Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Blaðsíða 44
Helgarblað 13.–16. nóvember 201536 Skrýtið Sakamál
K
atherine Mary Knight
fæddist árið 1955 í Nýju
Suður-Wales í Ástralíu. Ekki
skal hér fjölyrt um bernsku
hennar en þó upplýst að
hún var ofbeldisfullur krakki og segir
sagan að lítil breyting hafi orðið þar
á eftir að hún óx úr grasi. Fólk forð-
aðist eins og heitan eldinn að lenda
uppi á kant við hana sökum mikils
skapofsa.
Katherine reiddi víst ekki vitið í
þverpokum, var einfari og ofbeldis-
fullur tuddi í skóla og til að bæta gráu
ofan á svart var hún vart læs.
Fyrsta hjónabandið
Árið 1974 gekk Katherine í hjóna-
band með David Kellet. Skötuhjúin
mættu til hjónavígslunnar á mótor-
hjóli; Katherine við stýrið og Kellet
vel hífaður fyrir aftan hana. Móðir
hennar taldi, þrátt fyrir að Katherine
og David hefðu verið í sambandi í ár
eða þar um bil, rétt að vara tilvon-
andi tengdason sinn við.
„Þú skalt fylgjast vel með henni
þessari [Katherine] eða hún geng-
ur af þér dauðum,“ sagði hún við
David. Í ljósi þess sem átti sér stað
á brúðkaupsnóttinni má ráða að
varnaðar orð móður Katherine voru
vel við hæfi. Þrátt fyrir að David hefði
haft samræði við Katherine í þrí-
gang var hún afskaplega ósátt við
frammistöðu hans og kom óánægju
sinni á framfæri með því að reyna að
kyrkja hann.
David Kellet kemur til bjargar
Hjónabandið einkenndist af ofbeldi
og því lauk árið 1976, skömmu eftir
fæðingu dóttur þeirra, Melissu Ann.
Þá játaði David sig sigraðan og yfir-
gaf Katherine vegna annarrar konu.
Þegar Melissa Ann var tveggja
mánaða skildi Katherine hana eftir á
brautarteinum en það varð henni til
lífs að gamall karl sem leitaði að ein-
hverju nýtilegu í grennd við brautar-
sporið bjargaði henni rétt áður en
lest átti þar leið um. Katherine var
handtekin og farið með hana á St.
Elmo's-sjúkrahúsið, þar sem hún
hafði verið áður og þá greind með
fæðingarþunglyndi. Í þetta skiptið
útskrifaði hún sig sjálf eftir einn dag.
Nokkrum dögum síðar réðst
Katherine á sextán ára stúlku og skar
hana í andlitið með hnífi. Hún var
handtekin og vistuð á geðsjúkrahúsi.
Þegar þarna var komið sögu rann
David Kellet blóðið til skyldunnar og
yfirgaf hann kærustu sína og sneri
heim. Katherine var útskrifuð og í
ágúst 1976 flutti hún ásamt David
og móður hans í úthverfi Brisbane.
Katherine og David eignuðust aðra
dóttur 1980 en fjórum árum síðar
yfirgaf Katherine David og segir ekki
meira af honum.
Annar David, sama ofbeldið
Árið 1987 hófst samband Katherine
og Davids Saunders og eignuðust
þau barn um ári síðar. David flutti
inn til Katherine og tveggja dætra
hennar en ákvað þó að selja ekki
eigin íbúð. Katherine varð tryllt af
afbrýðisemi ef hún vissi ekki hvað
David aðhafðist og iðulega leit-
aði hann athvarfs í gömlu íbúðinni
sinni. Katherine átti þá til að nauða
í honum þar til hann kom heim aftur.
En sambandið var stormasamt;
hún stakk David með skærum, skar
fatnað hans í hengla og skemmdi bíl-
inn hans. Til að sýna David á hverju
hann ætti von ef hann héldi fram-
hjá henni skar hún tveggja mánaða
gamlan hvolp hans á háls fyrir fram-
an hann.
David Saunders sá sitt óvænna,
tók sér frí í vinnunni og fór í felur.
Þrátt fyrir að Katherine gerði sitt
besta til að finna hann og spyrði
vini hans og ættingja þögðu all-
ir þunnu hljóði. Mánuðum síðar er
David sneri heim til að sjá dóttur
sína komst hann að því að Katherine
hafði farið til lögreglunnar og sagt að
hún óttaðist hann og þannig fengið
sett á hann nálgunarbann.
Katherine myrðir mann
Nú jæja, árið 1994 hitti Katherine
áfengissjúklinginn John Charles
Thomas Price – þriggja barna föður
sem aldrei var kallaður annað en
Pricey. Ofsafengið skap Katherine
setti að sjálfsögðu svip sinn á sam-
bandið og til dæmis, þann 28. febr-
úar, 2000, vaknaði Pricey um miðja
nótt við að hún stóð yfir honum
með hníf. Um þetta leyti var farið
að hrikta í stoðum sambandsins en
Katherine hafði krafist þess að Pricey
ánafnaði henni húsi hans í Aberdeen
en Pricey hafnaði kröfunni, varpaði
Katherine á dyr og fékk daginn eftir
nálgunarbann sett á hana.
Þann sama dag keypti Katherine
sér gegnsæjan náttslopp og fór um
kvöldið heim til Priceys. Hann var
þá genginn til náða en hún tyllti sér
niður og horfði á sjónvarpið í stutta
stund. Síðan skellti hún sér í sturtu
og laumaði sér upp í rúm hjá Pricey,
þau nutu ásta og síðan sofnaði Pricey
aftur.
Katherine sótti hníf í eldhúsið og
íklædd nýja, gegnsæja náttsloppnum
lagði hún til Priceys 37 sinnum.
Góða veislu gjöra skal
Eins og gefur að skilja þurfti
Pricey ekki að kemba hærurnar en
Katherine hafði ekki lokið sér af. Hún
fláði líkama Priceys og hengdi húð-
ina upp í stofunni, síðan skar hún
höfuðið af líkinu, setti það í pott og
skellti á eldahellu. Síðan skar hún
vænar sneiðar af þjóhnöppunum og
skellti í ofninn. Þessa dýrindis mál-
tíð hugðist Katherine bera á borð
með bökuðum kartöflum, graskeri,
kúrbít, káli og sósu og bjóða börnum
Priceys og hafði dekkað borðstofu-
borðið. Við hlið hvers disks var miði
sem á var skrifað nafn viðkomandi
barns Priceys.
Málalok
En nágrönnum Priceys hafði ekki
verið rótt þegar leið á morgun þessa
dags, bíll hans var enn í innkeyrsl-
unni og því ljóst að hann hafði ekki
farið til vinnu. Einn vinnu félaga
Priceys kom til að athuga með hann
og börðu hann og einn nágranni
heimili hans að utan. Innan dyra
var enga hreyfingu að sjá en á úti-
dyrahurð sáu þeir blóð og höfðu
samband við lögreglu. Lögreglan
braut upp dyrnar og hnaut um
Katherine þar sem hún lá í dái eftir
að hafa innbyrt óhemju magn af
svefnpillum.
Þann 18. október, 2001, var
Katherine Mary Knight sakfelld fyrir
morð og fékk lífstíðardóm. Hún af-
plánar dóm sinn í Silverwater-fang-
elsinu í Nýju Suður-Wales. n
Ofnsteiktur
eiginmaður
n Katherine var ofbeldisfull og skapbráð n Ekki sluppu allir karlmenn heilir á höldnu frá henni
Með bros
á vör Brosið
var ekki það
sem einkenndi
Katherine
Knight.
Með eiginmanninum David Kellet sýndi Katherine óvæntan stuðning þegar í harðbakkann sló.
Pricey John Charles Thomas Price var borinn fram
með grænmeti og sósu.
„Til að sýna David
á hverju hann ætti
von ef hann héldi framhjá
henni skar hún tveggja
mánaða gamlan hvolp
hans á háls fyrir framan
hann.
Skútuvogi 11 104 Reykjavík Sími 553 4000 www.prentvorur.is
Dæmi um verð:
Tóner fyrir HP
CF283A 8.500 kr.
CE285A 6.490 kr.
CE278A 6.800 kr.
CF280X 9.800 kr.
Blek fyrir Canon
550/551 970 kr.
525/526 870 kr.
520/521 870 kr.
5/8 870 kr.
BL
EK
&
TÓ
NE
R