Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Qupperneq 12
12 Fréttir Helgarblað 6.–9. mars 2015 Tveggja milljarða sTyrkir Til Íslands Íslensk fyrirtæki hafa fengið tæpa 2 milljarða úr tveimur evrópskum menningarsjóðum frá byrjun tíunda áratugarins Í slenskir kvikmyndaframleiðend- ur og fyrirtæki hafa fengið tæp- lega tvo milljarða króna úr tveim- ur evrópskum menningarsjóðum frá upphafi tíunda áratugarins. Þar af hefur rúmlega einn milljarð- ur fengist úr Eurimages, kvikmynda- sjóði Evrópuráðsins, frá árinu 1990, eða fyrir 25 árum síðan. „Þetta er mikilvægt samstarf sem er að gagnast okkur. Sérstaklega þegar kemur að þróuninni. Þetta er mjög mikilvægur liður í að þróa kvik- myndaverkefni almennilega,“ seg- ir Hilmar Sigurðsson, annar eigandi framleiðslufyrirtækisins GunHil og einn af stofnendum Caoz, sem fjall- aði um sögu evrópsks fjármagns í ís- lensku kvikmyndaefni í Bíó Paradís. Fyrirlesturinn var hluti af evrópsku kvikmyndahátíðinni Stockfish sem var haldin í fyrsta sinn í síðustu viku. Hæsti styrkurinn árið 2013 Frá árinu 1993 hafa íslensk fyrirtæki jafnframt fengið 890 milljónir króna í styrk frá Creative Europe-Media- áætlun Evrópusambandsins. Mest hefur styrkurinn á einu ári numið 142,5 milljónum króna árið 2013. Lægstur var hann árið 2007, eða 7,6 milljónir króna. Þau fyrirtæki og verkefni sem fengu styrki frá Media árið 2013 voru Myndform, Sena, Bíó Paradís, Djúp- ið, Hraunið, RIFF-kvikmyndahá- tíðin, Ófærð, Geimfákarnir (Space Stallions), Lói – þú flýgur aldrei einn, Svartihnjúkur og Trend Beacons. Kostnaður við þátttöku nemur 840 milljónum Media hefur verið hornsteinn í fjár- mögnun, þróun og dreifingu ís- lenskra kvikmynda og komið að stuðningi við framleiðslu á íslensku, leiknu sjónvarpsefni. Frá því sjóð- urinn var stofnaður árið 1993 hef- ur hann fjárfest 1,5 milljörðum evra í menningarefni víðs vegar um Evrópu. Íslendingar þurfa að greiða fyr- ir að taka þátt í Eurimages og Media. Frá 1990 hefur kostnaður hins opin- bera við þátttöku í Media-áætluninni numið um tuttugu milljónum króna á ári, eða um 500 milljónum króna í heildina en sá peningur hefur skilað sér í tvöfalt hærri styrkveitingu. Hvað Eurimage varðar hafa 28 ís- lenskar myndir fengið samtals einn milljarð og átján milljónir króna í styrk frá 1990. Á þessu tímabili hafa stjórnvöld greitt 340 milljónir króna í sjóðinn og því er styrkveitingin tæplega þreföld sú tala. „Þessar töl- ur sýna að það er mikið úr þessu að hafa miðað við það litla sem er borg- að inn,“ segir Hilmar. Þór fékk 84 milljónir króna Í fyrirlestri sínum í Bíó Paradís nefndi Hilmar dæmi um styrkveitingar til nokkurra mynda sem hann hefur átt þátt í að gera. Teiknimyndin Þór sem kom út 2011 kostaði 8,4 milljón- ir evra, eða um 1,2 milljarða króna í framleiðslu. Styrkurinn sem fékkst frá Eurimages nam 480 þúsund evr- um, eða tæpum 72 milljónum króna, auk þess sem Media lét 80 þúsund evrur af hendi rakna, eða tæpar 12 milljónir. Samanlagt námu styrkirn- ir því 84 milljónum króna. Um er að ræða dýrasta kvikmyndaverkefni sem hefur verið framleitt á Íslandi. Teiknimyndin Lói – þú flýg- ur aldrei einn er í undirbúningi um þessar mundir. Hún hefur fengið 80 þúsund evrur, eða um 12 milljón- ir króna, í þróunarstyrk frá Media en áætlað er að kostnaðurinn við þróun myndarinnar verði 350 þúsund evr- ur, eða rúmar 52 milljónir króna. Teiknimyndin Geimfákarnir hef- ur einnig fengið 60 þúsund evrur í þróunarstyrk, eða tæpar 9 milljónir króna. Nýliðar fá engan styrk Þess má geta að Evrópusambandið styrkir ekki þá framleiðendur eða leikstjóra sem eru að búa til sín- ar fyrstu myndir og þannig hef- ur það verið síðastliðin ár. Nor- ræni kvikmyndasjóðurinn er einnig nýbyrjaður með svipaða stefnu. „Stefnumörkunin hefur verið að breytast svolítið, þannig að myndir sem eiga frekar möguleika á sölu til fleiri markaða eiga frekar möguleika á fyrirgreiðslu,“ segir Hilmar. Þannig er minni áhætta tekin og meiri líkur á því að aukin útbreiðsla myndanna verði tryggð. Þessir er- lendu sjóðir reikna með því að þeir sjóðir sem eru til staðar heima fyr- ir, eins og Kvikmyndasjóður Íslands, sjái um að styrkja þá sem eru að stíga sín fyrstu spor, hvort sem um er að ræða kvikmyndir, stuttmyndir eða heimildarmyndir. n Freyr Bjarnason freyr@dv.is Hraunið Sjónvarpsþættirnir Hraunið með Björn Hlyn Haraldsson í aðalhlutverki voru á meðal þeirra sem fengu styrk árið 2013. Hilmar Sigurðsson Hilmar hélt fyrirlestur á kvikmyndahátíðinni Stockfish í Bíó Paradís á föstudaginn. MyNd Sigtryggur Ari „Þetta er mjög mikilvægur liður í að þróa kvikmyndaverk- efni almennilega. e iríkur Svavarsson hæstaréttar- lögmaður hefur hætt störfum í framkvæmdahópi stjórnvalda um afnám fjármagnshafta. Hann hefur verið hluti af ráðgjafahópi stjórn- valda sem hefur unnið að því að móta tillögur um áætlun að losun hafta allt frá því í nóvember 2013. Eiríkur lét af störfum um síðastliðin mánaðamót samtímis því að samningurinn hans við fjármálaráðuneytið rann út. Í samtali við DV segir Eiríkur að ástæðan sé sú að hann hafi talið nauðsynlegt á þessum tíma- punkti að geta á ný farið að sinna starfi sínu sem lögmaður en Eirík- ur er á meðal eigenda á lögmanns- stofunni Draupni. Allt frá því að Eiríkur var skipaður í sérstaka fram- kvæmdastjórn um afnám hafta í júlí 2014, ásamt fimm öðrum sérfræðing- um, hefur hann verið í fullu starfi sem ráðgjafi stjórnvalda í haftamálum. Hann segist skilja sáttur og að honum hafi tekist að koma sínum sjónarmiðum og áherslum á framfæri í vinnu ráðgjafa stjórnvalda að hafta- málum. Þeir sem skipa framkvæmda- hóp stjórnvalda um afnám hafta eru því í dag Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri eignastýringar MP banka og einn nánasti vinur og ráð- gjafi forsætisráðhera, Benedikt Gísla- son, ráðgjafi fjármálaráðherra í hafta- málum, og Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, yfirlögfræðingur MP banka. Sigurður og Benedikt eru báðir vara- formenn framkvæmdahópsins. Auk þeirra eru í framkvæmda- hópnum Ingibjörg Guðbjartsdóttir, framkvæmdastjóri gjaldeyriseftirlits Seðlabankans, og Jón Þ. Sigurgeirs- son, framkvæmdastjóri alþjóðasam- skipta og skrifstofu seðlabankastjóra. Þá er Glenn Kim, bandarískur fjár- málaráðgjafi, formaður hópsins. Þegar tilkynnt var formlega um skip- an hópsins 21. janúar sl. sagði í til- kynningu fjármálaráðuneytisins að nýr áfangi væri hafinn í losun hafta. Hlutverk hópsins er að rýna í þær til- lögur sem hafa verið útfærðar um afnám hafta og koma þeirri stefnu sem mótuð verður í framkvæmd. n hordur@dv.is Hættur í haftahóp Eiríkur Svavarsson segist hafa tekist að koma sínum sjónarmiðum og áherslum á framfæri Eiríkur Svavarsson Hefur verið hluti af ráðgjafahópi stjórnvalda frá árslokum 2013.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.