Morgunblaðið - 01.10.2016, Síða 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
Sex kórar munu sameina krafta sína
í Hörpu um helgina. Kórarnir eru
það sem kalla má sjálfstæðir og eiga
það sameiginlegt að vera ungir að
árum og vera með ferskar hug-
myndir í efnisvali.
„Ég fékk þessa hugmynd ásamt
stjórnendum Katlanna og við
ákváðum að leiða kórana saman,“
segir Fjóla Kristín Nikulásdóttir,
stjórnandi Hljómfélagsins. „Þetta er
fólk á svipuðu reiki og við hugsuðum
að þetta yrði skemmtilegt mót, þetta
er alls ekki hugsað sem týpískt kóra-
mót.“ Ásamt Hljómfélaginu munu
fimm aðrir kórar taka þátt: Bartón-
ar undir stjórn Jóns Svavars Jósefs-
sonar, Karlakórinn Esja undir
stjórn Kára Allanssonar, Kvenna-
kórinn Katla undir stjórn Hildigunn-
ar Einarsdóttur og Lilju Daggar
Gunnarsdóttur, Vocal Project undir
stjórn Gunnars Ben og Ljótikór,
sem syngur stjórnandalaus.
Fjóla Kristín segir það mikið
gleðiefni hversu blómstrandi kóra-
menningin hefur verið hér á landi
síðustu misseri. „Segja má að ný
kynslóð kóra sé að fæðast og sé nú
þegar orðin að ákveðnu afli í ís-
lensku tónlistarlífi. Fólk á bilinu 25-
40 ára sem er að leita sér að tóm-
stundaiðju er farið að koma inn í
kórana. Það komu til að mynda 50
manns í áheyrnarprufur í Hljóm-
félagið í haust. Þetta er ekki endi-
lega vant kórafólk heldur fólk sem
langar virkilega að prófa að vera
hluti af kór, sem er alveg stórkostleg
þróun.“
200 manna kór í Norðurljósum
Búist er við 160-200 þátttak-
endum á kóramótið sem hefst í dag.
Kórarnir munu vinna saman í mis-
munandi smiðjum undir handleiðslu
kórstjóranna sem allir hafa mikla
reynslu og menntun í kóravinnu.
Unnið verður með spuna og nýjar
útsetningar svo úr verður eins konar
söngvagaldur sem verður fluttur á
tónleikum í Norðurljósum á sunnu-
dag klukkan 17. „Allir þátttakendur
eru virkir í sköpuninni. Í rauninni
vitum við ekkert hver útkoman verð-
ur, en það er mjög spennandi,“ segir
Fjóla Kristín.
Tónleikarnir fara fram undir yf-
irskriftinni „Galdur.“ „Talið er að
uppruni þess orðs tengist söng, það
er að gala og seiða,“ segir Fjóla
Kristín. Kórarnir munu kanna
troðnar sem ótroðnar slóðir og miðla
þeirri þróun sem hefur átt sér stað
með tilkomu þessarar nýju kyn-
slóðar kóra, meðal annars með því
að flytja nýjar útsetningar á lögum,
meðal annars eftir Björk og Fleet
Foxes. Þá verða einnig flutt verk eft-
ir Hreiðar Inga Þorsteinsson og
fleiri íslensk tónskáld. Hver kór mun
flytja nokkur verk, hver fyrir sig, en
svo munu allir kórarnir flytja saman
útgáfu af þjóðlaginu „Sjö sinnum
það sagt er mér,“ sem verður út-
gangspunkturinn í smiðjunum sem
fara fram á laugardag.
Hægt er að nálgast miða á tón-
leikana á sunnudag á vefnum tix.is.
Söngvagaldur í Norðurljósum
Sex sjálfstæðir kórar koma saman í Hörpu um helgina Unnið verður með
sköpun, söng og spuna í nokkrum smiðjum Lýkur með tónleikum á sunnudag
Kötlurnar Kvennakórinn Katla er meðal sex kóra sem munu taka þátt í
kóramótinu sem fram fer í Hörpu um helgina og lýkur með tónleikum.
Því hefur löngum verið haldiðfram að maðurinn sé fé-lagsvera, en hversu mikiðnávígi við annað fólk þol-
um við? Danski leikstjórinn Thomas
Vinterberg ólst upp í menntamanna-
kommúnu. Hann gerði þeirri
reynslu sinni fyrst skil á leiksviði og
nú er komin kvikmyndin Kommúnan
um hóp fólks, sem á áttunda ára-
tugnum stofnar til sambýlis í Kaup-
mannahöfn.
Vinterberg hefur sagt að sagan í
myndinni sé ekki sjálfsævisöguleg,
en hins vegar reyni hann að koma til
skila andanum sem ríkti í kommún-
unni.
Sagan segir frá hjónunum Erik og
Önnu, sem ákveða að stofna komm-
únu í stóru einbýlishúsi. Hann er
hikandi, en hún er þeirrar hyggju að
það muni verða fulleinhæft að hlusta
á hann daginn út og inn og það muni
verða til að víkka sjóndeildarhring-
inn að stofna kommúnu.
Hjónin eru engir utangarðsmenn í
dönsku samfélagi. Anna er frétta-
þulur í danska sjónvarpinu og Erik
er arkitekt og kennir húsagerðarlist
í háskóla. Kommúnan er afsprengi
þeirra hugmynda sem náðu fótfestu
á tímabilinu sem kennt er við ’68-
kynslóðina, þegar Bob Dylan söng
að gamla kynslóðin ætti að fara frá
því að tímarnir væru að breytast.
Kommúnan í myndinni er þó eng-
in hippaklisja, það eru hvorki mynd-
ir af Che Guevara né Maó á veggj-
um. Íbúarnir liggja ekki afvelta af
vímu í hassmekki.
Þótt þar sé gengið þvert á lífsstíl
áratuganna á undan, ríkja að mörgu
leyti borgaraleg viðmið í komm-
únunni. Í kommúnunni ríkir lýðræði.
Greidd eru atkvæði um inntöku
nýrra sambýlismanna. Kostir þeirra
og lestir eru ræddir að þeim við-
stöddum. Allir eiga að leggja sitt af
mörkum og þeir sem reyna að fá
frítt far á kostnað hinna eru litnir
hornauga. Vei þeim sem tekur sér
bjór án þess að skrá það.
Vinterberg fjallar um kommún-
una af væntumþykkju. Þótt upp
komi ágreiningur eru allir af vilja
gerðir að leysa hann.
Kaldhæðni örlaganna hagar því
þannig að mest reynir á Önnu, upp-
hafsmann þess að stofna kommún-
una, í samlífinu. Erik fellur fyrir
ungum nemanda sínum, Emmu.
Anna reynir að láta eins og lífið geti
haldið áfram eins og ekkert sé með
Emmu innan borðs, en þótt hún
reyni að sannfæra sjálfa sig um að
hún geti deilt manni sínum með öðr-
um lætur hjartað ekki segjast og á
endanum bera tilfinningaflækjurnar
ásetning hennar ofurliði.
Hlutverk þeirra eru í höndum Ul-
rich Thomsen og Trine Dyrholm,
sem bæði eru að góðu kunn úr
dönskum sjónvarpsþáttum. Thom-
sen er mjög sannfærandi í hlutverki
eiginmannsins, sem er algerlega
ónæmur á tilfinningar sinna nán-
ustu. Dyrholm er ekki síður trúverð-
ug í hlutverki fréttakonunnar þegar
veröld hennar byrjar að gliðna í
sundur. Helene Reingaard Neu-
mann leikur nemandann og skilar
því vel. Það er örugglega ekki til-
viljun hvað hún er lík Dyrholm.
Martha Sofie Wallstrøm Hansen
leikur Freju, dóttur hjónanna og
unglinginn á heimilinu.
Freja er kannski ekki staðgengill
Vinterbergs frekar en Anna og Erik
foreldra hans, en hún kemur hans
sjónarhorni til skila. Unglingurinn
hefur ekkert að segja um þann lífs-
stíl sem foreldrarnir velja sér. Í
kommúnunni blasir líf allra við eins
og opin bók, jafnt í gleði sem harmi.
Hún fylgist með og uppákomurnar í
lífi foreldra hennar blasa við henni,
hvort sem henni líkar betur eða
verr. Um leið er hún berskjölduð.
Kommúnan er vönduð mynd og
það er valinn leikari í hverju rúmi.
Fares Fares fer á kostum í hlutverki
viðkvæma útlendingsins Allons, sem
tárast við minnsta mótlæti. Atriði
þar sem fordómarnir gegn honum
skína í gegn hjá Erik er óborgan-
legt.
Thomas Vinterberg er einn
fremsti leikstjóri Dana og vakti
verulega athygli með myndinni
Veislunni frá árinu 1998 þar sem lýst
er svakalegu fjölskylduuppgjöri. Í
myndinni Veiðin frá 2012 tekst Vin-
terberg á við það hvernig grunur um
barnaníð getur snúið heilu samfélagi
gegn einum einstaklingi, hversu til-
hæfulaus sem hann kann að vera.
Myndir Vinterbergs hafa fengið
misjafnar viðtökur og eru ákaflega
ólíkar. Í Veislunni er eins og lokið sé
tekið af ýldutunnu þegar leyndarmál
fjölskyldunnar eru afjhjúpuð.
Kommúnan er gerð af mun meiri
væntumþykju þótt ekki sé sneitt hjá
vandamálum og má að því leyti líkja
henni við Fanny og Alexander, óð
Ingmars Bergmans til fjölskyldu
sinnar.
Kórvilla í kommúnunni
RIFF
Kommúnan bbbbn
Leikstjóri: Thomas Vinterberg. Leikarar:
Ulrich Thomsen, Trine Dyrholm, Helene
Reingaard Neumann, Fares Fares, Julie
Agnete Vang, Lars Ranthe og Martha
Sofie Wallstrøm Hansen. Danska. Dan-
mörk, 2016. 111 mín.
KARL BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
Allir sem einn Liðsmenn kommúnunnar fara um fylktu liði á góðri stund. Í myndinni Kommúnan, sem gerist á átt-
unda áratug liðinnar aldar, snýr danski leikstjórinn Thomas Vinterberg aftur til æskuára sinna.
Háskólabíó: Lau. 1. okt. kl. 19.20.
Bíó Paradís: Fim. 6. okt. kl. 13.30.
Háskólabíó: Sun. 9. okt. kl. 15.30.
RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK | 2016
Á morgun, sunnudag, verður opnuð
haustsýning í Safni Ásgríms Jóns-
sonar með verkum hans undir yfir-
skriftinni Ógnvekjandi náttúra. Ás-
grímur er einn brautryðjenda
íslenskrar myndlistar og varð fyrst-
ur íslenskra málara til að gera
myndlistina að aðalstarfi. Á sýning-
unni verða verk sem sýna menn og
dýr á flótta undan náttúruhamför-
um og má skynja innri átök lista-
mannsins sem tengja okkur við líf
hans og starf, sælu og þjáningar
sem fylgja sköpunarferlinu þar sem
slegið er á nýja strengi. Meðal
verka eru eldgosamyndirnar svo-
nefndu, sem eru byggðar á frásögn-
um og eigin reynslu listamannsins.
Á sýningunni má sjá olíumálverk,
vatnslitamyndir og teikningar er
spanna allan feril listamannsins.
Sýningarstjóri er Rakel Péturs-
dóttir, deildarstjóri rannsókna og
Safns Ásgríms Jónssonar.
Ógnvekjandi
náttúra Ásgríms
Ljósmynd/Safn Ásgríms Jónssonar
Myndlist Náttúran er fyrirferðarmikil í
verkum Ásgríms á haustsýningu safnsins.
Listasafn
Reykjanesbæjar
býður upp á leið-
sögn sýningar-
stjóra og lista-
manna um
Ljósanætursýn-
ingu safnsins,
Framtíðarminni,
á morgun,
sunnudag, klukk-
an 15. Á sýning-
unni eru verk eftir Doddu Maggý,
Elsu Dórotheu Gísladóttur, Inga-
rafns Steinarssonar og Kristin Má
Pálmason. Tengingar við ræktun,
plöntur, kerfi og tíma eru áberandi
í listaverkum þeirra.
Leiðsögn um
Ljósanætursýningu
Listasafn Reykja-
nesbæjar.
MAGNIFICENT 7 7:20, 10
FRÖKEN PEREGRINE 2, 4
BRIDGET JONES’S BABY 5, 8
EIÐURINN 6, 9, 10:30
STORKAR 2D ÍSL.TAL 2, 4
KUBO 2D ÍSL.TAL 2
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 2