Morgunblaðið - 10.09.2016, Page 28
28 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2016
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Fimmta kjarnorkutilraun Norður-
Kóreumanna í fyrrinótt sýnir að
refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna
gegn þeim duga ekki nema Kínverj-
ar beiti áhrifum sínum og knýi ein-
ræðisstjórnina í Pjongjang til að
hætta að þróa kjarnavopn, að mati
fréttaskýrenda. Þeir eru þó efins um
að stjórnvöld í Kína vilji eða geti það.
Nokkrir fréttaskýrendanna telja
að ríki heims þurfi að beita nýjum
aðferðum til að binda enda á kjarn-
orku- og eldflaugatilraunir Norður-
Kóreumanna og Bandaríkjastjórn
eigi einskis annars úrkosti en að
hefja samningaviðræður við þá.
Ljóst sé að prikið dugi ekki til að
breyta hegðun ráðamannanna í
Pjongjang og nú þurfi að ota að þeim
gulrót. Sagan sýnir þó að ekki er víst
að umbun dugi frekar en refsing.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum náðu
samkomulagi við stjórnina í Pjongj-
ang í febrúar 2012 um að hún léti af
tilraunum sínum til að þróa kjarna-
vopn gegn því að Bandaríkin sæju
Norður-Kóreu fyrir 240.000 tonnum
af matvælum. Þau áttu að duga
handa öllum börnum yngri en tíu ára
og barnshafandi konum í Norður-
Kóreu í eitt ár. Einræðisstjórnin
braut samkomulagið um tveimur
mánuðum síðar þótt tæpar tvær
milljónir N-Kóreumanna hefðu dáið
úr hungri frá síðasta áratug aldar-
innar sem leið og milljónir manna
þjáðust enn af vannæringu vegna
viðvarandi matvælaskorts í landinu.
Kínverjar óttast glundroða
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
hefur nú þegar fimm sinnum sam-
þykkt refsiaðgerðir gegn Norður-
Kóreustjórn. Fréttaskýrandi breska
ríkisútvarpsins, Steve Evans, segir
að svo geti farið að fimmta kjarn-
orkutilraun Norður-Kóreumanna í
fyrrinótt verði til þess að öryggisráð-
ið herði refsiaðgerðirnar. Til að
mynda sé hugsanlegt að ráðið banni
útflutning á olíu til Norður-Kóreu.
Sá hængur er hins vegar á að slík-
ar aðgerðir gætu valdið algeru efna-
hagshruni og aukið á þjáningar al-
mennings í Norður-Kóreu, fólks sem
einræðisherrarnir kæra sig kollótta
um. Kínverjar hafa verið helstu
bandamenn einræðisstjórnarinnar í
Norður-Kóreu og vilja ekki að hún
hrökklist frá völdum vegna þess að
þeir óttast að það geti valdið glund-
roða og valdatómarúmi sem gæti
orðið til þess að bandamenn stjórn-
valda í Suður-Kóreu og Bandaríkj-
unum kæmust til valda í Pjongjang.
Algert efnahagshrun gæti einnig
orðið til þess að milljónir Norður-
Kóreumanna flýðu yfir landamærin
til Kína.
Þótt Kínverjar hafi lengi verið
helstu bandamenn stjórnarinnar í
Pjongjang, verið helsta viðskipta-
þjóð N-Kóreu og séð landinu fyrir ol-
íu hafa þeir mótmælt tilraunum
þeirra til að þróa kjarnavopn sem
hægt væri að nota til árása með eld-
flaugum. Ráðamönnunum í Peking
hefur gramist framganga N-Kóreu-
stjórnar í málinu og óánægja þeirra
lýsir sér meðal annars í því að þeir
hafa ekki enn boðið einræðisherran-
um Kim Jong-Il í heimsókn til Kína.
Kínverjar vilja þó ekki ganga svo
langt í andstöðunni við kjarnorkutil-
raunirnar að hún verði stjórn
Norður-Kóreu að falli.
„Ólíklegt er að stjórnin í Peking
fallist á að auka verulega þrýsting-
inn á Norður-Kóreustjórn,“ hefur
fréttaveitan AFP eftir Bonnie Glas-
er, sérfræðingi hugveitunnar Center
for Strategic and International Stu-
dies (CSIS) í Washington. Glaser
segir að stjórnvöld í Kína vilji „frek-
ar að hafnar verði samningaviðræð-
ur við stjórnina í Pjongjang með það
markmiði að ná friðarsamkomulagi
sem feli í sér að Norður-Kóreumenn
afsali sér kjarnavopnum gegn því að
þeir fái efnahagsaðstoð og Banda-
ríkjamenn viðurkenni ríkisstjórn
Norður-Kóreu“.
Spenna milli Kínverja og
Bandaríkjamanna
Stjórn Baracks Obama, forseta
Bandaríkjanna, hefur hvatt Kínverja
til að beita áhrifum sínum og auka
þrýstinginn á stjórnina í Pjongjang.
Gætt hefur vaxandi spennu í sam-
skiptum Bandaríkjamanna og Kín-
verja síðustu mánuði og þótt Kín-
verjar hafi stutt ályktanir öryggis-
ráðs SÞ um refsiaðgerðirnar leikur
vafi á því að þeir hafi fylgt þeim eftir
af fullum krafti. Fréttaskýrendur
eru á einu máli um að án fulltingis
Kínverja sé borin von að refsiað-
gerðir dugi til að knýja Norður-
Kóreumenn til að hætta þróun
kjarnavopna.
„Án Kínverja er þessi barátta töp-
uð, við þurfum samstarf og sam-
vinnu til að finna lausn á deilunni,“
hefur AFP eftir einum fréttaskýr-
endanna, Jenny Town, aðalritstjóra
38 North, vefseturs sem er helgað
rannsóknum á málefnum Norður-
Kóreu.
Litlar líkur eru þó taldar á því að
stjórnvöld í Bandaríkjunum og
Suður-Kóreu fallist á viðræður við
Norður-Kóreustjórn. Ekki hafa
komið fram neinar vísbendingar um
að Barack Obama ljái máls á því að
breyta stefnu sinni í málinu og for-
seti Suður-Kóreu, Park Geun-hye,
hefur ekki heldur léð máls á viðræð-
um við stjórnina í Pjongjang.
Nýlegt samkomulag um að
Bandaríkjamenn komi upp eld-
flaugavarnakerfi í Suður-Kóreu hef-
ur vakið reiði stjórnvalda í Peking
sem segja að það sé ógn við þjóðar-
öryggi Kína. Samkomulagið gæti
reynst afdrifaríkt þar sem það hefur
orðið til þess að Kínverjar hafa leit-
ast við að bæta samskiptin við stjórn
Norður-Kóreu síðustu mánuði, að
sögn Johns Delury, sagnfræðings
við Yonsei-háskóla í Seoul.
Adam Cathcart, breskur sérfræð-
ingur í sögu Kína og málefnum
Kóreuríkjanna, telur líklegt að
Norður-Kóreumenn hafi gert Kín-
verjum viðvart fyrr í vikunni um
fimmtu kjarnorkutilraunina. Hann
segir að án aðstoðar Kínverja verði
lítið hægt að gera til að refsa stjórn-
inni í Pjongjang. „Norður-Kóreu-
menn hafa lagt mikla vinnu í að ein-
angra landið almennt og eru orðnir
vanir refsiaðgerðum annarra ríkja,“
hefur AFP eftir honum.
Í fjölmiðlunum í Norður-Kóreu er
hamrað á því á hverjum degi að land-
ið þurfi á kjarnavopnum að halda
vegna hættu á að Bandaríkin ráðist
inn í landið til að steypa stjórninni.
Breska blaðið The Guardian hefur
eftir fréttaskýrendum að þessi þrá-
hyggja geti komið einræðisstjórn-
inni sjálfri í koll, ýtt undir vígbún-
aðarkapphlaup í grannríkjunum og
kröfur um að gerð verði árás á
Norður-Kóreu til af afstýra því að
þeir eignist kjarnavopn sem hægt
væri að skjóta á önnur lönd. Kelsey
Davenport, sérfræðingur í afvopn-
unarmálum, telur þó ólíklegt að svo
stöddu að lönd á borð við Suður-Kór-
eu og Japan grípi til þess ráðs að
segja upp samningnum um bann við
útbreiðslu kjarnorkuvopna, NPT,
þar sem það geti haft alvarlegar af-
leiðingar fyrir ríkin sjálf.
Fyrsta vetnissprengjan
** Samkvæmt mati
varnarmálaráðuneytis
Suður-Kóreu
Nokkrar
kjarnorku-
tilraunir
sem vöktu
mikla
athygli
* Heimildum ber
ekki alltaf saman
um orkuna sem
losnaði
Norður-Kórea
1954
Bandaríkin
2006
1
2009
1-2
2013
6-9 4-6 10**
Sept.
2016
Jan.
2016
Tilraunir
1998
Indland
40
1968
Frakkland
2.600
1967
Kína
3.300
1961
Sovétríkin
50.000
1955
Sovétríkin
1.600
1957
Bretland
1.800
15.000
1952
Bandaríkin
10.400
Sprengjuárásir á Japan
Bandaríkin
1945
Hiroshima
12-18
Nagasaki
18-23
Pakistan
40
1998
Kjarnorkusprengingar bornar saman
Norður-Kórea
Heildarfjöldi kjarnorkusprenginga í tilraunaskyni
Pakistan
Indland
Frakkland
Kína
Sovétríkin
Bretland
1.032
715
45
210
45
3
2
5
Bandaríkin
Áætluð orka sem losnaði*
í kílótonnum
Heimildir: CTBTO/nuclearweaponarchive.org/ArmyTechnology.com/FAS
Kjarnorkutilraunir Norður-Kóreumanna
Kim Jong-Il
1994 - 2011
Kim Jong-Un
2011 -
9. okt. 2006
Minna en 1
kílótonn
25. maí 2009
Um það bil
2 kílótonn
12. febrúar 2013
Líklega
6-7 kílótonn
6. janúar 2016
Líklega
4-6 kílótonn
Sohae
Eldflauga-
stöðvar
KÍNA
Yongbyon-
kjarnorkumiðstöðin
Sinpo
Wonsan
*Að sögn varnar-
málaráðuneytis
Suður-Kóreu
Heimild: Bandaríska jarðfræðistofnunin USGS
PJONGJANG
75 km SEOUL
SUÐUR-
KÓRA
Punggye-ri
kjarnorku-
tilraunastöðin
Síðasta kjarnorku-
sprengingin er
talin sú öflugasta
í Norður-Kóreu
til þessa*
9. september 2016
Orkan sem losnaði talin hafa
numið 10 kílótonnum
Úran-
sprengja
Massa af úrani
skotið á annan
úranmassa til að
valda sprengingu
„Byssukúlu-aðferðin“
Hvel af kleyfu efni
látið falla um sjálft sig
þegar hvellhettur springa
til að valda sprengingu í
plútonkjarna
Innsprenging
Plúton-
sprengja
Dæmi til skýringar
Kjarnaoddar
Heimildir : Manhattan Project/techinsider.io
Keðjuverkun
Vetnis-
sprengja
Skjöldur úr úrani hafður
utan um hólf þar sem
kjarnasamruni fer
fram. Nifteindir frá
samrunanum valda klofnun
úransins. Þannig stóreykst
sprengikrafturinn
Baráttan töpuð án Kínverja
Hvorki umbun né refsingar hafa dugað til að stöðva kjarnorkutilraunir Norður-Kóreumanna
Ólíklegt talið að Kínverjar vilji eða geti knúið N-Kóreustjórn til að hætta að smíða kjarnavopn
Sú öflugasta til þessa
» Stjórnvöld í Suður-Kóreu
segja að sprengingin í fyrrinótt
sé öflugasta kjarnorkuspreng-
ing í Norður-Kóreu til þessa.
Hún hafi mælst um tíu kíló-
tonn, tvöfalt öflugri en í fjórðu
kjarnorkutilraun N-Kóreu-
manna 6. janúar.
» Eitt kílótonn jafngildir
sprengikrafti 1000 tonna af
hefðbundna sprengiefninu
TNT. Kjarnorkusprengingin í
Hiroshima 1945 mældist 15
kílótonn.
» Stjórn N-Kóreu fullyrti að
sprengjan sem sprengd var í
fyrrinótt væri nógu lítil til að
hægt hefði verið að beita henni
í árás með langdrægri eld-
flaug. Vopnasérfræðingar hafa
dregið þá fullyrðingu í efa.
» Melissa Hanham, sérfræð-
ingur í baráttunni gegn út-
breiðslu kjarnavopna, segir að
ekki sé hægt að staðfesta full-
yrðingu N-Kóreumanna nema
þeir skjóti eldflaug með kjarna-
oddi. „Enginn vill sjá slíka til-
raun. Útilokað er að þeir geti
gert slíka tilraun með öruggum
hætti og hún gæti hæglega
orðið kveikja að stríði.“