Morgunblaðið - 10.09.2016, Qupperneq 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2016
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Þetta eru allt dálítið dökkar myndir
en þetta eru annaðhvort myndir sem
hafa að geyma hrylling eða hafa eitt-
hvað svart við sig – svartan húmor
eða annað slíkt. Þær hafa flestar
gengið í gegnum endurnýjun lífdaga
víðast hvar og því hafa þær þennan
ákveðna költ-status,“ segir Sigurjón
Kjartansson en
hann er einn af
skipuleggjendum
fyrstu költmyn-
dahátíðarinnar
sem haldin hefur
verið á Íslandi.
Hátíðin, sem
ber heitið Svartur
september, fer
fram dagana 11.-
18. september en
þar verða sýndar
átta myndir í Bíó Paradís. Mynd-
irnar verða allar í bestu mögulegu
hljóð- og myndgæðum eins og segir í
tilkynningu.
Byrja veturinn með trukki
Sigurjón stendur að hátíðinni
ásamt Hugleiki Dagssyni og Sjón en
saman mynda þeir Költkvikmynda-
hópinn „Svartir sunnudagar“ sem
hefur staðið fyrir költmyndaveislu
fyrir kvikmyndaunnendur hvern
sunnudag í Bíó Paradís undanfarna
fjóra vetur. „Við erum að byrja vet-
urinn með trukki og erum með
nokkrar myndir sem við höfum sýnt
áður undanfarna vetur en líka nýjar
sem við höfum aldrei sýnt – meist-
araverk.“
Kvikmyndaunnendur hafa tekið
Svörtum sunnudögum vel í gegnum
árin fjögur en Sigurjón segir þó
aldrei hafa gengið betur en í fyrra.
„Í fyrravetur var uppselt ansi oft
þannig að þetta er að vaxa með
hverjum vetri. Það er komin hefð á
þetta og fólk veit að hverju það
gengur – sem er það sem við stefnd-
um að í fyrstu.“ Fólk sé farið að geta
treyst því að þó að það þekki ekki
myndina þá sé hægt að gera ráð fyr-
ir að hún sé forvitnileg og ákveðin
lífsreynsla.
Bíó Paradís hefur staðið að þessu
með költmyndahópnum frá upphafi
og sér um að nálgast myndirnar.
Sigurjón, Hugleikur og Sjón raða
upp myndunum og hafa allir sameig-
inlega sýn á það hvað gerir mynd að
mynd sem verðskuldar sæti á Svört-
um sunnudögum.
Hafa hneykslað í gegnum tíðina
Myndirnar átta sem verða til sýn-
is eru fjölbreyttar að efni og aldri.
„Pælingin er að þarna eru myndir
sem hafa hneykslað mikið í gegnum
tíðina, eins og Saló og Pink Flam-
ingos. Síðan eru þarna költ klass-
íkerar af gömlu týpunni og svart-
hvítar eins og The Bride of
Frankenstein sem við höfum ekki
sýnt áður. Okkur langaði líka að
heiðra Franco sem var mikið í C-
myndum en hann lést,“ segir Sig-
urjón en markmiðið hjá þeim hafi
verið að búa til góða og spennandi
viku.
„Költmynd er í eðli sínu mynd
sem einhver hópur fólks hefur tekið
sig saman um að vilja horfa á aftur
og aftur og þá myndast einhvers
konar költ í kringum myndina,“ seg-
ir hann aðspurður hvað geri kvik-
mynd að költmynd. „Þær eiga allar
sinn tíma í bíóhúsum úti um allan
heim og það er hægt að setja þær í
sýningar og það mætir góður slatti
af fólki.“
Átta fjölbreyttar myndir
Svartur september hefst á sýn-
ingu myndarinnar Saló eftir Pier
Paolo Pasolini annað kvöld kl. 20.
Henni er lýst á vefsíðu Bíó Paradísar
sem viðbjóðslegustu kvikmynd sem
gerð hefur verið en hún var svana-
söngur Pasolinis sem var myrtur
skömmu eftir frumsýninguna.
Hinn 12. september verður svo
The Bride of Frankenstein eftir
James Whale sýnd og The Good, the
Bad and the Ugly eftir Sergio Leone
hinn 13. september. Því næst verður
hægt að sjá myndina What Ever
Happened to Baby Jane eftir Robert
Aldrich en henni hefur verið lýst
sem sálfræðitrylli. Myndin fjallar
um leikkonu sem heldur örkumla
systur sinni fanginni í gamalli Villu í
Hollywood.
Creature from the Black Lagoon
eftir Jack Arnold er sýnd hinn 15.
september og Pink Flamingos fer á
skjáinn 16. september. Myndin olli
mikilli hneykslan þegar hún var
frumsýnd en öðlaðist fljótlega költ-
status og hefur verið sýnd reglulega
í bíóhúsum heimsins í rúm fjörutíu
ár. Hún fjallar um glæpakvendið Di-
vine sem orðin er fræg í fjölmiðlum
sem „ógeðslegasta manneskja í
heiminum“.
Vampiros Lesbos verður svo sýnd
hinn 17. september en henni er lýst
sem erótískri hryllingssögu sem
fjallar um harðsvíraða vampýru sem
þrífst á því að þefa uppi konur til að
svala þorsta sínum eftir kvenkyns
blóði.
Áttunda myndin á hátíðinni og
jafnframt sú síðasta er stórvirkið
The Shining eftir Stanley Kubrick
sem sýnd verður hinn 18. sept-
ember. Myndin er byggð á sögu
Stephen King og fjallar um Jack
Torrance sem leikinn er af Jack Nic-
holson. „Sturlun og drápseðli,
draugalegt tímaflakk og stórkostleg-
ur leikur einkenna kvikmyndina sem
fær svo sannarlega hárin til að rísa,“
segir í lýsingu á myndinni
„Ég hvet fólk til að „go wild“ og
ögra sjálfu sér því þessar myndir
eru allar brilliant, hver á sinn hátt“,
segir Sigurjón að lokum.
Svartur september The Bride of Frankenstein verður til sýnis á fyrstu
Költmyndahátíð Íslands í Bíó Paradís. Átta myndir eru á dagskránni.
Svartur húmor
og hryllingur
Költmyndahátíðin Svartur september
Sigurjón
Kjartansson
Hættulegasti leigumorðingi í heimi, Arthur Bis-
hop, hélt að sér hefði tekist að breyta um lífstíl
og segja skilið við líf leigumorðingjans, þegar
hættulegasti óvinur hans rænir kærustunni
hans. Núna neyðist hann til að ferðast um allan
heim til að ljúka þremur erfiðum verkefnum, og gera það sem
hann er bestur í, að láta morðin líta út eins og slys.
Sambíóin Álfabakka 13.00, 20.00, 22.10, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.50, 20.00, 22.10
Sambíóin Kringlunni 17.50, 20.00
Sambíóin Akureyri 22.10
Sambíóin Keflavík 22.10
Mechanic: Resurrection 16
Páfagaukurinn Tuesday býr á lítill framandi paradísareyju,
ásamt skrýtnum vinum sínum. En Tuesday langar að sjá heim-
inn.
Sambíóin Álfabakka 12.00,
13.00, 14.00, 16.00, 18.00
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.10, 17.30
Sambíóin Kringlunni 13.00,
13.30, 15.00, 15.40
Sambíóin Akureyri 14.00,
16.00, 18.00
Sambíóin Keflavík 14.00, 18.00
Robinson Crusoe Kubo kallar óvart fram drungalegan anda með hefndarþorsta.
Metacritic 84/100
IMDb 8,4/10
Laugarásbíó 14.00, 15.50, 18.00
Sambíóin Álfabakka 13.00, 15.20,
17.40
Sambíóin Keflavík 13.00, 15.20,
17.40
Smárabíó 13.00, 15.20, 17.30
Háskólabíó 15.00, 18.00, 21.10
Borgarbíó Akureyri 13.50, 15.50,
17.50
Kubo og Strengirnir Tveir Eiðurinn 12
Laugarásbíó 17.00, 17.45,
20.00, 22.20
Smárabíó 14.00, 17.00,
17.30, 19.00, 19.30, 20.00,
22.00, 22.30
Háskólabíó 15.00, 18.00,
21.00, 21.30
Borgarbíó Akureyri 17.50,
20.00, 22.10
Sully 12
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Egilshöll 20.00
Sambíóin Kringlunni 22.10
Sambíóin Akureyri 20.00
Sambíóin Keflavík 20.00
War dogs 16
Metacritic 57/100
IMDb 7,3/10
Laugarásbíó 20.00, 22.25
Sambíóin Álfabakka 15.00,
17.30, 17.40, 20.00, 22.10
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.20, 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni
20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 20.00,
22.30
Sambíóin Keflavík 20.00,
22.30
Lights Out 16
Metacritic 58/100
IMDb 6,8/10
Sambíóin Álfabakka 22.40
Sambíóin Egilshöll 22.30
Pelé: Birth of a
Legend Metacritic 39/100
IMDb 7,4/10
Sambíóin Kringlunni 17.40,
20.00
The Shallows 16
Metacritic 59/100
IMDb 6,7/10
Smárabíó 22.20
Háskólabíó 18.10
Borgarbíó Akureyri 22.00
Sausage Party 16
Metacritic 67/100
IMDb 7,3/10
Smárabíó 20.10
Háskólabíó 21.00
Suicide Squad 12
Metacritic 40/100
IMDb 6,9/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.10
Sambíóin Egilshöll 22.10
Sambíóin Kringlunni 17.20
Sambíóin Akureyri 17.20
Hell or High Water 12
Metacritic 86/100
IMDb 8,2/10
Laugarásbíó 17.50, 20.00
Borgarbíó Akureyri 20.00
Ben-Hur 12
Metacritic 38/100
IMDb 5,4/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.40
Sambíóin Egilshöll 20.00
Sambíóin Kringlunni 22.20
Bad Moms
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 60/100
IMDb 6,8/10
Smárabíó 20.00
Háskólabíó 15.00
Jason Bourne 12
Metacritic 62/100
IMDb 8,9/100
Laugarásbíó 22.10
Ghostbusters 12
Morgunblaðið bmnnn
Metacritic 60/100
IMDb 5,3/10
Smárabíó 17.40
Háskólabíó 18.10
Pete’s Dragon
Bönnuð yngri en 6 ára.
Metacritic 72/100
IMDb 7,5/10
Sambíóin Álfabakka 15.20,
17.40
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.00, 17.30
Sambíóin Kringlunni 13.00,
15.20
Sambíóin Akureyri 14.00
Leynilíf Gæludýra Metacritic 61/100
IMDb 6,8/10
Laugarásbíó 13.45, 13.50,
15.45, 15.50
Sambíóin Álfabakka 12.00,
14.00, 16.00, 18.00
Sambíóin Keflavík 16.00
Smárabíó 13.00, 15.10
Níu líf Smárabíó 13.00, 15.20
Háskólabíó 15.00
Leitin að Dóru Metacritic 75/100
IMDb 9/10
Sambíóin Álfabakka 12.50
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.20
The BFG
Bönnið innan 6 ára.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 65/100
IMDb 7,3/10
Sambíóin Álfabakka 15.00
The neon demon
Þegar upprennandi módelið
Jesse flytur til Los Angeles
verður hópur kvenna með
fegurðarþráhyggju á vegi
hennar.
Metacritic 51/100
IMDb 6,7/10
Bíó Paradís 17.30, 20.00,
22.30
Yarn
Prjón og hekl er orðið partur
af vinsælli bylgju í nútíma og
götulist.
Metacritic 61/100
IMDb 7,1/10
Bíó Paradís 18.00
Race
Metacritic 56/100
IMDb 7,1/10
Bíó Paradís 22.30
Hross í oss 12
Bíó Paradís 20.00
101 Reykjavík
Metacritic 68/100
IMDb 6.9/10
Bíó Paradís 22.00
The Addams Family
Bíó Paradís 20.00
One More Time With
Feeling
Bíó Paradís 17.45
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio