Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Síða 36
Helgarblað 13.–16. nóvember 201528 Fólk Viðtal
„Það héldu allir að ég myndi vinna“
n Þjóðverjar elska Ásu n Fyrst Íslendinga til að taka þátt í raunveruleikaþáttunum Big Brother n Heillaði áhorfendur en datt út n Hötuð af öðrum þátttakendum
Ása Ástardóttir tekur sjálfa sig ekki of há-
tíðlega og leggur mikið upp úr því að hafa gaman af
lífinu. Hún datt nýlega út úr raunveruleikaþáttunum
Big Brother í Þýskalandi, eftir að hafa slegið í gegn
og heillað áhorfendur upp úr skónum. Hana hefur
lengi dreymt um frama í sjónvarpi og hefur haldið úti
Youtube-rás um tíma þar sem hún setur reglulega
inn grínefni og tónlist. Ása vonast til að þátttakan í
Big Brother verði stökkpallur fyrir fleiri skemmtileg
verkefni og áskoranir í sjónvarpi. Blaðamaður sló á
þráðinn til Kölnar, vakti Ásu upp af værum blundi og
ræddi við hana um ævintýrið í Big Brother.
J
á, góðan daginn,“ segir glað-
leg rödd á hinum enda
línunnar. Eigandinn er
Ása Ástardóttir, fyrsti Ís-
lendingurinn til að taka
þátt í raunverleikaþáttunum Big
Brother, sem í íslenskri þýðingu
myndi útleggjast sem Stóri bróðir.
Ása datt reyndar nýlega út úr þátt-
unum í Þýskalandi, en hún lætur
það ekki á sig fá. Auðvitað hefði
hún viljað vinna, enda keppt um
peningaverðlaun upp á 100.000
evrur, eða rúmlega 14 milljónir
króna, en upplifunin ein og sér var
engu að síður ógleymanleg.
„Ég var bara að vakna,“ segir
Ása jafn glaðleg þegar blaðamaður
hefur kynnt sig og borið upp er-
indið. Það er ekki að heyra að hún
hafi farið seint að sofa í gær, eft-
ir gleðskap, eins og raunin er. En
blaðamaður gefur henni engu að
síður nokkrar mínútur til að ná
áttum og við ákveðum að heyr-
ast aftur eftir korter. „Jæja, nú er
ég vöknuð og búin að að fá mér
lýsi,“ segir Ása enn glaðlegri og
hressari korteri síðar. Hún er tilbú-
in í daginn. Þrátt fyrir að hafa búið
í tíu ár í Köln heldur hún fast í þá
íslensku hefð að skola morgun-
matnum niður með lýsi og sér
enga ástæðu til að breyta því.
Í efsta sæti í fimm vikur
Það eru reyndar bara nokkrir
dagar síðan hún fór að lifa aftur
sínu eðlilega lífi eftir sex vikna
dvöl í Big Brother-húsinu. En í
þáttunum er hópi ólíkra einstak-
linga komið fyrir húsi þar sem þeir
fá ekki að hafa nein samskipti við
umheiminn. Þau eiga bara í sam-
skiptum sín á milli og svo auðvit-
að við Big Brother sem vaktar þau
allan sólarhringinn með mynda-
vélum. Þátttakendur þurfa að
leysa ýmsar þrautir og oftar en
ekki slettist upp á vinskapinn í
hópnum. Sá sem heldur út allan
tímann, án þess að vera rekinn úr
húsinu, stendur uppi sem sigur-
vegari. En markmiðið er að heilla
áhorfendur, fá þá á sitt band og
sækja atkvæði þeirra í símakosn-
ingu. Þrátt fyrir að hafa dottið út
á þessum tímapunkti er óhætt að
segja að Ásu hafi tekist að heilla
áhorfendur með líflegri og heiðar-
legri framkomu. Og hún gengur
sátt frá borði.
„Þetta var besta ævintýri sem
ég hef lent í. Ég er ekki alveg búin
að ná mér. Ég var sett í efsta sæti
í fimm vikur og ég veit því ekki
alveg hvað gerðist. Það virðist
enginn vita það,“ segir Ása og það
má greina örlítinn leiða í röddinni.
„Það héldu allir að ég myndi vinna
þetta. Viðbrögðin hafa líka verið
þannig, það fengu einhverjir áfall
eftir að ég datt út. En þetta ger-
ist víst stundum þegar talið er að
einhver sé öruggur. Þá hringir fólk
síður inn.“
Hræðilegt að missa
snyrtidótið
Aðspurð segist hún ekki hafa not-
að sérstaka taktík til að heilla
áhorfendur. Hún hafi ekki farið inn
í húsið með hugmyndir um slíkt.
„Ég var bara ég. Það var mjög erfitt
að vera í húsinu. Í fyrstu fengum
við til dæmis mjög lítinn svefn. Við
fengum að fara að sofa um þrjú,
fjögur á nóttunni og vorum vakin
klukkan átta á morgnana. Við
fengum lítið að borða og stund-
um bara ekki neitt. Við vorum
til að mynda sett í megrun í eina
viku, þá fengum við bara kálsúpu
að borða. Eina vikuna fékk ég bara
hrátt grænmeti. Ég mátti ekki einu
sinni steikja það. Í síðustu vikunni
sem ég var inni fengum við svo
bara kartöflur. Snyrtidótið var líka
tekið af okkur í fimmtán daga og
það var hræðilegt fyrir manneskju
eins og mig,“ segir Ása. Hún lifði
það þó af. „Þá fengum við aldrei
frið fyrir Big Brother. Það var í raun
verið að brjóta okkur niður and-
lega allan daginn. En það er það
skemmtilega við þetta. Leikurinn
á að brjóta fólk niður. Þá sýnir það
sitt rétta andlit. Ef maður heldur
að maður geti farið inn í húsið og
ætlað sér að nota ákveðna taktík,
þá er mikill misskilningur að það
sé hægt. Maður missir stjórn á lífi
sínu og Big Brother stjórnar,“ segir
Ása en hún missti að eigin sögn
tólf kíló vegna streitu og álags á
þessum sex vikum.
Fékk boð í spjallþátt
Ása er sú eina úr þáttaröðinni
sem boðið hefur verið að koma í
Big Brother-spjallþátt sem sýnd-
ur er einu sinni í viku í Þýskalandi.
Þátturinn var sýndur kvöldið áður
blaðamaður náði tali af Ásu og
er það einmitt ástæðan fyrir því
að hún var örlítið ryðguð í upp-
hafi spjallsins. „Ég var allan tím-
ann í sófanum hjá stjórnendun-
um og talaði um alla í húsinu. Eftir
þáttinn var ég svo með hálftíma
spjall á netinu þar sem 80 þúsund
manns fylgdust með í beinni út-
sendingu. Það er því klárlega eitt-
hvað jákvætt að fara að gerast hjá
mér,“ segir Ása sannfærð, en hana
hefur alltaf dreymt um frama í
sjónvarpi. Og það er aldrei að vita
nema þátt takan í Big Brother verði
stökkpallurinn sem til þarf.
„Eins og er eru fjöldi fólks að
fara yfir um. Ég fæ endalaust skila-
boð frá fólki sem segist elska mig
og hvað það hafi verið gaman að
fylgjast með mér. Ég er að fá eitt-
hvað sem kallast „lovestorm“ og
ég er örlítið hrædd við það,“ segir
Ása og skellir upp úr með sínum
smitandi hlátri. „Jákvæðnin í minn
garð er svolítið mikil. Ég átti ekki
von á þessu.“
Söng á íslensku
Eftir sex vikur undir smásjá Stóra
bróður og án samskipta við um-
heiminn tekur smá tíma að koma
lífinu í eðlilegt horf og Ása er að
vinna í því núna. Þá á hún enn eft-
ir að melta þennan tíma. „Þegar ég
hugsa til baka þá er ég mjög stolt af
því hvað ég talaði mikið um Ísland
og margt sem tengist Íslandi. Það
var allt sýnt. Svo var ég alltaf í lopa-
peysunni minni. Það var einmitt
mikið talað um hana og spurt hvar
væri hægt að kaupa slíka peysu. Ég
talaði mikið um álfa og álfatrú og
það sló í gegn. Svo mælti ég auð-
vitað bara með því að fólk ferð-
aðist til Íslands.“ Ása mátti reynd-
ar ekki tala íslensku inni í húsinu
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Sló í gegn Ásu
hefur tekist að
heilla Þjóðverja
upp úr skónum með
líflegri framkomu.
Fór í spjallþátt
Ása er sú eina sem
dottið hefur út
sem hefur farið í
spjallþáttinn.
„Fjölskyldan
mín vildi ekki
að ég tæki þátt
„Ég fæ endalaust
skilaboð frá fólki
sem segist elska mig og
hvað það hafi verið gam-
an að fylgjast með mér.