Morgunblaðið - 10.09.2016, Page 42
42 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2016
✝ Óli Stefánssonfrá Merki, Jök-
uldal, fæddist 23.
október 1923. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Dyngju á
Egilsstöðum 3.
september 2016.
Foreldrar hans
voru Stefán Júlíus
Benediktsson,
bóndi í Merki, f.
1875, d. 1954, og
Stefanía Óladóttir, húsfreyja í
Merki, f. 1886, d. 1934. Fyrri
kona Stefáns hét Guðný Björns-
dóttir, f. 1875, d. 1917.
Systkini Óla voru Helga, f.
1922, Lilja, f. 1925, d. 2015, Jó-
hann, f. 1930. Hálfsystkini Óla,
samfeðra, voru Aðalheiður,
Benedikt, Guðrún Brynhildur,
Þórey, Sólveig Ásgerður, Unnur
og Valborg. Þau eru öll látin.
Uppeldisbróðir þeirra var Óli
Jóhannes Sigurðsson frá Hauks-
stöðum á Jökuldal, einnig látinn.
Hinn 13. júlí 1957 giftust þau
Óli og Elín Sigríður Benedikts-
dóttir frá Hvanná, Jökuldal, f.
1938, d. 1972. Þau eignuðust
í sambúð með Báru Dögg, þau
eiga eina dóttur. b) Elín, f. 1990,
í sambúð með Sigurði Vilberg,
þau eiga eina dóttur, Svövu Dís.
c) Sara, f. 2000.
5) Benedikt, f. 1967, giftur
Ágústu Júníusdóttur. Synir
þeirra eru: a) Logi, f. 2001, b)
Máni 2004, c) Tumi, f. 2009.
Óli fæddist og ólst upp í
Merki á Jökuldal. Hann bjó þar
alla sína tíð fyrir utan tvö síð-
ustu æviárin, en þá dvaldi hann
á hjúkrunarheimili á Egilsstöð-
um. Óli var gagnfræðimennt-
aður frá Alþýðuskólanum á Eið-
um. Árið 1954 tók hann við
búskap í Merki ásamt bróður
sínum, Benedikt. Hjónin Óli og
Elín Sigríður hófu búskap á ný-
býlinu Arnarhóli árið 1960. Þau
samnýttu samt sem áður íbúðar-
hús með Benedikt, bróður Óla.
Auk búskapar var Óli hrein-
dýraeftirlitsmaður og skytta.
Óli hafði gaman af því að stúss-
ast í eldhúsi og var listakokkur,
einnig sá hann vinum og vanda-
mönnum fyrir nýprjónuðum
sokkum.
Útför Óla fer fram frá Egils-
staðakirkju í dag, 10. september
2016, kl. 11. Hann verður jarð-
settur í Merki.
fimm börn:
1) Lilja Hafdís, f.
1956, maki Björn
Hallur Gunnars-
son, dóttir þeirra
er Guðný Halla Sól-
lilja, f. 2000. Dóttir
Lilju er Helga, f.
1978, ættleidd til
Hrefnu Sigfúsdótt-
ur og Ágústs
Ágústssonar, gift
Jóhannesi Bald-
vini. Börn þeirra eru: a) Stein-
unn Marsilía, b) Anna Hrefna, c)
Ágúst Baldvin.
2) Stefán, f. 1958, giftur Sól-
rúnu Hauksdóttur. Börn þeirra
eru: a) Dagmar Ýr, f. 1982, gift
Guðmundi Hinrik, þau eiga tvö
börn, Hinrik Nóa og Óliver Ara.
b) Óli, f. 1987, sonur hans er
Stefán Teitur.
3) Brynhildur, f. 1964, börn
hennar eru: a) Guðrún Margrét,
f. 1999, b) Njáll, f. 2001, c)
Himri, f. 2003, d) Þórey Lára, f.
2004.
4) Kári, f. 1965, maki er Ingi-
björg Birna Elísdóttir, f. 1966.
Börn þeirra eru: a) Bogi, f. 1988,
„Þetta er viska!“ Þessi orð
eru búin að hljóma stanslaust í
huga mér síðustu daga enda má
segja að þau hafi verið hálfgerð
einkunnarorð afa. Hann hafði
afskaplega gaman af því að
hneykslast á hinu og þessu. Ég
var svo heppin að fá að alast
upp með afa á heimilinu. Við
bjuggum niðri og hann og syst-
ir pabba uppi.
Þetta fyrirkomulag hafði ótal
marga kosti fyrir barn. Ef mér
var á einhvern hátt misboðið á
neðri hæðinni, hvort sem það
var í mat eða framkomu, þá var
hægðarleikur að skjótast upp
stigann í öruggt skjól hjá afa
þar sem allt var látið eftir litlu
stelpuskotti. Það gefur kannski
ákveðna vísbendingu að eitt
fyrsta orðið sem ég lét út úr
mér var „lúlú“ og stóð fyrir
súkkulaði.
Ef það var eitthvað sem afi
átti alltaf í sínum fórum þá var
það súkkulaði eða annað gotterí
til að gauka að börnum. Þá
passaði hann upp á að við
systkinin á bænum ættum ein-
hverja aura þegar við vorum að
fara í kaupstaðarferð svo við
gætum nú örugglega keypt
okkur eitthvert góðgæti.
Hann Óli afi minn í Merki
var gull af manni en gat stund-
um verið með hrjúft yfirborð
og nokkuð óvæginn – en það
tók því aldrei neinn illa, svona
var hann bara. Hann var órag-
ur við að segja nákvæmlega
sína skoðun á hinu og þessu,
eins og til dæmis líkamsvexti
fólks.
Og af einhverjum ástæðum
gat hann látið hárið á mér fara
mikið í taugarnar á sér. Ég var
alltaf með sítt hár sem ungling-
ur og hann var sífellt að segja
mér að klippa það. Og ekki tók
betra við þegar ég fór að lita á
mér hárið – þá var honum öll-
um lokið og tilkynnti mér
margoft að það væri „ógeðslegt
að lita svona á sér hausinn“.
Afi fór nánast aldrei af bæ –
ekki nema hann hafði erindi og
þegar því var lokið þá vildi
hann flýta sér strax heim aftur.
Honum fannst almennt að fólk
ætti að vera heima hjá sér en
ekki vera að „þvælast einhvers
staðar“, eins og hann sagði svo
gjarnan.
En þótt hann sjálfur væri
ekki mikið gefinn fyrir að vera
á „þvælingi“ þá þótti honum
fátt skemmtilegra en að taka á
móti gestum og gefa þeim að
borða.
Hann bar á borð ýmsar
kræsingar sem hann sjálfur
bakaði eða eldaði. Margir kann-
ast við að hafa komið til Óla og
fengið hreindýrabuff, kjöt,
steiktan silung, jólaköku, klein-
ur eða vöfflur.
Best þekktur var hann þó
líklega fyrir það sem hann
geymdi bak við stólinn og dró
upp þegar fólk sem honum lík-
aði vel við kíkti á hann í eldhús-
inu á loftinu.
Við afi spiluðum oft, jafnt ól-
sen, þjóf og lönguvitleysu. Þá
kenndi hann mér að telja
punktana í brids, en hann
skipti oft spilastokknum í fjóra
bunka og dundaði sér svo við
að telja punktana í hverjum
fyrir sig en svo var aldrei spil-
að neitt meira í því spili. Hans
helsta tómstundagaman var þó
prjónaskapurinn.
Hann var alltaf að prjóna
sokka og stundum vettlinga
líka.
Hann var ansi grobbinn af
þessum sokkum sínum enda
voru þeir altalaðir sem bestu
sokkar sem hægt væri að eign-
ast, þykkir, vel þæfðir og
óskaplega hlýir. Ég er mjög
glöð að ég á enn nokkur pör en
nú er ljóst að þau verða að end-
ast mér út lífið því fleiri sokka
prjónar hann afi ekki úr þessu.
Dagmar Ýr Stefánsdóttir.
Óli Stefánsson
Allt í heiminum
er hverfult og það
er einmitt þess
vegna sem ég set
þessi orð á blað.
Svanur minn hefur kvatt þenn-
an heim allt of snemma. Mér
líður pínulítið eins og að hafa
lent í stormi sem ég vissi innst
inni að myndi taka enda, en
aldrei grunaði mig að hann
myndi taka þig svona snemma.
Við hin sem eftir lifum þurfum
að læra að lifa upp á nýtt með
öllu tómarúminu sem því fylgir
– því Svanur er ekki með okkur
lengur.
Svanur Pálsson
✝ Svanur Páls-son fæddist 14.
maí 1974. Hann
lést 22. ágúst 2016.
Útför Svans fór
fram 9. september
2016.
Gítarinn er
þagnaður, húmor-
inn horfinn og bar-
áttan á enda. Ég
get ekki með orð-
um lýst söknuðin-
um sem hellist yfir
mig þegar ég minn-
ist litla bróður
míns, Svans.
Alveg frá upp-
hafi vorum við
mjög náin systkini.
Við deildum saman herbergi,
áttum sama dótið og gengum
jafnvel í eins fötum – heima-
gerðum prjónafötum eftir
mömmu. Oft á tíðum hélt fólk
að við værum tvíburar sem var
þvílík móðgun fyrir mig því ég
var þremur árum eldri. Svo
komu unglingsárin, ég ungling-
ur á undan þér, treysti þér fyr-
ir öllum mínum leyndarmálum.
Þá var ég komin í hljómsveit og
þú að byrja að æfa fyrstu gít-
argripin.
Það kom snemma í ljós
hversu mögnuðum músíkölsk-
um hæfileikum þú varst gædd-
ur og fóru unglingsárin mest í
að spila og syngja. Það voru
ekki ófáar stundirnar sem við
áttum úti í bílskúr þegar allir
hinir voru sofnaðir.
Þá vorum við að taka upp
blúslög sem við bulluðum jafn-
óðum. Tónlistin tengdi okkur
ávallt sterkum böndum og oftar
en ekki skemmtum við okkur
saman um helgar, þú með þín-
um vinum og ég með mínum.
Svo skildi leiðir og við fórum
út í heim – ég til Danmerkur og
þú til Noregs. Ég man svo vel
jólin sem ég kom heim frá Dan-
mörku en þú ætlaðir að vera
áfram í Noregi. Þau jól voru
tómleg án þín og mér fannst
varla taka því að halda upp á
gamlárskvöld þar sem þú varst
ekki með okkur. Um hádegi á
gamlársdag birtist þú allt í einu
upp úr þurru og stökkst fram á
gólf.
Þið mamma höfðuð ákveðið
að koma mér á óvart og hún
þagði yfir þessu öll jólin. Því-
líkir fagnaðarfundir. Kvöldið
breyttist í eintóma gleði og við
skemmtum okkur fram á næsta
morgun.
Alltaf gat ég hringt í þig
þegar mér leið illa og þurfti
hjálp til að greiða úr lífsins
flækjum.
Þú sást ávallt hlutina í réttu
ljósi og sagðir mér alltaf sann-
leikann – þótt hann væri oft á
tíðum sár. Þegar ég var ófrísk
að mínu fyrsta barni þurfti ég
að ganga í gegnum allskyns
erfiðar rannsóknir þá verðandi
einstæð móðir að flytja heim
frá útlöndum. Þú tókst ekki í
mál að ég færi ein í gegnum
þetta heldur stóðst eins og
klettur mér við hlið allan tím-
ann.
Á þessum tíma bjó ég hjá
þér og þú hjálpaðir mér í gegn-
um erfiða tíma. Því verð ég ei-
líflega þakklát. Stuttu síðar
kom elsku Guðný inn í líf þitt
og þú eignaðist yndislega fjöl-
skyldu sem varð þinn klettur í
lífinu.
Það er komið að erfiðri
kveðjustund. Það verður þungt
að fylgja þér síðasta spölinn því
sársaukinn er svo mikill. Ég bið
englana og allt okkar fólk sem
á undan þér fór að hjálpa þér
yfir í Sumarlandið. Þar hitt-
umst við á ný þegar minn tími
kemur og þá tekur þú á móti
mér. Minning þín mun ávallt
lifa.
Þín systir,
Gyða.
Að gamall vinur sé fallinn frá
í blóma lífsins er meira áfall en
orð fá lýst.
Drengur sem maður hefur
þekkt frá þeim tíma er við hóf-
um skólagöngu í Engidalsskóla
sex ára gamlir. Svanur er lík-
lega einn sá hæfileikaríkasti
sem ég hef kynnst; átti afar
auðvelt með bóklegt nám,
teiknaði sem fæddur listamað-
ur, spilaði á gítar svo fátt eitt
sé nefnt.
Á unglingsárum okkar í
Hafnarfirði þekkti líklega önn-
ur hver manneskja Svan, enda
var gítarinn vinsæll hjá mörg-
um og hélt hann oft uppi góðri
stemningu í partýum eða bara
hreinlega utandyra, t.d. á Stöð-
inni.
Hann naut sviðsljóssins og
var oft hrókur alls fagnaðar.
Þegar ég frétti af veikindum
Svans þá sló ég á þráðinn til
hans, smá stressaður eins fá-
ránlegt og það kann jafnvel að
hljóma. En það var að sjálf-
sögðu ástæðulaust. Svanur var
hinn hressasti og sló á létta
strengi. Húmorinn aldrei langt
undan eins og við fengum að
upplifa við skrif hans á Facebo-
ok.
Minningarnar eru margar.
Góðar minningar sem munu
ávallt lifa í hjörtum okkar sem
vorum svo heppin að kynnast
Svani. Við munum muna eftir
afar hugrökkum vini, hlýjum og
traustum, þar sem stutt var í
húmorinn.
Ég sendi Guðnýju, börnum,
foreldrum og systkinum Svans
innilegar samúðarkveðjur.
Halldór Jón Garðarsson.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
• Skattaleg ráðgjöf
• Skattauppgjör dánarbús
og erfingja
• Erfðafjárskýrslugerð
• Önnur þjónusta
Spekt ehf. • S. 587 7600 • Borgartúni 3
jon@spekt.is • petur@spekt.is
Þjónusta við dánarbússkipti
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát
og útför móður minnar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ALDÍSAR DÚU ÞÓRARINSDÓTTUR.
.
Unnur Sigtryggsdóttir, Ásgrímur Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna
andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
MARGRÉTAR KATRÍNAR
VALDIMARSDÓTTUR,
áður til heimils að Ölduslóð 44,
Hafnarfirði,
sem lést 10. júlí. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu
í Hafnarfirði fyrir góða umönnun og hlýju í veikindum hennar.
.
Steingrímur Guðjónsson, Sigríður Inga Svavarsdóttir,
Valdís Birna Guðjónsdóttir, Einar Kristján Jónsson,
Þórdís Guðjónsdóttir, Sigurður Björgvinsson,
Ólafía S. Guðjónsdóttir, Jón Auðunn Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir hlýhug, samúð og
vináttu við andlát og útför
DAGNÝJAR MARÍU
SIGURÐARDÓTTUR,
félagsráðgjafa MA og sjúkraliða.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 11E,
Landspítalanum við Hringbraut, fyrir
góða umönnun og virðingu.
.
Jón Garðar Hafsteinsson,
Ragnar Heiðar Jónsson,
Axel Ingi Jónsson, Birna Styrmisdóttir,
Páll Grétar Jónsson,
Ingibjörg St. Sigurðardóttir, Jóhann Sigurðsson,
Sigurður K. Sigurðsson, Hallfríður G. Blöndal
og fjölskylda.
Þökkum auðsýnda samúð, vináttu og
hlýhug vegna andláts elskulegs eigin-
manns, föður og afa,
HELMOUTS KARLS KREIDLER
sjónfræðings,
sem lést 19. ágúst við heimili sitt við
Vatnsendablett.
.
Steinunn Kristjánsdóttir,
Einar Victor Karlsson,
Dagur Freyr Einarsson, Eydís Lára Einarsdóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
AUÐAR ÁSU BENEDIKTSDÓTTUR.
.
Hildur Hrönn Hreiðarsdóttir, Guðmundur Sigurðsson,
Ingibjörg Hreiðarsdóttir, Guðmundur Magnússon,
Bogey Hreiðarsdóttir, Árni Alfreðsson,
Logi Snævar Hreiðarsson,
Hreiðar Hugi Hreiðarsson, Tove Gulbrandsen,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og
hlýhug með heitum faðmlögum,
símhringingum, blómum og skeytum við
andlát og útför elsku besta pabba okkar,
tengdapabba og afa,
EINARS HALLGRÍMSSONAR
bónda á Urðum
í Svarfaðardal.
Guð blessi ykkur öll.
Halla Soffía Einarsdóttir,
Hafliði Ólafsson,
Jóhanna Guðný Einarsdóttir,
Hallgrímur Einarsson,
Einar Hafliðason,
Sigurlaug Hanna Hafliðadóttir.