Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Page 31
Helgarblað 13.–16. nóvember 2015 Kynningarblað - Gæðakaffi 7 Nýja kaffibrennslan er elsta kaffibrennslan N ýja kaffibrennslan varð til við sameiningu Kaffi- brennslu Akureyrar á Akur eyri og Ó. Johnson og Kaaber sem var áður til húsa í gamla O.J.K. húsinu við Sæ- túni í Reykjavík. Þrátt fyrir nafnið er fyrirtækið því elsta kaffibrennsla landsins. Nýja kaffibrennslan er með höfuðstöðvar á Akureyri en sala og dreifing fer fram hjá Ó. Johnson og Kaaber í Reykjavík. Nýja kaffibrennslan rekur ekki kaffihús eins og aðrar stærstu kaffibrennsl- ur landsins en vörur hennar eru út- breiddar í verslunum auk þess sem hún sér fjölmörgum vinnustöðum fyrir kaffi – skrifstofum og stórum og litlum fyrirtækjum. „Uppskriftirnar að kaffinu okkar eru byggðar á gömlum grunni sem hefur reynst vel en við höfum tek- ið aðferðirnar í gegn og aukin gæðastjórnun í framleiðslunni skilar sífellt betri vöru,“ segir Njáll Björgvinsson, vörumerkja- og gæðastjóri. Hann segir að hráefnið komi víða að úr heiminum, til dæmis frá Brasilíu, Kólumbíu, Afríku og fleiri þekktum kaffiræktunarsvæðum. Kaffið er flutt inn beint frá rækt- unarlöndum eins og t.d. Brasilíu, Kólumbíu, Kenía o.fl. löndum. „Við leitumst eftir því að flytja inn gott hráefni og notumst ein- göngu við Arabica-kaffi,“ segir Njáll. Kaffið er ristað daglega í kaffi- brennslunni fyrir norðan og því pakkað í loftskiptar umbúðir með einstreymisventli til að tryggja að gæðin haldist sem allra lengst. „Við höfum ávallt mælt með því nota kaffi fljótt því kaffi er ferskvara,“ segir Njáll. Allir landsmenn þekkja Braga- og Ríó-kaffi sem enn eru mjög vin- sælar kaffitegundir en seinni árin hegur borið meira á Rúbín-kaffi- nu. Rúbín endurspeglar þær hefð- ir og sögu fyrirtækisins í kaffiristun fyrir íslensk heimili í yfir 80 ár. En það er gaman að minnast á það að hér áður fyrr var framleitt kaffi- bæti í kaffibrennslunum norðan og sunnan heiða. Á heimasíðu Nýju kaffibrennslunnar, http://www. kbr.is/, er að finna heilmikinn fróð- leik um sögu fyrirtækisins og gagn- legar upplýsingar um vörur þess og þjónustu. Þar segir meðal annars: „Nýja kaffibrennslan framleið- ir ýmsar tegundir af kaffi og full- yrða má að allir geti fundið eitt- hvað við sitt hæfi í flórunni okkar. Hvort sem þú kýst að kaupa baunir til að mala heima, malað kaffi fyrir pressukönnuna, kaffi í skömmtum fyrir kaffivélina á vinnustaðnum – eða bara venjulegt kaffi til að hella upp á heima við – þá ættirðu að finna það sem þú leitar að hjá okk- ur. Að auki framleiðum við líka kaffi sérstaklega fyrir ákveðna viðskipta- vini og sérmerkjum þeim.“ n Fyrsti brennsluofninn Á Akureyri. Kaffibrennsla Árið 1972.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.