Morgunblaðið - 01.10.2016, Page 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016
1. október er al-
þjóðlegur dagur aldr-
aðra. Sameinuðu
þjóðirnar leggja
áherslu á að á þess-
um degi verði höfð að
leiðarljósi þau al-
mennu mannréttindi
að fólki sé ekki mis-
munað út frá aldri
þar sem það leiðir
auðveldlega til for-
dóma, gagnrýni og andúðar gagn-
vart öldruðum og öldrun. Á degi
aldraðra ber að minna á mikil-
vægi þess að við berum virðingu
fyrir þeim vaxandi hópi íbúa
landsins sem nær þeim aldri að
teljast til þess hóps. Sá hópur er
nú um 40 þúsund manns á Ís-
landi, en um 900 milljónir í heim-
inum öllum og verður væntanlega
um 1.400 milljónir eftir 15 ár, eða
árið 2030.
Á vegum Evrópunefndar um
öldrun er unnið meðal
annars að verkefnum
sem miða að bættri
almennri heilsu aldr-
aðra og virðingu við
aldraða. Þar er lögð
áhersla á að aldraðir
haldi sem lengst
sjálfsákvörðunarrétti
og fjárráðum og var-
að við auknu ofbeldi
sem aldraðir verða
fyrir. Í Evrópu er
umræða um að aldr-
aðir séu ógn við efna-
hagsástandið og rætt um mögu-
legan niðurskurð á kjörum þeirra
til að mæta auknum kostnaði af
flóttamönnum.
Mikil umræða hefur farið fram
um kjör aldraðra á Íslandi á und-
anförnum misserum vegna skerð-
inga á kjörum þeirra frá 2009, há-
værar kröfur eru uppi um
leiðréttingar og hækkun bóta og
nú á síðustu vikum hefur verið
fjallað um frumvarp til laga um
breytingar á almannatryggingum
sem liggur fyrir Alþingi. Þar eru
lagðar til gagngerar breytingar til
einföldunar á bótaflokkum TR
sem munu leiða til 5.300 milljóna
viðbótarframlags ríkisins vegna
greiðslna til aldraðra. Ekki eru
allir sammála um að nógu langt sé
gengið í kröfum aldraðra þar sem
hætta sé á að einhver hópur aldr-
aðra fái ekki ásættanlega hækkun.
Því hefur einnig verið lögð fram
krafa um hækkun lífeyris í 300
þúsund á mánuði, sem samsvarar
lægstu launum. Það er mikilvægt
að frumvarpið verði samþykkt á
þessu þingi sem skref í átt til leið-
réttingar.
Aldraðir á Íslandi standa að
mörgu leyti jafnfætis öldruðum á
hinum Norðurlöndunum efnahags-
lega séð og mun sterkar en víða í
Suður-Evrópu. Við höfum náð að
byggja upp lífeyriskerfi og opin-
bert bótakerfi sem önnur lönd líta
til. Margir aldraðir hafa einungis
greiðslur úr lífeyrissjóði og lífeyri
almannatrygginga til að lifa af og
þess vegna ber okkur að sýna
þeim þá virðingu að styrkja þau
kerfi enn frekar með því að sam-
þykkja fyrirliggjandi frumvarp um
almannatryggingar.
Sýnum öldruðum
þá virðingu sem þeim ber
Eftir Birnu
Bjarnadóttur »Ekki eru allir sam-
mála um að nógu
langt sé gengið í kröfum
aldraðra þar sem hætta
sé á að einhver hópur
aldraðra fái ekki ásætt-
anlega hækkun.
Birna Bjarnadóttir
Höfundur er fulltrúi norrænna
samtaka aldraðra í Evrópunefnd
um öldrun.
Hver er munur þess að
svíkja loforð og að ljúga?
Iðnaðarmaður, sem lof-
aði að koma, en kom ekki
laug, þegar hann gaf lof-
orðið. Það þykir ekki
stórmál. Öllu alvarlegri
eru svik stjórnmála-
manna, sem lofa frammi
fyrir alþjóð í sjónvarpi og
senda hópi fólks lof-
orðalista í pósti.
Steingrímur lofaði að halda þjóð-
inni utan ESB og Össur að koma
henni í ESB.
Steingrímur sveik loforðið strax
eftir kosningar eða jafnvel fyrr að því
er sagt er. Hvað skyldi koma í ljós,
þegar svarti kassinn verður ekki
opnaður. Eftir 100 ár.
Össur lagði sig allan fram um að
standa við sitt loforð. Fór jafnvel í
sendiferðir með skjöl á milli landa til
að flýta fyrir innlimuninni og laug
teldi hann það málstaðnum til fram-
dráttar. Í mörg ár eftir kosningar
laug hann að við ættum von á pakka
frá Brussel að kíkja í. Hann vissi
kannski ekki betur í
byrjun en örugglega
löngu áður en hann
sagði að Ísland þyrfti
ekki á neinum und-
anþágum að halda hjá
ESB. Þá hefði hann
átt að biðja þjóðina af-
sökunar á lyginni.
Sigmundur stóð all-
vel við sín loforð og
hefði eflaust gert enn
betur hefði hann
fengið að vinna áfram
í friði. Það er mikill
munur á að ljúga vísvitandi í mörg ár
eða svara klaufalega á örskotsbragði
eftir að vera leiddur í gildru og komið
úr jafnvægi. Sigmundur steig til hlið-
ar, en þá var krafist að hann bæði
þjóðina afsökunar. Annað væri hroki.
Margir hefðu í hans sporum beðið
þjóðina auðmjúklega afsökunar án
þess að meina það. Sigmundur valdi
ekki þá leið. Hann taldi sig hafa farið
að lögum og goldið ríkinu það sem
því bar. Það er ekki sama að leggja fé
í banka og gefa upp til skatts eða fela
það í banka og svíkja undan skatti.
Enginn þingmaður hefur gert at-
hugasemd við svívirðilega árás RÚV
Áfram Sigmundur
Eftir Sigurð
Oddsson
Sigurður Oddsson
Að ræða landbún-
aðarmálin meir en orð-
ið er er kannski að
bera í bakkafullan læk-
inn en eitt er það sem
virðist hafa gleymst í
umræðunni og það er
staðsetning landsins
okkar á plánetunni
jörð.
Að búa í landi svo
skammt frá norð-
urpólnum þar sem oft vill blása
hressilega um land og lífverur gerir
það að verkum að hér er miklum mun
erfiðara og dýrara að stunda hvers
konar ræktun heldur en á hlýrri
svæðum jarðarinnar en því fylgja
sem betur fer einnig góðir kostir.
Sú kalda veðrátta sem við búum
við gerir það að verkum að hér þríf-
ast allskonar sýklar og örverur mun
verr en á hlýrri svæðum jarðarinnar
og erum við því laus við alls konar
óvelkomna gesti í gróðri jarðar og í
búfé okkar sem gerir það að verkum
að við njótum heilbrigðari og betri af-
urða af landbúnaði okkar en margar
aðrar þjóðir.
Að hægt skuli að stunda land-
búnað á svo norðlægu landi sem
landinu okkar er í raun og veru
kraftaverk og þökk sé því þrautseiga
fólki sem hefur mann fram af manni
haft trú á landinu og stundað bústörf
við oft mjög misjafnar aðstæður.
Sagan segir okkur að það hefur
þurft sérlega þrautseigt og dugandi
fólk til þess hreinlega að gefast ekki
upp fyrir kulda og vosbúð á hörðum
vetrum og harðindatíð af völdum
náttúruaflanna í landinu. Snemma í
sögu landsins þurftu menn að búa við
mikil harðindi vegna náttúruaflanna,
sagan greinir t.d. frá hinum fagra,
þéttbýla og búsældarlega Þjórsárdal
sem lagðist í eyði við stórgos í Heklu
árið 1104 og er stór hluti dalsins enn í
dag þakinn gosefnum vikri og sandi.
Þegar náttúruöflin lögðust sem
harðast á okkur eins og við Öskju-
gosið 1875 sem lagði hluta Austur-
lands í eyði með ógnvænlega miklu
öskufalli, mældist aska og sandur á
túnum allt að 20 sentimetra þykkur,
menn reyndu að moka ofan af túnum
svo eitthvað væri að bíta fyrir bú-
smalann en sökum hins mikla magns
gekk það grátlega lítið. Urðu af
þessu miklar hörmungar og stór
hluti íbúanna flúði til Vesturheims.
Við stórgosið í Lakagígunum 1783
lögðust stór landsvæði í
auðn þar rann hraun yf-
ir margar jarðir og eitr-
að öskufall drap bæði
menn og búfénað þann-
ig að þar lagðist allt
mannlíf af á miklum og
góðum landbún-
aðarsvæðum og það víð-
ar en hér heima á Ís-
landi.
Vegna eitraðrar
móðu í lofti voru þetta
kölluð móðuharðindin
því það virtist vera sem þessi móða
færi verst með menn og skepnur,
móða þessi barst til Bretlands og olli
þar miklum harðindum, uppskera
brást og búsmali féll, í dag er það álit
manna að móða þessi hafi verið mjög
fíngerð aska sem náði til nágranna-
landanna og allt suður til Frakk-
lands.
Þrátt fyrir mikil áföll í gegnum tíð-
ina og kannski vegna þeirra þá
byggðist upp mikil seigla og dugn-
aður hjá þjóðinni, fólk reyndi að
draga fram lífið þrátt fyrir mikla erf-
iðleika og mótlæti og þó stór skörð
hafi verið höggvin í íslenska þjóð á
stundum og stór og góð mannvist-
arsvæði lagst í auðn.
Sem betur fer eigum við enn menn
sem halda uppi merki þrautseigrar
þjóðar og þrjóskast við að stunda
sinn búrekstur þrátt fyrir fámenni og
miklar fjarlægðir frá þjónustu og
mikinn kostnað við alla aðdrætti til
lífs síns.
Gleymum því ekki að okkur er
nauðsynlegt allra aðstæðna vegna að
halda landinu okkar öllu í byggð og
sjáum ekki eftir því þó að landssjóður
okkar stuðli að því að það sé hægt.
Enginn veit hvar, hvenær eða
hvernig næsta högg mun lenda á
okkur, við skulum því sameinast í því
að eiga blómlegan landbúnað sem
víðast um landið okkar.
Munum að stuðningur við fram-
leiðslugreinar okkar er stuðningur
við okkur öll!
Landbúnaður í
harðbýlu landi
Eftir Hjálmar
Magnússon
Hjálmar Magnússon
» Sem betur fer eigum
við enn menn sem
halda uppi merki þraut-
seigrar þjóðar og
þrjóskast við að stunda
sinn búrekstur.
Höfundur er fv. framkvæmdastjóri.
Herjólfsgata 32-34
220 HAFNARFJÖRÐUR
Glæsilegar 3ja og 4ra herb. íbúðir í fjögurra
hæða lyftuhúsi. Óskert sjávarútsýni. Aðeins 7
íbúðir eftir. Afhendast fullbúnar án gólfefna.
Bílastæði í upphituðum bílakjalla fylgja öllum
íbúðum. Áætluð afhending í mars 2017
STÆRÐ: 92-115 fm
FJÖLBÝLI HERB: 3-4
Frá 45,9-59,9M
Heyrumst
Stefán Jarl Martin
Löggiltur leigumiðlari
Sölufulltrúi
892 9966
stefan@fastlind.is
Heyrumst
Kristján Þórir Hauksson
Löggiltur fasteignasali
696 1122
kristjan@fastlind.is
Til sölu jarðirnar Hvammur og Galtarhöfði í Norðurárdal í Borgarfirði.
Hér er um að ræða landmiklar náttúruperlur í glæsilegu umhverfi. Land jarðanna liggur meðal annars
að Norðurá. Síðustu ár hefu aðallega verið búið með sauðfé og húsakostur í samræmi við það. Mjög
áhugaverðar jarðir sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson magnus@fasteignamidstodin.is
eða á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar. Sjá einnig fasteignamidstodin.is
Hvammur og Galtarhöfði