Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Síða 28
Helgarblað 13.–16. nóvember 20154 Gæðakaffi - Kynningarblað
Gæði, fjölbreytni og
litskrúðugt mannlíf
Cafe París hefur lengi verði eitt vinsælasta kaffihús landsins
V
ið erum með bestu baun-
irnar frá Illy og við leggjum
mikið upp úr því að kaffi-
barþjónarnir okkar séu vel
lærðir í því sem þeir eru að
gera. Við látum aldrei frá okkur kaffi-
drykk án þess að hann gleðji auga
viðskiptavinarins því hið sjónræna er
hluti af upplifuninni.“
Þetta segir Guðný Atladóttir,
framkvæmdastjóri Cafe Parísar sem
um langt árabil hefur verið eitt vin-
sælasta kaffihús landsins.
„Við hugsum mikið um þéttleik-
ann og hitann í froðunni, þannig að
þetta eru mikil vísindi. Klárlega telj-
um við okkur vera með þeim bestu í
bænum hvað kaffi snertir. Við leggj-
um mikið upp úr gæðum og viljum að
fólk hugsi til okkar þegar það langar í
góðan kaffibolla,“ segir Guðný.
Fjölbreytt mannlíf á Cafe París
„Túristar og Cafe París hafa alltaf átt
samleið en fyrir ferðamannasprengj-
una miklu fyrir nokkrum árum voru
erlendir ferðamenn um að það bil
þriðjungur gesta. Núna hefur þetta
hlutfall ferðamanna ívið hækkað,“
segir Guðný. Hún bætir við að sem
fyrr setji hópar fastagesta og annarra
Íslendinga sinn svip á stemninguna á
staðnum:
„Við erum svo þakklát fyrir þá
virðingu sem okkur er sýnd með
þeim fjölbreytta gestahóp sem við
höfum. Til dæmis Vitringahópinn
á morgnana, sem hefur mætt í yfir
20 ár. Síðan má nefna vinkvenna-
hópana, mömmuhittinga, stráka-
hópa á öllum aldri, blaðamenn sem
oft eru að taka viðtöl á staðnum, lög-
fræðinga úr héraðsdómi, alþingis-
menn, skólafólk og kennara. Um
helgar fáum við oft ömmur og afa
með barnabörnin og fjölskyldur í
helgarfríunum. Fjölbreytileikinn ger-
ir vinnu okkar svo skemmtilega.
Ekki má gleyma að Í desember
koma síðan stórir hópar grunnskóla-
og leikskólakrakka í kaffi og kökur og
við leggjum mikið upp úr því að taka
vel á móti þeim og þau koma svolítið
með jólin til okkar.“
Það er því óhætt að segja að
stemningin á Cafe París sé afskap-
lega litskrúðug því fyrir utan þessa
fjölbreyttu hópa landsmanna fylla
staðinn erlendir ferðamenn frá öllum
heimshornum.
„Á sumrin er það síðan þannig
að ef það sést til sólar verða íslenskir
gestir aftur í meirihluta og þeir fylla
plássin við útiborðin,“ segir Guðný.
Afar fjölbreytt matreiðsla
„Matsala er mikill hluti af starfsemi
okkar. Núna er nýr matseðill að
koma og við viljum vera framsæk-
in og með nýjungar um leið og við
höldum í hefðir sem gestir staðar-
ins þekkja. Franska súkkulaðikakan
er alltaf jafn vinsæl, sama kakan í 23
ár. En belgíska vafflan er að koma aft-
ur. Hún var afar vinsæl í fyrravetur og
lengi hefur verið beðið eftir henni.
Stór og mikil belgísk vaffla, þær
stærstu í bænum,“*
segir Guðný og segir Cafe París
vera kamelljón í matargerð, því hún
taki á sig hinar ýmsu myndir.
„Á morgnana erum við með
ommelettur í heitum pönnum og
gestir geta valið hvað þeir setja í
þær. Þessi morgunmatur hefur sleg-
ið í gegn og síðan er brönsinn okkar
mjög vinsæll, stór og mikill matar-
diskur.“
Jafnframt er daglega í boði fisk-
ur dagsins, kjöt dagsins og súpa
dagsins. Þessir réttir eru síbreytileg-
ir og við gerð þeirra fær sköpunar-
gleði matreiðslumanna staðarins að
njóta sín. n
Framúrskarandi kaffi, kakóið frá
ömmu og fleira einstakt ljúfmeti
C
afé Mezzo er frábærlega
staðsett á annarri hæð í
Iðuhúsinu við Lækjargötu.
Út um flennistóra glugga
er frábært útsýni yfir Bern-
höftstorfuna og Þingholtin. Mezzo
er þekkt fyrir framúrskarandi kaffi,
te og kakó, að ógleymdum hinum
einstöku vöfflustöngum.
„Kaffið okkar heitir Moak og
kemur frá Sikiley, við flytjum það
sjálf inn beint þaðan. Þetta er
mikið gæðakaffi sem fólk er mjög
ánægt með, við höfðum mik-
ið fyrir því að velja okkur besta
kaffi,“ segir Guðný Ósk Diðriks-
dóttir á Café Mezzo. Hún segir
að Chai-latte drykkirnir hafi líka
slegið í gegn: „Við fáum marga
gesti sem koma sérstaklega fyrir
þá. Chai-latte Spiced er algengast
og flestir þekkja það, en við mæl-
um líka með Chai-latte Green Tea,
það er alveg geggjað, það er eins
og að drekka flauel. Kakóið okk-
ar er líka afskaplega vinsælt. Við
erum með uppskrift frá ömmu
minni sem snarvirkar. Við notum
100% kakó í það og síðan sitt lítið
af hverju eins og hún amma mín
gerði. Við erum með framúrskar-
andi te frá Jeeves & Jericho, mikið
af lífrænu hreinu tei, hvítt, grænt,
svart, heilsute, detox-te og berjate.
Um það bil 20 tegundir af tei. Það
er vinsælt að þefa upp úr dunkun-
um því ilmurinn er himneskur.“
Vöfflu stangir Café Mezzo er lík-
lega eini staðurinn á landinu sem
býður upp á vöfflustangir: „Við
keyptum þessa vél frá Ítalíu og
hún bakar vöfflurnar í stangir. Þær
eru bornar fram með heimagerð-
um sósum, súkkulaði- eða kara-
mellusósu; sultu eða ís. Vöfflu-
stangirnar þykja hreint ótrúlega
góðar og það er vinsælt að fá sér
ískúlu með þeim.“ Allur matur,
súpur, dressingar, salöt og panini
á Café Mezzo er unnið frá grunni
á staðnum. Gestasamsetningin
á Café Mezzo er fjölbreytt. Stað-
urinn er ekki síst vinsæll meðal
skólafólks, rithöfunda og annarra
sem vinna með fartölvur vegna
þess að innstungur eru úti um allt
á staðnum og öflugt þráðlaust net
í salnum opið gestum staðarins. n
Café Mezzo, Lækjargötu