Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Side 39
Helgarblað 13.–16. nóvember 2015 Sport 31
ár hjá Katrínu. Við ræddum saman
fyrr á árinu eftir frækna framgöngu
hennar á Evrópumeistaramótinu
í crossfit þar sem hún vann sér inn
þátttökurétt á crossfit-heimsleikun-
um. Þá var hún sigri hrósandi, enda
hafði hún reynt við sama markmið
árið áður, en ekki tekist að komast
á heimsleikana. Hún hélt ótrauð
áfram og vann frækinn sigur á
heimsleikunum.
Keppnismanneskja
En ef við byrjum á byrjuninni þá
kemur í ljós að Katrín er keppnis-
manneskja af lífi og sál.
„Já, ég er mikil keppnismann-
eskja. Þegar ég var krakki skipti engu
máli hvað ég var að gera, ég var
stöðugt í keppni. Ég keppti um það
hver væri fljótastur út að leika. Ég
var alltaf að búa til keppnisbraut og
hoppa yfir hitt og þetta. Mér fannst
það skemmtilegast. Ég setti klukku
á gólfið, stóð í handstöðu og mældi
hvað ég gat verið lengi. Ég var alltaf
að keppa við sjálfa mig,“ segir hún.
Formlegur íþróttaferill Katrínar
Tönju hófst hjá Fimleikafélaginu
Björk í Hafnarfirði þegar hún var sex
ára. Hún æfði síðar fimleika með Ár-
manni í Reykjavík samhliða fram-
haldsskólanámi. Fimleikarnir voru
skemmtilegir, en ekki endilega rétta
greinin fyrir hana og hún þurfti að
hafa talsvert fyrir hlutunum.
Katrín segist hafa reynt að nýta
sér veikleika sína í fimleikunum
og gert þá að styrkleikum. Henni
fannst til dæmis alltaf skemmtileg-
ast á þrekæfingunum, en fimleikar
og þrekæfingar eru einmitt náskyld-
ar crossfit. Greinarnar eru einnig ná-
skyldar frjálsum íþróttum. Grunnur-
inn í fimleikunum kom því að góðum
notum þegar hún stóð á tímamót-
um, vildi hætta í fimleikum en finna
sér aðra íþrótt en gekk illa að finna
hvað ætti að taka við.
„Ég hafði æft í fjóra klukkutíma
á dag, sex daga vikunnar frá því að
ég var svona tíu ára og kunni ekkert
annað. Ég varð einfaldlega að finna
mér eitthvað annað að gera,“ segir
hún en hún byrjaði í frjálsum, en
fann sig ekki vel þar heldur.
„Ég var aldrei best í fimleikunum
eða frjálsum. Ég er ekki náttúrulega
góð í fimleikum og þurfti að hafa
mikið fyrir þeim. Ég lenti alltaf á
höfðinu að minnsta kosti fimm sinn-
um áður en ég náði tökum á því sem
ég var að gera. En þegar ég horfi til
baka þá kenndi það mér að vinna vel,
að hafa fyrir hlutunum. Það kenndi
mér góða vinnusiði sem ég bý að í
dag. Ég vil vakna á morgnana með
markmið í huganum. Það finnst mér
skemmtilegt og ég vil vinna markvisst
að hlutunum. Það sama var í frjáls-
um, ég fann ekki neina eina grein
sem hentaði mér og ég vildi einbeita
mér að. Ég var frekar týnd. Ég fór að-
eins aftur í fimleika, var í ræktinni og
flæktist svona á milli,“ segir hún og
segist hafa verið frekar eirðarlaus,
sem hentaði henni illa.
Annie Mist varð fyrirmynd
Þetta var sumarið 2011, árið sem
Annie Mist Þórisdóttir steig fram á
sjónarsviðið og vann heimsleikana
í crossfit í fyrsta sinn. Um ferðalag
hennar til Los Angeles voru gerðir
þættir sem Katrín Tanja fylgdist með.
Sigur hennar varð til þess að hálfgert
crossfit-æði hófst á Íslandi, og raun-
ar víðar um heiminn, sem ekki sér
enn fyrir endann á. Sameiginleg vin-
kona þeirra benti Katrínu á að Annie,
sem í grunninn er frjálsíþróttakona,
væri að æfa bæði í Boot Camp og
CrossFit og sagði Katrínu að hún ætti
ef til vill að prófa. „Henni fannst við
vera svipaðar og sagði: „Mér finnst
að þú eigir að prófa þetta“,“ sagði
hún. Hvatning frá stærstu stuðnings-
mönnum Katrínar, móður hennar og
ömmu, varð svo til þess að hún dreif
sig á æfingu í báðum greinum. „Það
var eiginlega ekki aftur snúið. Mér
fannst þetta strax mjög skemmtilegt
og krefjandi,“ segir hún og þess má
geta að Annie og Katrín Tanja æfa
mikið saman í CrossFit Reykjavík.
Fann sig í CrossFit
Á endanum var það svo CrossFit sem
heillaði hana meira en Boot Camp.
„Ég fann mig betur þar. Ég var búin
að æfa þar í nokkra mánuði þegar ég
ákvað að ég ætlaði að komast fyrst
á Evrópumeistaramótið og svo á
heimsmeistaramótið,“ segir hún.
„Ég sagði ekki mörgum það, en
ég lagði mig alla fram og æfði mikið
og vel. Ég einbeitti mér 110 prósent
á öllum æfingum og þetta gekk –
ég komst á heimsmeistaramótið.“
Katrín segist efast um að hún hafi
átt erindi þangað, svona eftir á að
hyggja, en að mótið hafi verið gott
fyrir reynslubankann.
„Ég var að keppa með stelpum
sem ég hafði séð á Youtube og
voru stór nöfn. Þetta var svo stórt,
mikið og yfirþyrmandi. Ég var ekki
vön svona álagi, var ekki nógu vel
undirbúin varðandi mataræðið eða
hvíldina sem þarf til,“ segir hún. Hún
var að auki ekki með þjálfara, en
var með gott fólk í kringum sig sem
þekkti vel til og hafði reynslu af leik-
unum. „Ég átti ekkert erindi þangað
í rauninni. Ég var ekki að keppa að
neinu ákveðnu markmiði nema því
að hafa komist þangað,“ segir hún.
En crossfit var rétta hillan, hún var
búin að finna sig og æfingarnar sem
hún hafði leitað að. „Ég var náttúru-
lega góð í þessu, eitthvað sem ég hafði
ekki fundið áður. Ég var alls ekki best,
en ég var mjög góð,“ segir hún. Hún
náði að fara aftur á heimsleikana árið
2013 en það sama var uppi á teningn-
um og keppnin varð fyrir vikið ómark-
viss. Eftir heimsleikana 2013 kynntist
hún bandarískum crossfit-þjálfara,
Ben Bergeron sem starfar í Boston.
„Hann er það besta sem gat komið
fyrir mig sem íþróttakonu,“ segir hún.
Ákvað að hann ætti að þjálfa sig
Bergeron starfar aðeins með fjórum
íþróttamönnum í einu, en rekur
crossfit-stöðvar á Nýja-Englandi í
Bandaríkjunum. Áður en Katrín og
Bergeron byrjuðu að vinna saman
hafði hún æft í stöðinni hans og í
kringum liðið hans um tíma. „Ég var
mikið að æfa með keppnishópnum
hans, en hann var ekki þjálfarinn
minn. Mér var sagt að hann væri ekki
að leita sér að fleiri íþróttamönnum
til að þjálfa og mér fannst það mjög
leiðinlegt. En ég hafði aldrei spurt
hann sjálf. Svo var það fyrir rúmu ári
sem ég ákvað að spyrja hann. Þetta
var það sem ég vildi. Ég sagði honum
að ég vildi að hann væri þjálfarinn
minn, að hann ynni meira með mér
og fylgdist með mér þegar ég væri
ekki í Bandaríkjunum. Hann sagði
bara ókei,“ segir hún og hlær. „Í byrj-
un var hann samt ekki alveg „þjálfar-
inn minn“ en hjálpaði mér að vinna
í veikleikum mínum. Í janúar þetta
ár varð þetta svo formlegt og núna
fylgist hann með öllu sem ég geri og
sér alfarið um þjálfunina.“
Vélin er mikilvægust
„Mér finnst eiginlega enn ótrúlegt að
ég hafi kynnst honum og að ég hafi
fengið tækifæri til að æfa með
hópnum hans. Mér finnst ég mjög
heppin. Hann vinnur mjög mik-
ið með okkur á öllum sviðum og
sendir aðeins frá sér íþróttamenn
sem eru í góðu formi á allan hátt,“
segir hún og bætir við: „Það er
ekki endilega sterkast, það er ekki
endilega best í neinu ákveðnu, en
„vélin“ er langsterkust. Andlegt og
líkamlegt úthald er mjög mikið og
við getum stöðugt haldið áfram.“
Úthaldsæfingarnar henta
Katrínu vel og Bergeron hefur
einnig aðstoðað hana við hugar-
farið. „Það er það sem ég hef í
rauninni lagt mesta áherslu á
undanfarið eitt og hálft ár,“ seg-
ir hún. „Hann vinnur svo mik-
ið með hugarfarið. Það tala allir
mikið um hvað það skipti miklu
máli, en þegar maður sér það
svart á hvítu hvað hugurinn er
kraftmikill, þá er það alveg ótrú-
legt,“ segir hún, enda augljóst að hún
leggur mikla áherslu á það og talar
um mikilvægi þess af miklum krafti
og áhuga. Það er í rauninni ekki ann-
að hægt en verða allur uppveðraður
af því að hlusta á hana tala. Katrín
þekkir vel hvað getur gerst ef hugur
og líkami ná ekki að vinna saman á
ögurstundu.
Komst ekki áfram
Árið 2014 reyndi Katrín Tanja aft-
ur við heimsleikana. Hún var þá
byrjuð að æfa með Bergeron, en á
Evrópumeistaramótinu fóru leikar
þannig að Katrín komst ekki áfram
og fékk ekki þátttökurétt á heimsleik-
unum. „Ég var í mjög góðu formi
líkamlega og hefði undir öllum
kringumstæðum átt að komast á þá.
Ég hafði farið tvisvar áður en þarna
var ég í mínu besta formi. En hugar-
farið fylgdi ekki með og þá gekk þetta
ekki upp,“ segir hún. Katrín sat eftir
og komst ekki á leikana.
Mikil vonbrigði
Þessum miklu vonbrigðum fylgdi
erfitt sumar. Katrín hafði lítinn áhuga
á því að æfa og var vonsvikin. „Ég
æfði lítið og fann ekki fyrir löngun til
að taka þátt. En ég las mikið af bók-
um þetta sumar,“ segir hún. Bækurn-
ar voru meðal annars ævisögur
íþróttamanna sem höfðu upplifað
erfiðleika, einmitt þegar þeir áttu að
standa á toppi ferils síns, en unnu
sig út úr þeim og komu enn sterkari
til baka. „Ég las til dæmis ævisögu
hlauparans Michaels Johnson, sem
átti að vinna stórsigur á Ólympíuleik-
unum árið 1992, en fékk matareitrun
og náði ekki markmiðum sínum. En
í staðinn fyrir að hætta þá æfði hann
mjög vel og tók leikana 1996 með
trompi,“ segir hún, en Johnson er eitt
stærsta nafn frjálsra íþrótta fyrr og
síðar.
„Ég áttaði mig á því að leiðin er
aldrei bein. Svona bakslag á sér stað,
en það er hægt að læra af reynslunni
og ég gerði það. Ég hef aldrei lagt
harðar að mér en í fyrra,“ segir hún og
segist sannfærð um að þetta bakslag
hafi aðeins gert hana sterkari.
„Á hverri einustu æfingu hafði ég
þetta hugfast: „Ég ætla ekki að sætta
mig við ekki neitt, ég ætla að komast
á leikana. Ég ætla ekki bara að kom-
ast á leikana, heldur ætla ég að vera
besta útgáfan af sjálfri mér.“ Ég lagði
mjög hart að mér og þetta ár las ég
mikið í íþróttasálfræði. Mér tókst að
tvinna huga og líkama vel saman,“
segir hún.
Hún og Bergeron ræða mikið
saman fyrir og eftir æfingar og hann
leggur henni línurnar. Þau fara yfir
hvernig hún á að hugsa á æfingun-
um, hvernig hún geti lært af því sem
hún er að gera og samstilla líkama og
sál. Bergeron starfar, sem áður sagði,
í Boston og hefur Katrín því reynt að
eyða sem mestum tíma þar. Á fyrri
hluta þessa árs gat hún verið mikið
í Boston, æft með teyminu og unnið
að markmiðum sínum. „Ég var þar
svo eftir Evrópumeistaramótið í vor
og í allt sumar,“ segir hún og bætir
því við að hún sé nánast orðin eins
og fjölskyldumeðlimur hjá fjölskyldu
Bergeron.
Allt small saman
Á heimsleikunum small allt saman;
hugarfarið, líkaminn og úthaldið
voru í takt. „Þetta var mjög gott sum-
ar,“ segir hún. Fyrir leikana voru
markmiðin þó smærri í sniðum en
að verða heimsmeistari. „Ég var
Sigurvegarinn Katrín Tanja þegar ljóst var að hún hefði farið með sigur af hólmi.
Mynd USed with perMiSSion FroM reeboK
Gefur 110 prósent Katrín Tanja æfir mikið og gefur sig alla í æfingarnar. Mynd SiGtryGGUr Ari
Síðasta greinin Katrín sést hér
í síðustu keppnisgreininni. Hún
var einbeitt og vissi að hún gæti
sigrað. Mynd USed with perMiSSion FroM reeboK„Sá sem
leggur
meira á sig en aðrir
– hann vinnur