Morgunblaðið - 10.09.2016, Blaðsíða 60
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 254. DAGUR ÁRSINS 2016
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 888 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Höfðu nætursetu undir brú …
2. Búið að ræna bestu árum …
3. Strætó keyrði á hópferðabíl
4. Verður stórfurðulegt að …
Kór Akureyrarkirkju, undir stjórn
Eyþórs Inga Jónssonar, heldur ásamt
djasshljómsveit tónleika í Fríkirkj-
unni í Reykjavík í kvöld kl. 20, þar
sem flutt verða sönglög eftir Tómas
R. Einarsson og Sigurð Flosason.
Í öðrum takti
Innrás úr austri
er yfirskrift tón-
leika sem fram
fara í Norður-
ljósum Hörpu í
kvöld kl. 20.30.
Þar leika hljóm-
sveitirnar Blind,
Fura, Vax og Dútl,
en allar eiga þær
rætur að rekja til Austurlands. Að
sögn skipuleggjenda verða tónleik-
arnir fjölbreyttir þar sem gestir fá að
upplifa ævintýraheim Blind, gít-
arbræðing frá Dútl, rokk og ról frá
Vax og elektróníska tóna með vídeó-
listaverkum frá Furu.
Innrás úr austri
Kristniboðssambandið efnir til
styrktartónleika á morgun, sunnu-
dag, kl. 17 í húsi KFUM og KFUK við
Holtaveg. Aðgangur er ókeypis en
tekið verður við gjöfum til skóla-
sjónvarps fyrir flóttabörn í Mið-
Austurlöndum og Norður-Afríku sem
er sent út af sjónvarps-
stöðinni Sat7. Meðal
þeirra sem fram
koma á tónleikunum
eru Greta Salóme,
Elsa Waage og
Keith Reed sem
stýrir tónleik-
unum.
Styrktartónleikar
fyrir flóttabörn
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan og síðar norðan 8-15 m/s, hvassast á annesjum
norðantil síðdegis. Áfram víða rigning, en mikil rigning norðantil á landinu.
Á sunnudag Norðvestan 5-13 m/s, hvassast norðantil og rigning, en úrkomulítið um
landið sunnanvert. Hægari og styttir að mestu upp síðdegis en vaxandi norðaustanátt
þegar líður á kvöldið. Hiti 3 til 11 stig, mildast sunnantil.
Á mánudag Allhvöss eða hvöss norðanátt á mánudag. Hiti 5 til 12 stig.
„Hún er með rosalega flottan karakt-
er og alveg gífurlega öflugan vinstri
fót sem nýtist mjög vel á vellinum.
Hún getur bæði gefið langar og góðar
sendingar og er með frábær skot.“
Þessa umsögn fær Anna Rakel
Pétursdóttir, knattspyrnukona úr
Þór/KA, frá samherja sínum eftir
góða frammistöðu með liðinu í 15.
umferð deildarinnar. »2
Hún er með gífurlega
öflugan vinstri fót
Þorsteinn Halldórsson verð-
ur í dag fyrsti íslenski
ólympíufarinn til að keppa í
bogfimi, þegar hann keppir
á Ólympíumóti fatlaðra í
Ríó. Tvö slys hafa gert Þor-
steini erfitt fyrir í undirbún-
ingi fyrir mótið en hann ber
sig vel. Thelma Björg
Björnsdóttir keppir einnig í
dag, í sinni fyrstu grein af
fimm sundgreinum sem hún
keppir í á mótinu. »4
Þorsteinn skráir
nýjan kafla
Meisturunum velt
af stalli í vetur?
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Ég byrjaði fyrst að vinna við
bakstur 15 ára gamall en móðir mín
er bakari svo það má segja að
bakstur sé mér í blóð borinn,“ segir
Axel Þorsteinsson, bakari og kondi-
tor.
Axel hefur að undanförnu unnið
hjá veitingastaðnum Apótekinu í
miðbæ Reykjavíkur en nú hefur
hann ákveðið að söðla um og halda
til Kúveit þar sem hann mun starfa
hjá Bouchon Bakery, sem er í eigu
matreiðslumannsins Thomas Keller.
Er um að ræða vel þekkta banda-
ríska bakarískeðju og mun Axel
vinna sem yfirbakari á glænýjum
stað sem opnaður verður í byrjun
næsta árs.
„Mig var farið að þyrsta í meiri
þekkingu og fannst ekki mikið vera
í gangi hér heima. Ég var því byrj-
aður að líta í kringum mig,“ segir
Axel spurður hvernig hið nýja starf
kom til. „Síðan hafði maður frá Cul-
inary Institute of America samband
við mig, eftir að hafa verið bent á
mig. Hann gaf svo meðmæli sín
áfram til skrifstofu sem er að opna
fyrir viðskipti í Kúveit, Katar og
Dúbaí. Loks höfðu þeir svo sam-
band við mig og var ég tekinn í
þrjú atvinnuviðtöl og að lokum boð-
ið starf yfirbakara hjá Bouchon
Bakery.“
Fer í þjálfun til New York
Þegar Morgunblaðið náði tali
af Axel var hann staddur í Vest-
mannaeyjum þangað sem hann
heimsótti vin sinn, sem einnig er
bakari. Á Axel von á því að vera
úti í Eyjum þar til hann
heldur utan.
„Maður er náttúrlega
enn að reyna að átta sig
á þessu öllu saman. Ég
er núna í Eyjum og fer
líklega beint héðan til
Kúveit – það verður eflaust mikil
breyting,“ segir Axel.
Axel hefur störf á næstu vikum
og hefst ævintýrið fyrir alvöru þeg-
ar hann fer til New York í þjálfun.
Áður mun Axel þó ferðast til Kúv-
eit, þar sem stjórnvöld þar í landi
þurfa m.a. að veita honum vega-
bréfsáritun áður en hann getur haf-
ið störf á nýja veitingastaðnum.
Aðspurður segir hann áformað að
opna annan stað í Kúveit í febrúar.
„Síðan eftir ár opnum við tvær búð-
ir í Dúbaí og ári síðar verður ein
opnuð í Katar,“ segir Axel og bætir
við að hann muni sækja alla þessa
staði heim og taka þátt í uppbygg-
ingu þeirra og þjálfun starfsmanna.
„Þetta er algjör draumur – að fá
Thomas Keller á ferilskrána.“
Verður yfirbakari í Kúveit
Var boðið starf
yfirbakara hjá
Bouchon Bakery
Ljósmynd/Óskar P. Friðriksson
Fagmaður Axel Þorsteinsson, bakari og konditor, hefur ákveðið að söðla um og halda á framandi slóðir, en hann
tekur brátt við starfi yfirbakara hjá þekktri bakarískeðju í Kúveit. Sjálfur segir hann þetta vera „algjöran draum“.
Árið 1998 opnuðu bræðurnir
Thomas og Joseph Keller veit-
ingastaðinn Bouchon í
Yountville í Kaliforníu í Banda-
ríkjunum, en um er að ræða
franskan bistro. Fimm árum
síðar, í júlí 2003, opnaði
Thomas Keller fyrsta
bakaríið undir heitinu
Bouchon Bakery og er
það skammt frá áður-
nefndum veitingastað
í Kaliforníu. Óhætt er að segja að
bakaríið hafi slegið í gegn og má
nú m.a. finna bakaríin í Yountville,
Las Vegas, Beverly Hills og New
York.
Thomas Keller hóf feril sinn
ungur að aldri á veitingahúsi í
Palm Beach á Flórída. Árið 1983
flutti hann til Frakklands, þar sem
hann vann m.a. á Michelin-
stöðum á borð við Guy Savoy og
Taillevent.
Fyrst opnað 2003 í Kaliforníu
BAKARÍ MEÐ FRANSKRI ÁHERSLU
Thomas
Keller
Íslandsmótið í handknattleik kvenna
hefst í dag, en þar er í fyrsta skipti
um árabil leikið í tveimur deildum.
Grótta hefur orðið Íslandsmeistari
tvö ár í röð en nú er líklegra að
Stjarnan og Valur sláist um titlana,
þar sem Seltirningar hafa misst
sterka leikmenn. Fjallað er um lið
Gróttu, Stjörnunnar, Vals og ÍBV í
dag. »2-3