Morgunblaðið - 01.10.2016, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016
✝ Gunnar IngiOlsen fæddist í
Reykjavík 4. nóv-
ember 1930. Hann
lést á heilbrigðis-
stofnun Suðurlands
23. september
2016.
Foreldrar hans
voru Pétur Rögn-
vald Olsen, f. 1901,
frá Vidnes í Noregi,
d. 1977, og Ingi-
björg Gunnarsdóttir, f. 1894, frá
Eyrarbakka, d. 1957. Bræður
Gunnars voru Tryggvi Endal, f.
1928, d. 1998, og Óli Karló, f.
1935.
Gunnar var á öðru ári er
hann flutti með foreldrum sín-
um á Eyrarbakka. Ungur fór
hann að vinna ýmis störf til sjós
syni og þrjú barnabörn. Guðjón,
f. 1963, M. Kristjana Garðars-
dóttir, f. 1967, þau eiga þrjár
dætur og eitt barnabarn. Pétur
Rögnvaldur, f. 1965, M. Rut
Björnsdóttir, f. 1965, þau eiga
þrjú börn og fimm barnabörn.
Gunnar og Inga hafa búið öll
sín hjúskaparár á Eyrarbakka.
Afkomendur þeirra eru 43 tals-
ins. Á sjöunda áratugnum var
Gunnar vörubílstjóri í sand-
flutningum til Reykjavíkur.
Hann hóf störf hjá Vegagerð
ríkisins á Selfossi árið 1969,
starfaði þar sem verkstjóri og
síðast sem rekstrarstjóri. Gunn-
ar vann hjá Vegagerðinni í rúm
30 ár eða þar til starfsævi hans
lauk. Gunnar var mikið fyrir
dýr og hélt bæði kindur og hross
meðan heilsan leyfði.
Útför Gunnars fer fram frá
Eyrarbakkakirkju í dag, 1. októ-
ber 2016, klukkan 14.
og lands, vann
margar vertíðir á
vertíðarbátum og
togurum frá Hafn-
arfirði og Reykja-
vík.
Þann 4. septem-
ber 1957 kvæntist
Gunnar eftirlifandi
eiginkonu sinni,
Ingu Kristínu Guð-
jónsdóttur frá Eyr-
arbakka, f. 19. apríl
1938. Þau eignuðust fimm börn:
Ingibjörg, f. 1958, M. Heimir
Hjaltason, f. 1955, þau eiga
fimm börn og tíu barnabörn.
Þuríður, f. 1960, M. Friðrik Sig-
urjónsson, f. 1958, þau eiga þrjú
börn og fjögur barnabörn. Þór-
unn, f. 1962, M. Finnur Krist-
jánsson, f. 1960, þau eiga fimm
Að öllu góðu fólki í heiminum
ólöstuðu þá ert þú ein af mín-
um uppáhaldsmanneskjum,
elsku afi. Með því að vera ávallt
þú sjálfur þá kenndir þú mér
svo ótalmargt, þú kenndir mér
að við erum öll jöfn, við erum
öll mannleg og að við eigum
það öll skilið að það sé stoppað
og á okkur hlustað. Það var
einmitt sterkur eiginleiki hjá
þér afi, þú sýndir öllum áhuga,
varst til staðar í núinu, sýndir
endalausa þolinmæði og varst
alltaf tilbúinn að hlusta. Þú
mættir okkur alltaf með já-
kvæðni og gafst öllum þínum
afkomendum jafnt pláss í
hjarta þínu.
Ég hef svo ótalmargt til að
vera þakklát fyrir, ég á margar
minningar um þig sem munu
fylgja mér um ókomna tíð og
kalla fram bros á vör, þú
kenndir mér að dansa gömlu
dansana, allar sumarbústaðar-
ferðirnar, öll áramótin sem við
eyddum saman og stundin sem
þú hélst á Ingibjörgu undir
skírn er mér einstaklega dýr-
mæt.
Það, hversu heitt þið amma
elskuðuð hvort annað og hvern-
ig þið komuð fram hvort við
annað, kenndi mér að trúa á
ástina. Samskipti ykkar ein-
kenndust af ástúð, virðingu og
mikilli samheldni, það er ein-
stakt veganesti að labba út í líf-
ið með fyrirmyndir eins og
ykkur og fyrir það verð ég
ávallt þakklát.
Mig langar að þakka þér fyr-
ir samfylgdina, elsku afi, þú
verður alltaf í hjarta mínu.
Ég elska þig.
Þín
Signý Lind.
Ég elska þig svo mikið, afi
minn.
Ég var svo heppinn að fá að
eiga þig fyrir afa, alltaf svo
góður við mig. Ég treysti því að
Guð passi þig vel fyrir okkur
hin.
Aron Daði Pétursson.
Við fráfall elsku afa er gott
að líta um öxl og rifja upp góð-
ar minningar. Þær voru ófáar
helgarnar sem ég fékk að koma
til afa og ömmu á Bakkann og
gista. Oft fengum við Róbert
frændi far með afa niður úr
þegar hann var að koma úr
vinnu á Selfossi. Við vorum
ekki fyrr komnir á Bakkaveg-
inn en afi byrjaði að flauta og
spurði okkur hvort við hefðum
ekki séð kóngulóna sem var að
fara yfir veginn, svo var flautað
aftur en aldrei sáum við þessa
blessuðu kónguló og auðvitað
var afi alveg steinhissa á okkur.
Ferðirnar með afa í fjárhúsin
voru ógleymanlegar, það var
eins gott að vera snöggur í
stígvélin því afi beið ekki eftir
okkur, heldur keyrði hann bara
af stað þegar hann var kominn
í jeppann, þó aldrei svo hratt
að maður gæti ekki hlaupið
hann uppi og stokkið um borð.
Ég var farinn að gera þetta
viljandi, að leyfa afa að fara að-
eins á undan því það var svo
mikið sport að stökkva upp í
jeppann á ferð og það skrýtna
var að afi leit aldrei við til að
athuga hvernig manni gengi, en
gaf svo í þegar maður var rétt
lentur í sætinu.
Þegar kom að baðferðum var
afi alltaf jafn hneykslaður á því
að setja vatn í baðið, hann
sagðist alltaf fara í þurrt bað
og glotti svo bara. Þegar tapp-
inn var tekinn úr baðinu kom
alltaf mikið og hátt soghljóð frá
niðurfallinu, afi sagði að þetta
væru lætin í konunni i kjall-
aranum sem drykki allt vatnið
úr baðkarinu, og þessu trúði ég
og fór svo stundum inn á bað til
að skrúfa frá krananum til að
gefa konunni í kjallaranum að
drekka.
Afi var mikill skepnumaður
og var hafsjór af fróðleik um
skepnur, fuglalífið og náttúruna
og spáði mikið í veðrið, leit til
himins að kvöldi og gat sagt til
um hvernig veðrið yrði daginn
eftir. Hann fylgdist vel með
öllu, sérstaklega ef það viðkom
vegagerð og þess háttar fram-
kvæmdum. Hann var stoltur af
sínu fólki og fylgdist vel með
afkomendum sínum. þegar fólk
hefur spurt mig hverra manna
ég sé hefur alltaf verið nóg að
segja að afi minn sé Gunnar Ól-
sen á Eyrarbakka en hann var
verkstjóri hjá Vegagerðinni i
fjölda ára,og var mikið í sam-
skiptum við bændur og verk-
taka og allir hafa talað vel um
afa, enda ekki annað hægt þar
sem hann var alltaf svo jákvæð-
ur, léttur í lund og talaði aldrei
illa um nokkurn mann.Við afi
höfum alltaf verið í miklu sam-
bandi í gegnum árin og brallað
ýmislegt saman.
Elsku afi, ég kveð þig með
miklum söknuði í hjarta mínu
og miklu þakklæti fyrir allt
saman. Við sjáumst síðar.
Þinn sonarsonur,
Jóhann Ingi.
Elsku afi, kallið er komið og
nú ertu kominn í Sumarlandið.
Með mikinn söknuð í hjarta
sitja eftir hlýjar minningar sem
ylja okkur um hjartarætur.
Betri mann er ekki hægt að
þekkja og voru allar samveru-
stundir með þér yndislegar. Þú
varst alltaf fullur af fróðleik og
tilbúinn að ræða málin. Þú
varst fróður um allar sveitir
landsins og þegar maður fór
með þér í bíltúra um uppsveit-
irnar gastu þulið upp heiti
hvers einasta bæjar og hvers
einasta fjalls. Í næstu ferð var
maður svo sjálfur látinn þylja
upp heiti næstu bæja, með
hjálp vegahandbókarinnar þó.
Þú sagðir alltaf að mikilvægt
væri að þekkja og kunna marg-
földunartöfluna, með henni
væru manni allir vegir færir,
svarið við 12 sinnum 12 yrði
maður að kunna og varstu einn-
ig farinn að kenna langafabörn-
unum svarið.
Menn og dýr voru þínir
bestu vinir, aldrei talaðir þú illa
um nokkurn mann og voru öll
dýr hænd að þér, hvort sem
voru fuglar eða stór dýr. Enda
sagðirðu alltaf að Guð myndi
launa fyrir hrafninn. Þurftir þú
ekki annað en að keyra upp
mýrina og voru þá kindurnar
og hestarnir farin að þekkja
bílinn hjá þér í nokkur hundruð
metra fjarlægð og lögðu þau þá
af stað í átt til þín. Ósjaldan
sást svo til þín keyra um bakk-
ann á jeppanum þínum með
hund í framsætinu.
Amma, börnin þín, barna-
börn og barnabarnabörn voru
mesta stolt þitt og væntum-
þykja þín í garð okkar allra var
óendanleg.
Þú fylgdist vel með okkur
öllum og vissir alltaf hvað væri
að gerast í okkar lífi. Ósjaldan
hringdirðu í mann til dæmis til
að óska manni til hamingju með
góða einkunn í skólanum eða
athuga hvernig gengi á bólstr-
unarnámskeiði eða í vinnunni
og þegar við tókum upp nafnið
þitt, Widnes, varstu svo ánægð-
ur og stoltur. Þú varst alltaf
þolinmóður og leyfðir okkur
barnabörnunum og langafa-
börnunum að trufla þó þú værir
að vinna einhver verk og varstu
endalaust tilbúinn að gefa af
þér. Þú vildir hafa ástvini þína í
kringum þig og þrátt fyrir að
þrekið hafi minnkað mikið und-
ir hið síðasta var hugurinn í
lagi. Í síðustu heimsókn minni
til þín með Viktoríu Evu, Elvar
Kára og Telmu Karen fannstu
orku til að biðja þau um að
koma til þín og gefa þér faðm-
lag. Það er ómetanleg stund. Í
faðminum á þér var maður líka
alltaf öruggur enda maður með
stórt hjarta og sterkbyggðan
líkama.
Það er mikið tómarúm eftir
að þú fórst en minningarnar
eru okkur ljósar og munu þær
lifa áfram. Ég veit að þú brosir
til okkar og heldur áfram að
fylgjast með okkur þar sem þú
liggur í heyinu og ullinni. Ég
elska þig.
Þín
Sylvía Karen.
„Ég kem og sæki þig milli
klukkan fimm og sjö á mánu-
dagsmorgun – þú verður tilbú-
inn!“ Þannig hófust samskipti
okkar Gunnars Olsen vorið
1976, þegar hann hafði ráðið
mig til að gegna starfi tippara í
vegavinnuflokki sínum.
Sumrin fjögur sem ég naut
þess að hafa Gunnar að yfir-
manni eru eftirminnileg fyrir
margra hluta sakir. Verkefnin
voru um alla Árnessýslu frá
fjöru til fjalla, bæði viðhald
vega og nýframkvæmdir.
Gunnar var óþreytandi í því
að hressa upp á landafræði-
þekkinguna hjá vankunnandi
tipparanum.
Hann kunni heiti á öllum
fjöllum og helstu kennileitum
sýslunnar. Hann þekkti líka
flesta karla og kerlingar til
sveita og stundum fékk maður
að fara heim á bæi með honum.
Það komu margir að vega-
gerðinni og oft var þröngt set-
inn bekkurinn í matarskúrnum.
Þá skipti máli að hafa gleðina í
fyrirrúmi. Gunnar hafði gott
geðslag og gæddi samfélagið í
skúrunum með léttleika sínum.
Hann ýtti heldur undir hvers
konar sprell, sem fundið var
upp á, og hló svo sínum dillandi
hlátri á eldhúsbekknum þegar
fjörið stóð sem hæst.
Gunnar hafði gott verksvit
og gerði kröfur til sín og ann-
arra um að skilað væri góðu
verki. Hann var sanngjarn yf-
irmaður og ekki síður góður fé-
lagi.
Eftir að samstarfi okkar við
vegagerð í Árnessýslu lauk
hélst vinátta okkar alla tíð.
Hann var traustur vinur og
ómetanlegur er stuðningurinn
sem hann veitti mér síðar, þeg-
ar ég var kominn til annarra
starfa.
Það var ákveðin vinsemd og
hlýleiki sem streymdi frá
Gunnari þegar fundum okkar
bar saman og spjallið við hann
um landsins gagn og nauðsynj-
ar var upplífgandi.
Nú þegar Gunnar Olsen hef-
ur runnið æviskeið sitt á enda
þakka ég fyrir gott samneyti
við hann fyrr og síðar.
Magnús Karel Hannesson.
Nú hefur Gunnar föðurbróð-
ir minn kvatt okkur og óneit-
anlega hvarflar hugurinn til
baka hjá mér sem og sjálfsagt
mörgum öðrum.
Gunnar frændi bjó alla sína
tíð á Eyrarbakka og þótti mér
ætíð spennandi sem krakka að
fara í heimsóknir á Bakkann,
hvort sem það var í Vatnagarð
eða í Smáratún til Gunnars og
Ingu. Það var mikið um að vera
á báðum stöðum. Gunnar og
fjölskyldan var alla tíð með
hesta og kindur, sem mér þótti
spennandi. Það fór nú svo að ég
fékk að vera með fyrsta hestinn
minn hjá þeim í vetrarvist á
unglingsárum mínum sem varð
til þess að ég var tíður gestur
hjá þeim um helgar þann vet-
urinn og næstu ár á eftir. Það
má segja að þessi vetur hafi
gert mig tengdari fjölskyldunni
en almennt er milli frændsystk-
ina. Hef ég haldið miklu sam-
bandi við þau systkinin, sér í
lagi Pétur og Guðjón, en við
strákarnir deildum hestaáhuga-
num og var mikið riðið út um
helgar milli þess sem reynt var
að gera gagn með að stinga út
úr fjárhúsinu og gefa skepn-
unum. Ég og Kolbrún flytjum
1994 á Selfoss og það er mér
eftirminnilegt að ég skyldi ná
að starfa með Gunnari við
Vegagerðina á Selfossi í tæp
tvö ár og þar sá maður frænda
að störfum. Það var aldrei æs-
ingurinn hjá Gunnari en hann
sinnti starfi rekstarstjóra og
tók einnig við kvörtunum fólks
yfir slæmum vegum og heim-
reiðum. Þegar menn komu æst-
ir yfir slæmu ástandi vega
(helst á vorin) þá átti Gunnar
það til að spyrja þá hvernig
sauðburðurinn gengi hjá þeim
og þá var eins og það slaknaði
á körlunum og úr þeim vind-
urinn og farið að ræða sauð-
burð og fleira. Eins átti Gunnar
til að nudda sig í framan og
segja mönnum þegar vandamál
komu upp:
„Þetta jafnar sig“. Við Gunn-
ar hættum störfum hjá Vega-
gerðinni á svipuðum tíma, hann
vegna aldurs en ég fór í annað.
Við héldum þó alltaf góðu sam-
bandi, hittumst af og til í hest-
húsinu hans og í gegnum strák-
ana. Við Kolbrún vottum Ingu
og fjölskyldunni allri samúð
okkar og þökkum samfylgd lið-
inna ára.
Magnús Ólason.
Gunnar Ingi Olsen
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Jón G. Bjarnason
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu
og umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir, systir,
tengdadóttir og mágkona,
EYRÚN NANNA EINARSDÓTTIR,
lést aðfaranótt mánudagsins 26. september
2016. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna,
UNICEF.
.
Kári Guðjón Hallgrímsson
Þór, Haraldur og Einar Helgi Kárasynir
Vigdís Esradóttir Einar Unnsteinsson
Andrea Ósk Guðlaugsdóttir Kári Esra Einarsson
Ragnheiður Haraldsdóttir Hallgrímur Guðjónsson
og aðrir aðstandendur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
EGILL ÁRNASON
húsasmíðameistari,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn
19. september. Þökkum auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför. Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á
hjúkrunarheimilinu Skjóli.
.
Guðmunda Marsibil Magnúsdóttir
Árni Egilsson Erla Jóna Steingrímsdóttir
Egill Egilsson Þórdís Sigurðardóttir
Óskar Egilsson Anna Björk Sigurðardóttir
Kristín Rós Egilsdóttir Árni Sigurður Hafdal
Birgir Egilsson
og afabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
VALDÍS GRÓA GEIRARÐSDÓTTIR,
Lækjasmára 4,
Kópavogi,
lést fimmtudaginn 29. september á
líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
.
Þorgeir Lúðvíksson,
Lúðvík Þorgeirsson, Sædís Austan Gunnarsd.,
Kristín Anna Þorgeirsdóttir, Örn Arnarsson,
Björgvin Þór Þorgeirsson, Guðrún Jónsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
LAUFEY SIGRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR,
Borgarbraut 65a,
Borgarnesi,
andaðist á Sjúkrahúsinu á Akranesi
miðvikudaginn 28. september.
.
Ásgrímur Stefánsson, Hólmfríður Salóme Jónsd.,
Anna Kristín Stefánsdóttir, Sveinn Haukur Pétursson,
ömmu- og langömmubörn.