Morgunblaðið - 10.09.2016, Page 51
DÆGRADVÖL 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2016
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000
www.kemi.is - kemi@kemi.is
Fyrir börn - Fyrir fullorðna - Fyrir fagmenn
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú virðist sakleysið uppmálað og
engu líkara en að þú hafir enga ákveðna
stefnu í lífinu. Það er hins vegar langt frá
því að vera rétt, innst inni ertu ákveðin og
metnaðargjörn manneskja.
20. apríl - 20. maí
Naut Vinir og félagar þínir gera miklar kröf-
ur til þín. Gefðu þér líka tíma til þess að
staldra við og vega og meta stöðu þína.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það eru skemmtilegar blikur á lofti
og ef þú heldur rétt á spöðunum getur þú
átt ánægjulega stund með þínum nánustu.
Hafðu ekki áhyggjur af öðrum – þeir sjá um
sig sjálfir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er ekki alltaf rétta ráðið að
grípa inn í líf annarra þótt aðstæður séu til
þess. Þú lest á milli lína í tölvupósti sem þú
færð.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ef þú gerir mistök veist þú einn af
þeim. Það er einn af kostum þess að vinna
einn. Farðu varlega í skemmtanalífinu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú gefst upplagt tækifæri til þess að
svara pósti og öðrum skilaboðum sem þú
hefur ekki komist yfir að svara í vikunni. Fé-
lagslíf þitt blómstrar sem aldrei fyrr.
23. sept. - 22. okt.
Vog Meiriháttar breytingar liggja í loftinu
svo þú þarft að undirbúa þig vel. Treystu á
sjálfan þig, aðrir hafa nóg með sig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ef þú vilt breyta einhverju þá
skaltu strax ganga í málin og sannfæra aðra
um ágæti hugmynda þinna. Hægt er að
blanda saman viðskiptum og ánægju án
vandkvæða.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gleymdu ekki að þakka það sem
vel er gert. Hvettu ástvini til þess að styðja
þig með því að gefa þér svigrúm. Þú færð
góðar fréttir af fjölskyldumeðlimum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Kærum vini liggur eitthvað á
hjarta en segir ekkert af ótta við viðbrögð
þín. Þér hættir til að sjá ofsjónum yfir
eyðslu annarra. Líttu í eigin barm áður en
þú lætur eitthvað út úr þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú mátt ekki vanrækja líkama
þinn; þú færð ekki annan. Reyndu að hafa í
huga að þér líður best þegar þú ert í góðu
sambandi við vini þína.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Reyndu að finna leið til að tjá alla
þessa iðandi gleði sem þú geymir innra með
þér. Ekki ofmetnast þó að margir hæli þér.
Laugardagsgátan var semendranær eftir Guðmund Arn-
finnsson:
Á helgum tíðum hann er framinn.
Hann er af rímnaskáldum saminn.
Hungraðir þann hefja enn.
Hálsi fullum iðka menn.
Harpa á Hjarðarfelli á þessa
lausn:
Um helgar kyrja kirkjusöng.
Kveða skáldin rímnasöng.
Oft má heyra sultarsöng.
Sönginn fjölda í mannþröng.
Árni Blöndal svarar:
Sungnar tíðir muna menn.
Mansöng rímnasmiðir yrkja.
Hungursöngur heyrist enn.
Hálsi fullum sönginn styrkja.
Guðrún Bjarnadóttir leysir gát-
una þannig:
Tíðasöng má tauta í þröng
og textasönginn frjálsan ríma.
Ruglast það við sultarsöng,
sunginn fullum hálsi í tíma?
Helgi R. Einarsson svarar:
Lausnin síðast reyndist röng,
reisn breyttist í angur,
en málið núna snýst um söng.
Svona er lífsins gangur.
Helgi Seljan á þessa lausn:
Tíðasöngur tíðkast enn
taldist rímnasöngur góður.
Kyrja sultarsönginn menn,
söngsins ríkir gleðihróður.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Tíðasöngur heyrðist hljóma.
Hjálmar skáld kvað mansönginn.
Víða sultarsöngvar óma.
Söng Fóstbræðra vil ég róma.
Lætur limru fylgja:
Við raust kvað hinn rómsterki Bragi,
sín raddbönd er þandi sá gæi,
hve rammfalskt hann söng
um síðkvöldin löng
var fáheyrt og fjarri lagi.
Og að sjálfsögðu gáta í lokin:
Varla réttu ráði með,
risinn upp að nýju,
árla dags ég ennþá kveð
eina gáturýju.
Milli landa liggur ver.
Létt mun hann að sverja.
Blettur í hestsins auga er.
Eflaust þennan margur sér.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sannkveðið er
söngurinn besti
Í klípu
„ÉG SKIL. ÞANNIG AÐ ÞÚ LÍTUR Á ÞIG
SEM Á-REIÐ-AN-LYGI-LEGT VITNI?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„OG HVAÐ FÉKK ÞIG TIL ÞESS AÐ LÁTA AF
HNEFALEIKUM?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að búa til sykurlausa
eftirrétti.
HALLÓ,
LÆKNIR
ALLT ER Í
ÞESSU FÍNA
ÞVÍ MINNA SEM HÚN
VEIT, ÞVÍ BETRA
HÉRNA…
FÁÐU SMÁ SILFUR…
FARÐU ÚT OG
FÆRÐU MÉR ALLT Á
ÞESSUM LISTA!
ENGIN
ÞÖRF…
ÉG HEF
STÁL!
Víkverji skellti sér á tónleika meðkanadísku stórstjörnunni Just-
in Bieber á fimmtudagskvöldið í
Kórnum. Hann var líkt og margir
aðrir á hans aldri í yngri fé-
lagsskap. Hann var með ungri
frænku sinni og skemmti sér kon-
unglega. Víkverji veltir fyrir sér
hvort margir hafi ekki gripið tæki-
færið og keypt miða með það fyrir
augum að gleðja börnin sín með því
að sjá stórstjörnuna. Þegar þeir
innst inni vildu sjálfir sjá Bieber og
fara á tónleika með honum. Það er
ekkert óeðlilegt enda kann dreng-
urinn að syngja og er prýðilegur
tónlistarmaður. Hins vegar var Vík-
verji heppinn að fá frían miða á
tónleikana á síðustu stundu. Hann
rétt missti af fyrstu lögunum en
það kom ekki að sök
x x x
Aldurssamsetning hópsins varfrekar í yngri kantinum. For-
eldrar, frænkur og frændur með
yngri börn voru fyrirferðarmikil á
dansgólfinu enda er yngsta kyn-
slóðin heilluð af honum. Víkverji er
hæstánægður með tónleikana. Það
sem stendur upp úr eru dans-
ararnir og „showið“ allt. Minna fór
fyrir söng Biebersins sem „mæm-
aði“ flest lögin en þó ekki alveg öll.
Tónlistarmaðurinn fetar í fótspor
margra stórstjarna sem gera slíkt
hið sama á tónleikum sínum en
margir hafa þennan háttinn á þegar
þeir flytja lögin sín á tónleikum.
x x x
Víkverji er samt spenntastur fyrirþví sem gerist næst þegar hann
ætlar út að skokka. Víkverji var
nefnilega kominn í skokkgallann og
var að fara út að taka einn léttan
hring þegar honum bauðst ókeypis
miði kl. 20.20 en þá voru tíu mín-
útur í að Bieber færi á svið. Vík-
verji var ekki lengi að skella sér í
sturtu og í bingógallann og af stað
enda býr hann við hliðina á Kórn-
um.
x x x
Tónleikar með Bieber voru síðastaafsökun Víkverja fyrir að fara
ekki út að skokka. Þar áður voru
það óklipptar táneglur sem héldu
Víkverja frá skokkinu. Hver verður
næsta afsökun? víkverji@mbl.is
Víkverji
Allt megna ég fyrir hjálp hans, sem
mig styrkan gerir (Fil. 4:13).