Morgunblaðið - 01.10.2016, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Plankaparket
í miklu úrvali
Burstað, lakkað, olíuborið, hand-
heflað, reykt, fasað, hvíttað...
hvernig vilt þú hafa þitt parket?
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Þú finnur fleiri notaða á benni.is
Reykjavík
Vagnhöfða 27
Sími: 590 2035
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opnunartímar:
Virka daga 10-18
Laugardaga 12-16
V
agnhöfði
Tangarhöfði
Bíldshöfði
VIÐ
ERU
M
HÉR
OPEL CORSA-E
Bensín / Beinskiptur / Skráður: 06/2015
Ekinn: 76.000 km.
Verð: 1.590.000 kr.
OPEL ASTRA
Bensín / Beinskiptur / Skráningarár: 05/2015
Ekinn: 71.000 km.
Verð: 2.390.000 kr.
CHEVROLET CRUZE
Bensín / Beinskiptur / Skráningarár: 04/2014
Ekinn: 66.000 km.
Verð: 2.190.000 kr.
CHEVROLET CAPTIVA
Dísel / Sjálfskiptur / Skráningarár: 06/2014
Ekinn: 88.000 km.
Verð: 3.890.000 kr.
NOTAÐIR BÍLAR
Skoðaðu úrvalið á benni.is
Sænska akademían sagði í gær að
tilkynnt yrði hver hlyti bókmennta-
verðlaun Nóbels hinn 13. október,
viku seinna en venjulega.
Tilkynning um hver hljóti verð-
launin er yfirleitt gefin út fyrsta
fimmtudag í október, í sömu viku
og aðrir verðlaunahafar eru kynnt-
ir. Per Wästberg, sem situr í aka-
demíunni, sagði við AFP að ástæða
seinkunarinnar væri tæknilegs eðl-
is.
Meðal þeirra, sem þykja líkleg til
að hreppa bókmenntaverðlaunin í
ár eru Japaninn Haruki Murakami,
sýrlenska skáldið Adonis, Philip
Roth og Joyce Carol Oates frá
Bandaríkjunum, Bretinn Salman
Rushdie, Tékkinn Milan Kundera
og norska leikskáldið Jon Fosse.
SVÍÞJÓÐ
Bókmenntaverðlaunum Nóbels seinkar
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Hann var stórmenni í heiminum,“
sagði Benjamin Netanyahu, for-
sætisráðherra Ísrael við jarðarför
leiðtogans fyrrverandi, Shimon Pe-
res. Peres fæddist reyndar undir
nafninu Szymon Perski í Póllandi ár-
ið 1923. Hann var það heppinn að fjöl-
skylda hans flutti til Ísrael nokkrum
árum áður en Seinni heimstyrjöldin
skall á og slapp því undan Helförinni.
Hann varð bæði forsætisráðherra
Ísrael og forseti. Hann var forystu-
maður nokkurra pólitískra flokka í
Ísrael og fékk Nóbelsverðlaunin árið
1994 ásamt Yitzhak Rabin og Yasser
Arafat. Það var vegna samninga sem
þeir náðu á milli Ísraelsmanna og
Palestínumanna og menn eygðu von
um að friður kæmist á. Samningur-
inn var kenndur við norsku borgina
Osló.
Stórmenni mættu
Á jarðarförina í gær mættu margir
af þekktustu þjóðarleiðtogum heims-
ins, þar á meðal forseti Bandaríkj-
anna Barack Obama.
Bill Clinton, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, hélt ræðu og sagði að
Peres hefði ímyndað sér það sem aðr-
ir gátu ekki og verið besti kennari
lands síns. Obama líkti Peres við aðra
risa síðustu aldar sem hann hefði ver-
ið svo heppinn að hitta, menn einsog
Nelson Mandela og Elísabetu Eng-
landsdrottningu.
Að mati stjórnmálaskýrenda er
erfitt að sjá fyrir sér annan leiðtoga
draga til sín slík fyrirmenni og mættu
í jarðarförina í gær einsog Karl
Bretaprins. Meira að segja leiðtogi
Palestínu Mahmoud Abbas mætti.
AFP
Fyrirmenni Á myndinni má m.a. sjá Barack Obama forseta Bandaríkjanna, Benjamin Netanyahu forsætisráðherra
Ísrael og Bill Clinton fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Hatturinn sem þeir hafa á höfði sínu er kallaður Kippah.
Mikill leiðtogi gyðinga
í Ísrael fallinn frá
Jarðarför Peres fór fram í gær Fjöldi stórmenna kom
Fyrirsát var gerð fyrir bílalest her-
manna í norðvesturhluta Mexíkó í
gær. Sex hermenn voru drepnir og
sjúkrabíl stolið sem var að flytja
særðan glæpamann á sjúkrahús.
Níu manns til viðbótar, þar á meðal
sjúkraflutningamaður, særðust í
árásinni sem var gerð í Culiacan,
höfuðborg fylkisins Sinaloa, en þar
eru bækistöðvar eiturlyfjahrings
sem Joaquin „El Chapo“ Guzman
stjórnar, en hann varð frægur á
Vesturlöndum fyrir flótta sinn úr
fangelsum í Mexíkó, þótt hann sé um
þessar mundir í fangelsi.
Grunaði glæpamaðurinn særðist í
skotárás í sveitarfélaginu Bad-
iraguato þar sem Guzman fæddist
og var sjúkrabílnum veitt herfylgd
þaðan.
Fyrirsátin var þannig að glæpa-
mennirnir biðu í átta farartækjum
eftir bílalest hersins og notuðu öflug
skotvopn og handsprengjur í árás-
inni.
Þrátt fyrir að herinn hefði verið
vel vopnum búinn á brynvörðum bíl-
um dugði það ekki til.
Ekki var vitað í gær frá hvaða
glæpagengi árásarmennirnir voru
þó að ýmsar vangaveltur séu í gangi
um hvort gengið hafi verið að bjarga
særða manninum í sjúkrabílnum eða
ekki.
„Þetta var verk hugleysingja,“
sagði hershöfðinginn Vargas Lang-
eros. borkur@mbl.is
Sex hermenn drepnir
AFP
Óöld Ástandið í Mexíkó er víða
skelfilegt út af glæpagengjum.