Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Qupperneq 33
Helgarblað 13.–16. nóvember 2015 Fólk Viðtal 25
stúlka sem þótti líkjast mér í út
liti og var nokkuð partíglöð sagðist
stundum vera ég, þar sem hún var
að skemmta sér á góðri stundu og
þar er kannski hluti af skýringunni
kominn,“ segir hún en bætir við
að henni hafi smám saman tekist
að brynja sig gegn kjaftagangin
um. „Það þarf ansi sterk bein til að
þola svona lagað en ég hafði alltaf
Gauk. Við stóðum saman í gegnum
þetta allt, þykkt og þunnt. Þetta var
óþægilegt en gerði ekki út af við
mig.“
Tengdasonurinn Cal
Worthington
Anna Mjöll, sem hefur getið sér
gott orð sem djasssöngkona í Los
Angeles, hefur einnig fengið sinn
skammt af Gróu á Leiti og sér í lagi
eftir skilnað hennar við auðjöfur
inn og bílasalann Cal Worthington.
Svanhildur viðurkennir að það
hafi reynst henni erfitt að fylgjast
með heimspressunni fjalla um
dótturina. „En Anna Mjöll er ansi
sterk og lætur svona lagað ekki hafa
áhrif á sig. Enda gerði hún ekkert
rangt. Cal hafði gengið með grasið
í skónum á eftir henni í mörg ár, al
veg þar til hún lét til leiðast. Fjöl
miðlafárið sem fór af stað var ekki
skemmtilegt en við því var ekkert
að gera. Annars líkaði okkur Gauki
alltaf mjög vel við Cal. Hann var
yngri í anda en margur tvítugur
maðurinn, hress, skemmtilegur og
eldklár. Það var ótrúlegt ævintýri að
fá að kynnast honum,“ segir Svan
hildur en Cal lést árið 2013, 92 ára
að aldri.
Saknar hans ennþá
Svanhildur og Ólafur Gaukur
fengu að vera lengi saman en þau
höfðu verið gift í 48 ár þegar hann
lést. „Ég hafði farið í bíó með öðr
um strákum áður en ég kynntist
honum en hann var fyrsti alvöru
kærastinn minn. Ég hef aldrei verið
mjög mannblendin og var ekkert
í því að skipta um vini. Ég var líka
svo ung þegar við fórum að vera
saman. Við Gaukur vorum ekki að
eins hjón heldur einnig miklir vinir.
Ég sakna hans ennþá. Þetta er nátt
úrlega bara svindl – að fólk þurfi að
hverfa svona allt í einu. En svona er
víst lífið, því er nú verr og miður.“
Afneituðu alvarleikanum
Hún segir fjölskylduna hafa neitað
að viðurkenna alvarleika málsins
þegar læknirinn tilkynnti þeim að
Ólafur Gaukur væri með krabba
mein í lungum. „Við fórum í algjöra
afneitun enda fann hann ekki fyrir
neinu. Þetta hlaut að vera bull og
vitleysa. Gaukur hélt alltaf í vonina
og þótt við hin vissum meira trúði
hann því sjálfur fram á síðasta dag
að hann myndi jafna sig. Ég held
allavega að hann hafi aldrei gert
sér almennilega grein fyrir alvar
leikanum. En þegar á leið fór heilsu
hans að hraka. Þessi sjúkdómur er
svo skrítinn, hvernig hann getur
stungið sér niður. Gaukur hafði
alltaf verið svo heilsuhraustur,“
segir Svanhildur en Ólafur Gaukur
lést á hvítasunnudag árið 2011 þá
áttræður að aldri.
Hellti sér í vinnu
Þrátt fyrir missinn var Svanhildur
strax staðráðin í að halda áfram
með lífið. „Fólk syrgir á misjafnan
hátt. Sumir leggjast í rúmið en ekki
ég. Ég stoppaði ekki, heldur hellti
mér í vinnu og skrapp til Ameríku.
Mér fannst gott að hugsa um eitt
hvað annað. Gaukur stóð alltaf
með mér og hvatti mig áfram. Hann
hefði svo sannarlega sagt mér að
halda áfram og ég er ekki frá því að
hann sitji hér hjá mér núna og kinki
kolli.“
Fjölskyldan í Ameríku
Svanhildur og Ólafur Gaukur
eignuðust tvö börn, Önnu Mjöll
og Andra Gauk sem starfar sem
skurðlæknir og býr líkt og systir
sín í Bandaríkjunum. „Svo á ég
tvö barnabörn sem hafa alist upp
í Bandaríkjunum og því meiri
Ameríkanar en Íslendingar þótt
þau skilji alveg íslenskuna. Ég
hef alltaf saknað þess að hafa þau
ekki nær mér en ég hef ávallt ver
ið dugleg að skreppa til Bandaríkj
anna. Mér finnst ekki leiðinlegt að
bregða undir mig betri fætinum.
Við Gaukur ferðuðumst alltaf mikið
saman, bæði við tvö og svo með
börnin þegar þau voru yngri. Við
vorum mikið saman fjölskyldan.
Við unnum um helgar en eyddum
virkum dögum með börnunum.
Mamma hjálpaði okkur líka mikið.“
Missti föður sinn
Móðir Svanhildar, Anna Sigurðar
dóttir Njarðvík, var leikfimis
kennari en faðir hennar, Jakob
Einarsson, tónlistarmaður sem
spilaði á saxófón og gítar. „Pabbi
var líka til sjós og starfaði sem
þjónn á Goðafossi þegar hann fórst.
Eftir það var hann ekki lengur inni
í myndinni. Ég var aðeins fjögurra
ára þegar hann lést. Mamma var
mikil kjarnakona og eftir að ósköp
in dundu yfir keypti hún hótel í
Borgarnesi og rak í nokkur ár. Ég
var svo ung að ég gerði mér ekki
grein fyrir því sem hafði gerst og
svo giftist mamma aftur ákaflega
góðum manni, Jóhanni Fr. Jóns
syni frá Torfalæk, sem gekk okkur í
föðurstað. Þetta tók meira á bróð
ur minn sem er fjórum árum eldri.
Hann fékk skellinn, líkt og mamma.
Mamma var ótrúleg. Hún talaði
aldrei um þetta heldur geymdi með
sjálfri sér líkt og margir af hennar
kynslóð gerðu.“
Líður vel einni
Svanhildi hefur tekist að viðhalda
jákvæðninni þrátt fyrir áföll. „Ég
hef yfir engu að kvarta. Ég hef svo
sem fengið flest upp í hendurnar.
Ég er þakklát fyrir að hafa fengið
að kynnast Gauki og að hafa feng
ið með honum öll þessi ár. Ég er
líka þakklát fyrir börnin mín. Ég er
sennilega ótrúlega heppin mann
eskja, þegar allt kemur til alls,“ segir
hún og neitar því aðspurð að finna
fyrir einmanaleika þótt fjölskyldan
búi vestanhafs. „Ég er aldrei ein
mana enda hef ég í nógu að snúast.
Ég fer í leikhús, í bíó, slæ garðinn á
sumrin, horfi á sjónvarp, kíki í bæk
ur, skrepp stundum í heimsóknir til
barna minna í Ameríku og er með
þáttinn minn í útvarpinu. Svo má
ekki gleyma hundinum mínum,
honum Prinsi. Hann er stórt áhuga
mál hjá mér. Maður hefur alltaf
eitthvað til að dunda sér við. Svo
erum við Anna Mjöll að fara halda
tónleika og það tekur svo sannar
lega tíma í undirbúningi. Annars
leiðist mér aldrei einni og þarf alls
ekki að hafa félagsskap endalaust.
Það er alltaf gaman og nauðsynlegt
að hitta vini en mér líður ágætlega
einni með hundinum mínum.“
Stolt af börnunum
Aðspurð segist hún aldrei hafa ýtt á
Önnu Mjöll að leggja tónlistina fyr
ir sig. „Við vissum alltaf að hún væri
mjög hæfileikarík en hún sá sjálf
um að koma sér áfram. Anna Mjöll
er hins vegar það vel gefin að hún
„Ég er eins manns kona“
Saknar hans á hverjum degi
Svanhildur Jakobsdóttir og Ólafur
Gaukur Þórhallsson fengu hálfa
öld saman. Mynd SigTryggur Ari
Ferðuðust mikið Ólafur
Gaukur, Svanhildur og Anna
Mjöll á ferðalagi.
Mæðgur Anna Mjöll og Svanhildur
ætla að halda jólatónleika í Salnum í
byrjun desember.
Með börnin lítil
Hjónin unnu um
helgar en nutu lífs-
ins með börnunum á
virkum dögum.
góðar vinkonur
Svanhildi þykir
vænt um vinskap-
inn við Önnu Mjöll.
umtalið særði Alls kyns sögur fóru af
stað um samband þeirra Ólafs Gauks.
Flestar voru þær ósannar og tók Svan-
hildur þær inn á sig.
Framhald á næstu síðu
Fjölskyldan Andri
Gaukur, Ólafur
Gaukur, Svanhildur
og Anna Mjöll.