Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Side 12
Helgarblað 13.–16. nóvember 201512 Fréttir
Þoturnar
Einkaþoturnar á Reykjavíkurflugvelli þögnuðu við hrunið en veruleg breyting hefur orðið þar á
t
öluverð fjölgun hefur orðið
á einkaþotum sem eiga
leið um Reykjavíkurflug
völl það sem af er ári frá
því sem var í fyrra. Áætl
að er að fjölgunin milli ára nemi
30–40 prósentum og er búist við
enn meiri fjölgun á næsta ári. Enn
er þó langt í land að fjöldinn nái
þeim gríðarlega fjölda slíkra lúxus
flugfara sem hingað lögðu leið
sína á árunum fyrir hrun en vís
bendingar eru um að verið sé að
þenja á ný þoturnar sem þögnuðu
við hrunið.
„Þetta er vaxandi og við búumst
við meiru á næsta ári, þegar Ís
lendingar verða byrjaðir að kaupa
aftur,“ segir Einar Hrafn Jónsson,
rekstrarstjóri BIRK Flight Services
sem sinnir þjónustu við einkaflug
vélar á Reykjavíkurflugvelli.
Töluverð fjölgun
Einar Hrafn segir að ekki séu til ná
kvæmar tölur um einkaþotur sér
staklega en miðað sé við vélar yfir
10 tonnum. „Og það hefur verið að
færast í aukana, sérstaklega frá 2013.
Það var mikil lægð yfir því frá 2008
til 2010 en síðan er þetta byrjað að
aukast á ný.“
Einar segir að þeir miði við að
einkaþotur séu um 30 prósent af vél
unum sem þangað komi yfir árið.
„Það sem af er ári hafa um 350 þotur
komið, miðað við einhverjar þús
undir á ári fyrir 2008. Við búumst við
að þetta endi kannski í 400 yfir árið
hér. Sem er kannski 30–40 prósenta
aukning frá því í fyrra þegar þær
voru um 200–250. Þannig að þetta
fer vaxandi,“ segir Einar sem seg
ir aðspurður að lágpunkturinn hafi
verið í kjölfar hrunsins 2008–2009
þegar fjöldinn hríðféll.
Einkaþotukapphlaup í góðærinu
Íslendingar hættu nær algjörlega
að ferðast um á einkaþotum eftir
hrun en á árunum fyrir hrun voru
íslensk fyrirtæki og auðmenn áber
andi í einkaþotubransanum þar
sem hefðbundið áætlanaflug þótti
viðskiptalega óhagstætt í hröðum
heimi viðskiptanna. Fyrir hrun
voru einkaþotur fararmáti fjár
málaheimsins og þegar íslenska
útrásin og góðærið stóð sem hæst
var vart þverfótað fyrir einkaþot
um sem ýmist voru í einkaeigu
eða í eigu fyrirtækja helstu leik
enda viðskiptalífsins. Hundruð
milljóna voru greiddar fyrir einka
þotuþjónustu og milljarðar reiddir
fram til að kaupa einkaþotur. Sem
dæmi má nefna að fjallað var um
að Bakkavararbræður, Ágúst og
Lýður Guðmundssynir, hefðu á sín
um tíma keypt flottustu einkaþotu
landsins af tegundinni Gulfstream
sem metin var á um fjóra milljarða.
Björgólfur Thor Björgólfsson og
Jón Ásgeir Jóhannesson voru aðrir
nafntogaðir athafnamenn sem áttu
einkaþotur. Þá var einnig fjallað um
það sumarið 2008 þegar fjárfestir
inn Róbert Wessman kvaðst vera
á hrakhólum með Hawkereinka
þotur fjárfestingafélags síns, Salt In
vestment, og fór fram á að reist yrði
tvö þúsund fermetra flugskýli fyrir
gripina.
Hávaðamengun
Svo mikill var ágangur einkaþot
anna orðinn á árunum fyrir hrun
að íbúar í nágrenni við Reykjavíkur
flugvöll sáu sig tilneydda til að kvarta
yfir síaukinni hávaðamengun undir
lok ársins 2007. Við lendingu gefa
einkaþoturnar frá sér meiri hávaða
en hefðbundnar farþegaflugvélar en
þotugnýrinn þagnaði svo um mun
aði við hrunið og líkt og Einar bend
ir á hurfu íslensku einkaþoturnar af
radarnum.
Auðugir ferðamenn og kröfuhafar
Þó að einkaþotubransinn hafi átt und
ir högg að sækja á heimsvísu frá fjár
málahremmingunum veturinn 2008
þá eru það erlendir auðmenn, auðugir
ferðamenn og fyrirtæki sem standa
undir umferðinni hér á landi nú.
Að sögn Einars varð algjör
sprenging í júlí síðastliðnum, á há
punkti ferðamannavertíðarinnar, um
5–15 einkaþotur voru hér á hverjum
degi. Þá er, samkvæmt heimild
um DV, óhætt að eigna kröfu höfum
föllnu bankanna og fulltrúum þeirra
hlutdeild í þeirri einkaþotuumferð
sem verið hefur hér undanfarin
misseri í tengslum við eftirfylgni,
utan umhald og uppgjör á slitabúum
gömlu bankanna. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
„Það sem af er ári hafa um
350 þotur komið
Láta á sér kræla á ný
Veruleg aukning hefur
orðið á umferð einkaþota
um Reykjavíkurflugvöll
undanfarin ár. Mynd úr SAfni
Ein sú þekktasta Björgólfur Thor Björgólfsson var einn af ríkustu mönnum heims samkvæmt Forbes fyrir hrun, og átti glæsilega lúxuseinkaþotu í samræmi við það.
Þandar á ný
týndi
hænunum
sínum
„Þær fóru þarna á eitthvert flakk,
líklega voru þær bara að leita sér
að mat,“ segir Dögg Hjaltalín, en
fjórar hænur á hennar vegum
flúðu af heimilinu á miðvikudag.
Það var blaðamaður DV sem
rak augun í hænurnar þar sem
þær gengu í beinni röð syðst yfir
Framnesveginn. Þær leituðu svo
skjóls hjá nærliggjandi fjölbýlis
húsi.
Eins og sést á myndunum
stilltu þær sér upp þegar mynd
irnar voru teknar af þeim, líklega
þar sem þær höfðu blaðamann
inn grunaðan um að luma á æti.
Lýst var eftir eigendunum á
Facebooksíðu þar sem Vestur
bæingar í Reykjavík eru og
beindust þá öll spjót í fyrstu að
Vesturbæingnum fræga, Gísla
Marteini Baldurssyni. Hann sór
þó hænurnar af sér, og kom síðar
í ljós að það var Dögg Hjaltalín,
útgefandi hjá Sölku forlagi sem
átti hænurnar.
„Þær hafa nú oft flúið,“ segir
Dögg sem útskýrir að hænurnar
eigi það til að leita út fyrir
girðinguna að æti. „Við gefum
þeim alltaf alla afganga á heimil
inu, það er því óhætt að segja að
hér sé engu sóað,“ útskýrir Dögg
og bætir við að þær hafi líklega
verið orðnar svangar á ný.
Hún segir hænurnar nokk
uð víðförlar. „Eitt sinn komst ein
hænan alla leið niður í Vestur
bæjarskóla,“ segir Dögg en þá
hafði hundur hrakið hana á
skólalóðina.
Verið alltaf velkomin í Kolaportið!
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 11-17.
Næg bílastæði við
Kolaportið
Það liggja allar leiðir til okkar – veldu þína!
Kolaportið
er umkringt af
bílastæðahúsum.
Vesturgata · Mjóstræti
Fjöldi stæða 106
Ráðhúsið · Tjarnargata 11
Fjöldi stæða 130
Traðarkot · Hverfisgata 20
Fjöldi stæða 270
Kolaportið · Kalkofnsvegur 1
Fjöldi stæða 270
K
V
IK
A