Morgunblaðið - 10.09.2016, Síða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2016
Flugfélagið Ernir flytur senn í nýtt
húsnæði á Reykjavíkurflugvelli, en
rífa á aðstöðuna þar sem afgreiðslan
og skrifstofurnar eru aftan við Ice-
landair Hótel Reykjavík Natura.
Hörður Guðmundsson, forstjóri
félagsins, segir að núverandi hús-
næði, sem sé í eigu Isavia, sé bæði
gamalt og úr sér gengið. „Það var
dæmt heilsuspillandi,“ segir hann og
bendir á að það leki og haldi ekki
vindi.
Einingahús
Í staðinn verða sett upp gámaein-
ingahús og reyndar er búið að koma
tveimur slíkum húsum fyrir inni í
flugskýlinu aftan við afgreiðsluna.
Um er að ræða tímabundið skrif-
stofuhúsnæði meðan á niðurrifi og
uppbyggingu stendur en innritunar-
salurinn og biðsalurinn verða áfram
í notkun.
Gert er ráð fyrir að niðurrif hefjist
eftir miðjan mánuðinn. Hörður segir
að það taki ekki nema tvo til þrjá
daga og síðan taki um fjórar til sex
vikur að ganga frá nýja húsnæðinu á
svæðinu. Gámarnir séu tilbúnir og
lítið mál sé að raða einingunum sam-
an.
Flugfélagið Ernir er með sjö flug-
vélar og 65 manns í vinnu. Flogið er í
áætlun til Bíldudals, Gjögurs, Húsa-
víkur, Hafnar í Hornafirði og Vest-
mannaeyja. Auk þess sinnir félagið
leiguflugi um allt land, til Grænlands
og Norðurlandanna og sjúkraflugi
til útlanda.
steinthor@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Skrifstofa Gamla húsnæðið er hvorki vind- né vatnshelt.
Flugfélagið Ernir
í nýtt húsnæði
Núverandi aðstaða á Reykjavík-
urflugvelli gömul og úr sér gengin
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Heilmikil uppbygging er fyrirhuguð
á skíðasvæði Tindastóls á Sauðár-
króki á næstu árum. Þegar hefur
verið hafist handa við framkvæmdir
og nýverið var lagt slitlag að skíða-
svæðinu og mal-
bikað stórt bíla-
stæði við það.
Viggó Jónsson
framkvæmda-
stjóri skíðasvæð-
isins segir að
þetta hafi staðið
til frá árinu 2007
en ekki hafi orðið
af því fyrr en nú.
Vegurinn að
skíðasvæðinu var mjög lélegur, að
sögn Viggós, og fældi það fólk frá að
sækja svæðið. Hann býst við að
þessar úrbætur eigi eftir að auka að-
sóknina að skíðasvæðinu enn frekar
en hún hefur farið ört vaxandi síð-
ustu ár.
Skíðalyfta lengd
Þá er á dagskránni að byggja nýj-
an skíðaskála og eru teikningar að
honum tilbúnar. Ekki hefur verið
ákveðið hvenær verður farið í þær
framkvæmdir, að sögn Viggós, en
núverandi skáli rúmar vart þá starf-
semi sem er á skíðasvæðinu nú.
Gamli skálinn hefur þjónað Skag-
firðingum í tugi ára, fyrst sem flug-
stöðvarbygging við Sauðárkróks-
flugvöll, síðar sem skíðaskáli á
gamla svæðinu og nú á hinu nýrra.
Einnig er á döfinni að lengja skíða-
lyftuna alveg upp á topp Tindastóls.
Hún liggur nú upp í 690 m hæð en
með lengingunni mun hún fara upp í
tæplega 900 m hæð.
Göngubraut er á svæðinu sem er
troðin alla þá daga sem það er opið
og þá er búnaður til snjóframleiðslu
á staðnum. Síðasta vetur var sett
upp brettafæriband, svokallað töfra-
teppi, fyrir yngstu skíðaiðkendurna
og byrjendur og hefur það gefið
mjög góða raun að sögn Viggós.
Hann tekur sem dæmi hóp frá Spáni
sem kom til þeirra í fyrra, hann
byrjaði á töfrateppinu og æfði sig
þar en í lok dags var hann kominn í
lyftuna, svo það gerir byrjendum
auðveldara um vik að æfa sig í
brekkunum.
Síðustu vetur hefur verið gott
færi í Tindastóli og aðsóknin góð. Að
sögn Viggós eru það aðallega Skag-
firðingar, Húnvetningar og erlendir
ferðamenn sem nýta sér skíðasvæð-
ið. „Við erum að hugsa til framtíðar.
Því er spáð að hingað komi tvær
milljónir ferðamanna ár hvert bráð-
lega og við, eins og aðrir, þurfum að
vera viðbúin því að taka á móti
þeim,“ segir Viggó.
Hann er nú staddur á skíðaþingi í
hálöndum Skotlands ásamt sjö öðr-
um Íslendingum. Skotar og Íslend-
ingar skiptast á að halda þingið en á
því bera þeir saman bækur sínar og
læra hvorir af reynslu annarra. „Að-
stæður eru nokkuð líkar á þessum
tveimur stöðum, aðallega varðandi
veðrið og við fáum að heyra hvernig
þeir takast á við það,“ segir Viggó.
Mikil uppbygging fyrirhug-
uð á skíðasvæði Tindastóls
Malbika veg og bílastæði Nýr skíðaskáli í deiglunni
Ljósmynd/Björn Jóhann
Skíðasvæðið Gamli skíðaskálinn á malbikuðu bílaplaninu.
Viggó Jónsson