Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Qupperneq 34
Helgarblað 13.–16. nóvember 201526 Fólk Viðtal
getur lært hvað sem er. Kannski
á hún eftir að gera það, hver veit,“
segir Svanhildur og játar því að
þær mæðgur hafi ávallt verið góðar
vinkonur. Það er ekki hægt að eiga
betri vini en börnin sín. Ég er afar
stolt af báðum börnum mínum.
Þau hafa aldrei farið í neitt rugl eða
vitleysu og hafa náð langt hvort á
sínu sviðinu.“
Keppti í Miss Universe
Alveg frá því að Svanhildur steig
fyrst á svið hefur hún verið á
meðal glæsilegustu kvenna lands-
ins og er enn. Það þarf því engan
að undra að hún hafi verið valin til
að keppa fyrir Íslands hönd í Miss
Universe ár sínum tíma en keppn-
in var haldin í Flórída í Bandaríkj-
unum. „Ég var fengin til að keppa
hér heima í Ungfrú Ísland á þeim
forsendum að ég fengi annað sætið.
Það var sem sagt einhver klíku-
skapur í gangi. Mér leist vel á enda
fólst í öðru sætinu ferð til útlanda.
Sjokkið var því mikið þegar ég lenti
í fimmta sæti en svo fór á endanum
að ég fór í stað þeirrar sem hafði
endaði í öðru sæti. Keppnin úti
var mikil lífsreynsla og þótt ég hafi
ekki komist í úrslit hafði ég gam-
an af. Helst hefði ég viljað landa
fyrirsætu samningi en ég var of lág-
vaxin, kannski sem betur fer því þá
hefði ég aldrei kynnst Gauki. Þetta
fór örugglega bara eins og þetta átti
að fara.“
Öllum þessum árum síðar hefur
Svanhildur ennþá jákvætt viðhorf
gagnvart fegurðarsamkeppnum.
„Ef stelpur vija fá að spóka sig um
og fá sínar 15 mínútur af frægð
finnst mér að þær megi gera það
í friði. Mér fannst skemmtilegt að
taka þátt í þessu. En einu sinni var
nóg fyrir mig.“
Heilsan mikilvægust
Aðspurð um leyndarmálið að
æskubrunninum nefnir hún já-
kvæðnina. „Ég er ekkert að hugsa
um það hvað tímanum líður og
neita að setja mig í einhver ellispor.
Ég er bara eins og ég er og ef ein-
hverjum finnst ég ungleg þá þakka
ég fyrir það. Ætli útvarpið hafi ekki
bara yngjandi áhrif og svo auðvit-
að djúsinn minn sem ég drekk á
hverjum morgni. Ég var alltaf í leik-
fimi hér áður fyrr en í dag hreyfi ég
mig ekki markvisst þótt ég sé vissu-
lega alltaf á miklu spani. Fólk á
ekki að þurfa að taka upp ákveðið
útlit eftir vissan aldur. Maður á
bara þetta eina líf og það er engin
ástæða til að setja sig á einhvern
ellibás. Ég held bara áfram og það
er það eina sem virkar. Auðvitað er
heilsan mikilvægust og ég veit ekki
betur en að ég sé stálslegin.“
Örugg á senu
Þrátt fyrir fjölbreyttan og við-
burðaríkan feril sem ein af þekkt-
ustu dægurlagasöngkonum lands-
ins segist Svanhildur hlédræg. „Ég
hef aldrei verið framhleypin þótt
undarlegt megi virðast. Uppi á
senu er maður í öðrum heimi og í
öruggu skjóli. Það er allt öðruvísi
en að vera innan um fólk. Ég get
raulað lag uppi á senu en finnst
erfitt að koma fram og halda ræðu.
Eflaust gæti ég það ef ég þyrfti en
ég hef ekki leitast eftir því,“ segir
hún og bætir við að það sé aldrei
að vita nema jólatónleikarnir séu
upphafið að fleiri tónleikum. „Ég
var á Rósenberg tvisvar á árinu svo
það er aldrei að vita hvað verður.
Maður á aldrei að segja aldrei.
Mér fannst ég aldrei geta neitt
án Gauks enda var ég alltaf með
honum og undir hans verndar-
væng. Hann studdi mig alltaf með
ráð og dáð. En svo fann ég á Rósen-
berg að ég get þetta kannski líka
án hans! Það var stór uppgötvun.
Anna Mjöll kemur til landsins um
mánaðamótin og þá hefjast æf-
ingar. Við erum þegar farnar að æfa
okkur hvor í sínu lagi. Þetta verð-
ur örugglega skemmtilegt enda svo
fínir tónlistarmenn með okkur. Þeir
gætu ekki verið betri.“
Jólin erfiðari
Hún segir jólahátíðina vissu-
lega með breyttu fyrirkomulagi
nú þegar Ólafur Gaukur er fallinn
frá. „Ég sakna hans á hverjum degi
en auðvitað eru jólin erfiðari. Ég
hef dvalið með börnunum mín-
um um jólin og það er fínt. Ég hef
alltaf verið jólabarn og haft voða-
lega gaman í kringum jólin. Þessi
hátíð var í uppáhaldi hjá okkur
báðum. Ég veit ekki hvort ég fer út
þessi jólin eða hvort ég verð bara
hér með jólasveininum og Prinsi
mínum. Ég á eftir að taka þá stóru
ákvörðun.
Ég hef upplifað jólin bæði í
Los Angeles og í New Hampshire
þar sem Andri Gaukur bjó áður
en í dag býr hann með fjölskyldu
sinni í hitanum í Arizona og unir
hag sínum vel. Mér fannst voða-
lega þægilegt að vera úti yfir jólin.
Stemmingin er allt önnur en hér
heima, róleg en góð. Stemmingin
hér heima hefur vissulega líka sinn
sjarma en þetta er tvennt ólíkt. Í
fyrra keyrðum við Anna Mjöll nið-
ur á strönd í Los Angeles á að-
fangadag. Það var ekki það heitt
að það væri hægt að fara í sjóinn
en við gengum um ströndina og
nutum sólarinnar. Ég er ekki mikið
fyrir snjó og gæti þess vegna verið
án hans þótt ég viðurkenni að það
er afskaplega fallegt að fá smá
drífu yfir hátíðarnar. Það er nátt-
úrulega alvöru jólastemming.“
Finnur fyrir honum
En hefur hún ekki hugsað sér að
flytja bara út til að vera nær fjöl-
skyldunni eða heldur einhver í
hana hér? „Það er þá helst hund-
urinn minn sem heldur í mig hér
heima. Enginn annar og ég er
ekki viss um að það verði nokkurn
tímann einhver annar. Ég held að
ég sé eins manns kona. Allavega
eins og staðan er í dag. Við Gaukur
vorum svo lengi saman og höfðum
engan áhuga á að breyta því.
Okkur Prinsi líður líka voðalega vel
saman,“ segir Svanhildur brosandi
og játar því að finna stundum fyrir
nálægð Ólafs Gauks. „Mér finnst
hann stundum sitja í stólnum
sínum í stofunni. Ég hugsa að hann
sé þar að horfa á sjónvarpið. Það
gæti vel verið.“ n
„Cal hafði geng-
ið með grasið í
skónum á eftir henni
í mörg ár, alveg þar til
hún lét til leiðast
Glæsileg kona
Svanhildur hefur
verið ein dáðasta
dægurlagasöngkona
landsins auk þess að
starfa við dagskrárgerð
í útvarpi. Mynd SiGtryGGUr Ari „Ég er bara eins og
ég er og ef ein-
hverjum finnst ég ungleg
þá þakka ég fyrir það.
og
Smáratorgi · Korputorgi
HUNDAFÓÐUR
FÆST HJÁ OKKUR