Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Blaðsíða 31
Helgarblað 13.–16. nóvember 2015 Kynningarblað - Gæðakaffi 7
Nýja kaffibrennslan er
elsta kaffibrennslan
N
ýja kaffibrennslan varð
til við sameiningu Kaffi-
brennslu Akureyrar á
Akur eyri og Ó. Johnson
og Kaaber sem var áður til
húsa í gamla O.J.K. húsinu við Sæ-
túni í Reykjavík. Þrátt fyrir nafnið
er fyrirtækið því elsta kaffibrennsla
landsins. Nýja kaffibrennslan er
með höfuðstöðvar á Akureyri en
sala og dreifing fer fram hjá Ó.
Johnson og Kaaber í Reykjavík. Nýja
kaffibrennslan rekur ekki kaffihús
eins og aðrar stærstu kaffibrennsl-
ur landsins en vörur hennar eru út-
breiddar í verslunum auk þess sem
hún sér fjölmörgum vinnustöðum
fyrir kaffi – skrifstofum og stórum
og litlum fyrirtækjum.
„Uppskriftirnar að kaffinu okkar
eru byggðar á gömlum grunni sem
hefur reynst vel en við höfum tek-
ið aðferðirnar í gegn og aukin
gæðastjórnun í framleiðslunni
skilar sífellt betri vöru,“ segir Njáll
Björgvinsson, vörumerkja- og
gæðastjóri.
Hann segir að hráefnið komi
víða að úr heiminum, til dæmis frá
Brasilíu, Kólumbíu, Afríku og fleiri
þekktum kaffiræktunarsvæðum.
Kaffið er flutt inn beint frá rækt-
unarlöndum eins og t.d. Brasilíu,
Kólumbíu, Kenía o.fl. löndum.
„Við leitumst eftir því að flytja
inn gott hráefni og notumst ein-
göngu við Arabica-kaffi,“ segir
Njáll.
Kaffið er ristað daglega í kaffi-
brennslunni fyrir norðan og því
pakkað í loftskiptar umbúðir með
einstreymisventli til að tryggja að
gæðin haldist sem allra lengst. „Við
höfum ávallt mælt með því nota
kaffi fljótt því kaffi er ferskvara,“
segir Njáll.
Allir landsmenn þekkja Braga-
og Ríó-kaffi sem enn eru mjög vin-
sælar kaffitegundir en seinni árin
hegur borið meira á Rúbín-kaffi-
nu. Rúbín endurspeglar þær hefð-
ir og sögu fyrirtækisins í kaffiristun
fyrir íslensk heimili í yfir 80 ár. En
það er gaman að minnast á það
að hér áður fyrr var framleitt kaffi-
bæti í kaffibrennslunum norðan og
sunnan heiða. Á heimasíðu Nýju
kaffibrennslunnar, http://www.
kbr.is/, er að finna heilmikinn fróð-
leik um sögu fyrirtækisins og gagn-
legar upplýsingar um vörur þess og
þjónustu. Þar segir meðal annars:
„Nýja kaffibrennslan framleið-
ir ýmsar tegundir af kaffi og full-
yrða má að allir geti fundið eitt-
hvað við sitt hæfi í flórunni okkar.
Hvort sem þú kýst að kaupa baunir
til að mala heima, malað kaffi fyrir
pressukönnuna, kaffi í skömmtum
fyrir kaffivélina á vinnustaðnum –
eða bara venjulegt kaffi til að hella
upp á heima við – þá ættirðu að
finna það sem þú leitar að hjá okk-
ur. Að auki framleiðum við líka kaffi
sérstaklega fyrir ákveðna viðskipta-
vini og sérmerkjum þeim.“ n
Fyrsti brennsluofninn Á Akureyri. Kaffibrennsla Árið 1972.