Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Page 2
Helgarblað 13.–16. nóvember 20152 Fréttir
Búllurnar skila Tomma
tugmilljónum króna
n Hamborgarabúlla Tómasar opnar í Árósum og á Ítalíu n Bandaríkin í sigtinu
Þ
etta er mikil vinna og af
rakstur stöðugrar yfirlegu
enda kemur ekki rafmagn
á peruna nema maður stígi
aðeins á pedalana,“ segir
Tómas Andrés Tómasson, betur
þekktur sem Tommi á Búllunni,
um góða afkomu einkahlutafélags
ins Hamborgarabúlla Tómasar en
hagnaður þess í fyrra nam 21 milljón
króna og tvöfaldaðist frá fyrra ári.
Félagið heldur utan um tekjur
Tomma af rekstri Búllustaðanna við
Bíldshöfða og Ofanleiti, eignarhlut
hans í veitingastöðunum tveimur í
London sem reknir eru undir hans
vörumerki og sérleyfissamningum
við eigendur hinna níu hamborgara
staðanna sem finna má hér á landi og
á meginlandi Evrópu. Það átti eign
ir upp á 158 milljónir króna í árslok
2014 en skuldaði þá einungis 66 millj
ónir. Eigið fé félagsins, sem Tommi á
55% hlut í, var því jákvætt um rúmar
92 milljónir við síðustu áramót.
„Þetta „lúkkar“ allt saman voða
flott og stórt en þessu fylgir mikið
vesen og verkefni sem þarf að leysa á
hverjum degi.“
Vinna með Mikkeller
Tommi er nýkominn heim frá Nor
egi en hann gerði í fyrra samning
við íslenska athafnamenn sem opn
uðu í síðasta mánuði Hamborgara
búllu Tómasar í Ósló. Þar með er búið
að opna sex staði í Evrópu á síðustu
þremur árum. Tveir eru í London en
hinir í Kaupmannahöfn, Malmö og
Berlín. Aðspurður segir Tommi von
á frekari landvinningum Búllunnar
en eigendur hamborgarastaðar
ins í Kaupmannahöfn hafa ákveðið
að opna nýjan stað í Árósum í Dan
mörku. Staðurinn verður rekinn við
götuna Jægergårdsgade í miðborg Ár
ósa og við hliðina á nýjum bar danska
örbrugghússins Mikkeller. Bjórfram
leiðandinn kynnti fyrr í haust nýjan
bjór sem er nefndur eftir Búllunni
og skartar mynd af Tomma með grátt
og mikið skegg sem hann safnaði
skömmu eftir hrun til að mótmæla
stýrivaxtahækkunun Seðlabankans.
„Við erum búnir að fá húsnæði
í Árósum og þar verðum við með
veitingarými við hliðina á Mikkeller.
Þar verður líklega einnig vel þekktur
pítsustaður frá Kaupmannahöfn sem
heitir Mother. Þetta verður ekki eins
og Stjörnutorgið í Kringlunni en við
verðum þarna saman en hver og einn
staður með sinn sjálfstæða karakter
og rekstur,“ segir Tommi.
Horfir vestur um haf
„Svo er ekki ólíkegt að það verði
opnaður annar staður í Mílanó eða
Róm á Ítalíu innan hálfs árs,“ svar
ar Tommi spurningu blaðamanns
um hvort Búllan ætli að láta staðar
numið við sjöunda hamborgarastað
inn í Evrópu. „Þar er um að ræða við
skiptafélaga sonar míns, sem er Ítali
og þekkir bæði Róm og ítalska um
hverfið mjög vel, sem vill opna stað
inn. Það er nauðsynlegt þegar maður
fer inn á ný svæði að vera með innan
búðarmenn sem þekkja sitt nánasta
umhverfi. Maður er þarna að ryðjast
inn á vettvang sem maður þekkir
ekki og við eigum eftir að taka þátt í
rekstrinum með þeim.“
Tommi viðurkennir aðspurð
ur að honum langi einnig að opna
hamborgarastað í Bandaríkjunum.
„Það er eins og að selja bakara
barni brauð að opna hamborgara
stað í Bandaríkjunum. En ekki að það
blundi ekki í manni að láta reyna á
það að fara vestur um haf. Maður veit
aldrei sína ævi fyrr en öll er.“ n
20.000
hamborgarar
Hagnaður Hamborgarabúllu Tómasar
ehf. nam 21 milljón króna í fyrra. Fyrir þá
upphæð má kaupa 20.000 Búlluborgara
eða rúmlega ellefu þúsund Tilboð aldar-
innar, tilboð sem inniheldur, hamborgara,
franskar og gos.
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
„Þetta „lúkkar“
allt saman voða
flott og stórt en þessu
fylgir mikið vesen.
Hamborgarabúllan Tommi opnaði fyrstu Búlluna í apríl 2004. Hann rekur í dag tvo staði hér á landi og segist hafa verið einstaklega
heppinn með starfsfólk. Hinir eru reknir með samþykki hans og sérleyfissamningum við Hamborgarabúllu Tómasar ehf. Myndir siGtryGGur ari
L
ögreglumaður á Austurlandi,
Stefán Pedro Cabrera, hefur
verið dæmdur í tíu mánaða
fangelsi fyrir fjárdrátt, fjár
svik og brot í opinberu starfi. Brotin
áttu sér stað 2013 og 2014 en hann
var meðal annars ákærður fyrir
að sekta erlenda ferðamenn fyrir
hraðakstur um mun hærri upphæð
en lög leyfa. Peningunum stakk
hann svo í eigin vasa.
Vísir greinir frá því að dómur sé
fallinn í málinu, en ekki er búið að
birta hann á dómstólavefnum. Lög
reglumaðurinn var ákærður fyrir að
draga sér hátt í eina miljón króna en
ákæruliðirnir voru tuttugu og einn.
Hann var meðal annars ákærður
fyrir rangar sakargiftir með því að
hafa stöðvað ökumann í júní 2013.
Sagði hann ökumanninum, konu,
að bifreiðin hefði mælst á 105 kíló
metra hraða þegar hið rétta var að
bifreiðinni var ekið á 75 kílómetra
hraða. Hafði hann læst hraðamæl
inn í 105 kílómetrum. Hann lét öku
manninn greiða 25 þúsund krónur í
sekt.
Niðurstaða Héraðsdóms
Norður lands eystra hafi verið að
dæma manninn í tíu mánaða fang
elsi, en ekki hefur verið greint frá
því hvort dómurinn er skilorðs
bundinn eða ekki. n
einar@dv.is
Lögreglumaður dæmdur í fangelsi
Talinn hafa haft tæpa milljón upp úr krafsinu
Kæra frávísun
Atlantic Green Chemicals
(AGC) hefur ákveðið að kæra
frávísunarúrskurð Héraðsdóms
Reykjaness í máli fyrirtækisins
gegn Reykjanesbæ, Reykjanes
höfn og Thorsil ehf. sem það
höfðaði vegna ákvörðunar
sveitarfélagsins um að neita
því um lóð í Helguvík sem það
telur sig hafa fengið úthlutað.
AGC vill byggja lífalkóhól
og glýkólverksmiðju í Helgu
vík en Jón Jónsson, lögmað
ur fyrirtækisins, fullyrðir að
stjórnendur Reykjaneshafnar,
sem er í eigu Reykjanesbæjar,
hafi lofað AGC lóð á athafna
svæðinu árið 2011 en að henni
hafi síðar verið úthlutað til
Thorsil. Staðsetningin skipti
AGC miklu máli, bæði út af
nálægðinni við Helguvíkur
höfn en einnig vegna þess að
fyrirtækið ætlar sér að nýta af
gangsvarmaorku frá kísilveri
United Silicon á næstu lóð.
BURT MEÐ MÚSARÚLNLIÐ
Ei algengasta vandamálið meðal tölvunotenda – bæði barna og fullorðinna
Léir álagi af viðkvæmum
sinaskeiðum úlnliðsins
Minnkar og fyrirbyggir spennu í hendi,
handlegg, öxlum og hálsi
duopad.is
Náúruleg staða með DuoPadSlæm staða handleggs
Meðmæli sjúkraþjálfara
léur og þægilegur
ÚLNLIÐSPÚÐI
aðeins 4 gr.
Fæst á www.duopad.is – árfesting gegn músararmi
DuoPad fylgir hreyfingum
handleggsins í staðinn fyrir að
allur líkaminn þurfi að aðlagast
stuðningi sem liggur á borðinu.
1
2
3
4
EINKENNI MÚSARÚLNLIÐS
Aukinn stirðleiki í hálsi og axlasvæði,
síðar seiðingur út í handlegg.
Verkur upp handlegg að olnboga með
vanlíðan og sársauka.
Verkurinn verður ólíðandi og stöðugur
í olnboga, úlnliðum og öxlum. Stífleiki í
hálsi getur verið viðvarandi.
Fólk getur orðið ófært um að nota
tölvumús og jafnvel óvinnufært.
Alvarlegt
flugslys
Flugvél með tvo innanborðs
brotlenti við Kleifarvatn í Hafnar
firði. Rannsóknarnefnd sam
gönguslysa var á vettavangi þegar
blaðið fór í prentun en búist var
við því að björgunaraðgerðir
héldu áfram fram á kvöld.
Engar upplýsingar höfðu
fengist um líðan einstaklinganna
sem voru í borð í flugvélinni, en
slysið var alvarlegt og viðbúnaður
björgunarsveita, sjúkraflutninga
manna og Landhelgisgæslunn
ar var mikill. Neyðarkall barst frá
vélinni á fimmtudagseftirmiðdag
og fannst hún um klukkan fjögur.
Þrír kílómetrar eru frá veginum
að flaki vélarinnar og var erfitt að
komast að henni nema með þyrlu
eða fótgangandi. Tæknideild lög
reglunnar var einnig að störfum.