Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Side 54
Helgarblað 13.–16. nóvember 201546 Fólk
T
ónlistarkonan Greta Salóme
Stefánsdóttir hefur í nógu að
snúast þessa dagana. Hún er
nýkomin heim úr drauma-
verkefni á vegum Disney-
samsteypunnar, þar sem hún sigldi
um höfin blá með skemmtiferða-
skipinu Disney Magic og kom fram í
aðalsýningunni um borð. Þá vinnur
hún að nýrri plötu og undirbýr fjölda
tónleika.
Líður betur eftir lagasmíðar
Nýjasta lag hennar, Fleyið, kom út á
dögunum, en það var einmitt samið
um borð í skemmtiferðaskipinu. „Ég
var búin að vera ansi lengi um borð
þegar kom til Íslands í einn dag. En
ég þurfti að fara út strax aftur og
fékk svakalega heimþrá,“ segir Greta
Salóme, en það var heimþráin sem
varð henni innblástur að laginu. „Ég
var með mjög góða aðstöðu í skip-
inu, var með stúdíó efst í því sem ég
ein notaði. Ég fór þangað um miðja
nótt og samdi þetta lag. Ég fór í þess-
ar íslensku rætur, þegar sjómennirn-
ir voru að fara út og voru ekki vissir
hvort þeir kæmu aftur. En það voru
vissulega aðeins öðruvísi aðstæður
en ég er í. Þetta er svona íslenskt lag
með indie/folk-þema,“ útskýrir hún.
Lagasmíðarnar drógu úr heim-
þránni og Gretu Salóme leið bet-
ur. „Mér líður alltaf betur þegar
ég er búin að semja lag. Ég fæ ein-
hverja útrás í því,“ segir hún einlæg.
Það er ekki óeðlilegt að heimþrá
og söknuður hafi bankað upp á hjá
Gretu Salóme því hún dvaldi nánast
samfellt á skipinu frá apríl og fram í
október.
Gott frí á milli sýninga
„Þetta var samt frábært og það er búið
að vera afskaplega gaman að vinna
hjá Disney,“ segir hún, en þetta var
annað árið í röð sem hún starfaði
um borð í skipi á vegum Disney. „Ég
kynntist alveg frábæru fólki og lærði
mjög mikið á þessu, og er í raun enn
að læra. Það voru líklega um 15 til 20
þúsund manns sem sáu sýninguna í
sumar.“
Hún þurfti þó ekki að slíta sér út
við sýningarnar og fékk oft gott frí
á milli. Þá gat hún nýtt tímann og
grúskað í sinni eigin tónlist. „Ég get
ekki sagt að ég hafi verið undir miklu
álagi. Ég var með sýningu einu sinni
í hverri siglingu og siglingarnar voru
allt upp í tólf daga. Þannig að ég var
ekkert að drukkna,“ segir hún hlæj-
andi. „En ég kom líka fram hér og þar
með óvæntar uppákomur. Svo þurfti
ég að halda mér í formi fyrir sýn-
inguna og það var mikið af æfingum.
Þannig að ég var mikið í vinnunni.
En ég náði líka að taka upp mikið
efni í stúdíóinu,“ segir Greta Salóme,
en til stendur að hún fari aftur út á
næsta ári í fleiri verkefni á vegum
Disney-samsteypunnar.
En þangað til hefur hún nóg að
gera hérna heima. Framundan eru
þrettán jólatónleikar úti um allt land
með hljómsveit. Þá verður hún með
stóra tónleika á Akureyri, þann 17.
janúar, ásamt Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands. Þar mun hún taka
hluta af Disney-sýningunni í bland
við eigið efni.
Röð tilviljana
Aðspurð hvort verkefnin hjá Disney
opni ekki fleiri dyr í útlöndum svarar
hún játandi. „Það er allt í ferli, ég er
með frábæran umboðsmann úti sem
sér um alla Disney-samningana fyrir
mig og það er ýmislegt í gangi. Mað-
ur má ekki staðna, maður verður að
hugsa alltaf lengra og meira,“ segir
hún hálf feimnislega.
Það var í rauninni röð tilviljana
sem varð til þess að hún fékk verk-
efni hjá Disney í fyrra. „Ég var á skrá
hjá amerískri umboðsskrifstofu í
Kanada. Og ég sendi efnið mitt í rétt-
ar hendur innan þeirrar skrifstofu.
Þeir sendu efnið á sína tengiliði og
þannig lenti það fyrir tilviljun hjá
réttu fólki hjá Disney. Svo fékk ég
póst í apríl í fyrra með upplýsingum
um hvenær ég ætti að mæta. Ég
ákvað að gera eins vel og ég gæti,
sama hvað kæmi út úr því.“
Eurovision stökkpallurinn
Greta Salóme segir upphafið af verk-
efnum og velgengni í útlöndum þó
tvímælalaust mega rekja til þátttöku
í Eurovision-keppninni. Hún keppti
fyrir Íslands hönd árið 2012, ásamt
Jóni Jósep Snæbjörnssyni. „Eurovision
er í raun aðalástæðan fyrir því að ég
fékk þetta Disney-verk efni, en það er
auðvitað stærsta tónlistarverkefnið
sem ég hafði tekið þátt í, og það kveikti
í þeim. Eurovision er mjög dýrmætur
hlutur á ferilskránni og hefur verið
stökkpallur inn í svo margt. Eurovision
er þannig að það skiptir svo miklu máli
hvernig maður nýtir tækifærin eftir á,“
segir Greta Salóme að lokum. n
Lagasmíð
læknaði
heimþrána
„Eurovision er í
raun aðalástæðan
fyrir því að ég fékk þetta
Disney-verkefni.
n Greta Salóme er nýkomin heim úr Disney-ævintýri n Eurovision dýrmætt á ferilskránni
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Disney-ævintýri Greta Salóme er
nýkomin heim úr siglingu með Disney Magic
þar sem hún tók þátt aðalsýningunni.
Mörg verkefni Greta
Salóme hefur í nógu að
snúast þessa dagana, en
framundan eru meðal
annars þrettán jóla
tónleikar. MynD SiGtRyGGuR ARi
Augnheilbrigði
Hvarmabólga og þurr augu.
Thealoz inniheldur trehalósa sem er
náttúrulegt efni sem finnst í mörgum
jurtum og dýrum sem lifa í mjög þurru
umhverfi. Trehalósi eykur viðnám
þekjufrumna hornhimnunnar gegn
þurrki.
Fæst í öllum helstu apótekum.
Thealoz dropar
Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna hornhimnunnar gegn
þurrki. Droparnir eru án rotvarnarefna og má nota með linsum.
Blephagel gel
Blephagel er dauðhreinsað gel án rotvarnarefna, ilmefna og
alkóhóls. Gelið vinnur vel á hvarmabólgu, veitir raka og mýkir
augnlokin. Það er hvorki feitt né klístrað.
Blephaclean blautklútar
Blephaclean eru dauðhreinsaðir blautklútar án rotvarnar- og
ilmefna sem vinna vel á hvarmabólgu. Hjálpa við hjöðnun á
þrota í kringum augun.