Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Side 40
Helgarblað 13.–16. nóvember 201532 Sport
að horfa á að ég yrði í topp tíu, en að
mitt gull væri ef ég gæti verið á með
al efstu fimm,“ segir hún. „Ég hugs
aði ekki beint um sætin, heldur það
að eftir helgina hefði ég enga eftirsjá.
Ég vildi vera viss um að ég hefði gef
ið allt sem ég gat í hvern einasta dag,
hverja einustu æfingu og vita að ég
hefði alltaf gert mitt besta. Ég hefði
ekki geta lyft meiru eða hlaupið hrað
ar í neinni grein.“
Á þessum leikum hafði hún einnig
stærra stuðningsnet. Hún hafði þjálf
ara og umboðsmann sem gátu
hugsað um það sem hún þurfti utan
keppninnar sjálfrar og stýrðu því
hvenær hún svaf, drakk og borðaði.
„Ég gerði allt sem ég átti að gera og
þurfti engar áhyggjur að hafa,“ segir
hún.
Erfið keppni
Heimsleikarnir í crossfit eru mjög
stór viðburður. Þúsundir fylgjast
með sjálfri keppninni, en keppt er
í Los Angeles yfir hásumarið í mikl
um hita og aðstæðum sem eru ef til
vill ekki kjörnar til íþróttaiðkunar.
Keppt er í mismunandi greinum sem
reyna á líkamlegt og andlegt úthald
keppenda. Keppnisgreinarnar, sem
kallaðar eru WOD (sem á ensku út
leggst sem Workout of the day, eða
æfing dagsins) minna margar hverj
ar á keppnisgreinar í bókunum um
Hungurleikana, en Katrín segir að
keppendurnir séu vanir flestu. Sum
ar keppnisgreinarnar hafa verið
gerðar opinberar fyrir heimsleikana,
en aðrar eru aðeins auglýstar með
klukkustundar fyrirvara. Keppendur
búa því við ákveðna óvissu og þetta
er ólíkt því að keppa í fimleikum eða
frjálsum þar sem æfingarnar liggja
fyrir.
Dæmi um grein er MURPH,
keppni þar sem íþróttafólkið hljóp
um íklætt í vesti sem á voru stál
plötur að aftan og framan. Kepp
endur hlupu eina mílu og gerðu svo
hundrað upphífingar, tvö hundruð
armbeygjur, þrjúhundruð hnébeygj
ur og áttu svo aftur að hlaupa mílu.
Allt þetta í vestinu með stálplötunum
í steikjandi hita. Þetta tók um eina
klukkustund og voru margir sem fóru
illa út úr keppninni, fengu hitaslag og
fundu fyrir ofþornun.
Æfingarnar skilja eftir sig þreytta
líkama og flestir keppendur glíma við
harðsperrur, sára og auma vöðva, alla
helgina.
Var jöfn alla keppnina
Katrín safnaði stigum alla leikana
jafnt og þétt. „Hver einasta grein
skipti jafn miklu máli. Það er mikil
vægt að vera jafn góður í fyrstu
greininni á föstudegi og í þeirri
síðustu á sunnudegi. Þær telja
flestar jafn mörg stig og þarna skiptir
úthaldið öllu,“ segir hún. Þegar kom
að síðustu greininni á sunnudeg
inum segist Katrín Tanja hafa áttað
sig á því að hún gat, ef hún vildi og
bæri sig rétt að, unnið mótið. „Þetta
var í fyrsta skipti sem ég gekk inn á
leikvanginn og hugsaði með mér:
„Ég get orðið heimsmeistari. Ég er
að fara að vinna heimsmeistara
mótið“.“
Fram að þessu hafði hún það að
markmiði sínu að gera sitt besta. Hún
hugsaði bara um sjálfa sig og fram
göngu sína, en ekki aðra keppendur.
„En í þessari síðustu grein var ég
í þeim aðstæðum að ég gat unnið
heimsmeistaramótið. Hversu tryllt er
það?“ segir hún og segist hafa gert sér
grein fyrir því að það gæti farið svo að
hún stæði aldrei aftur í þessum spor
um. „Ég hafði notið mín alla helgina,
ég brosti alla helgina og mér fannst
þetta alltaf skemmtilegt. Þarna var ég
ekki brosandi, heldur fór út á gólfið
með ákveðið markmið.“
Einbeitingin skein líka úr aug
unum eins og sást á útsendingunni
sem margir fylgdust með, þar á með
al blaðamaður. „Ég fann ekki fyrir lík
amanum, ég var ekkert þreytt, ég var
einbeitt.“
Mikil orka
Lokakeppnisgreinin fólst í því að
klifra upp spjald á handaflinu einu
saman, með tveimur pinnum sem
var stungið í göt. Fæstar keppnis
konurnar gátu tekist á við verkefnið,
enda þreyta helgarinnar farin að
segja til sín. Katrínu gekk í fyrstu illa
að klifra, en fann svo tækni sem hent
aði henni. Á niðurleiðinni missti hún
gripið, en leit í kring um sig og sá að
fæstum gekk vel. Hún ákvað því að
hvíla sig en takast á við næstu þraut,
sem hún vissi að hún átti inni fyrir, af
enn meiri krafti. Það gerði hún svo
sannarlega. Verkefnið var að bera
níðþungar ketilbjöllur fram og til
baka og taka sér svo stöðu í róðrarvél.
„Þegar ég var á síðustu ketilbjöll
unni ærðist allur áhorfendaskarinn
allt í kringum mig. Ég hef aldrei fund
ið fyrir svona mikilli orku. Ég hafði
ekki unnið neina grein allt mótið, svo
vann ég bara síðustu æfinguna – og
vann heimsleikana. Þetta er eigin
lega enn eins og draumur.“
Hún trúði samt ekki að henni
hefði tekist þetta, og fagnaði ekki, fyrr
en Dave Castro, stofnandi CrossFit og
eigandi heimsleikanna, tilkynnti að
hraustasta kona heims kæmi frá Ís
landi og væri Katrin Davidsdaughter.
Ert þú Katrín?
Það tók smá tíma að aðlagast nýjum
titli, en Katrín tekur þessu öllu með
ró. „Ég er enn að átta mig á þessu
öllu, mér finnst skrítnast þegar ég
hitti fólk, þegar ég er erlendis, sem
kemur og spyr hvort ég sé Katrín
Davíðsdóttir,“ segir hún. „Þetta er
ákveðinn stökkpallur til þess að láta
gott af sér leiða.“
Hún finnur líka til sín sem fyrir
mynd. „Mér finnst það svo fallegt
þegar ég fæ skilaboð til dæmis frá
öðrum stelpum sem segja að ég sé
fyrirmyndin þeirra. Mér finnst fyrir
vikið að ég eigi að lifa því líferni sem
ég vil að aðrir geti tekið sér til fyrir
myndar,“ segir hún. Hún segir að
einn daginn fari hún í háskólanám,
en á meðan tækifærin láta á sér kræla
í crossfitheiminum ætlar hún að
njóta þess og grípa þau sem flest. „Ég
vil vera afreksíþróttamaður og vil fá
að leyfa mér að gera það.“
Það tekur á að ferðast eins mikið
og hún og hún hefur gert undanfarn
ar vikur og mánuði. Hún hefur far
ið víða, enda þykir hún mikil fyrir
mynd og er eftirsótt. Hún segist þó
vera byrjuð að stýra álaginu betur,
vita hvað það er sem hún vill gera
en frá og með áramótum ætlar hún
að einbeita sér að fullu að æfingun
um. „Ég hef upp á síðkastið tekið að
mér of mörg verkefni, en hef lært af
reynslunni og veit núna að ég þarf
að setja mér takmörk,“ segir hún og
segist vilja halda lífinu í sem mest
um skorðum. Þetta á ekki að breyta
henni of mikið. Hún lagði vinn
ingsféð inn á bankabók og ætlar að
nota það til að kaupa sér íbúð einn
daginn.
Næsta mót
Svo eru það næstu skref. Katrín Tanja
á ekki víst sæti á næstu heimsleik
um þrátt fyrir titilinn. En hún ætlar
sér þangað og markmiðin eru ekkert
minni en síðast.
Þessa dagana er hún á fullu að
undirbúa sig fyrir Íslandsmótið í
crossfit sem fram fer um helgina.
Það er ekkert gefið í crossfit og
hún tekur sér sjaldan löng hvíldar
tímabil. Hún ætlar að gefa allt í
mótið um helgina, líkt og hún hefur
gert á undanförnum mótum. Skipt
ir þá engu hvort um er að ræða Ís
landsmót, Evrópumeistaramót eða
heimsmeistaramót.
Eftir situr þó spurningin, er eitt
hvað í íslenska vatninu sem ger
ir íslenskar konur að crossfitof
urkonum? Þegar fylgst er með
Katrínu Tönju er þó ekki hægt að
segja annað en að hún leggi sig alla
fram í því sem hún tekur sér fyrir
hendur. Hún er líka meðvituð um
það. „Maður þarf að hafa virkilega
fyrir hlutunum í lífinu. Þetta sport,
crossfit, er líka einmitt þannig að
sá sem leggur meira á sig en aðrir –
hann vinnur.“ n
Á toppi tilverunnar Hraustasta kona heims tekur við verðlaununum sínum. Íslendingar áttu aðra konu á palli, Ragnheiði Söru Sigmundsdóttur sem náði þriðja sætinu.
Gleði Það er gaman að vakna á morgnana
og drífa sig á æfingu, segir Katrín sem
keppir alla jafna með bros á vör.
MyNd UsEd with pErMissioN froM Crossfit, iNC
MyNd UsEd with pErMissioN froM Crossfit, iNC
„Ég ætla
ekki að
sætta mig við
neitt, ég ætla að
komast á leikana
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000
www.kemi.is - kemi@kemi.is
• Almennur handhreinsir
sem byggir á náttúru-
legum efnum.
• Virkar jafnt með vatni
og án.
• Engin jarðolíuefni eru
notuð.
• Inniheldur aloa vera,
jojoba olíu og lanolin
til að mýkja húðina.
• Virkar vel á olíu, feiti,
blek, jarðveg, epoxy
og lím.
• Inniheldur fín malaðan
sand til að hreinsa
betur.
Gengur illa að þrífa
smurolíuna af höndunum?
Eru lófarnir þurrir og rispaðir?