Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Side 27
Helgarblað 13.–16. nóvember 2015 Kynningarblað - Gæðakaffi 3
Konsúll Kaffi: Sumir
gestirnir fara úr skónum
Og aðrir fá sér blund
K
onsúll Kaffi er
nýtt kaffihús
í einu af elstu
húsum borg-
arinnar, virðu-
legu gulu húsi í Aðal-
stræti 7. Kaffihúsið var
opnað í júní síðastliðn-
um og hefur fengið frá-
bærar viðtökur. Jón
Vídalín konsúll byggði
húsið ásamt frænda
sínum árið 1881. Hús-
gögn og húsmunir eru í
fullu samræmi við aldur
hússins. „Fólki líður hér
eins og það sé komið inn
í stofuna til ömmu og við
viljum halda þeirri til-
finningu. Það kom líka
aldrei til greina að svíkja
anda þessa gamla húss,“
segir Kolbrún Bergmann,
rekstrarstjóri Konsúls
Kaffi.
En hvernig fór hún
að því að finna öll þessi
gömlu húsgögn og hús- muni?
„Ég eyddi síðustu páskum í þetta.
Sumt höfum við keypt á mörkuðum,
svo átti ég töluvert af þessu sjálf og
margt af þessu er erfðagripir sem fá
að njóta sín hérna núna.“
Fortíðarblærinn á Konsúlnum
fellur gestum afar vel í geð að sögn
Kolbrúnar.
„Hingað kemur mikið sama fólk-
ið, sumir eiga sitt sæti, sinn stól.
Tónlistin er ljúf og ekkert áreiti af
henni. Stundum sé ég kúnnana fara
úr skónum, það eru helst túristarnir
sem eru búnir að ganga mikið og fá
að liðka tærnar dálitla stund í þessu
þægilega umhverfi. Hér hafa mynd-
ast vinasambönd enda fær fólk sér
hiklaust sæti við hliðina á næsta
manni. Þá erum við ekkert að velta
því fyrir okkur hvað gestirnir halda
lengi til hérna, þeir mega vera eins
lengi og þeir vilja og sumir fá sér
jafnvel blund.
Sérblandað kaffi
„Við fáum Kaffi frá Johnson og
Kaaber og erum með sérstaka
blöndu sem þeir búa til fyrir okkur
og fæst ekki annars staðar, þetta er
einstakt kaffibragð sem ekki er hægt
að finna annars staðar en á Kon-
súlnum, mjög gott kaffi sem fólk
hefur hrósað okkur mikið fyrir. Þess
vegna fórum við í samstarf við Kaffi-
brennsluna á Akureyri um að hefja
sölu á þessu kaffi hér á staðnum.
Fólk getur því keypt pakka af Kon-
súlskaffinu hérna, bæði baunir og
malað. Þetta er í
fallegum umbúð-
um merktum Kon-
súlnum,“ segir Kol-
brún um kaffið á
staðnum sem hefur
mælst afar vel fyrir.
Veitingarnar
eru líka um margt
heimilislegar:
„Við erum með
gott úrval af kök-
um. Ég hef líka
haldið í að vera
með dálítið ís-
lenskt, til dæmis
kleinur, hjóna-
bandssælu og jóla-
köku. Síðan erum
við með góða
gulrótarköku,
heimabakaða
eplaköku, holl-
ustuhafraklatta
og súkkulaði-
bitakökur. Síðan
erum við með nýbakað croissant á
hverjum morgni sem er mjög vin-
sælt með kaffinu hjá gestum. Auk
þess bjóðum við upp á ristað brauð,
beyglur og fleira brauðmeti.“
Gleðistund er alla daga milli 16
og 20, en þá er bjór og léttvín á 600
krónur. Kolbrún segir að gleðistund-
in sé afar vinsæl hjá gestum. Fjöl-
breytt úrval af bjór er í boði auk létt-
vína, til dæmis lífrænna léttvína. n
„Fólki líður hér eins
og það sé komið
inn í stofuna til ömmu.
Konsúll
Kaffi Eins
og að koma
inn í stofuna
til ömmu.
Konsúll Kaffi
Kaffi staðarins
er hægt að
kaupa í pökkum.