Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Síða 8
Helgarblað 13.–16. nóvember 20158 Fréttir
E
igendur Tékklands bif
reiðaskoðunar og hluthafar
keppinautarins Aðalskoðun
ar riftu í lok síðasta sumars
kaupsamningi sem hefði
leitt til samruna fyrirtækjanna
tveggja. Samkomulag um sölu á
öllu hlutafé Aðalskoðunar til móð
urfélags Tékklands hafði þá legið
fyrir í hálft ár. Samkeppniseftirlitið
taldi samrunann eiga eftir að raska
með alvarlegum hætti samkeppni
á markaði með ökutækjaskoðanir
og mögulega leiða markaðsráðandi
stöðu sameinaðs fyrirtækis.
„Þetta voru viðskiptalegar
forsendur sem réðu þessu og við
einfaldlega hættum við að selja
fyrir tækið,“ segir Jafet S. Ólafsson,
einn eigenda Aðalskoðunar, að
spurður um ástæður þess að upp úr
viðræðunum slitnaði.
Langur aðdragandi
Samkeppniseftirlitinu barst sam
runatilkynning vegna kaupa Alfa
hf., móðurfélags Tékklands, á öllu
hlutafé Aðalskoðunar hf., þann 12.
maí síðastliðinn. Eigendur fyrir
tækjanna tveggja höfðu rúmum
þremur mánuðum áður komist að
samkomulagi um helstu skilmála
kaupsamningsins en hann var
undirritaður í lok apríl. Markmið
ið var að reka fyrirtækin tvö sem
systurfélög undir óstofnuðu dóttur
félagi Alfa.
Þann 18. júní var eigendum fyrir
tækjanna tilkynnt að Samkeppnis
eftirlitið teldi ástæðu til frekari
rannsókna á áhrifum samrunans
á samkeppni á bifreiðaskoðunar
markaðinum. Tæpum mánuði síð
ar sendi stofnunin þeim frumn
iðurstöðu sína en samkvæmt henni
hefðu kaupin raskað samkeppni
með alvarlegum hætti og leitt til
mikillar samþjöppunar á markaðn
um. Samkeppniseftirlitið taldi af
þeim sökum að stofnunin þyrfti að
grípa til íhlutunar vegna samrun
ans.
„Samkeppniseftirlitið var með
málið til umfjöllunar í einhverja tvo
til þrjá mánuði og við hættum við í
millitíðinni og viðræðum okkar Alfa
var slitið. Það er ekkert útilokað að
við seljum fyrirtækið og það er allt
til sölu fyrir rétt verð. En við eigum
ekki í neinum slíkum viðræðum
núna,“ segir Jafet.
Arðbær rekstur
Aðalskoðun rekur átta skoðunar
stöðvar á landinu en Tékkland
fjórar. Fyrirtækin eru, ásamt
Frumherja, sem rekur 32
stöðvar, þau einu sem
bjóða upp á ökutækjaskoðanir hér á
landi. Aðalskoðun, sem var stofnuð
árið 1994, var rekin með rekstr
arhagnaði upp á 55 millj
ónir króna árið 2014 og
72 milljónir árið áður.
Hagnaður fyrirtækis
ins eftir skatta nam
12 milljónum í fyrra
en 86 milljónum árið áður. Jafet ehf.
á helmingshlut í Aðalskoðun en fé
lagið er í eigu eiginkonu Jafets S.
Ólafssonar, þriggja barna þeirra, og
Gunnlaugs M. Sigmundssonar, fjár
festis og föður Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar forsætisráðherra.
Alfa er í eigu félaga bræðranna
Einars og Benedikts Sveinssona og
fjölskyldna þeirra. Benedikt er faðir
Bjarna Benediktssonar, fjármála
og efnahagsráðherra. Einar á með
al annars hlut í Alfa í gegnum P 126
ehf. en eins og DV greindi frá í mars
síðastliðnum þá er móðurfélag þess
skráð í Lúxemborg. Tékkland bif
reiðaskoðun er í eigu Bifreiða
skoðunar Íslands ehf. og Tékklands
ehf. en Alfa á allt hlutafé félaganna
tveggja. Alfa var rekið með 401 millj
ónar króna hagnaði í fyrra en það á
einnig meirihluta í ferðaþjónustu
fyrirtækinu Kynnisferðir ehf. n
n Kaupsamningur við Tékkland lá á borðinu n Hefði raskað samkeppni á markaði
Ætluðu að kaupa Aðalskoðun
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
„Það
er
allt til
sölu fyrir
rétt
verð
Hættu við Jafet S.
Ólafsson segir eigendur
Aðalskoðunar og
Tékklands hafa komist
að niðurstöðu um
að rifta kaup-
samningn-
um.
Hættu við kaupin Ef samruni Að-
alskoðunar og Tékklands hefði gengið
í gegn hefðu eigendur Alfa átt tólf
skoðunarstöðvar hér á landi.
VANTAR ÞIG BÍL?
Kynntu þér kosti langtímaleigu AVIS.
Langtímaleiga AVIS er þægilegur,
sveigjanlegur og umfram allt
skynsamlegur kostur þegar kemur
að rekstri bifreiða.
Hagkvæmur kostur og allt innifalið,
s.s. bifreiðagjöld, tryggingar, olíuskipti
og allt hefðbundið viðhald.
Vetrarleiga AVIS er góður kostur fyrir
þá sem eru í / vinna við skóla, vinna við
vetrartengt starf eða vilja einfaldlega
heilsusamlegri lífsstíl á sumrin.
Hafðu samband og kynntu þér málið.
Þjónustuver Avis 591 4000 - avis@avis.is Bílaleiga