Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Qupperneq 39

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Qupperneq 39
Helgarblað 6.–9. nóvember 2015 Menning 39 GÓLFMOTTUR Við leigjum út gólfmottur í anddyri. Haltu fyrirtækinu hreinu og minnkaðu ræstingakostnað. Við sækjum og sendum. Fáðu verðtilboð! 511 1710 svanhvit@svanhvit.is www.svanhvit.is Þjóðleg rök gegn andlitsfarða og drengjakollum heimsstyrjöld var mjög ríkjandi meðal menntamanna það sem við myndum líta á í dag sem rasisma. Menn höfðu þá skoðun að þjóðir og þjóðarbrot hefðu ákveðið eðli til að bera sem væri líffræðilega bundið við kynþátt og stöðu. Sú trú var viðtekin meðal menntamanna hér á landi að Íslendingar væru úrvalsþjóð og hún hefði sérstaka líkamlega og menn- ingarlega eiginleika til að bera sem mikilvægt væri að varðveita,“ segir Ólafur. „Þetta sést til að mynda í um- ræðunum um andlitsfarða á þriðja áratugnum. Sumir sáu farðann sem aðskotahlut sem væri að eyðileggja náttúrulega fegurð íslenskra kvenna. Ég get nefnt eitt skemmtilegt dæmi. Guðmundur Finnbogason, sem var á þeim tíma prófessor í hagnýtri sál- fræði við Háskóla Íslands, hafði far- ið til Vesturheims og skoðað litarhátt íslenskra kvenna þar. Svo kom hann heim og bar þetta saman. Hann taldi sig hafa komist að því að húðlitur eða litarhaft íslenskra kvenna á Ís- landi væri ennþá fallegra en íslenskra kvenna í Kanada. Það væri því eitt- hvað sérstakt við íslenska kynþáttinn en líka við það að hann væri á Íslandi. Það stuðlar að því að íslensku kon- urnar séu svona óskaplega fallegar.“ Sömu hugmyndir og í ástandinu „Þótt þessi íhaldsviðhorf hafi kannski ekki slegið í gegn, getum við litið á þetta sem mjög áhugaverða tilraun til að nota hugmyndir um menn- ingararfinn til að stýra hegðun kvenna. Þetta getur nefnilega verið mjög öflug orðræða, að tala í nafni þjóðararfsins og koma þeirri hug- mynd inn hjá konum að þær séu að ganga á sveig við sinn sanna uppruna með því að hlaupa á eftir tískustraum- um frá útlöndum,“ segir Ólafur. „Hugmyndin um menningararf getur verið nýtt til að hafa áhrif á það hvernig fólk hegðar sér, hvernig það kemur fram, hvernig það ber sig og jafnvel útlit þess. Þetta getur auðvitað haft mjög dramatískar af- leiðingar eins og við sjáum til dæmis í því hvernig komið var fram við kon- ur í „ástandinu“. Það eru þessar sömu hugmyndir sem undirbyggja það sem gerðist á stríðsárunum, þegar konur sem tengjast erlendum hermönnum voru álitnar vera að svíkja þjóðerni sitt. Sá hugmyndaheimur sem birtist þar sprettur ekki upp af því að einhver einn einstaklingur hafi haft undar- legar hugmyndir um konur og hlut- verk þeirra heldur á hann sér djúpar rætur meðal þjóðarinnar – og ekki síst meðal menntamanna,“ segir Ólafur. Heilög ára um menningararfinn Ef menningararfurinn er afstæður og notaður sem stjórntæki í pólitískum tilgangi, er þetta þá einfaldlega skað- legt hugtak? „Ég myndi ekki segja að þetta væri skaðlegt hugtak. Menningararfur er að ýmsu leyti farvegur skilnings á því hver við erum sem samfélag og að hvaða leyti við erum nútímaleg. Maðurinn er nútímamaður ef hann á sér einhvern tiltekinn menningararf, þannig að þetta er mikilvægt hugtak. Í þessari bók, Menningararfur á Ís- landi, erum við mikið að skoða hvernig menningararfurinn er ákveðið tæki til að skilgreina okkur, til þess að leggja áherslu á eitt- hvað tiltekið í sjálfsmynd okkar. En við erum alls ekki að grafa undan menningararfinum eða gera lítið úr honum. Við erum aftur á móti að benda á að þessi heilaga ára sem hefur umlukið menningararfinn er mannanna verk. Það eru stjórnmála- menn, menntamenn og áhugamenn um einhver ákveðin málefni sem að búa hann til eða skilgreina, en það hefur áhrif á sjálfsmynd okkar, sam- félaglegan skilning og áhrif til fram- tíðar. Það hefur áhrif á það hver við teljum að við séum og hver við viljum verða,“ segir Ólafur. n Drengjakollur Svava Berentsdóttir, amma Ólafs, starfaði sem hárgreiðslu- meistari í Reykjavík á þriðja og fjórða áratug 20. aldar. Hér situr Svava fyrir í kringum árið 1930 í stíl við kvikmyndastjörnur Hollywood þess tíma. MynD Ólafur raStrick náttúrulega fegurð Íslenskir mennta- menn færðu rök fyrir því á þriðja áratugn- um að sítt hár væri íslenskum konum náttúrulegt og eðlilegt – en drengjakollur og andlitsmálning væri óþjóðlegt og eyðileggjandi. rótar í menningararfinum Ólafur Rastrick er annar ritstjóra bókar um menningararf á Íslandi. MynD Sigtryggur ari n Ólafur Rastrick ræðir menningararf á Íslandi n Hugmyndir um menningararf notaðar til að gagnrýna erlend tískuáhrif íslenskra kvenna á þriðja áratugnum Valur gunnarsson valurgunnars@gmail.com Kvikmyndir Black Mass iMDb 7,3 aðalhlutverk: Johnny Depp og Benedict Cumberbatch leikstjóri: Scott Cooper 122 mínútur Svalur með skallakollu H ollywood elskar Ísland en virðist hata Íslendinga. Það var engin Sæmi rokk í sögu Bobbys Fischer og engin Anna Björns í sögu Whiteys Bulger. Þar fyrir utan er sagan hin áhuga- verðasta og langt síðan maður hefur séð Depparann leika svo vel. Eitt sinn var hann ungur að læra mafíutökin í Donnie Brasco en hér er hann búinn að taka við forystu. Myndin forðast alla mafíurómantík, hér er hreinræktaður glæpon á ferð og já, saklaust fólk er drepið. Þáttur löggunnar er áhugaverður en hefði mátt útskýra betur til að ná Wire- hæðum. Samt besta glæpamynd síðan Departed, sem byggði á sömu sögu. n Hörð lífsbarátta Í Hrólfs sögu segir Iðunn Steins- dóttir sögu langafa síns Hrólfs Hrólfssonar sem háði harða lífs- baráttu sem sveitarómagi og síð- ar vinnumaður í lok 18. aldar. Óvenjuleg skáldsaga Ný skáldsaga Bergsveins Birgis sonar nefnist Geir- mundar saga heljarskinns. Hér er á ferð óvenjuleg bók því hún er skrifuð á fornu máli og við söguna er formáli, í anda formálanna í ritröðinni Íslenzk fornrit. Að- alpersónan Geirmundur var sagður göfgastur allra land- námsmanna á Íslandi. Sönn saga Mikaels Mikael Torfason segur sögu sína, foreldra sinna og forfeðra í bókinni Týnd í Paradís. Vottar Jehóva eru fyrirferðarmiklir í frá- sögninni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.