýni og
talið er að 8-10 kýr sem felldar hafa
verið í haust hafi haft þessi sjúkdóms-
einkenni á júgri. Hann segir augljóst
að sjúkdómurinn sé mjög smitandi.
Ef þetta er veirusjúkdómurinn orf,
sem sumir kalla kindabólu, getur
hann smitast á milli kálfs og júgurs. Í
lömbum er talað um smitandi munn-
angur. Hjörtur segir að veiran geti
valdið ígerðum og júgurbólgu og
jafnvel hita og í versta falli dauða
hreindýrsins. Engar upplýsingar
liggja fyrir um að dýr hafi drepist úr
þessu. Telur Hjörtur það raunar
ósennilegt og hreindýrastofninum
stafi engin hætta af þessum sjúk-
dómi.
Kindabóla getur smitast í fólk og
eru fjölmörg dæmi úr sögunni um
það. Fólkið fær þá gjarnan bólur á
hendur. Hjörtur hefur varað veiðieft-
irlitsmenn við þessum möguleika og
ráðlagt þeim að snerta ekki sýkta
parta felldra hreindýra með berum
höndum.
Morgunblaðið/Ásdís
Hreinkýr Verið er að rannsaka
smitandi veirusjúkdóm.
Óþekkt
veirusýking
í hreinkúm
Hinn árlegi
haustmark-
aður kristni-
boðsins
verður hald-
inn í Kristni-
boðssalnum,
Miðbæ, Háa-
leitisbraut
58-60, í dag,
laugar-
daginn 10.
september,
frá kl. 12-16.
Til sölu
verður grænmeti, ávextir, sultur,
kökur, blóm og ýmislegt til heim-
ilishalds. Nýbakaðar vöfflur
verða á boðstólum og kaffi á
könnunni.
Ágóðinn fer m.a. í námssjóð
fyrir efnalitla en áhugasama
nemendur í Eþíópíu og Keníu,
segir í fréttatilkynningu.
Haustmarkaður til
styrktar kristniboði