Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Page 16
16 Fréttir Erlent Helgarblað 13.–16. nóvember 2015
„Framleitt í Ísrael“ á
ekki við Vesturbakkann
n ESB boðar reglur um merkingar vöru frá Palestínu n Ísraelsmenn æfir
E
vrópusambandið ráðgerir að
banna fyrirtækjum á Vestur
bakkanum að segja vörur sín
ar framleiddar í Ísrael. Ríkis
stjórn Benjamins Netanyahu
mótmælir fyrirætlununum harðlega
og segir reglurnar til þess fallnar að
auðvelda neytendum að sniðganga
vörur frá Ísrael. Independent greinir
frá þessu en blaðamaður þess heim
sótti snyrtivöruframleiðandann
Ahava í Mitzpe Shalem, sem talið er
eitt helsta skotmark nýju reglnanna.
Á umbúðum framleiðandans
kemur fram að varan sé framleidd
í „Dauðahafinu, Ísrael“ [e. made
in Dead Sea, Israel] en verksmiðja
Ahava er staðsett á þeim stað við
hafið sem tilheyrir Palestínu en er
undir hernámi Ísraelsmanna.
Skýrar merkingar
Á næstu dögum hyggst Evrópusam
bandið setja viðmiðunarreglur sem
kveða á um að vörur sem framleidd
ar eru á hernumdum svæðum Ísrael
verði þannig merktar og þannig að
skildar frá þeim vörum sem raun
verulega eru framleiddar í Ísrael.
Ekki liggur fyrir hvernig orðalag
reglnanna verður nákvæmlega en
samkvæmt Independent verður skylt
að skýrt komi fram að varan sé frá
hernumdu svæði. Þetta er haft eftir
David Kriss, talsmanni Evrópusam
bandsins í Tel Aviv. Hann sagði að
yfir lýsingin væri væntanleg á mið
vikudag [í gær] en að henni gæti þó
verið frestað.
Ríkisstjórn Netanyahu forsætis
ráðherra, sem heldur áfram að her
taka ný svæði á Vesturbakkanum
þrátt fyrir mótmæli alþjóðasam
félagsins á brotum þeirra gegn
Palestínumönnum, er æf vegna yfir
vofandi lagasetningar. Hún heldur
því fram að þetta séu ósanngjarnar
reglur og að þær muni verða til þess
að vörur frá Ísrael verði sniðgengnar.
Skaðar útflutning Ísrael
„Við höfum áhyggjur af því að þegar
búið er að merkja vöru Judea og
Samaria [Biblíu
nöfnin fyrir Vestur
bakkann, innsk.
blm.] þá er búið að
skilgreina Ísrael,“
hefur Times of
Israel eftir utan
ríkisráðherranum
Tzipi Hotovely.
Hann segist sjá
þetta sem aðför að
Ísrael. Talsmaður
ráðuneytisins,
Emmanuel
Nachshon, tekur
í sama streng og
segir að þetta
muni skaða út
flutning þjóðarinnar. Ríkisstjórnin
muni spyrna harkalega niður fótum
og sé að skoða aðferðir til að koma
vanþóknun sinni á framfæri.
Evrópuþingið er fylgjandi þess
um reglum, enda voru greidd um
tillöguna atkvæði í september.
Netanyahu sagði þá að þetta minnti
á helförina, þar sem gyðingar voru
ofsóttir af nasistum. „Við höfum í
sögunni dæmi um hvað gerðist síð
ast þegar Evrópa lét sérmerkja vörur
sem framleiddar voru af gyðingum,“
sagði hann.
Réttar upplýsingar til neytenda
Evrópusambandið hefur hafnað
gagnrýninni og vísar því á bug að
reglurnar séu til þess fallnar að
hægt verði að sniðganga vörur frá
Ísrael. Þetta sé einungis til þess fall
ið að neytendur hafi réttar upplýs
ingar um uppruna vörunnar. „Ef
eitthvað er merkt þannig að það
komi frá Ísrael, en er í raun frá
hernumdu svæði, þá erum við að
afvegaleiða neytendur,“ segir Kriss.
Hann segir að merkingarnar endur
spegli þá skoðun Evrópusambands
ins að hernám Ísrael í Palestínu sé
ólöglegt og að svæðið geti ekki talist
til Ísrael.
Martin Konecny, fram
kvæmdastjóri European Middle
East Project, segir að Ísraelsmenn
séu ekki vanir því að hernáminu
fylgi afleiðingar á alþjóðavettvangi,
þess vegna séu þeir í áfalli. Við
miðunarreglurnar staðfesti að við
brögðin séu jafnt í orði sem á borði.
Samfélagsrýnirinn Bassem Eid hef
ur bent á að palestínskir verkamenn
verði þeir fyrstu sem muni finna
fyrir afleiðingum regla um merk
ingar. Margir muni missa vinnuna.
Á Vesturbakkanum eru framleiddar
vörur sem standa undir tveimur
prósentum af útflutningstekjum
Ísrael til Evrópusambandsins. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
„Við höfum í
sögunni dæmi um
hvað gerðist síðast þegar
Evrópa lét sérmerkja vör-
ur sem framleiddar voru
af gyðingum.
Sniðganga BDS er fjölþjóðleg mótmælahreyf-
ing sem hefur hvatt verslunarkeðjur og neytend-
ur til að sniðganga vörur frá Ísrael. Mynd EPA
Þjóðhöfðingjar Benjamin Netanyahu er ósáttur við ESB. Hér er hann á fundi með Merkel. Mynd EPA
H
æstirétt ur SuðurKór eu hefur
dæmt skipstjóra ferj unn ar
Sewol, sem fórst þann 16. apr
íl í fyrra, í lífstíðarfangelsi. Alls
létust 304 þegar ferjan sökk. Skip
stjórinn, Lee JunSeok, var sagður
hafa bjargað sjálfum sér og hirti ekki
um að koma farþegunum til bjargar.
Alls voru 476 um borð í skipinu; far
þegar og áhöfn. 250 börn, nemendur
í skólaferðalagi, fórust í slysinu.
Lee JunSeok hafði verið sýkn
aður í undirrétti í nóvember í fyrra.
Hann var þess í stað dæmdur fyrir
vítavert gáleysi og vanrækslu í starfi.
Hann var dæmdur í 36 ára fangelsi.
Hæstiréttur taldi að skipstjórinn
hefði gerst sekur um morð og dæmdi
hann því í lífstíðarfangelsi. Sak
sóknarar höfðu farið fram á að hann
yrði tekinn af lífi, enda hefði hann
ekki gert annað en að reyna að koma
sjálfum sér frá borði, vitandi að far
þegarnir myndu ekki komast lífs af.
Hann beri alla ábyrgð á því hvernig
fór þennan örlagaríka dag. n
Bjargaði sjálfum sér og 304 létust
Dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi
Skelfilegt slys
Skipstjórinn fékk
lífstíðarfangelsi
Mynd REutERS Göldrótt súpa og
gómsætur humar
Eyrarbraut 3, Stokkseyri · Sími: 483 1550
info@fjorubordid.is · www.fjorubordid.is