Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Blaðsíða 42
Helgarblað 13.–16. nóvember 201534 Sport
Sextíu og fjögurra reita
veisla í Laugardalshöll
T
uttugasta Evrópumót lands-
liða í skák hefst klukkan 17.00
í Laugardalshöllinni í dag, 13.
nóvember, og stendur til 22.
nóvember. Um er að ræða
einn stærsta viðburð sem Skáksam-
band Íslands hefur ráðist í síðan ein-
vígi aldarinnar á milli Boris Spassky
og Bobbys Fischer fór fram í sama
húsnæði árið 1972. Alls munu um
330 keppendur tefla á mótinu og þar
af margir af sterkustu skákmönnum
heims. Sá þekktasti er heimsmeist-
arinn sjálfur Magnus Carlsen sem
leiðir ungt lið Norðmanna í mótinu.
Allar frekari upplýsingar um mótið
má nálgast á heimasíðu mótsins en
þess má geta að allar skákirnar verða
sendar út í beinni útsendingu og mun
enski stórmeistarinn Simon Williams
sjá um skákskýringar á netinu.
Teflt í tveimur flokkum
Teflt er í tveimur flokkum, opnum
flokki þar sem þrjátíu og átta lands-
lið eru skráð til leiks, og kvennaflokki
þar sem liðin eru 30 talsins. Í hverju
liði eru fimm keppendur og tefla fjór-
ir skákmenn í hverri umferð en alls
verða tefldar níu umferðir. Liðin safna
stigum, til dæmis fást 2 stig fyrir sigur,
en tveir og hálfur vinningur eða nægja
til sigurs. Eitt stig fæst ef liðin gera
jafntefli. Það lið sem tapar fær eðli-
lega ekkert stig. Þau lið sem standa
uppi með flest stig eftir umferðirnar
níu verða krýnd Evrópumeistarar.
Rússar sterkastir í opnum flokki
Rússneska landsliðið mætir grátt fyrir
járnum til Reykjavíkur og leggur mik-
ið upp úr því að ná góðum árangri
í mótinu. Ljósmyndir af liðinu í æf-
ingabúðum hafa gengið um samfé-
lagsmiðla þar sem áherslan hefur ver-
ið á skákþjálfun og líkamsrækt. Eins
og margir þekkja þá safna skákmenn
svokölluðum FIDE- eða Elo-stigum
en stigin eiga að segja til um styrkleika
þeirra. Keppendur í opnum flokki eru
með styrkleika frá 2.200 stigum og upp
í 2.850 stig heimsmeistarans Carlsen
sem er stigahæsti skákmaður heims.
Stigin eru þess eðlis að menn fá stig
fyrir góðan árangur en tapa þeim
jafnharðan aftur ef úrslitin eru slæm
og því gefa stigin nokkuð raunsanna
mynd af styrkleika skákmanna.
Ofurstórmeistarar eru þeir sem eru
með yfir 2.700 stig og eru slíkir skák-
menn almennt taldir allt því ómann-
legir. Aðeins eru 42 ofurstórmeistarar
í heiminum þegar þessi orð eru rit-
uð, þeim kemur til með að fækka eða
fjölga eftir þetta mót, og til marks um
styrk Rússanna þá eru allir liðsmenn
þeirra yfir þessum stigafjölda.
Þrátt fyrir það þá gengur Rússun-
um yfirleitt illa í þessum liðakeppn-
um. Einstakir liðsmenn eru stjörnur í
heimalandi sínu og í skáksamfélaginu
en þeim virðist ganga illa að berjast
fyrir hver annan. Síðast stóð rúss-
neska liðið uppi sem sigurvegari árið
2007 en titillinn rann þeim úr greip-
um árin 2009, 2011 og 2013. Það er því
mikil pressa á liðinu að vinna mótið
í ár en leiðtogi liðsins er ólíkindatólið
Alexander Grischuk sem nýlega varð
heimsmeistari í hraðskák. Hann er
afar skemmtilegur karakter og þekkt-
ur fyrir að nota mikinn tíma í hverja
skák sem endar síðan með gríðar-
legu tímahraki undir lok skákarinnar.
Sannkallaður skemmtikraftur.
Úkraína, Aserbaídsjan
og Armenía líkleg
Liðin sem koma líklega til með að
veita Rússunum mesta samkeppni
eru lið Úkraínu, Aserbaídsjan og
Armeníu. Úkraínumenn mæta til
leiks með ógnarsterkt lið þar sem
hinn magnaði Vassily Ivanchuk er í
broddi fylkingar. Hann hefur í áratugi
verið í fremstu röð skákmanna heims
og óumdeilt er að hæfileikar hans
eru einstakir. Andlega hliðin hefur
þó reynst honum fjötur um fót allan
hans feril og maður veit aldrei hversu
sterkur hann er þegar á hólminn er
komið. Heili mannsins er þó eitthvert
undraverk því blaðamaður varð vitni
að því þegar skorað var á hann í byrj-
un tveggja vikna skákmóts í Tyrklandi
að læra tyrknesku. Á lokahófinu hélt
Ivanchuk langa ræðu á tungumáli
heimamanna og komst víst vel frá því.
Aserar eru núverandi
Evrópumeistarar síðan árið 2013 en
þeir höfðu einnig sigur árið 2009.
Þeir eru að mati blaðamanns líkleg-
ir til afreka í ár. Stjörnur liðsins eru
snillingarnir Teimour Radjabov og
Shakriyar Mamedyarov sem þrátt
fyrir ungan aldur hafa lengi verið í
fremstu röð skákmanna heims. Í fyrra
lést einn sterkasti skákmaður Asera,
Vugar Gashimov, sem greindist
með heilaæxli aðeins 27 ára að aldri
sem var gríðarlegt áfall fyrir skák-
líf í landinu. Aserarnir hafa það fram
yfir önnur lið að samheldnin innan
liðsins er gríðarleg og greinilegt að
vináttan innan liðsins er mikil.
Það sama má segja um lið
Armena. Þrátt fyrir að vera aðeins í
sjötta sæti í styrkleikaröðinni þá nær
liðið yfirleitt gríðarlega góðum ár-
angri í liðakeppnum og ræður þar
samheldni og vinátta liðsmanna
mestu. Það skemmir að vísu ekki
fyrir að hafa sjálfan Levon Aronian á
fyrsta borði liðsins en í tæpan áratug
hefur hann verið einn allra sterkasti
skákmaður heims og sá sem lengi
var talið að mundi veita Carlsen
mesta samkeppni um heimsmeist-
aratitilinn.
Þrátt fyrir að þessi lið séu líklegust
til afreka þá getur allt gerst. Á
Evrópumóti landsliða í gríska bæn-
um Porto Carras árið 2011 stóðu
Þjóðverjar uppi sem sigurvegarar
þrátt fyrir að vera aðeins í tíunda sæti
í styrkleikaröðinni fyrir mótið.
Þrjú lið líklegust í kvennaflokki
Samkeppnin er ekki eins mikil í
kvennaflokknum þó að baráttan um
gullið verði alveg jafn spennandi.
Þrjú lið eru í algjörum sérflokki,
Georgía, Rússland og ríkjandi
Evrópumeistarar Úkraínu. Georgíu-
menn eru stigahæstir en leiðtogi
liðsins er stórmeistarinn Nana
Dzagnidze sem er stigahæsta skák-
kona mótsins. Þrátt fyrir óumdeilda
getu þá hafa Georgíukonur ekki átt
góðu gengi að fagna í liðakeppn-
um og því verður fróðlegt að fylgjast
með þeim í Laugardalshöllinni.
Rússnesku skákkonurnar eru
langlíklegastar til að standa uppi
sem sigurvegarar. Þær hafa unnið
þrjú síðustu Ólympíumót kvenna
með yfirburðum og höfðu unnið
þrjá Evrópumeistaratitla í röð þar
til þær þurftu að lúta í lægra haldi
fyrir úkraínsku skákkonunum fyrir
tveimur árum. Þá var hins vegar
stigið fast til jarðar í rússneska skák-
sambandinu og svo fór að sterkasta
skákkona Úkraínu, stórmeistarinn
Katarina Lahno, skipti um ríkisfang
og gekk til liðs við Rússland. Auk
Lahno skipa liðið stórmeistararnir
Alexandra Kosteniuk og Valentina
Gunina. Þær verða illviðráðanlegar.
Úkraínukonur eru þær þriðju
sterkustu samkvæmt stigum. Skarð
áðurnefndar Lahno var hins vegar
fyllt með ungri skákkonu, stórmeist-
aranum Önnu Muzychuk, sem öll-
um að óvörum varð heimsmeistari
kvenna nýverið. Hún leiðir liðið
ásamt eldri systur sinni Maríu og
mun mikið mæða á Muzychuk-fjöl-
skyldunni ef Úkraína á að verja titil
sinn. Ekki er raunhæft að önnur lið
geti gert atlögu að titlinum en Pól-
land, Frakkland og Armenía gætu vel
náð verðlaunasæti ef allt gengur upp.
Fjórmenningaklíkan snýr aftur
Ísland fékk að tefla fram tveimur lið-
um í opna flokkum. Fyrra liðið er
skipað sterkustu virku skákmönn-
um landsins og þar er stórmeist-
arinn Hannes Hlífar Stefánsson
í broddi fylkingar. Hannes hefur
verið í mikilli uppsveiflu undanfar-
ið og staðið uppi sem sigurvegari á
tveimur sterkum alþjóðlegum skák-
mótum nýverið. Íslands-
meistarinn Héðinn Stein-
grímsson er á öðru borði og
nýjasti stórmeistari okkar
Íslendinga, Hjörvar Steinn
Grétarsson, er á þriðja borði.
Stórmeistarinn Henrik
Danielsen er á fjórða borði
og verðandi stórmeistarinn,
Guðmundur Kjartansson, er
varamaður liðsins.
Seinna íslenska liðið er
mjög athyglisvert en það
ber heitið Iceland Legends.
Þar munu þekktustu skák-
menn þjóðarinnar, hin svo-
kallaða fjórmenningaklíka,
dusta rykið af taflmönnun-
um og tefla aftur fyrir Íslands
hönd eftir áratuga hlé á þeim
vettvangi. Það gerðu þeir
svo sannarlega með glæsi-
brag á sínum tíma en mestu afrekin
voru fimmta sæti á Ólympíumótinu
í Dúbaí 1988 og sjötta sætið á
Ólympíumótinu í Maníla 1992.
Sennilega tvö mestu afrek íslenskr-
ar skáksögu. Um er að ræða stór-
meistarana Helga Ólafsson, Jóhann
Hjartarson, Jón L. Árnason og Mar-
geir Pétursson. Varamaður liðsins er
síðan goðsögnin Friðrik Ólafsson.
Liðið er í 27. sæti í styrkleikaröðinni
að þessu sinni en þátttaka þess mun
ylja íslenskum skákáhugamönnum
um hjartaræturnar.
Það verður við ramman reip að
draga hjá íslenska kvennaliðinu en
liðið er í 29. sæti í styrkleikaröðinni
af 30 liðum. Það er skarð fyrir skildi
að þrjár þaulreyndar og öflugar skák-
konur, Hallgerður Helga Þorsteins-
dóttir, Jóhanna Björg Jóhannsdótt-
ir og Tinna Kristín Finnbogadóttir,
eru uppteknar í erfiðu háskólanámi.
Hins vegar opnast með því tækifæri
fyrir tvær ungar og efnilegar skákkon-
ur, Hrund Hauksdóttur og Veroniku
Steinunni Magnús dóttur, sem munu
án nokkurs vafa styrkjast gríðarlega
við þessa raun. Leiðtogi liðsins er hin
öfluga Lenka Ptacnikova sem stát-
ar af frábærum árangri með íslenska
landsliðinu. Það mun mæða mikið á
henni í þessu móti. Á öðru og þriðja
borði eru hinar þaulreyndu og öflugu
skákkonur Elsa María Kristínardóttir
og Guðlaug Þorsteinsdóttir. Sérstak-
lega er ánægjulegt að sjá Guðlaugu
snúa aftur til leiks eftir nokkurt hlé.
En hvað sem verður þá er ljóst að
framundan er mikil veisla fyrir ís-
lenska og erlenda skákáhugamenn.
Hægt er að nálgast aðgöngumiða á
midi.is. Verðið er 6.900 krónur fyr-
ir allar níu umferðirnar en stakar
umferðir kosta 1.400 krónur. Frítt er
fyrir 16 ára og yngri. n
n Evrópumót landsliða í skák hefst í dag n Flest augu beinast að heimsmeistaranum
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is Magnus Carlsen heimsmeistari Leiðir
ungt lið Norðmanna sem mun eflaust velgja
öðrum liðum undir uggum en ólíklegt verður að
teljast að liðið geri atlögu að verðlaunasæti.
Evrópumót landsliða Alls munu 330 skákmenn í 68 liðum etja kappi í Laugardalshöll næstu 10 daga.
Hjörvar Steinn Grétarsson Nýjasti
stórmeistari landsins mun verja heiður
lands og þjóðar í mótinu.
Aserar með sigurlaunin Hér má sjá lið Aserbaídsjan sem sigraði á Evrópumóti landsliða
árið 2009. Vugar Gashimov heldur á bikarnum en hann er nú látinn, aðeins 27 ára að aldri,
eftir að hafa greinst með krabbamein í heila.
Stórmeistari kvenna Lenka Ptacnikova
mun leiða íslenska kvennaliðið og verður
algjört lykilatriði að hún finni sig vel.