Morgunblaðið - 01.10.2016, Side 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016
RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK | 2016
Tæp átta ár eru síðan góð-ærisveislunni lauk meðskelli og íslensku bank-arnir fóru á hliðina. Síðan
hefur uppgjörið og hráskinnaleik-
urinn um þrotabú þeirra staðið yfir.
Ránsfengur nefnist ný heimildar-
mynd eftir Pétur Einarsson. Pétur
hefur komið víða við í fjármálaheim-
inum og þekkir efnið því vel. Í mynd-
inni er farið yfir aðdraganda banka-
hrunsins og það sett í alþjóðlegt
samhengi. Því er síðan lýst hvernig
vogunarsjóðir á borð við Davidson
Kempner keyptu rústirnar á hrak-
virði, allt niður í eitt sent á dollarann,
í þeirri von að eignir bankanna
reyndust meira virði þegar upp yrði
staðið og fengu tvo af þremur við-
skiptabönkunum í hendurnar frá
stjórnvöldum.
Samhliða er gefin innsýn í það
hvernig þessar hamfarir í fjár-
málaheiminum höfðu áhrif á líf
venjulegs fólks með því að segja sögu
einyrkja, sem kippt var undan fót-
unum. Þorsteinn Theodórsson var
einyrki sem alla sína ævi hafði unnið
hörðum höndum og ávallt staðið í
skilum. Hann hafði tekið lán í er-
lendri mynt og þegar bankarnir fóru
á hausinn var atvinnutækið hans tek-
ið af honum. Hann hafði keypt vöru-
bíl á 20,5 milljónir króna og var bú-
inn að borga átta milljónir af honum.
Bíllinn seldist á 20,5 milljónir, en
engu að síður krafði bankinn Þor-
stein um 12 milljónir, sem honum var
sagt að enn væru útistandandi.
„Ævistarfið fór með einu penna-
striki,“ segir Theodóra, dóttir hans, í
myndinni.
Þorsteinn og dóttir hans eru mjög
opinská í myndinni og viðtölin við
hann eru sérlega áhrifarík.
Í myndinni koma fyrir margir við-
mælendur, innlendir og erlendir. Sú
mynd, sem dregin er upp af hinum
alþjóðlega fjármálaheimi er ekki fög-
ur. Einn viðmælandi bendir á að allt-
af sé verið að laga það sem síðast fór
úrskeiðis í stað þess að horfa til þess,
sem gerist næst. Í upphafi segir ann-
ar viðmælandi að fjármálakerfið í
heiminum virki ekki.
Vogunarsjóðirnir eru sérstakt um-
fjöllunarefni myndarinnar. Grín hef-
ur verið gert að Sigmundi Davíð
Gunnlaugssyni, fyrrverandi for-
sætisráðherra, þegar hann hefur lýst
því hvernig hann fann fyrir þrýstingi
vogunarsjóðanna um að greiða götu
þeirra. Það er hins vegar engin
ástæða til að gera lítið úr þessum
ógeðfellda þrýstingi. Gróðavonin var
mikil og ómældum upphæðum var
varið í að hafa áhrif á almennings-
álitið og áhrifamenn í íslensku sam-
félagi. Minnst af þessum drauga-
gangi kom upp á yfirborðið.
Í myndinni er tínt til að meðallaun
stjórnenda helstu vogunarsjóðanna
séu 1,7 milljarðar dollara á ári. Árs-
launin hjá kempum á borð við Ron-
aldo, sem er með í kringum 100 millj-
ónir dollara á ári, blikna í
samanburði. Þessi laun fá þeir fyrir
að búa til gríðarlegan hagnað fyrir
skjólstæðinga sína, en þeir skapa
engin verðmæti, nema síður sé, og
eftir kreppuna 2008 sat almenningur
um allan heim uppi með reikninginn
af glæfraskap þeirra.
Öll grafík í myndinni er ein-
staklega vel unnin og skýr. Tónlistin
er eftir Atla Örvarsson og Edelstein
og fellur vel að efninu. Ólafur Darri
Ólafsson er þulur myndarinnar og
gefur góðu handriti viðeigandi vigt
með sinni djúpu rödd og pottþéttu
framsögn. Úr hans munni myndi hel-
ber þvættingur hljóma eins og heil-
agur sannleikur.
Farið hefur verið yfir margt af því,
sem fram kemur í myndinni, áður og
sumt er íslenskum áhorfendum
kunnuglegt, en óhjákvæmilegt að
láta það fylgja til að þeir átti sig, sem
ekki þekkja til. Ránsfengur er vel
gerð mynd og felst styrkur hennar
ekki síst í því hvernig saga Þorsteins
Theódórssonar er fléttuð inn í frá-
sögnina.
„Ævistarfið fór með einu pennastriki“
RIFF
Ránsfengur bbbmn
Leikstjóri: Pétur Einarsson.
Þulur: Ólafur Darri Ólafsson.
Enska og íslenska. Ísland. 53 mín.
Flokkur: Ísland í brennidepli.
KARL BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
Ránsfengur Með því að segja sögu Þorsteins Theódórssonar sýnir Pétur
Einarsson hvernig bankahrunið hafði áhrif á venjulegt fólk.
Bíó Paradís: Lau. 1. okt. kl. 13.15.
Leikstjóri svarar spurningum.
Norræna húsið: Mán. 3. okt. kl.
20.30.
Hildur Loftsdóttir
hildurl@mbl.is
Aino Freyja Järvelä, forstöðu-
maður Salarins, segir fjölbreyti-
leika einkenna tónleikaröðina í
vetur. „Við auglýstum eftir um-
sóknum og svo valdi tónleikaráðið
okkar það sem
við töldum vera
mest spennandi
fyrir Salinn í
vetur. Við vild-
um að tónleik-
arnir væru per-
sónulegir og
nýttu einstaka
kosti Salarins.
Við erum til
dæmis með tvo
bestu konsert-
flygla landsins og vildum að þeir
myndu njóta sín, en um leið vild-
um við bjóða upp á sem fjölbreytt-
asta tónlist. Fyrstu tónleikarnir
verða haldnir laugardaginn 8.
október, en þá koma Valgerður
Guðnadóttir og Kvartettinn Kurr
fram og flytja skemmtilega blöndu
af tangóum, dægurlögum og
djassi.“
Klassísk tónlist og
tilraunastarfsemi
Aino Freyja segir að sumt
tónlistarfólkið sem tekur þátt í
Tíbrártónleikaröðinni hafi aldrei
áður komið fram í Salnum en að
gamlar og góðar kempur muni
líka koma fram. „Þar má nefna
stórsöngvarana Þóru Einarsdóttur
og Kristin Sigmundsson, sem
munu frumflytja nýtt verk eftir
Áskel Másson við ljóð Matthíasar
Johannessen.
Við erum líka mjög spennt fyrir
að taka á móti yngri hópum, eins
og stelpunum í hljómsveitinni
Umbru sem munu flytja sögulega
slagara úr fortíðinni með áherslu
á kventónskáld og hlutverk kon-
unnar í textum. Sama má segja
um Mógil, sem skapar einstakan
hljóðheim þar sem klassík, þjóð-
lagatónlist og djassi er vafið sam-
an. Þetta er allt tónlistarfólk sem
hefur verið í tilraunastarfsemi og
leiðir saman ólíkar tónleika-
stefnur.“
Einnig verður blásið til vísna-
tónlistarhátíðar. „Þá fáum við
sænska vísnatónlistarmenn að
syngja vísur eftir Cornelis Vrees-
wijk og fleiri sænsk söngvaskáld.
Þjóðlagasveitin Draupnir kemur
líka fram, Guðrún Gunnarsdóttir,
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson,
Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir og
fleira gott íslenskt vísnatónlist-
arfólk,“ segir Aino Freyja spennt.
„Þá verður heill dagur tileinkaður
vísnatónlistinni; vísnadagskrá um
daginn, en tónleikar um kvöldið.“
Fjölskylduvænir tónleikar
„Við viljum líka endilega hvetja
ungt fólk til að koma á þessa
skemmtilegu tónleikaröð,“ segir
Aino Freyja. „Þess vegna fá börn
12 ára og yngri frítt inn með for-
eldrum, og þá erum við ekki síst
að hvetja foreldra barna í tónlist-
arnámi til að mæta. En svo veitum
við líka 35% afslátt fyrir ung-
menni 12-25 ára, í þeirri von að
sjá sem flesta. Þetta verða alls
ekki mjög formlegir tónleikar,
heldur kynnir tónlistarfólkið bara
dagskrána sjálft. Kosturinn við
salinn er að hann er svo persónu-
legur, og þegar tónlistamennirnir
segja svolítið frá brýtur það múr-
inn á milli flytjenda og áheyrenda.
Þetta verður létt og skemmtilegt.“
Aino Freyja segir flesta tón-
leikana fara fram á laugardags-
kvöldum, en stundum á fimmtu-
dögum og sunnudögum. „En við
erum líka með klassíska tónleika á
laugardagskvöldi, sem er heldur
óvanalegt, en okkur langaði að
láta á það reyna og sjá hvort fólk
vildi ekki gera skemmtilegt kvöld
úr því að koma á tónleika,“ segir
forstöðumaður Salarins að lokum
og vonast til að sem flestir komi
og njóti þess að tónlistarlíf í
Kópavogi sé að lifna við á ný.
Léttir og skemmtilegir tónleikar
Tónleikaröðin Tíbrá lifnar við í Salnum Djass, kammertónlist, vísna- og þjóðlagatónlist, ljóða-
tónlist, klassík og dægurtónlist mun hljóma á 14 tónleikum þar sem um 50 tónlistarmenn koma fram
Kvartett Þórarinn Baldursson, Guðrún Dalía Salómonsdóttir, Helga Þóra
Björgvinsdóttir og Júlía Mogensen flytja píanókvartetta eftir Mozart.
Kventónskáld Hljómsveitin Umbra leikur verk eftir kventónskáld. Umbra skipa Alexandra Kjeld, Arngerður
María Árnadóttir, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir og Lilja Dögg Gunnarsdóttir.
Aino Freyja
Järvelä
Bassarödd Kristinn Sigmundsson.